Alþýðublaðið - 11.02.1949, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 11.02.1949, Blaðsíða 7
Föstudag'ur 11. febrúar 1949. ALÞYÐUBLAÐIÐ Félagslíf Ármenningar Skíða'ferðir í Jósefs- dal um helgina á laugardag kl. 2 og kl. 7 og á sunnudagsmorgun kl. 9. Skíðadeild Ármanns. Skíðaferðir í Skíðaskálann. Frá Austurvelli. 7^,-ub ) Laugardag kl. 2..TÍ1 baka kl. 6 eða síðar eft- ir samkomulagi. Ætlast or til að þeir sem gista í skálanum notfæri sér þessa ferð. Sunnudag kl. 9. Farmiðar hjá Miiller. Frá Litlu Bílastöð inni. Sunnudag kl. 9. Farmið- ar til kl. 4 á laugardag. Selt við bílana ef eitthvað verður óselt. Skíðafélag Reykjavíkur. Skíðaráð Reykjavíkur. SKEMMTIFUNDUR í Mjólkurstöðinni sunnudag- inn 13. þ. m. kl. 9 s. d. Skemmtiatriði og dans. Allt íþróttafólk vélkomið. Nefndin. Reykjavíkurstúkufundur verður í kvöld. Hefst hann kl. 8,30. Jón Árnason talar. Gestir eru velkomnir. Fínn og grófur skelja- sandur. — Möh Guðmundnr Magnússon. Kirkfivegi 16, Hafnarfirði. — Sími 9199, • r Velddy 250 ÖÖÖ lest* ár. ÞJÓÐVERJAR gera nú út 180 togara, og eru 46 þeirra frá Hamborg, 85. frá Bremer- haven og 49 frá Cuzlhaven. Þetta eru þó svo að segja ein- göngu gömul og fúrelt skip, sem erfitt er að senda til veiða við ísland og Norður-Noreg. Enn fremur er. kostnaður við útgerðina að verða svo mikill, að útgerð. skipanna er erfiðleik um bundin, að því er Fishing News skýrir frá. Þýzki togaraflotinn veiddi 1947 210 000 lestir fiskjar, og á síðastliðnu ári 250 000 lest- ir. Búizt er við, að fiskimark- aður verði engu minni á Þýzkalandi 1949 en undanfar- in ár. Þess ber þó að gæta, að síðan fjármálaumhæturn- ar voru frambvæmdar á Vest ur-Þýzkalandi hefur verðlag jafnazt mikið, og verður nú að tryggja lægra iv-erð, t. d. á frystum fiski, til að markað- Fjölbreytt kvöld- í bæjarbíö FJÖLBREYTT KVÖLDVAKA verður síðasta opinbera atriðið í afmælisliátíð , Ármenninga, sem ^taðið hefur yfir undanfar- ið. Kvöldvakan verður í Austur- bæjarbíói í kvöld kl. 9, og verð- ur forseti íslands á meðal gesta, en auk hans ráðherrar, erlendir sendifulltrúar og bæjarráð. Helgi Hjörvar verður kynnir á skemmtun þessari, en skemmtiatriðin verða tólf og er f jölbreytnin mikil. Gunnar Thoroddsen flytur ávarp, spænskir og rússneskir þjóð- dansar verða sýndir undir stjórn Sigríðar Valgeirsdóttur, Halldór Hansen flytur erindi, Sif Þórs og Sigríður Árm|ann dansa pólskan marzurka og tvídans, glíma verður sýnd og kvartett- inn Leikbræður syngur. Seinni hluti skemmtunarinnar hefst á þjóðdönsum, þá verður erindi um Svíþjóðarför Ármanns 1932, og flytur það Þorsteinn Einars- son íþróttafulltrúi, Hawaii- kvartett leikur og Edda Skag- field syngur með, Hawaiidans verður sýndur, kvikmynd úr Finnlandsför Ármenninga verð- ur sýnd og að lokum sýnir úr- valsflokkur kvenna úr Ármanni fimleika undir stjórn Guðrúnar Nielsen. Ármenningarnir ljúka svo þessum 60 ára afmælishátíða- höldum sínum með hófi í Sjálf- stæðishúsinu á laugardag, en þar verða aðallega félagsmenn auk margra gesta. Mikíll átiugi fyrir slysavörnum hjá deiidum útí á landi FÉLAGSDEILDIR. SLYSA- VAKNAFÉLAGS ÍSLANt>S úti um land hafa haldið aðalfundi sína að undanförnu, og er mikill áhugi ríkjandi meðal félags- manna um að styðja og styrkja slysavarnastarfsemina eftir bezíu getu. Margar nýjar deild- ir hafa verið stofnaðar eins og áður hefur verið sagt frá, nýju lífi hleypt í aðrar deildir og fé- iögum fjölgaö. Nýlega var stofnuð ný slysa- varnadeild, Vinarbandið, í Haukadal í Dýrafirði með 110 félögum; nær hún yfir allan vesturhluta Dýrafjarðar og til yztu bæja í norðanverðum Arn- arfirði. Deildin var stofnuð fyr- ir forgöngu Ottós Þorvaldsson-, ar, vitavarðar á Svalvogsvita, en þar hefur Slysavarnafélag ís- lands nú sett upp nýja björ'g.un- arstöð. Formaður deildarinnar var kjörinn Ragnar Guðmunds- son, Hrafnabjörgum í Arnar- firði. Þá hefur nýlega verið stofn- uð slysavarnadeild í Þykkvabæ í Rangárvallasýslu með 193 fé- lögum. Er deildin nefnd Eining- in. Stjórn deildarinnar skipa Felix Gestsson, Dagbjört Gjsla- dóttir, Guðjóna E. Friðriks- dóttir. Félögum í Slysavarna- deildinni Gleym mér ei í Ása- hreppi hefur mikið fjöglað. KVENNADEILDIR ATHAFNAMIKLAR Kvennadeildir Slysavarnafé- lags íslands í Vestmannaeyjum, á Akranesi og í Hafnarfirði héldu aðalfundi sína fyrir skömmu og hafa sent félaginu Minningarorð M Ólafía Kr. Magn- í DAG verður til moldar borin frá Hallgrímskirkju frú Ólafía Kr. Magnúsdóttir, Kára, stíg 9 A, er andaðist að sjúkra_ deild Elliheimilisms 5. þessa mánaðar. Ólafía var 70 ára að aldri, fædd 24. ágúst 1878. Hún var gift Bjarnleifi Jónssyni skó- smiði, og eignuðust þau tólf börn. Aðeins sex þeirra cru nú á lífi. Frú Ólafía var sérlega vel látin af öllum, er hana þekktu. Hún var áhugasöm um menn. ipgar. og þjóðfélagsmál. Um fjörutíu ára skeið starfaði hún ötullega í Góðtemplarareglunni og hafði öll stig reglunnar. Einnig var frú Ólafía virkur fé- lagi í Kvenfélagi Alþýðuflokks- ins í Reykjavík. S. I. Ein umierð eftir í meislaraflekki skákþingsins. EIN UMFERÐ er nú eftir í meistaraflokki skákþingsins, og er staðan þannig, að Egg- ert Gilfer befur 5% vinning og Baldur Möller 5. Síðasta umferðin verður teflcL í kvöld. í a-riðli varð efstur Ásgeir Þ. Ásgeirsson með 6V2 vinn- ing, en í b-riðli Samúel Jóns- son með 514. Þeir fara nú upp í 1. flokk, en þar er að þessu sinni aðeins lokið einni um- ferð. Skúli Bogason héraðs r læknir í Arósum Einkaskeyti til Alþýðubl. KHÖFN í gærkveldi. SKÚLI BOGASON, héraðs. læknir í Árósum, lézt á sjúkra- húsi þar í borg síðastliðinn sunnudag, 67 ára gamall. Hann fæddist í Kirkjubæ á Rangár. völlum, tók læknispróf 1916 og varð héraðslæknir í Árósum 1940. Miklum lofsorðum hefur verið farið um starf hans í Ár_ ósum. er |§jp|||^^ Innile|ga|r þcjkkir fyrir jaiuðsýnda vinsfemd við andlát og jarðarför iniannsin's míns, Steina Helgasonar. Fyrir mína 'hönd og annara vandamanna. Unnur Guðjónsdóttir. Framh. af 5. síðu. sjómenn mjög misjafnir um þetta sem annað •— og í þriðja lagi á sér stað í öllum stéttum meira og minna sóðalegt orð. bragð. Það er og á allra vitorði, að meðal sjómanna og manna af flesturn stéttum fara fram orða. skýrslur sínar og tillög. Saman- lagðar tekjur kvennadeildarinn- ar í Vestmannaeyjum námu kr. 17 615,70; tekjur kvennadeild- arinnar á Akranesi námu kr. 14 406,93, og tekjur kvenna- deildarinhar í Hafnarfirði námu kr. 18 924 31. Stjórnir deild- anna voru allar endurkosnar. Formenn kvennadeildanna eru: í Vestmannaeyjum -frú Sigríður Magnúsdóttir, á Akranesi frú Vilborg Þjóðbjarnardóttir og í Hafnarfirði frú Rannveig Vig- fúsdóttir. skipti, sem enginn vilL gerast til að stæla nákvæmlega í riti, og verður það þá eftir eðli, smekk. vísi og lagi hvers höfundar, hve nærri hann fer eða kemst því raunverulega í lýsingum á slík. um orðræðumi. Mannlýsingarn- ar í þessari sögu eru ekki svo skarplegar og sérstæðar, að á sjómennina, sem þar koma fram, verði litið almennt öðru vísi en sem eins konar fulltrúa ungra og einhleypra sjómanna. Ég veit ekki um sjómennsku eða sjómannakynni höfundar þessarar sögu, en sjálfur hef ég lengst minnar ævi umgengizt sjómenn daglega, ýmist á sjó, í verbúðum, á götunni eða í heimahúsum. Og það fullyrði ég, að sú hugmynd, sem þessi saga gefur um orðaval þeirra, áhugamál og siðferði er alröng. Þeir nota ekki alltaf brákað mál eða grófgert, eru eltki alltaf að blóta eða klæmast. Þeir drekka sig ekki fulla hvenær sem þeir geta því við komið, og eru ekki sífellt á kvennafari, annaðhvort í orði eða á borði, svo sem þeir félagarnir í bragg. anum hjá Ingvari útgerðar. manni. Og kynduglega kemur mér það . fyrir sjónir, hvernig formaður og aðrir félagar Geira bregðast við, þá er hann bjarg_ ar Jonna! Hvað skyldi mörgum mönnum á íslenzka flotanum hafa verið bjargað frá drukkn. un á seinustu tveimur áratug. urn einmitt á þann hátt, að ilug_ syntur maður hefur fleygt sér útbyrðis og aðstoðað lítt eða ekki syntan félaga sinn, unz bátinn eða skipið hefur borið að? Fréttir af-slíkum atburðum fara síður en svo alltaf lands. hornanna á milli. Eins og í skáldsögum, sem bókaútgáfur ofsatrúarmanna erlendis gefa út, er í sögu þessari dyggðugur og heilagur trúboði, félagi Gunnar — úrklippa, sem höf_ undur hefur límt inn í lesmálið á nokkrum stöðum — eða má_ ske frekar plata, sem hann ,,spilar“ stöku sinnum m'eð mikl um hátíðasvip. Auðsætt er af sögunni, að höfundurinn er nauða skilningslaus á allt það, er félagsmálum er viðkomandi, er einn af þeim, sem láta sér nægja að hengja á sig einhvern voltakross, sem tryggi heilsu hans, án þess að hann þurfi að leiða hugann að slíkum málum sjálfur, geti lifað jafn andvara. laus og sbopna. Hjá Ása í Bæ er voltakrossinn hamar og sigð. Svo neyðarlega og hlálega ferst honum stundum, þá er hann vill þjóna Herra sínum af sem mest_ um trúskap, að lengra yrði ekki komizt í skopleik, sem hefði að háði og spotti hann og önnur slík ginningafífl. Á einum stað segir sögumaðurinn í Breytileg átt: , Það var aðallega skrafað um það, sem framundan væri í bar áttu sjómanna, en síðan um heimsviðburði síðustu daga. Þegar talið harst að negraof- sóknunum .í . Bandaríkjunum (einn af heimsviðburðum síð. ustu daga!! G. G. H.), varð konan svo æst. að kaffiboilinn skalf í hendi hennar“. (Letur- breyting' mín. G. G. H.). Þá er það og í samra?mi við þroska og smekkvísi höfundar, að þeir útgerðarmenn, sem fram koma í sögunni eða á er drepið, eru svikarar, dónar, fyllisvín — eða hreinir og bein ir manndráparar! Athugið t. d. orðalagið á blaðsíðu 143. Þar nægir ekki sögumanninum að segja, að ístrubelgirnir og blóð sugurnar sitja á rassinum og hirði ■ arðinn, heldur verður hann af svo sem ómótstæði- legri eðlishvöt að grípa til orðs. sem er verulega daunillí! Ég býst við, að ýmsum þyki þessi bók hressileg, því menn blekkjast hér oft á grófgerðum rataskáp og halda, að þar sé á ferðinni fjör og þróttur og' nátt úrleg lífsgleði. En víst er samt uni það, að höfundi er gefin allveigamikil frásagnargáfa — og stundum tekst honum að skrá lýsingar, sam'töl og hugs- anir af fegurðar- og þokka- ríkri ljóðrænni stílgáfu, þó að sums staðar gæti þar raunar fyrirmynda. Þeir umboðsmenn hinna gerzku, sem hafa það hlutverk að grafa undan rótum vestrænnar menningar. feyja þær — og veikja þannig and stöðuþrótt þjóðanna gegn alslav ismanum rússneska, hafa náð að blinda og blekkja þennan höfund' og rugla dómgreind hans. Að öðrum þræði vegna hinna alls elcki venjulegu gáfna hans, skrifa ég ýtarlega um bók þessa, en að hinum fyrir þær sakir, að það hirðu- og virð ingarleysi fyrir íslenzkri tungu og menningu, sem bókin og aðrar slíkar eru talandi vottur um, spáir illu einu fyrir varnar mætti okkar íslendinga gegn þeirri hættu. sem okkur stafar af erlendum flugumönnum —■ og af sívaxandi, en óhjákvæmi legum samskiptum okkar við stórþjóðir veraldar. Það er sannarlega mjög alvar legt ástand, þegar svo er kom- ið, að sumar stsérstu bókaútgáf ur landsins bjóða islenzkum ies endurn upp á bækur. sfm vitna úm slíkt tómlóeti gagn- vart íslenzkri tungu og' menn- ingu, að trúlega mætti itelja þær frá einungis viðskiptalegu sjónarmiði svikna vöru. Guðm. Gíslason Hagalín. Framh- af 1. síðu. við Austurríki stranda, eins og allar fyrri. Sem kunnugt er hafa Rússar leyfi til að hafa her bæði í Rú- meníu og Ungverjalandi, með- an þeir halda nokkrum hluta Austurríkis hersetnum; og eru þeir meðal annars af þessum á- stæðum grunaðir um að kæra sig' ekkort um að flýta friðar- samningum við Austurríki, sem þeir myndu þá verða að rýma, svo og bæði Ungverjaland"og Rúmeníu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.