Alþýðublaðið - 24.02.1949, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 24. febrúar 1949.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
í DAG er fimmtudagurinn
24. febrúar. Þennan dag fædd-
ist Sveinbjörn Egilsson málíræð
ingur. árið. 1791, Wilhelm
Grimm. þýzkur ævintýra og
þjóosagnasafnari, árið 1786, og
Johan C. Dalil, norskur málarL
1863. Sama dag létust J. Gut.
enberg, sá, sem fann Upp prent.
listina, árið 1468, Robert Ful-
ton, sá sem setti fyrstur gufu-
vél í skip, árið 1814, og B. S.
Ingemann, danskt skáld, árið
1862. Úr Alþýðublaðinu fyrir
19 árum: „Mikil fannkoma hef
ur verið í Appennínafjöllum á
Ítalíu og hefur valdið miklum
skriðulilaupum ,og .hafa. 21
manns farizt í þeim skriðuhlaup
um, en 4 slasazt."
Sólarupprás var kl. 7,53. Sól
erlag verður kl. 17,29. Árdegis
háflæður er kl. 3,25. Síðdegis.
háflæður er kl. 15,45. Sól er í
hádegisstað í Reykjavík kl.
12,41.
Næturvarzla: Laugavegsapó.
tek, sími 1618.
Nætturakstur: Bifreiðastöð
Hreyfils, sími 6633. .
Veðrið í gær
Kl. 14 í gær var yfirleitt suð
yestan og vestan gola eða stinn
ingskaldi um allt land, og él
yíðast hvar nema á Austfjörð-
um og Suðausturlandi. Frost
var frá 0 og niður og 6 stig.
Tveg'gja stiga frost í Reykjavík.
Fíygferðir
'AOA: í Keflavík kl. 20—21 í
kvöld frá Helsingfors, Stokk
hólmi og Kaupmannahöfn
til Gander, Boston og New
York.
AOA: í Keflavík kl. 6—7 í
fyrramálið frá New York,
Boston og Gander til Óslóar,,
Stokkhólms og Helsingfors.
Skipafréttir
Foldin er í Reykjavík. Linge-
Btroom er á förum frá Hull til
Reykjavíkur. Reykjanes kom til
Grikklands á þriðjudag.
Esja fór frá Reykjavík kl. 22
i .gærkvcldi austur um land í
hringferð. Hekla er í Álaborg.
Herðubreið er í Reykjavík.
Skjaldbreið fór frá Reykjavík
til Vestmannaeyja kl. 22 í gær-
kvöldi.. Súðin kom til Genúa
síðdégisíi gær. Þyrill var í Ár.
osum í gær. Hermóður er í
Reykjavík.
Brúarfoss kom til Reykjavík-
ur 22. þ, m. frá Leith. Dettifoss
kom til Reykjavíkur 17. Fjall.
foss fór frá Halifax 22. þ. m. til
Reykjavíkur. Goðafoss fór frá
Huíl 21. til Eskifjarðar, Vest.
manriaéyjá og Reyjíjavíkur.
Lagarfoss fer frá Reykjavík 25.
til Leith og Kaupmannahiafnar.
Reykjafoss fór frá Hull 20. til
Reykjavkur. Selfoss fór frá
Húsavík 18. til Antwerpen.
Tröllafoss fór frá Reykjavík 16.
til Haiifax. Horsa fer frá Flat-
eyri síðdegis í dag til Húnaflóa-
hafna. Vatnajökull er á Reyðar.
firði, Katla fór frá Reykjavík
13. þ. m. til New York.
Fondir
Aðalfundur Iðnaðarmannafé-
lagsins í Hafnarfirði verður
haldinn í kvöld kl. 8,30.
Kristilegt ungmennafélag í
!■■■■■■■■■■■■■■■■■•!■■■•■■■■■■■■■■■■■■
Hallgrímssókn heldur aðalfund
sinn í húsi Guðspekifélagsins,
Ingólfsstræti 22, í kvöld kl. 8,30
stundvíslega. Auk venjulegra
aðalfundarstarfa verður ræða,
upplestur, söngur og kvikmynd
in ,,Guð er kærleikur". Ferm-
ingarbörn undanfarin ár eru
sérstaklega velkomin.
Blöð og tímarit
Heilbrigt líf, 3. og 4. hefti 8.
árgangs, hefur blaðinu borizt.
Greinar eru meðal annars:
Brjóstamein í konum og lækn-
ingar við þeim, eftir Guðmund
Thoroddsen, Skarlatssótt, eftir
Jóhann Þorkelsson, Bæjar.
spítali í Reykjavík, eftir Pál
Sigurðsson, og ýmsar fleiri
greinar.
Bjarmi, 3. tbl. 43. árgangs, er
kominn út. Á forsíðu er grein,
er nefnist Sendiboði drottins.
Söfn og sýningar
Málverkasýning Kjarvals í
Listamannaskálanum. Opin kl.
11—23.
Skopmyndasýning Freyju.
götu 42: Opin kl. 14—23.
Þjóðminjasafnið: Opið kl. 13
—15.
Náttúrugripasafnið: Opið kl.
13,30—15.
Skemmtanir
KVIKMYND AHÚS:
Gamla Bíó (sími 1475): —
„Þrír piparsveinar“ (amerísk).
Margaret O’Brien, Lionel Barry
more, Lewis Stone, Edward
Arnold. Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Nýja Bíó (sími 1544): .■—
„Látum drottinn 'dæma“ (ame.
rísk). Gene Tierney, Cornel
Wild, Jeanne Crain. Sýnd kl.
5 og 9.
Austurbæjarbíó (sími 1384):
„Eiginkona að láni“ (amerísk).
Claudette Colbert, Don Ameehe.
Richard Foran. Sýnd kl. 9. —
„Helgríman“ (frönsk). Sýnd kl.
5 og 7.
Tjarnarbíó (sími 6485): •—
,Ævintýrabrúðurin“ (amerískj.
Oliva^ De Haviland, Ray Milland,
Sonny Tufts. Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Tripolibíó (sími 1182); —
„Ifundaheppni" (amerísk). Ca.
role Landis, Allys Joslyn, Mar-
go Woods; Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Hafoarbíó (sími 6444): —
,,Ástalíf“ (frönsk). Constant
Rémy, Pierre Larquey, Alice
Tissot. Sýnd kl. 5 og 9.
Bæjarbíó, Hafnarfirði (sími
9184). Leikfélag Hafnarfjarðar
sýnir ,,Gasljós“ kl. 8,30.
Hafnarfjarðarbíó (sími 9249):
„Blika á lofti" (amerísk). Ing-
rid Bergman, Robert Montgo.
rruery, George Sanders. Sýnd
kl. 5 7 o.g 9.
LEIKHÚS:
Meðan við bíðum, frumsýning
í kvöld kl. 8 í lonó. Fjalaköttur-
inn.
S AMKOMUHÚS:
Breiðfirðingabúð: Kaffikvöld
kvennadeildar Breiðfirðingafé-
lagsinsdsl. 8 síðd.
Hótel Borg: Danshljómsveit
leikur frá kl. 9—11,30 síðd.
Ingólfscafé: Hljósmvejt húss
ins leikur frá kl. 9 síðd.
Sjálfstæðishúsið: Kaffikvöld
hjá Sambandi ungra Sjálfstæð-
ismanna.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•
CJtvarpið
20.20 Útvarpshljómsveitin.
20.45 Lestur fornrita: Úr Forn
aldarsögum Norðurlanda
(Andrés Björnsson).
21.10 Tónleikar (plötur).
21.15 Dagskrá Kvenfélagasam
bands íslands.Erindi:
Fjölskyldulíf og heimil
isstörf (frú Soffía 'Ingv.
arsdóttir).
21.40 Tónleikar (plötur).
21.45 Spurningar og svör um
íslenzkt mál (Bjarni Vil
hjálmsson).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.05 Passíusálmar.
22.15 Symfónískir tónleikar
(plötur).
23.15 Dagskrárlok.
Úr öllum áttum
Ungbarnavernd Líknar,
Templarasundi 3, verður fram
vegis opin þriðjudaga og föstu
daga kl. 3,15 til 4 síðd.
Jón frá Hvoli. f erindunum
um Jón frá Hvoli, sem birtust
í blaðinu í gær, höfðu þau mis
tök orðið, að fyrsta ljóðlínan í
fyrsta erindi féll niður. Erindið
átti að vera svona:
Jón frá Hvoli á helveg hniginn,
heilsu og manndóms brotin
vígin
eftir langan liðinn dag. —
Yfir stigin ellin þunga
er, og spakmálg hljóðnuð tunga.
Sérhver ævi á sólarlag. —
Fjáröflunarnefnd barnaspít.
sjóðs Kvenfélagsins „Hringur-
inn“ þakkar hérmeð fyrir
skemmtanir þær, sem skólastjór
ar, kennarar og börn úr barna
skólunum héldu nýlega til
ágóða fyrir barnaspítalasjóð-
inn. Enn fremur þökkum við
frú Rigmor Hanson og nemend
um hennar og öllum öðrum,
sem á einn eða annan hátt að.
stoðuðu við þessar barna-
skemmtanir.
Vegna þess að frú Fjóla St.
Fjeldsted, hafði mælt svo fyrir,
að ekki skyldu Iátin blóm á
kistu hennar, hafa nokkrir vin
ir henn'ar gengizt fyrir því, að
þeir, sem víldu minnast henn.
ar, gætu látið framlag sitt
renna í sérstaban sjóð, er síð
ar verði varið til kaupa á her-
bergjúm í Hallveigarstöðum,
er bæru nafn hennar, og yröi
til afnota fyrir stúlkur, sem
stunda " húsmæðrakennaranám.
Tekið verður á móti minningar
gjöfum . í blómaverzluninni
Fíóru, í happdrættisskrifstofu
Marénar Péfursdóttur. Lauga-
vegi 6 og í verzlun Guðbjargar
Bergþórsdóttur, Öldugötu 29.
Kvenfélag Fríkirkjusafnaðar-
ins heldur bazar sinn í G.-T,-
húsinu uppi á morgun kl. 2. —-
Safnaðarfólk og að'rir ýelunnar.
ar félagsiris eru góðfúslega
beðnir að senda g.jafir sínar til
Ingibjargar Steingrímsdóttur,
fr.úar, Vesturgötu 46 A, íngi.
bjargar ísaksdóttur, frúar, Vest.
urvallagötu 6, Elínar Þorkels-
dóttur, frúar, Freyjugötu 46. og
Bixyndísar Þórarinsdóttur, frú.
ar, Garðastræti 36.
Ingvar Björnsson frá Brún
lézt í sjúkrahúsi Akureyrar 21.
Málverkasýning Kjarvals
Þetta er eitt af málverkunum á sýningu Kjarvals í listamanna.
skálanum. Það heitir „Sólbað og þrældómur“.
MIKILL LISTAMADUR
ÞAÐ er óvenjulega ánægju
legt að skoða listsýningu J.
Kjarvals í Listamannaskálan.
um, — jafnvel þótt sá, sem skoð
ar, sé útlendingur.
ISkíðamót Ármanns
var háð um helgina.
Þar stendur maður andspæn
is verkum manns, sem hiklaust
verðui' talinn í hópi stórbrotn-
ustu listamanna. Margar þessar
myndir eru þrungnar sterkri
áhrifaorku, sem á köflum minn
ir mann á hrifmátt verka eftir
Munch, hinn mikla norska
meistara. Eðlislögmál myndlist
arinnar eru Kjarval vel kunn;
næmleikinn í meðhöndlun efnis
og samstillingu lita. ber þyí
ljóst vitni. að þar ,er að verki
listamraður, sem hefur öll blæ
brigði þeirrar listar á valdi
sínu, jafnt þau, sem túlka ang
urblíðu draumsins og hamremi
tröllaukinna áhrifa. Þessi sýn-
ing þyrfti að fara sem víðast.
Hver einasti listunnandi auðg.
ast og styrkist við að njóta
hennar. Kjarval er ekki aðeins
einn stórbrotnasti máiari Is-
lands, heldur og á Norðurlönd
um. Á þessum umróts. og bylt
ing atímum, — - eir xiiig á sviði
lisi arina, — sý nir h ann og sann
ar, að það, sem. allt vel :ur á>
er hæfiieikinn til þ. ess að ilusta
í auðmýkt á æðé islög 1 ífsins.
Kj arval er en n, þr átt fýr ir aid
ur og þroska, auo mjúkui leit_
andii. En>gu að síðu r getur hánn
éin Ö 6\ ænt á leik
me ð glettni c g ga lsa, ei is og
SUI nar myndir hahs •þarna 'sýna.
Þö er grunn :ónn verka hans
áv allt hinn s ami, — dji iþ ög
ah 'öruþrungin kö llun r nálar-
an s. Allir. serr list unna s taiida
við hann í þakkarskuld.
þ. m. Gámlír námsfélagar hans
hafa ákveðið að gangast fyrir,
íjársöfnun .til minningar um
.hann, er afhendist S.B.I.S. * til
umráða. Állir vinir og kunri-
ingjar Ingvars Björnssonar, sem
óska að vera þátttakendur í
fjársöfnun þessari, geta sent
framíög' sín í þóstávísun eða'á
anpan.hátt tii Jónasar Haralz,
skrifstofu fjárhagsráðs, Reykja.
vík.
AFMÆ/LISMÓT Ánnanns,
sem fresta varð á dögunum
vegna óveðurs fór fram í
Jósefsdal á sunnudaginn. Var
keppt í svigi í öllum flokkum,
sem til stóð að keppt væri í
nema drengjaflokki, þar eð að
eins ein sveit rnætti tii leiks
í jþeim flokki. Ármann vann
í cillum flokkum nema A-
flokld karla, þar bar ÍR sigur
úr býtum.
Úralit í einstökum flokkum
urðu sem hér segir:
A-flokkur karla:
1. Sveit I.R. með saman-
lagðan tírria keppenda 319,5
ssk. og átti 4., 6., 7. og 9 mann.
2. Sveit Ármanns 356.1 sek.
og átti 2. 3. 5 og 11. mann. .
Sveit KR. kom ekki til úr
I silita, þar eð einn kepþ'andinn
féll úr leik.
B-flokkur karla:
1. Sveit Ármanns 545.5 sek.
Átti 2. 6. 7. 8 og 9. mann.
^ 2. Sveit ÍR. með 555.6 sek.
Átti 1. 5. 6. 7. og 11. mann.
3. Sveit Kli 591,4 sek'. Átti
j 3. 4. 9 og 12. mann.
j C-flokkur karla:
i 1. Sveit Ái-manns 566.6 sek.
Átti 1. 2. 3. og 9. mann.
' 2. Sveit íll 7.14.8 sek. Áttí
13. mann.
KR 776.1., sek. Átti
5. 8. 15. og 1&, mann.
I A 0 .^:4. Troln QC.K 7 AWÍ
4. bv 3it VcUS oOD./^SeK. /ittl
[ 5, 8. 15.; og 16. mann.
j Kvennaflokkur:
I 1. Sveit Ármanns 272.0 sé'k.
j Atti 1. 3. 4. og 7. m-ann.
j 2. Sveit ÍR 361.9 sek. Áfti
2. 6. 9. og 10. mann.
I 3. Sveit KR 500.2 sek. Áií.i
; 5. 8. 11. og 12. mann.
I Keppt, var um bikarverð-
|
laun i öllum flokkum, er unn
ust til eignar. Þá fengu og
! þálttakendur sigursveitanna
' verðlaunapeninga.