Alþýðublaðið - 28.05.1949, Page 4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Laugardagur 28. maí 1849.
ÍTtgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Ritstjóri: Stefán Pjetursson.
Fréttastjóri: Benedikt Gröndal.
Þingfréttir: Helgi Sæmunðsson.
Ritstjórnarsímar: 4901, 4902.
Auglýsingar: Emilía Möller.
Auglýsingasimi: 4906.
Afgreiðslusími: 4900.
Aðsetur; Alþýðuhúsið.
Alþýðuprentsmiðjan hX
r
Ovænfur áhugi í
húsnæiismálunum
MORGUNBLAÐIÐ er í
meira Iagi seinheppið í mál-
efnavali fyrir næstu bæjar-
stjórnarkosningar í Reykjavík.
Nú, rúmlega missiri fyrir
kosningar, reynir það að gefa
í skyn, að Sjálfstæðisflokkur-
inn hafi öllum öðrum meiri á-
huga á lausn húsnæðisvand-
ræðanna og hafi afrekað svo
mikið í því sambandi, að æv-
intýri sé líkast. Blaðið reynir
að slá Gunnar Thoroddsen til
riddara sem hinn mikla vel-
gerðamann hinna húsnæðis-
Iausu og ber í því sambandi á
Sjálfstæðisflokkinn oflof, sem
er í raun og veru argasta háð.
Þessi tilraun Morgunblaðs-
ins er fyrirfram dæmd til að
misheppnast. Afskipti núver-
andi bæjárstjórnarmeirihluta
af húsnæðismálunum í Reykja-
vík eru sannarlega ekki með
þeim hætti, að ástæða sé til
að miklast af. Verkin sýna
mérkin, og þeim verður ekki
breytt með orðaskvaldri og
fagurgala.
❖ \
Fyrsta afrek Sjálfstæðis-
flokksins í húsnæðismálum
Reykvíkinga var bygging
Pólanna sællar minningar. Sú
framkvæmd var sannarlega
ekki til að stæra sig af, en eigi
að síður hafði hún kostað langa
og stranga baráttu. Alþýðu-
flokkurinn hafði árum saman
krafizt þess, að bæjarfélagið
sýndi einhvern vilja á því að
láta þessi mál til sín taka, og
Pólarnir voru úrlausn bæjar-
stjórnaríhaldsins, þegar hún
loksins kom. Síðan var bar-
áttunni haldið áfram, og Sjálf-
stæðisflokkurinn neyddist
smám saman til að fallast á
þær kröfur, sem Alþýðuflokk-
urinn bar fram í umboði fólks-
ins, en dró úr hverri hugmynd
í framkvæmd eins og hann
frekast þorði. Jafnvel það, sem
gert hefur verið í húsnæðis-
málum Reykvíkinga á stríðs-
árunum, er langt frá því að
vera nægilegt eins og húsnæð-
isbölið sýnir bezt. Byggingar
bæjarfélagsins hafa í fyrsta
lagi verið allt of fáar og í öðru
Iagi allt of dýrar. Ástæðan er
að verulegu leyti sú, að bæjar-
stjórnarmeirihlutinn gekk að
þessu verki nauðugur og með
hangandi hendi.
En nú segir Morgunblaðið,
að Sjálfstæðisflokkurinn ætli
að beita sér fyrir því, að
kyggðar verði ódýrar íbúðir í
Reykjavík og bætir því við, að
stefna flokksins sé sú, að ein-
staklingar, bær og ríki byggi í
sameiningu. Áður hefur blaðið
haldið því fram, að einstak-
lingsframtakið væri fullfært
um að rækja þetta hlutverk.
Væri betur, ef satt reyndist, að
Sjálfstæðisflokkurinn væri að
vakna til vitundar um, hvað
gera þurfi til lausnar á hús-
næðisvandræðunum í höfuð-
Kaupum fuskut
BaWursgötu 30
Sýning fríslundamálara. — Ferðalög Heklu til
Skotlands. — Mikil aðsókn. — Kvartað yfir
fjóskofa.
ÞAÐ ER GAMAN að heim-
sækja sýningar frístundamálar-
anna að Laugavegi 166. Eist-
iðkun þeirra er vottur um það,
að ekki eyða allir tómstundum
sínum í fánýti. Og það hygg ég
að upp ur jarðvegi þeim, sem
þessir menn eru að skapa muni
vaxa mikill og almennur áhugi
fyrir list — og góðir listamenn.
VITANLEGA VERÐUR
MAÐUR mjög áberandi var við
það, að þarna eru viðvaningar
að verki, enda er það ekki til-
tökumál, en innan um eru verk
sem hver listmálari sem væri
þyrfti ekki að skammast sín
fyrir. Sérstaka athygli mína
vöktu myndir Jóns Bogasonar,
sjómanns í Flatey. Þær eru
mjög vel gerðar, ákaflega sterk-
ar og bera ótvírætt merki um
mikla hæfileika.
ÞAÐ FÓR eins og ég spáði,
að fólk myndi fagna því mjög
ef Ríkisskip og Ferðaskrifstof-
an efndu til sumarleyfisferða
til annarra landa. Nú þegar
munu í þann veginn að vera
pöntuð öll pláss í ferðum Heklu
til Skotlands — og munu færri
fá en vilja. Fyrsta ferðin mun
standa í 10 daga enda svo, og
verður staðið við í Glasgow í
4 daga. Aðrar ferðir munu
verða styttri eða alls í 8 daga,
og verður þá ekki staðið veð í
Glasgow nema 2 daga, en dag-
arnir verða vel notaðir.
ÉG LAGÐI TIL í fyrra, að
farið yrði í svona för til Norð-
urlanda, en ekki hefur orðið af
því, enda enn vonir um að eitt-
hvað 'af ferðamönnum frá Eng-
landi taki sér far með Heklu,
en hlns vegar mun ekki vera
hægt sem stendur að skipu-
leggja ferðalög frá Norðurlönd-
um hingað — og vitanlega verð-
ur að byggja þessar ferðir á
öruggum fjárhagslegum grund-
velli. En síðar munu svona ferð-
ir verða skipulagðar til Norður-
landa, enda bíða margir eftir
því með óþreyju.
VERKAMAÐUR SKRIFAR:
,,Vegna þess að Alþýðublaðið
hefur nú umferða viku. Þá
finnst mér tímabært að skrifa
þér nokkrar línur Hannes minn,
og mælast til þess við þig að þú
skorir á fulltrúa slysavarnafé-
lagsins að hann taki sér ferð á
hendur á gatnamót Þverholts,
stakkholts og Stórholts, og hlut-
ist til um að kofaskrifli nokk-
urt, sem þar stendur og einu
sinni var fjós, en er nú aðeins
klakstöð fyrir rotturnar, verði
fjarlægt hið fyrsta. Því að þetta
fyrrverandi fjós er bráðhættu-
legt allri umferð þarna.
ÞAÐ MYNDAR hlint horn,
þegar ekið er niður Stórholtið
og munaði oft mjóy í vetur
þegar snjór og hálka skiptust á,
að þarna yrðu slys. Auk þess
væri ekki úr vegi að einhver
úr forustuliði fegrunarfélagsins
yrði með í þessari för, því að
auk slysahættunnar, sem stafar
af kofaræfli þessum, þá er hann
meira en ljótur. Ég orðlengi
þetta ekki frekar, en vona að
þú komir þessu til lei,ar.“
Hannes á horninu.
♦ ..........
Sýningin í Höfn
Framh. af 3. síðu.
„Ég tel það ekki einskisvert,
að íslendingum skuli gefast
þess kostur að koma fram sem
jafningjar erlendra og fjöl-j
mennari þjóða á slíkum vett- j
vangi sem þessum, en til þess
að slíkt megi takast, þarf
nokkurn f járstyrk til þátttöku.!
Hann höfum við haft, en síð-;
asta alþingi mun hafa svipt
okkur honum, og tel ég það illa
farið.“
borginni. En því í ósköpunum
er hann nú fyrst að rumska?
Hann heíur átt þess kost að
sýna áhuga sinn í húsnæðis-
málunum í verki á undanförn-
um áratugum. Það hefur hann
þó ekki gert. En nú kemur á-
huginn allt í einu fram í orð-
um missiri fyrir kosningar.
Er ekki hætta á, að fortíð
Sjálfstæðisflokksins veki þann
grun, að hér kunni máski að
vera um kosningabrellu að
ræða?
Þó tekur út yfir, þegar
Morgunblaðið eignar Sjálf-
stæðisflokknum verkamanna-
bústaðina og löggjöfina um
opinbera aðstoð við byggingu
íbúðarhúsa í bæjum og kaup-
stöðum. Hvort tveggja er jafn
fjarri sanni eins og alþjóð er
kunnugt. Alþýðuflokkurinn
hefur borið bæði þessi mál
fram og unnið að framkvæmd
þeirra. Öllum, sem fylgzt hafa
með stjórnmálaþróuninni hér á
landi eftir fyrri heimsstyrjöld-
ina, er að sjálfsögðu um það
kunnugt, að hér væru engir
verkamannabústaðir, ef Sjálf-
stæðisflokkurinn hefði mátt
ráða. Áhugi hans í sambandi
við verkamannabústaðina birt-
ist í þrálátri mótspyrnu gegn
þeim á sínum tíma, þó að hann
vilji eigna sér þá nú, þegar
enginn vill án þeirra vera eft-
ir að þeir hafa sannað ágæti
sitt í reynd. Og Morgunbiaðið
ætti sem minnst að fjasa um
löggjöf Finns Jónssonar um
! opinbera aðstoð við byggingu
ibúðarhúsa í bæjum og kaup-
stöðum. Afskipti samherja
Morgunblaðsins af því mikils-
verða máli hafa sem sé mun
fremur verið til ills en góðs.
Sjálfstæðisflokkurinn þarf
því ekki að halda, að húsnæð-
ismálin verði honum lyfti-
stöng við næstu bæjarstjórn-
arkosningar. Þau verða honum
þvert á móti til dómsáfellis.
Þess vegna er það í meira lagi
furðulegt, að Morgunblaðið
skuli hefja kosningabaráttuna
með því að gera einmitt þau
að umræðuefni. Hafi skriffinn-
ar þess hugsað sér að þvo
Sjálfstæðisflokkinn hreinan,
er skiljanlegt, að þeir vilji
hafa tímann fyrir sér. En ó-
sköp er seinheppilegt að byrja
kosningabaráttu á því að
minna á sínar stærstu syndir.
í Gray benzínvélar,
eru nú fyrirliggjandi
svo sem:
Sylinder blokkir
Sveifarásar
Head
Stimplar
Stimpilhringir
Stimpilstengur
Stimpillegur
Stimpilboltar
Ventlar
Ventilgormar
Pakkningasett
Head-pakkningar
Gear-kassar
Blöndungar
Benzíndælur
Vatnsdælur
Startarar
Dínamóar
Kveikjur
Kveikjulok
Platínur
Condensar
Cut out.
Gjörið svo vel að
senda pantanir.
BÍLABÚÐIN
Vesturgötu 16
Sími 6765
Stofuskápar
Klæðaskápar
Rúmfataskápar
Kommóður
Stofuborð
Sófaborð, póleruð
Útvarpsborð
Blómaborð
Dívanar
Eldhúsborð
Vegghillur
Verzlun
G. Sigurðsson & Co.,
Grettisgötu 54
Skólavörðustíg 28
Sími 80414
Ura-viðgerðlr.
Fljót og góð afgreiðsla.
Guðl. Gíslason,
Laugavegi 63.
■Sími 81218. Sími 81218.
Pergamentskermar í loft,
á borð- og vegglampa
fyrirliggjandi í miklu úr-
vali.
SKERMABÚÐIN
Laugavegi 15.
ailar stærðir.
Silunganet
allar stærðir.
Murtunet.
Fyrirliggjandi.
V eiðarf æradeildin.
Minningarspjöld
Barnaspítalasjóðs Hringsins
eru afgreidd í
Verzl. Augustu Svendsen.
Aðalstræti 12 og í
Bókabúð Austurbæjar.
Athugið
Myndir og málverk eru
kærkomin vinargjöf og
varanleg heimilisprýði.
Hjá okkur er úrvalið
mest, Daglega eitthvað
nýtt.
RAMMAGERÐIN,
Hafnarstræti 17.
Smurf brauð
og sniífur.
Til í búðinni allan daginn.
Komið og veljið eða símið.
SÍLD & FISKUR.
! Sfarfsstúlka
; óskast
■ í Elliheimili Hafnarfjarðar.
í Upplýsingar hjá forstöðu-
' konunni.
Sími 9281.
! Hafnfirðingar
■ Takið eftir: — Reykhús
: Hafnarfjarðar selur með
■ lægsta verði í bænum
; • eftirtaldar vörur:
: Rauðmagi 18 kr. kg.
■ Harðfisk 12 kr. kg.
j Lúðu 30 kr. kg.
5 Hvalur 10 kr. kg.
i Allt miðað við, að
: keypt sé ekki minna en
; 1 kg. 'í einu.