Alþýðublaðið - 16.06.1949, Síða 7
Fimmtudagur 16. júní 1949.
ALÞYÐUBLAÐIÐ
í GffiR var til moldar borinn
Þorvaldur Ólafsson frá Dýra-
firði. Hann andaðisí eftir stutta
e>ji stranga legu á heimili sínu
í Keflavík á hvítasunnudag
síðastiiðinn.
Þorvaldur var húinn að
liggja að mestu leyti tvo mán-
uði. Sjúkdóm sinn bar hann
með þeirri prýði og stillingu,
sem einkenndi hann alla lífs-
tíð, æðru- og orðalaust, þótt
hann vissi sjálfur vel, hvert
stefndi með hiíin ólæknandi
sjúkdóm.
Þorvaldur var fæddur að
Sveinseyri í Dýrafirði 12. jújaí
1883 og var því hart nær 66
á'ra, er hann Iézt. Foreldrar
hans, Ólafur Jónsson og Krist-
ín Jónsdóttir, bjuggu á Sveins-
eyri, og þar ólst hann upp hjá
þeim alkunnu dugnaðar- og
sæmdarhjónúm, og þar fastnaði
hann sér konu sína og byrj-
aði búskap.
: Árið 1911 giftist hann eftir-
lifandi konu sinni, Andreu
Guðnadóttur frá Haukadal í
Dýrafirði, dugmikilli og at-
orkusamri konu, kominni af
framtaksfólki, eins og hann
sjálfur. Bæði voru þau hión
kömin a£ hinni alkunnu og
stóru Auðkúluætt. Þau hjón
byrjuðu búskap sinn á Sveins-
eyri og bjuggu þar í þrettán ár,
og á þeim tíma eignuðust þau
fimm börn. Þar byrjaði strax
að reyna á dug og harðfengi
þeirra hjóna, því oft var erfitt
að komast áfram á þeim tímum
með stóran barnahóp. Stundaði
Þorvaldur þá sjómennsku jafnt
búskapnum, og sá þá kona
hans úm búið meftan hann var
fjarvistum oft tímum samari á
þilskipum.
Árið 1924 flvtjast þau hjón
til Þingeyrar í Dýrafirði, og
bjuggu þar í sextán ár og þai-
eignuðust þau tvö börn í Við-
bót; alls áttu þau sjö borö, 2
stúlkur og 5 drengi, öll' hin
mannvænlegustu og myndar-
börn, reglusöm og atorkusöm’
svo sem þau höfðu alla tíð fyr-
ír sér séð og upp við alizt.
Á Þingeyri stundaði Þor-
valdur sjómennsku og alla
konar vinnu, sem til féll, enda
þurfti stór barnahópur mikið
— þótt vel væri stjórnað; ; svo
herjuðu líka veikindi á heilsu
þeirra hjóna beggja, en alít
komst vel og klakklaust af,
onda sleppti hvorki hann né
iiún neinu tækifæri til stárfa-,
þegar það bauðst.
Reglusemi, prúðmennsika,
velvirkni og gott skap, ein-
kenndi Þorvald alla tíð svo af
bar öði'um mönnum; og aldrei
fyrr né síðar tók hann svo
verk til vinnu, að ekki bæri
frágangur þess vott um hirðu
og þriínað, hvort sem var til
sjós eða lands.
Árið 1939 flytjast þau svo til
Keílavíkur. Synir og dætur
vorú þá mörg farin til suður-
landsins á -undan þeim, dæt-
urnar giftar í Reykjavík, syn-
irnir við sjómennskustörf í
Keflavík og áðra vinnu. Það
mun hafa dregið þau burt frá
átthögunum, að börnin voru
farin að tínast burt, en þau
viijaö líta eftir hópnum sínum
og annazt hann svo lengi, sem
hægt væri, og fylgjast með at-
höfnum barna sinna, því kær-
leikur til þeirra var mikill,
enda heímilislif afburða gott
og kærleiksríkt. ,
Þess vegna er nú svo sárt
saknað af börnum, maka og
vinum, er frá er fallinn hinn
trausti og ráðholli faðir, fyrir-
myndar heimilisfaðir og ást-
ríkur eiginmaður. Samt léttir
það sorg, að vita hann ánægð-
an með hlutskipti sitt, og vita
að á móti honum hefur verið
tekið sem barni, sem beðið var
eftir í friðsælu föðurhúsi, eins
og hann bjó börnum sínum.
Eg kveð þig, kæri vinur, og
sakna þín eins og svo margir,
sem kynntust þér. Þegar sól og
sumar kom hér, fluttist þú til
enn meiri sólar, til sólarstrand-
arinnar, sem þú þekktir og
vissir um. Þú sem vildir öllum
sól og kærleika, fórst í sól og
kærleika. Þannig' er gott að
fara.
Far þú í íriði, friður guðs þig
blessi. Hafðu þökk fyrir allt og
allt.
Vinur.
Lesið Alþýðublaðið I
Sf
11
fermir í Antwerpen og Rotter-
dani 15.—20. júní.
M.s. „Lagarfoss"
fermir í Leith og Hull 20.—25.
júní.
FSr
fermir í Antwerpen og Rotter-
dam 20.—25. júní.
.1
* VI
11
fermir í Kaupmannahöfn og
Gautaborg 4.—8. júlí.
H.f. Eimskipafélag
Islands.
Félagslíf
Ferðafélag íslands
ráð'gerir að efna til
tveggja skemmtiferða
um næstu helgi.
önnur ferðin er göngu- og
skíðaferð á Tindafjaliajökul
(1462 m.) Ekið austur að Múla-
koti á laugardaginn og gist þar
í tjöldum, en gengið á jökul-
inn snemma á sunnudaginn.
Komið heim á sunnudagskvöld.
Hin ferðin er til Vestmanna-
Það er margt að sjá í Eeyjum.
Hin feröin er til Vestm.eyja.
1948 fjallar um Eyjarnar og er
gott að hafa hana með sér. All-
ar upplýsingar. og farmiðar
jeldir á skrifstofu Kr. Ó. Skag-
fjörðs, Túngötu 5 til hádegis á
laugardag.
Flygla, píanó og harmonik-
ur útvega ég frá stærstu og
frægustu hljóðfæraverk-
smiðjum í Tékkóslóvakíu:
PETROF og FÖRSTER.
Einkaumboð.
Björn Krisijánsson
Reynimel 33. Sími 80210.
3 S S
Frh. af 5. síðu.
hægt er að efla siðbætandi
menningar- og félagslíf, styrki
hana til að auka starfsemi sjó-
mannaheimilisins á Siglufirði.
sem hefur verið svo fjölda-
mörgurn innlendum sem er-
lendum sjómönnum heilla-
drjúgt athvarf, fjarri heimili,
vandamönnum og vinum. Veiti
henni sitt lið til, að í Vest-
mannaeyjum verði sjómönn-
um vomm sem fyrst búið ann-
að slíkt athvarf, og loks leggi
enn einu sinni fram sinn skerf
til ræktunarstarfsins, sem fyr-
ir 10 árum var hafið að Jaðri,
í þeim tilgangi m. a. að gera
Jaðar að eftirsóttum dvalar-
og' hressingarstað Reykvík-
inga, ungra sem gamalla.
E. B.
Lesið Albýöublaðið 1
ngra jainaoar
vatni 18. og 19. júní
Laugardagurinn 18. júní kl. 3-5
Sunnudagurlnn 19. júní kl. 10 f. h,
Lúðrasveitin Svanur leikur.
Setning mótsins; Helgi Sæmundsson varðlörséti S#.J.
Ræða: Vilhelm Ingimundarson, forseti S.U.J.
Ræða: Helgi Hannesson, forseti A.S.Í. rs- V?
Ávörp: Formenn F.U.J.-félagana.
Lúðrasveitin Svanur leikur.
Handknattleikur: Sunnlendingar og norðlendingar.
Fótknattíeikur: Sunnlendingar og norðlendingar.
Pokahlaup: ? ? ?
Bændaglíma: Flokkur úr Ármanni.
K1.2-4e.h.
Kl. 20,30 - 2 effir miðnæti
Söngur: Áttmenningarnir úr Hafnarfirði syngja.
Upplestur: Jóp Norðf jörð leikari frá Akureyri.
Gamanvísur: Jón Nórðfjörð leikari.
Dans til kl. 2 eftir miðnætti.
Fundur: Rætt um stjórnmálaviðhorfið.
Framsögumaður Finnur Jónssón alþingismaður.
Kl.4-7e.b.
Dans. — Mótsslit,
Heitur og kaldur mafur á staðnul. Gisting fyrir þá, sem ekki hafa tjöld.
Ferðir úr Reykjavík kl. 9 f. h. á laugardag og kl. 2 e. h. I_yrir þá, sem ekki komast að morgninum. Ferðir.úr Hafnarfirði kl. 9 f. h.
Upplýsingar í símum 5020, 6724 ög 9362. Þátttaka tilkynnist í sömu síma fyrir kl. 7 í kvöld.
ÖLVUN BÖNNUÐ Á MÓTSTAÐ
Fjölmenniðja landsmót S.U.J. að Hreðavatni!
■ ■ * ■ *