Alþýðublaðið - 25.10.1949, Side 3
Þrið'judagui- 25. október 1949
ALÞVÐUBLAÐÍÐ
3
! FRA MORGNITIL KVOLDS
í DAG er þriðjudagurinn 25.
október. Þennan dag fæddist
Jóhann Strauss tónskáld árið
1825, og Richard Byrd amersíki
iandkönnuuðrinn árið 1888.
Sólarupprás er kl. 8,48. Sólar
lag verður kl. 17,35. Árdegis-
liáflæður er kl. 8,40. Síðdegis-
háflæður er kl. 21,05. Sól er
hæst á lofti í Reykjavík kl.
13,12.
Næturvarzla: Ingólfsapótek,
EÍmi 1330.
Næturakstur: Bifreiðastöð
Hreyfils, sími 6633.
Skipafréttir
Laxfoss fer frá Reykjavík kl.
8, frá Akranesi kl. 9,30. Frá
Reykjavík kl. 13,30, frá Borg-
arnesi kl. 18, frá Akranesi kl.
20.
Foldin er á Austfjörðum,
íestar frosinn fisk. Lingestroom
er í Reykjavík.
Hekla var væntanleg til
Reykjavíkur í morgun að vest-
an og norðan. Esja var á Akur-
eyri í gær. Herðubreið er á
Austf jörðum á norðurleið.
Skjaldbreið fer frá Reykjavík
í kvöld til Breiðafjarðarhafna.
Þyrill er norðanlands. Helgi fer
Frá Reykjavík eíðdegis í dag til
Vestmannaeyja.
Brúarfoss fer frá Leith í dag
til Reykjavíkur. Dettifoss fer
frá Hull til Reykjavíkur í dag.
Fjallfoss er á Húsavík. Goða-
foss fór fró Vestmannaeyjum
síðdegis í gær til Antwerpen og
Rotterdam. Lagarfoss fór frá
Reykjavík í gærkvöldi til Hull
og London. Selfoss fór fró Siglu
firði 20. þ. m. til Gautaborgar
og Lysekil. Tröllafoss fór frá
New York 10. þ. m. til Reykja-
víkur. Vatnajökull lestar fros-
Inn fisk á norður og austur-
landi.
Bleð og tímarit
Sjómanfiablaðið Víkingur, 10.
tölublað þessa árs, hefur blað-
inu borizt, Þessar greinar eru
meðal annars í blaðinu: Fram-
bjóðendur flokkanna eftir rit-
stjórann Gils Guðmundsson,
Rýmkun landhelginnar og Opið
bréf eftir Jón Duason.
Tímarit Verkfraeðingafélags
íslands, 1. hefti 34. árgangs,
hefur blaðinu borizt. Það fl.vtur
meðal annars grein (á þýzku)
eftir G. H. Schwabe um notkun
jarðhita á íslandi.
Söfn og sfningar
Þjóðminjasafnið: Opið kl. 13-
15.
Náttúrugripasafnið: Opið kl.
13,30—15,
Skemmtanir
HVIKMYNDAHÚS:
A’usturbæjarbíó (sími 1384);
,,Slæðingur“ (ensk). Roland
Young, Joan Blondell, Carole
Landis. Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Gamla Bíó (sími 1475): —
„Herlæknirinn“ (amerísk. Clark
Gable, Lana Turner, Anne Bax-
ter John Hodiak. Sýnd kl. 5, 7
og 9.
OtvarpiÖ
20.20 Tónleikar (plötur).
20.40 Erindi: Hægri hönd og
vinstri (dr. Símon Jóh.
Ágústsson).
21.20 Hundrað ára minning
Edgars Allan Poe.
21.40 Tónleikar (plötur).
22.00 Fréttir og veðurfreg'nir.
22.00 Vinsæl lög (plötur).
22.3Q Dagskrárlok.
Hafnarbíó (sími 6444): —
,,Spaðadrottningin“ (ensk) ,An-
ton Walbrook, Edith Ewens,
Ronald Howard. Sýnd kl. 7 og
9;
Nýja Bíó (sími 1544): —
„Með báli og brandi“ Henry
Fonda, Claudette Colbert. Sýnd
kl. 7 og 9. „Merki Zorros“. Tvr-
one Power. Sýnd kl. 5.
Síjörnubíó (sími 81936): —
„Drottning listarinnar“ (amer-
ísk). Ilona Massey, Alan Curtis.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Tjarnarbíó (sími 6485): —
„Auga fyrir auga.“ Randolph
Scott, Barbara Britton, Dorothy
Hart. Sýnd kl. 5, 7 og 9.
TripoHbíó (sími 1182): •—
„Rauða mcrkið" (amerísk).
Sidney Toler, Ben Carter, Man-
tan Moreland. Sýndkl. 9. ;rKoh-
ungur ræningjanna" (amreísk).
Sýnd kl. 5 og 7.
Bæjarbíó, Hafnarfirði (slmi
0184): „Olnbogaböm" (sænsk).
Adolf Jahr, Britta Brunius,
Harry Persson. Sýnd kl. 7 og
Ö.
Hafnarf jarðarbió (simi 9249) _
„Járntjaldið" (amerísk). Dana
Andrews, Gene Tiemey. Sýnd
líl. 7 og 9.
BAMKOMUHÚS:
Hótel Borg: Danshljómsveit
Erá kl. 9.
Úr öllum áttum
Hlutavelta kvennadeildar
Slysavarnafélag íslands verður
á sunnudaginn kemur í Lista-
mannaskálanum. Þeir, sem hafa
í hyggju að gefa muni á hluta-
veltuna eru góðfúslega beðnir
að koma þeim í verzlun Gumi-
þósunnar Halldórsdóttur í Eim-
Bkipafélagshúsinu.
iNGÐLFS lAfí
Opið frá kl. 8,45 árdegis.
Eldur í Barmahlíð 11
FYRIR HELGI var slökkvi-
liðið kvatt að Barmahlíð 11, en
þar var eldur laus í rishæð
hússins. Hafði kviknað í út frá
rafmagnslampa.
Töluverður eldur var kominn
í súðina, og þurfti slökkviliðið
að rífa dálítið til þess að kom-
ast fyrir eldinn. Urðu því tölu-
verðar skemmdir á herfcerginu
af völdum brunans, og einnig
urðu nokkrar skemmdir af
vatni og reyk.
5
REKNETAVEIÐIN hér sunn-
anlands hefur gengið vel und-
anfarnar vikur, og veiðist nú
bezt sunnan við Reykjanes allt
austur að Selvogi.
Bátar frá Vestmannaeyjum
eru nú t. d. farnir að sigla heim
tneð afla sinn, þar eð þangað er
nú stytzt af miðunum. Lang-
aflahæsti reknetabáturinn er
Týr frá Vestmannaeyjum, en
hann er nú gerður út frá Kefla-
vík.
Ólafur Fiiðriksson:
SKÝRT var frá hér í blað-
inu 14. þ. m., hvernig kommún-
istarnir í Noregi, er þeir höfðu
aáð meirihluta í norska Al-
þýðuflokknum, komu að. 29
þingmönnujn og fengu samtals
193 þúsund atkvæði. En það
var meira en fimmti hluti allra
greiddra atkvæða við þessar
þingkosningar, er fóru fram
árið 1921.
Enn fremur var skýrt frá
því, hvernig kommúnistum
Cækkað á 6 árum niður í 3
þingmenn árið 1927, og at-
kvæðatalan úr 193 þús. niður
í 40 þús., og loks hvernig þeir
brem árum síðar, þ. e. við
kosningarnar 1930, komu eng-
um á þing, og fengu ekki full
rl'<: (tvo af hverju hundraði)
greiddra atkvæða. Úr fimmta
hluta greiddra atkvæða var at-
kvæðatalan komin niður í
fimmtugasta hluta.
Við þingkosningarnar 1933
varð útkoman hin sama hjá
kommúnistum, og þrem árum
úður. Þeir fengu liðlega 20 þús.
ntkvæði, en komu engum að.
®tlá mætti nú, þegar þeir við
tvennar kosningar í röð voru
komnir niður í að hafa ekki
nema einn fimmtugasta hluta
greiddra atkvæða, að þeir gætu
ckki komizt lengra niður. En
evo reyndist þó ekki. Við þing-
kosningarnar 1936 þutru þessi
20 þúsund atkvæði niður í rúm
4 þúsund, og þeir náðu ekki
l/3 % af greiddum atkvæðum!
Tölurnar aftan við ártölin
hér fyrir neðan sýna, hve mörg
atkvæði kommúnistar fengu af
hverjum 1000 greiddum at-
kvæðum, og hvernig atkvæði
[jein-a rýrnuðu úr 210 árið
1921, á fimmtán árurn, niður
í 3.
1921 210
1927 40
1930 17
1933 18
1936 3
Þingkosningar 1936 voru
síðustu þingkosníngarnar, er
fóru fram í Noregi fyrir stríð.
Kosningarnar fóru ekki fram
nftur fyrr en stríðinu var lok- .
ið 1945, og voru þá liðin 9 ár.
Vár þeim kosningum hraðað
mjög. Hneig aðaláróður kom-
múnista að því, hvað þeir hefðu
Ktaðið sig vel í leynistarfsem- \
inni gegn nazistum og hve
marga þeirra manna þessi
þýzku illmenni hefðu tekið af
lífi. En margir kjósendur
tnundu þá ekki eftir því, að
norsku kommúnistarnir höfðu
Litið á Þjóðverja sem banda-
menn sína, er Rússar og Þjóð-
verjar gerðu vináttubandalag
sitt. En eftir að Þjóðverjar
höfðu gert þann samning við
Syning Þorvaldar Skúlasonar
ÞORVALDUR SKÚLASON
er fyrst og fremst listamaður.
Það dylst engum, sem sér mál-
verkasýningu hans. Litavalið
í myndum hans er oft samræmt
vel og þrungið glóð. Myndin
nr. 6 (Komposition) og stóra
myndin „Úti“ eru sterk og góð
málverk.
Margir ungir listamenn hafa
að undanförnu hrifizt af ab-
straktlistinni. Sér maður það
á mörgum sýningum hinna
yrtgri málara, að það abstraktá
ræður mestu um formtúlkun
alla. Er hrifning ungra málara
af afstrakt listformi auðskilin,
því að í því formi er unnt, að
því er manni getur virzt, að ná
sterkari lit- og formrænni tján
ingu en ella. Ég held samt, að
þetta form sé aðeins ein lilið
málaralistarinnar. Abstrakt-
formið leggur mesta áherzlu á
frumstæðUstu og .sjálfsögðustu
atriði listaverksins. En þar
sem lífið er nú einu sinni jafn
margbrotið og það er, hlýtur
listin að vera það líka. Smám
saman verkar þetta listform á
mann sem einhliða og ein-
hljóma um of. Og maður furð-
ar sig á því, að listamaðurinn
Gkuli ekki hafa neitt annað að
segja, — almennara og mann-
legra, enda þótt þetta listform
geti, út af fyrir sig, verið mik-
ilsverður og snar þáttur skap-
andi listar. Litur og línuhrvnj-
andi eru aðeins meðalið ■—
beinagrindin. Hvers vegna ætti
að ganga fram hjá lífinu í list-
inni, tilgangurinn ætti þó að
vera sá, að gera það sem auð-
ugast.
Falke Bang.
Fréttamyndir
AP.
Eimhverjar beztu erlendu fréttamyndir,
sem birtast í íslenzJcum blöðum, eru
myndir Alþýðublaðsins frá Associated
Press, hinni miklu samvinnufréttastofui
,í New York. Ljósmyndarar AP fara um
allan heim og frá New York eru myndir
þeirra sendar um víða veröld. Alþýðu-
blaðið hefur birt fréttamyndir, sem að-
eins tveim dögum áður voru sendar frá
New York.
Aðeins í A l þ ý ð ub l a ð i n u.
Gerizt áskrifendur. --- Símar: 4900 & 4906.
Rússa,'töldu þeir sér óhætt að
ráðast á Pólverja og hófu stríð-
ið 10 dögum eftír undirritun
namningsins. Norskir kommún-
istar létu nazistana alveg óá-
reitta, þó að þeir hefðu ger',
Innrás í Noreg. En þegar þeir
gerðu innrásina í Rússland,
urðu þeir alveg æfir og ge'rðiu
cftir það nazistum allt það tíí
bölvunar, er þeir gátu. En það
voru liðin svo mörg ár frá þvú
að þessi breyting varð, og það
hafði gengið á svo mörgu, að
þetta var gleymt þegar kösiÁ
var 1945, og kommúnistar
fengu við kosningarnar ekki
minna en 177 þús. atkvæði og
komu að 11 þingmönnum. (AL-
þýðuflokkurinn fékk þá 609
þúsund atkvæði.) En á þessur/.i
4 árum, sem liðin eru síðan,
hefur norska þjóðin fengið
næði til þess að átta sig betur,
og kemur það fram í því, ao
norski kommúnistaflokkurinr.i
hefur við þingkosningar þær,
er nýlega eru afstaðnar, missi
alla þessa ellefu þingmenn
sína, og eru að kunnugra sögrj
lítil líkindi tik að þeir geti unn-
ið aftur þessi töpuðu kjördæmi
Atkvæðatala þeirra féll úr 177'
þúsundum niður í 100 þúsunoi
cða hefur dalað um liðlega
tvo fimmtu og líkindi til, að
[>essi 100 þúsund dali á naéstu
tveim kjörtímabilum niður í 8
þúsund alls, miðað við þá
reynslu, sem-fengin er á þvs,
hve illa norskum kommúnist-
um gengur að halda fylgiiyu,
eins og sjá má hér að framan.
Það er einkennilegt við þess-
ar síðustu norsku kosningar,
að allir flokkar, sem eitthvao
kveður að, auka fylgi sitt, nema
kommúnistar, þó að mest beri
á þessari aukningu hjá Alþýðu-
flokknum, sem jók athvæðh-
magn sitt úr liðlega 600 þúr.
atkvæðum 1945 upp í nær 800
þúsund atkvæði.
Ó. F
----------------------
Seðlaskipli í Aiist-
urríki vegna
seðlafölsunar
í AUSTURRÍKI hafa fyriip
nokkru verið gefnir út nýir 10
schilling seðlar og hinir eldri
innkallaðir, vegna þess hve mi-k
Ið var í umferð af fölsuðum 10
Bchilling seðlum.
Þeir sem kynnu að hafa i
fórum sínum gilda austur-
ríska 10 shilling seðla af eldrs
gerðinni geta fengið þá greidda
með því að afhenda þa I.ands-
banka íslands í síðasta lagi 31.
október næstkomandi, enda sö
upphæðin, sem hver seðlaoig-
andi skilar, ekki hærri en 200
sohilling. Sé upphæðin hærrl
rná gera ráð fyrir að hún fáiét
ekki greidd. heldur verði hú.t»
bundin á lokuðum reikningi i
austurríska þjóðbankanum.
Seðlar afhendast Landsbank
anum gegn kvittun hans, og iá
hlutaðeigendur greitt andvirði
seðianna í íslenzkum krónura
að nokkrum tíma liðnum, eírir
að hlutaðeigandi austurrísk
málið.
Lesið Alþýðublaðið 1