Alþýðublaðið - 24.11.1949, Page 7
Fimmtudagur 24. nóv. 1949.
ALÞYÐUBLAÐlö
7
Æskulýösvika
.K.F.U.M. og K.
Samkoma í kvöld kl. 8,30.
Síra Biarni Jónsson vígslu-
biskup talar. -— Allir vel-
komnir.
RIKISINS
austur um land í hringferð
hinn 28. þ. m. Tekið á móti
flutningi til Fáskrúðsfjarðar,
Reyðarfjarðar, Eskifjarðar,
Norðfjarðar, Seyðisf jarðar,
Þórshafnar, Raufarhafnar,
Kópaskers, Húsavíkur, Akur-
eyrar og Siglufjarðar á morg-
un. Pantaðir farseðlar óskast
sóttir árdegis á laugardag.
„Skjaldbreið"
til Húnaflóa-, Skagafjarðar- og
Eyjafjarðarhafna hinn 26. þ.
m. Tekið á móti flutningi til
hafna milli Ingólfsfjarðar og
Haganesvíkur, einnig til Ólafs-
fjarðar og Dalvíkur í dag.
Pantaðir farseðlar óskast sótt-
ir á morgun.
HANNES Á HORNINU
Framha)d af 4. síðu.
selja þessa rúma hundrað að-
göngumiða opinberlega, því < ru
þeir ekki tölusettir á ákveðin
borð, heldur gert sér að leik að
pína fólk, sem lengst í biðröð-
um, alveg að ástæðulausíu? For
stöðumenn ,,Bláu stjörnunnar''
verða að breyta því fyrirkomu
lagi, sem nú er haft á þessari
aðgöngumiðasölu. Og því skal
ekki trúað að óreyndu, annað
e’n að þeir geri það“.
Auglýsið í
Aiþýðublaðinu!
Minningarorð
Guðmundur Sigurðsson, Holti
SÍÐAST LIÐINN FÖSTU-
DAG var jarðsettur í Hafnar-
firði Guðmundur Sigurðsson,
Holti, Hafnarfirði. Með Guð-
mundi er hniginn í valinn mæt
ur maður úr alþýðustétt. Mað-
ur, sem unnið hefur langan
starfsdag hörðum höndum, og
hvergi hlíft sér. Dugnaði hans
og starfsgleði var viðbrugðið,
og aldrei var æðrazt, þótt móti
blési.
Guðmundur var fæddur í
Vestmannaeyjum 8. des. 1885,
en ólst upp á Seyðisfirði. Tii
Hafnarfjarðar kemur hann
1907 og hefur ávallt átt hér
heima síðan. Guðmundur varð
fyrir því þunga áfaili að missa
móður sína kornungur, og ólst
hann upp hjá vandalausum.
Það ræður því að líkum, að
hann heíur snemma orðið að
leggja fram krafta sína og
vúnna fyrir sér, svo sem títt var
í þá daga.
Aðalstarf Guðmundar var
sjómennska, og stundaði hann
sjómennsku á opnurn skipum,
skútum og togurum. Sjó-
mennskan átti vel við Guð-
mund, enda harðduglegur að
hverju, sem hann gekk, og sér
staklega vinsæll og góður fé-
lagi. Stayfssaga Guðmundar
verður sennilega aldrei skráo.
fremur en svo fjölda margra
annarra, sem vinna þjóðnytja
störf í kyrrþey af dugnaði og
skyldurækni, en áreiðanlega
hefur hann oft komizt í hann
krappan á sinni löngu sjc-
mannsævi og oft lagzt þreytt-
til hvíldar. En við slíka rnenn
stendur þjóðin í mikilli þakk-
arskuld. Slíkir menn eru’ undir
staða þjóðfélagsins efnalega og
menningarlega.
Guðmundur var giftur Þóru
Egilsdóttur, mætri mvndar-
konu. Hana missti hann fyrir
17 árum síðan. Enda þótt efn-
in væru lítil, einkenndi heimili
beirra jafnan snyrtimennska
og myndarbi'ag.ur. Þau .hjónin
eignuðust 5 mannvænleg börn
og eru þrjú þeirra á lífi og bú
sett í Hafnarfirði. Þau hjónin
eiga nú marga afkomendur, allt
myndarlegt mannkosta fólk.
Alþýðuflokknum fylgdi Guð
mundur alltaf að málum, og
var, frá því sá flokkur var
myndaður, ávallt öruggur stuðn
ingsmaður hans. Hann var einn
ig traustur þátttakandi í verka
íýðsheyfingúnni frá byrjun og
var félagi í Sjómannafélagi
Reykjavíkur. Lífsskoðun Guð-
mundar byggðist á hugsjón
jafnaðarstefnunnar, um betri
lífsskilyrði allra og meiri mann
kærleika.
Guðmundur var drengur góð
ur, í þess orðs beztu merkingu.
Hann ávann sér vináttu allra
sr kynntust honum og var vel
virtur af öllum.
Hafnfirðingur.
Fjölmennur fundur
í Hafnarfirði
Frh. af 5. síðu.
ovikráðum við kjör okkar og
réttindi".
í félagið gengu 12 nýir fé-
lagar og var mikill áhugi og
einhugur ríkjandi á fundin-
um fyrir sigri Alþýðuflokksins
við næstu bæjarstjórnarkosn-
ingu.
Að lokum var sýnd kvik-
mynd.
Guðmundur Sigurðsson.
Skógræktarkvik-
mynd sýnd hjá
Nordmannslaget
á mánudaginn.
FUNDUR var haldinn í Nord
manslaget í Tjarnarcafé á mánu
dagskvöld.
Eipar Farestveit formaður fé
lagsins stýrði fundi, en Hákon
Bjarnason skógræktarstjóri
skýrði frá komu norska skóg-
ræktarfólksins hingað í vor
sem leið og för íslendinganna
til Noregs. Þakkaði hann Nord
manslaget fyrir þá velvild og
-fyrirgreiðslu, .sem það haíði
sýnt, bæði með stórri. peninga-
gjöf og eins með því að halda
mikið skilnaðarhóf hér, er
Norðmennirnir fóruj en íslend
ingarnir komu heim.
Ræddi Hákon Bjarnason síð
an um gagn það er af þessari
ferð hlauzt, reynslu þeirri sem
fengizt hafði og möguleikana á
að halda slíkum ferðum áfram
annað eða þriðja hvert ár.
Síðan var sýnd kvikmynd
frá gróðursetningarstörfum hér
á landi, sú mynd verður síðan
felld saman við myndir þær,
sem teknar voru af íslending-
unum í Noregi.
228 flugvélar lenlu í
Keflavík í oklóber
í OKTÓBERMÁNUÐI 1949
lentu 228 flugvélar á Keflavík-
urflugvelli. Millilandaflugvél-1
ar voru 182. Aðrar lendingar
voru einkaflugvélar svo og
björgunarflugvélar vallarins.
Með flestar lendingar voru
eftirfarandi flugfélög: Trans-
Canada Air Lines 32 (sem er 15
færri en í september), British
Overseas Airways Corporation
19, Air France 17, American
Overseas Airlines 12, Royal
Dutch Airlines (K.L.M.) 6,
Trans Ocean Air Lines 5 og
Seaboard & Western 5. Flug-
her Bandaríkjanna var með 55
lendingar.
Farþegar með millilandaflug
vélum vsru samtals 3778. Til
íslands komu 210 farþegar, en
héðan fóru 194. Flutningur
með millilandaflugvélum var
81011 kg. Til íslands var
■flutningur 32 042 kg., en 1798
kg. voru send héðan. Flugpóst-
ur vár 30 823 kg. Hingað kom
af flugpósti 652 kg., én héðan
voru send 323 kg. af flugpósti.
Hinn þekkti katólski leiðtogi
og rithöfundur Francis Spell-
man kardínáli var meðal far-
begar, sem komu til Keflavík-
urflugvallar þ. 11. október.
Spellman kardínáli var á leið
til New York frá Róm og Par-
ís. Ferðaðist hann með einni af
flugvélum Air France. Einnig
var Charles E. Lindbergh ílug'-
kappi gestur á Keflavíkurflug-
velli í mánuðinum.
Reknetabátarnir í
höfn í fyrrinótt.
í FYRRINÓTT voru flestir
reknetabátarnir í höfn vegna
óhagstæðs veðurs. Síldarleitar-
rkipið Fanney var einnig í
Reykjavík í fyrrinótt, en fór
í gærmorgun út á ný. Fyrst hér
inn á Sund, en síðan hélt hún
vestur flóann og mun hafa far-
ið vestur með Reykjanesi.
Nokkrir trollbátar leituðu
hér innarlega í firðinum í gær,
on urðu ekki varir síldar.
SÍBS berasl rúmar
13600 kr. að gjöf
S.Í.B.S. hafa nýlega borizt
eftirtaldar gjafir, að upphæð
samtals kr. 13 660,50:
Frá: Starfsmönnum Búnað-
arbanka íslands kr. 500, N. N.
100, Jóni Kr. ísfeld, Bíldudal,
39, konu á Akranesi ÍGO. Magn
úsi Lárussyni 20, Jörundi
Sveinssyni 50, Ingu Egilsson,
Kanada, 125, Ingibjörgu Hjálm
arsdóttur 50, vinum Ingvars
Bjömssonar frá Brún 3130,
dóttur Guðríðar Magnúsdótt-
ur 100, Hólmfríði Magnúsdótt-
ur 50, Áslaugu 100, N. N.,
Stykkishólmi 200, N. N. 10, Þ.
K. 300, N. N. 500, Runólfi Ei-
ríkssyni 100, N, N. 100, Þ. Þ.
80, Gísla H. Friðbjarnarsyni
200, S. H. 50, Ágúst og Friðrik
240, N. N. 100, Fanny Benónýs
100, Olgu Berndsen 50, Vest-
mannaeyingum 361,50, Ólafi
Finsen, Akranesi 100, konu í
Keflavík 100, Ó. M. 50, Krist-
ínu Runólfsdóttir, Hafnarfirði,
525, Ingólfi Pálmasyni, Borg-
arnesi 100, Karólínu Guð-
mundsdóttur 1000, Oddi Thor-
arensen, Akureyri, 5000.
^.........-
WARD, aðalræðismanni
Bandaríkjanna í Mukden í
Mansjúríu, var vísað úr landi
af kommúnistayfirvöldunum
þar í gær, ásamt fjórum starfs-
mönnum hans.
Lesið AlþýðublaSið 1
Orðsending til boksala frá HELGAFELLI.
Bókmenntaviðburður haustsins
er ný kvæðabók" eftir Halldór Kiljan Laxness.
Kvæðakver
um 70 kvæði ný og gömul.
Bókin verður afgreidd í bókabúðir innan 10 daga. Uþplag
bókarinnar er takmarkað og þurfa pantanir að berast
strax. — Bókhlöðuverð er kr. 60,00 og kr. 65,00. — Bókin
er ekki seld í umboðssölu. — Áskrifendur að verkum
Laxness fá hana senda heim og fá þeir hana með sér-
stöku verði. Eínnig geta þeir, vitjað hennar nú þegar í
áskriftardeildina, Veghúsastíg 7. — Tekið á móti nýjum
áskrifendum á eftirtöldum stöðum:
Veghúsastíg 7,
shni 1651.
Aðalstræti 18,
sími 1653.
Njálsgötu 64,
sími 7070.
Laugavegi 39,
sírni 2946.
Laugavegi 100,
sími 1652.
Aausturstræti 1,
simi 1336.
Lækjargötu 6 A, — sírni 6837.