Alþýðublaðið - 03.01.1950, Page 7
Þriðjudagtir 3. janúar 1850.
ALÞYÐUBLAÐiÐ
7
(Frh. af 5. síðu.) J
vel. Betur, eins og brezki vís- i
indamaðurinn benti á. Ég |
hygg, að margir munau öfunda
yður af að eiga slíka fóstur-
mold.
í bók fyrir danska bændur
ritar danskur háskólakennari,
að það sé einn af kostum land-
búnaðarins, að varla sé hægt
að tala um stéttarmun milli
launþega og vinnuveitenda í
landbúnaðinum. Hann segir:
„Það hefur verið mjög mikils
virði fyrir innri þróun þjóðfé-
lagsins að slíkt félagsmálasam
ræmi hefur verið í öðrum að-
alatvinnuvegi Dana“. Hann
bendir á það, að danskir bænd
ur 'hafi jafnan haft sjálfstæða
stjórnmálasannfæringu; að
vagga frjálslyndisins hafi ver-
ið í sveitum; að sveitamenn-
irnir, sem stundi þá atvinnu,
er í flestum löndum sé upp-
runalegur atvinnuvegur þjóð-
arinnar, hafi haldið uppi rækt-
inni við menningararf forfeðr-
anna, og loks, að sveitafólkið
sé yfirleitt þjóðræknara en
borgarbúar.
RIKISINS
ir
austur um land til Fáskrúðs-
fjarðar hinn 6. jan. n.k. Tekið
á móti flutningi til
V estmannaey j a,
Hornafjarðar,
Djúpavogs,
Breiðdalsvíkur,
Stöðvarfjarðar og
Fáskrúðsf j arðar
á þriðjudag og miðvikudag.
Pantaðir farseðlar óskast
sóttir á miðvikudag.
H.s. Helgi
til Vestmannaeyja í kvöld. —
Tekið á móti flutningi í dag.
Margt það sama mætti segja
um íslenzka bændur og sveita-
menningu. Það ætti að vera
frekari örvun til þess að halda
uppi veg og virðingu landbún-
aðarins.
Eitt aðalsmerki jarðræktar-
innar á að vera það, að þeir,
sem rækta jörðina, eru engu
síður að búa í hendur kom-
andi kynslóð en sjálfum sér.
Sá áhugi, sem góðu heilli er
vaknaður fyrir skógrækt hér á
landi ber sarna aðalsmerkið.
Fæstir þeir, sem nú planta
skóg, gera ráð fyrir því, að þeir
fái sjálfir að njóta hagnýtra á-
vaxta af skógræktinni, heldur
þeir, sem á eftir þeim koma.
Og ég vil bæta þessu við:
Ég þekki ekki neina atvinnu-
grein, sem gefur mönnum betri
tækifæri til samlífs móður-
moldinni og náttúrunni en
landbúnaðurinn. Þeir, sem við
hann vinna, eiga þess betri
kost en aðrir að kynnast dá-
semdum skaparans. Þeir sjá
störfin í moldinni að sköpun
nýs lífs; sjá grös, jurtir og
blóm spretta úr skauti móður-
moldarinnar eins og í ævintýri,
læra að meta samlífið með
blessuðum skepnunum; njóta
unaðar af fuglum himinsins og
öðrum lífverum. Þetta hlýtur
m. a. að skapa hjá hverri heil-
brigðri manneskju aðdáun og
lotningu fyrir höfundi tilver-
unnar. Hvert getur verið
stjórnandi afl alls þessa, nema
sá, sem er uppruni alls lífs
heimsins? Ef til vill á þetta
ekki minnstan þátt í því, að
skapa sveitamenninguna og
gera bændurna að þeim mátt-
arstoðum þjóðfélagsins, sem
þeir eru.
Ég óska öllum þeim, sem
heyra mál mitt og öllum Is-
lendingum árnaðar og farsæld-
ar á þessu nýbyrjaða ári, sem
er síðasta ár fyrra helmings
tuttugustu aldarinnar.
’ólegasfa gamlaárskvöld
r
Brennurnar í óthverfunum áttu þátt
þvf aS halda fólki frá miðbænum.
Þökkum öllum, sem auðsýndu hluttekningu við
andlát og jarðarför móður, tengdamóður og ömmu
okkar,
Péru EU3agnúsdóttur.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
GAMLAÁKSKVÖLÐ 1949 var eiít allra rólegasta gamla-
árskvöld, sem sögur fara af hér í Reykjavík. Spellvirki voru
engin unnin og óvenju lítið var um ærsl og óknytti í bænum.
Slökkviliðið var aldrei kvatt út á gamlaárskvöld og er það mjög
óverijulegt á hví kvöldi.
Að því er Guðbjörn Hansson* ; ~
varðstjóri skýrði blaðinu frá í
gær, hefur lögreglan sjaldan
eða aldrei í hans minni átt jafn
rólegt gamlaárskvöld. Að vísu
Barnastúkan JÓLAGJÖF nr.
107. Félagar, munið jóla-
fagnaðinn á morgun kl. 15.
Aðgöngumiðasala í G.T.-hús-
inu í dag og á morgun kl. 10
—12. Gæzlumenn.
_ KNATTSPYRNUFÉL.
1% VALUR.
y Æfingatafla félagsins
í handknattleik í vetur.
Kvennaflokkur:
í Háskólanum þriðjud. kl. 8—9.
í húsi ÍBR föstud. kl. 7.30-8.30.
Karlaflokkar, í húsi ÍBR:
I. aldursflokkur:
Þriðjudaga kl. 7.30—8.30.
Laugardaga kl. 7.30—8.30.
II. aldursflokkur:
Þriðjudaga kl. 6.30—7.30.
Laugardaga kl. 7.30—8.30.
III. aldursflokkur:
Þriðjudaga kl. 6.30—7.30.
Sunnudaga kl. 5—6.
Geymið æfingatöfluna.
Nefndin.
var allmikil ölvun þegar leið á
nóttina, og kjallarinn yfirfull-
ur, en slíkt ber oft við þótt
ekki sé um gamlaárskvöld að
ræða, sagði Guðbjörn.
Spellvirki eða óknyttir voru
nú engir framdir, eins og oft
hefur viljað bera við á undan-
förnum gamlaárskvöldum, er
menn hafa sótt mjög í það að
velta bifreiðum, draga tunnur
og alls konar hluti í veg fyrir
þær, að ógleymdum íkveikjun-
um. Ekkert af þessu var nú
borið við, og telur lögreglan,
að brennurnar, sem leýfðar
voru í ýmsum útverfum í bjfen-
um, hafi átt sinn þátt í þvú.að
svo óvenju rólegt var ~L :mið-
bænum og færra um manninn
en oft áður. Nokkurn þátt niun
rigningin líka hafa átt í þe&u.
I Voru það íþróttafélögin og eln"
staklingar, sem stóðu fj^ir
brennunum, og fóru þær mjög
vel úr hendi. Brennur vorú á
þessum stöðum: Á KR-veHjn-
um vestur í bæ, á íþróttasvæði
Ármanns við Nóatún, '* i-Mð
Langholtsveg í Kleppsholti| og
á túninu milli Klambra og
Miklubrautar. (
. : -1
Ofurlítil brögð vorú þó að
því, að sprengdar væru heima-
tilbúnar sprengjur, sagði Guð-
björn, en engar skemmdir eða
slys hlutust af þeim. Hins veg-
ar eru þessar heimatilbúnu
sprengjur hættulegar og geta
valdið skaða, en miklu minna
var nú af þeim en undanfarið.
Efitr miðnætti fór að bera
nokkuð á ölvun, en ólæti eða
ryskingar voru litlar á al-
mannafæri. Þó var manni
hrundið inn úr glugga í Har-
aldarbúð, og eru það einu
spjöllin, sem sýnileg eru eftir
gamlaárskvöldið.
ERLENDAR FREGNIR
STJÓRN BIDAULTS hlaut í
gær traustsyfirlýsingu franska
þingsins með mjög litlum at-
kvæðamun, og er þetta hin
fyrsta af þrem slíkum, sem
fara fram í sambandi við fjár-
lögin.
MAO TSE TUNG, leiðtogi
kínverskra kommúnista, er nú
í Moskvu til að fá lán hjá
Rússum fyrir Kína og gera
nýja verzlunarsamninga.
BLAÐ KOMINFORM lagði
nýlega fram þá tillögu, að
stofnaðir verði kommúnistískir
frelsisherir til að ráðast inn í
nýlendurnar í Austur-Asíu.
SO VÉTST J ÓRNIN hefur
sent finnsku stjórninni orð-
sendingu, þar sem Finnar eru
ákærðir um að halda verndar-
hendi yfir rússneskum stríðs-
glæpamönnum. Munu þetta
I vera baltneskir flóttamenn, en
orðsendingin greinilega send
til að styrkja finnska komm-
únista í sambandi við forseta-
kjör.
KOMMÚNISTABLAÐ í Pei-
ping hefur talið það meðal hlut
verka rauða hersins á árinu
1950 að ráðast inn í Tíbet.
---------».........-
ÍÞRÓTTANÁMSKEIÐ. Axe
Andrésson, sendikennari ÍSÍ og
fræðslumálastj órnar, hefur fyr
ir nokkru lokið knattspyrnu-
og handknattleiksnámskeiði
Sauðárkróki. Nemendur voru
alls 156. Þá hefur Axel einnig
lokið námskeiði á bændaskól-
anum á Hvanneyri. Nemendur
85. Næsta námskeið, sem Axel
heldur, verður í Reykholts-
skóla í janúarmánuði.
Lesið Alþýðublaðið 1
4 m:
um framvísun reiknlnga.
Sjúkrasamlag Reykjavíkur beinir þeirri ákveðnu ósk
til þeirra manna, félaga og stofnana, bæði hér í bæn-
um og annars staðar á landinu, sem eiga reikninga á
samlagið frá síðastliðnu ári„ að framvísa þeim í skrif-
stofu þess, Tryggvagötu 28, hið fyrsta og eigi síðar en
fyrir 15. þessa mánaðar.
r
Sjúkrasamlag Reykjavíkur.
Hafnfirðingar!
Reykvíkingar!
Ifll þvollahús
tekur til starfa í Lækjargötu 20, Hafnarfirði, þriðjudag-
Lnn 3. janúar 1950. — Áherzla verður lögð á fljóta og
randaða vinriu. — Tekinn verður allur venjulegur þvott-
ir og skilað blautum eða fullfrágengnum. Stífaðar skyrt-
ur og sloppar o. fl. — Sækjum heim ef óskað er til við-
;kiptavina í Hafnarfirði, Kópavogi, Fossvogi og arinars
jtaðar. — Hringið í síma 9236 milli klukkan 1 og 6.
Þvollahúsið FRÍÐA
Sjomannafélag Hafnarfjarðar
heldur
i’ !VJ
0RDSEHDING
fil félagsmanna KRÖN.
Póstlögð hafa verið bréf til félagsmanna varðandi skil
kassakvittana frá árinu 1949. Félagsmenn, sem eigi
fá slík bréf vegna flutnings eða vanskila, eru beðnir
að gera skrifstofunni aðvart (sími 1727). Það er áríð-
andi að kassakvittunum sé skilað svo fljótt sem verða
má og í síðasta lagi fyrir lok janúarmánaðar. Félags-
mönnum verður að þessu sinni afhent dagatal fyrir
árið 1950, um leið og þeir skila kassakvittunum frá
1949.
Jólaf résskemmtun
fyrir börn félagsmanna og gesti þeirra í Alþýðuhúsinu
þriðjudaginn 3. jan. 1950 kl. 2Vz fyrir börn 10 ára og
yngri, kl. 8 fyrir börn eldri en 10 ára. — Aðgöngumiðar
seldir í húsinu frá kl. 1 e. m.
Stjórnin.