Alþýðublaðið - 04.01.1950, Side 1
VeSurhortur:
Austan kaldi eða stinnings
kaldi; dálítil rigning e3a
slydda sunnan til.
Hvað boSar Iruman í dag?
Fulltrúi Kuomintangstíórnarinnar, sem
Rússar neíta að viðurkenna, orðiuo for-
seti þess, og getur hindrað með neitun-
arvaidi að honum sé bolað hurt.
FORSETASKIPTI urðu í öryggisráði liinna sameinuðu
þjó'ða 1. janúar, ei:is og venja er. Fulltrúi Kanada vék úr for-
sæti, en við tók, samkvæmt venju, fulltrúi næsta ríkisins í
stai'rófinu, Kína. En hann er fulltrúi Koumintangstjórnarinnár
í Kína, sem Rússland og fleiri ríki í ör.vggisráðinii neita að
viðurkenna lengur sem löglega stjórn Kína; og þykja helzt
horfur á að forsetaskiptin muni gera öryggisráðið óstarfhæft
á bessu ári.
Lét skíra upp mann-
virki, stofnanir og
fja.il Stalíniil helðurs
KOMMÚNISTASTJÓRNIN
í Búlgaríu gerði út 19 manna
sendinefnd til Moskvu til þess
að hylla Stalín á sjötíu ára af
mæli hans á dögunum. En liún
lét ekki þar við sitja, heldur
skírði upp mannvirki, stofnan-
ir og hæsta fjall Balkanskaga
félaga Síalín til heiðurs.
Hefur stjórnin í Búlgaríu
látið skíra upp í þessu skyni
Svartahafsborgina Varna,
,,Passarel“-stífluna, sem er í
byggingu, verkfræðingaháskóla
ríkisins í Sofia, hæsta fjall
Balkanskaga, Moussala, veður-
athuganastöðina á Moussala-
tindi, uppeldismálastofnun í
Mare og verksmiðju í Kotcher
inovo.
Rólegar kosningar
á Egyplalandi
eíiir bfóSuga
kosningabarátiu
FRIÐSAMAR ÞINGKOSN-
INGAR fóru fram í Egipta-
landi í gær eftir blóðuga.kosn-
ingabaráttu, sem kostaði tíu
manns lífið. Kosningaúrslitin
verða ekki kunn fyrr em' dag.
Kjósa átti 315 þingmenn, en
frambjóðendur voru samtals
1000. Allir karlmenn, sem náð
hafa 26 ára aldri, hafa kosn-
ingarétt, en konur ekki. Mik-
inn fjölda kjósenda varð að að-
stoða við kosninguna vegna
þess, að þeir voru bæði ólæsir
og óskrifandi.
Aiilee 67 ára í gær
ATTLEE, forsætisráðherra
brezku jafnaðarmannastjórn-
arinnai’, átti 67 ára afmæli í
gær. Bárust honum heillaóska-
skeyti í tilefni af því hvað-
anæva úr heiminum.
Af þeim ellefu ríkjum, sem
sæti eiga í öryggisráðinu, hafa
þrjú, Rússtend, Júgóslávía og
Indland, þegar viðurkennt
kommúnistastjórnina í Kína,
og er búizt við að fleiri ríki j
sem sæti eiga í ráðinu, þar á 1
meðal Bretland, muni gera það .
innan skamms. En að sjálf- j
sögðu neita þau öll eftir það að 1
viðurkenna fulltrúa Kuomin-
tangstjórnarinnar sem lögleg-
an fulltrúa Kínaveldis. Hefur I
og fulltrúi Rússlands þegar gef
ið í skyn, að hann muni neita
að viðurkenna þser samþykkt-
ir, sem öryggisráðið kynni að
gera undir forsæti hans.
Heimta Rússar, að sæti taki í (
öryggisráðinu fulltrúi fyrir
kommúnistastjórnina í Kína,
en það mundi að sjálfsögðu
þýða breytingu á styrkleika-
hlutföllum þar.
En það er hægra sagt en
gert, að setja Kuomintangfull-
trúann í öryggisráðinu af og
svipta hann forsæti þess, jafn-
vel þótt meirihluti skyldi fást
í ráðinu til slíkrar viljayfirlýs-
ingar, sem þó hlýtur að teljast
vafasamt meðan Bandaríkin
hafa ekki viðurkennt komm-
únistastjórnina í Kína. Kína er
nefnilega eitt stórveldanna
fimm í öryggisráðinu, sem hafa
þar stöðugt sæti og neitun-
a r v a 1 d. Og hvað sem ákveð-
ið kynni að verða í ráðinu í
þessu efni, getur kínverski full-
trúinn gert það ómerkt með
neitunarvaldi, eins og fulltrúi
Rússa hefur hvað eftir annað
gert í ýmsum málum. Hann
getur algerlega hindrað hvort
tveggja með neitunarvaldi, að
ákveðið verði að taka umboð af
honum og afhenda það fulltrúa
frá kommúnistastjórninni í
Kína, svo og hitt, að hann sé
sviptur forsæti ráðsins.
Það blæs því ekki byrlega
fyrir störfum öryggisráðsins á
hinu nýbyrjaða ári. Virðist yf-
irleitt mjög vafasamt, að ráðið
verði starfhæft á því.
AÐEINS eitt íslenzkt skip
hefur selt afla sinn í Bretlandi
eftir jólin. Er það Jón forseti,
en hann seldi 29. desember
4678 vættir fyrir 7192 sterl-
ingspund.
Truman hefur um fleira að hugsa en pólitík. Hér er hann með
fullt fangið af jólagjöfum, sem hann er að færa vinum sínum.
♦
Bækur Upton Sinclairs og Cronins kall-
aðar ,fasistískar spiíiingarbókmenntir4.
„NEW YORK TIMES“ flytja þá fregn frá Vín, að komrn-
únistar austan járntjaldsins séu nú farnir að feta í fótspor
nazista, einnig í því efni, að þeir brenni og eyðileggi bækur
í stórum stíl til þess að liindra að fólkið fái að lesa nokkuð
annað en það, sem þeir vilja.
í fregninni frá Vín segir, að
stjórnarvöldum kommúnista í
löndunum austan járntjaldsins
nægi ekki lengur að gera börn-
um, stúdentum, verkamönnum
og samyrkjubændum að skyldu
að lesa bækur Marx, Lenins og
Stalins; þau séu nú einnig
byrjuð að taka bækur úr um-
ferð og eyðileggja vestrænar
bækur í stórum stíl.
Stjórnin í Tékkóslóvakíu
hefur nú tekið alla bókaútgáfu
í sínar hendur, svo og bóka-
verzlanir, þannig að hún ræður
gersamlega yfir því, hvað fólk-
íð fær að lesa. En hvernig hún
retlar að nota sér þessa einokun
á bókaútgáfu má sjá á eftirfar-
andi Qrðum, sem einn af tals-
mönnum hennar skrifaði ný-
lega í eitt blaðið í Prag: „Bæk-
ur, sem ekki hjálpa tii þéss að
ala fólkið upp í kommúnistísk-
um marxistískum og' leninist-
ískum fræðum, eru skaðlegar.
En kommúnistaflokkurinn hef-
ur nóg ráð til þess, að knýja
menn til þess að kaupa þau rit,
sem hann telur nauðsynleg.11
í Ungverjalandi er ofstækið
iafnvel enn meira. Þar eru
bókasöfnin ,,hreinsuð“ og
menn ofsóttir fyrir lestur
frægra sósíalistískra rithöf-
unda á Vesturlöndum, svo sem
Upton Sinclairs! Komst eitt
blaðið í Búdapest nýlega svo að
orði, að bækur eftir menn eins
og Upton Sinclair, Louis Brom-
field og Lin Yutang, væru „fas-
Istískar, hálffasistískar og borg
aralegar spillingarbókmennt-
ir“! I öðrun ungversku blaði
hefur verið bent á bækur Cron-
ins sem sérstaklega hættulegar
’iækui'! Og hver fréttin rekur
aðra um að hundruð og þús-
undir bóka hafi verið teknar
úr umferð í bókasöfnunum.
Sameining Þýzka-
lands sirandar ekki
á Vesiurveidunum
McCLOY, fulltrúi Banda-
ríkjastjórnar á Vestur-Þýzka-
íandi, sagði við blaðamenn í
Berlín í gær, að fulltrúar Rússa
í Berlín hefðu í seinni tíð ekki
hreyft því neitt, að tekin væri
tipp fjórveldastjórn í borginni
á ný.
En í þessu sambandi sagði
McCloy, að Vesturveldin væru
hvenær, sem er, fús til þess, að
láta fara fram almennar kosn-
ingar í Berlín; og jafnframt
sagði hann, eð það stæði Aust-
ur-Þýzkalandi enn til boða, að
verða þátttakandi í stjórn
Vestur-Þýzkalands og eiga á
þann hátt sinn þátt í því, að
sameina allt Þýzkaland aftur
í eitt ríki.
í leikinn
i Kinai
Kuominfangstjórn-
in hefur beðið um
hjálp þeirra iil að
verja eyna Formosu
UM ALLAN HEIM er
þess beðið með mikilli
eftirvæntingu, hvað Tru-
man muni boða, er hann
flytur stefnuræðu sína
fyrir báðum deildum
Bandaríkjaþingsins í Was-
hington í dag. Og alveg
sérstaklega bíða menn
þess með óþreyju að.
heyra, hvaða afstöðu hann
muni boða af hálfu Banda-
ríkjanna til þeirra stór-
viðburða, sem eru að ger-
ast í Kína og yfirleitt í
Austur-Asíu.
Það var tilkynnt opinber-
lega í Washington í gær, að
Kuomintangstjórnin í Kína
hefði rétt fyrir jólin beðið
Bandaríkjastjórn um hernað-
arlega aðstoð til þess að geta
varið eyna Formosu, þar sem
Kuomintangstjórnin hefur nú
aðsetur sitt og bækistöð, gegn
kommúnistum. Og í fregnum
frá Washington í gær var við
því búizt, að Truman myndi í
ræðu sinni í dag heita Kuom-
intangstjórn stuðningi á einn
eða annan hátt til þess að
verja Formosu.
Annars eru mjög skiptar
skoðanir um það í Bandaríkj-
unum, hvað gera eigi í því
skyni. Andstöðuflokkur Tru-
mans, republikanar, hefur
lengi verið óánægður með
Austur-Asíu pólitík hans, og
vill nú helzt senda flota og
flugher til Formosu til þess að
verja eyna. En óvíst er enn,
hvort Truman og flokkur hans,
demókratar, vilja ganga svo
langt.
ÞÝÐINGARMIKIÐ ÞING.
En það verður fleira en
stefna Bandaríkjastjórnar í
Kína- og Austur-Asíumálunum
yfirleitt, sem rætt verður af
þinginu, sem kemur saman í
Washington í dag. Marshall-
hjálpin og fjárframlögin til
hervarna í Vestur-Evrópu
verða einnig til umræðu svo
og innanlandsmál Bandaríkj-
anna.
Það er búizt við því, að repú
blikanar muni berjast fyrir
því, að dregið verði nú veru-
lega úr fjárframlögum til
Marshallhjálparinnar og beita
(Frh. á 7. síðu.)