Alþýðublaðið - 08.01.1950, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 08.01.1950, Blaðsíða 1
Veðurhoríur: Austan eða su'ðaustanátt, stinningskaldi eða allhvasst og rigning eða þokusúld, er líður á daginn. Forustogreim: „Alþyðu listinn". XXXI. árgangur. Sunnudagur 8. janúar 1850. W= 6. tbl. Hvít jól í áuhögiim Trumans Þetta er heimili Trumans í Independenee í Missouri, þar sem hann dvelur oft á sumrum og í jólaleyfi sínu. Það voru hvít jól í Independenee í þetta sinn og hús Trumans þakið snjó, eins og myndin sýnir. Firmm af eSiefu þátttökuríklum öryggis- ráðsins hafa viðurkennt hanaf VIÐUKKENNING BRETA á kommúnistastjórninni í Pe- king í Kína var í gær aðalumræðuefni heimsblaðanna og stjórnmálamanna. Var búizt við því í aðalbækistöðvum banda- lags liinna sameinuðu þjóða í Nevv York, að meirihluti hinna 59 þátttökuríkja þess eða að minnsta kosti 30 myndu viður- kenna kommúnistastjórn Mao-Tse-tung næstu vikur, en fimm af ellefu ríkjunum, sem fulltrúa eiga í öryggisráðinu, hafa þeg- ar viðurkennt hana, en þau eru Bretland, Noregur, Rússland, Júgóslavía og Indland. Öryggisráðið kemur saman til funda í New York á þriðju- daginn og á Chang, fulltrúi Kuomintangstjórnarinnar þá að skipa försæti þess. Þykir líklegt, að mál þetta verði þá þegar tekið til umræðu í ör- yggisráðinu og að því verði mótmælt, að fulltrúi Kuomin- tangstjórnarinnar sitji þar á- fram. Hins vegar er enginn fulltrúi frá kommúnistastjórn- inni í Peking enn til staðar í New York. Stjórnin í Ástralíu hefur lát ið í ljós undrun sína yfir því, að brezka stjórnin skuli hafa viðurkennt kommúnistastjórn- ina í Kína og bendir í því sam bandi á það, að annað aðal- umræðuefni samveldismálaráð stefnunnar' á Ceylon verði út- breiðsla kommúnismans í As- íu. Segir í yfirlýsingu ástr- ölsku stjórnarinnar, að Iiún hefði talið eðlilegt, að Bretar frestuðu ákvörðun um þetta mál þar til eftir samveldis- VELBATURINN HELGI FRA VESTMANNA- EYJUM rakst síð:degis í gær, á þriðja tímanum, í ofsa veðri á austan á Faxasfcer við Vestmannaeyj ar og lið- aðist 1 sundur á stuttum táma og söfcfc Ekfci -var vitað rneð fullri vissu í gærkvöldi, hve margir voru imran borð’s, en helzt va-r lalið, að þeir mundu hafa verið níu eða tíu, þar af sex eða sjö skipverjar, hitt farþeg- ar, en tveir menn komust upp á sfcerið, er skipið ;sökk. ítrekaðar tilraunir voru gerðar til þess af skipum og bát- um í Vestmannaeyjum að bjarga mönnunum af skerinu síð- degis í gær, en þær tilráúnir höf3u engan árangur borið seint í gærkvöldi, enda þá myrkt orðið af nóttu og enn ofsaveður á austan; og voru þá litlar líkur taldar til að hægt yrði að gera nokkrar verulegar frekari tilraunir til að bjarga mönnununi af skerinu fyrr en um birtingu í morgun. [fonni Zlil siríSsæsfi málaráðstefnuna, svo og að Bretar og Bandaríkjamenn hefðu fylgzt að um afstöðu til þessa máls. um sig i hægri öfga- flokkunum þýzku DR. KURT SCHUMACHER, íeiðtogi þýzkra jafnaðarmanna, hefur í ræðu skýrt frá því, að kommúnistar ltafi hreiðrað um sig í hægri öfgaflokkunum á Vestur-Þýzkalandi. Sagði hann að jafnaðarmenn hefðu undir höndum ótvíræðar sannanir fyrir þessu og myndu fletta of- an af þessari starfsemi komm- únista innan skamms. Vélbáturinn Heigi fór frá Reykjavík í fyrrakvöld áleiðis til Vestmannaeyja, en um svip- að leyti fór strandferðaskipið Herðubreið af stað héðan einn- ig þangað. Munu allmargir farþegar hafa farið með þeim til Vestmannaeyja, en flestir þeirra á síðustu stundu tekið sér far með Iierðubreið. Munu bæði skipin hafa fengið hið versta veður á leiðinni, austan rok og var vindhæðin við Vest mannaeyjar síðdegis í gær um 11 stig. í símtali við Vestmannaeyj- ar seint í gærkvöldi var blað- Inu svo frá skýrt, að svo hafi virzt, að vél bátsins hafi bilað og stöðvazt um það leyti, er báturinn kom inn sundið milli Heimakletts og Faxaskers, og skipti það eftir það litlum tog- um að bátinn rak á skerið, sem er allstórt, en lágt, og brotn- aði hann og sökk á örstuttum tíma. Sást ekkert annað eftir af honum eða áhöfn hans en tveir menn, sem komizt höfðu upp á skerið. Strax og vart var við slysið, fór skip og bátar á vettvang í þeim tilgangi að reyna að bjarga mönnunum af skerinu, og tók standferðaskipið Herðu breið þátt í þeim tilraunum. Þrátt fyrir veðurofsann kom- ust þau nærri skerinu, en til- raunir til þess að ná mönnun- um mistókust þó. Var þeim þó haldið áfram í næturmyrkr- inu í gærkvöldi, en litlar von- ir taldar til að hægt yrði að ná þeim fyrr en þá með birt- ingu í morgun. Faxasker stendur nægilega hátt úr sjó til þess að engin hætta var tal- in á, að mennina tæki út af því, en vafasamt þótti að von- um í gærkvöldi, að þeir mundu lifa nóttina af í þeim kulda og veðurofsa, sem þá var. (Frh. á 8. síðu ) m, seciir pravda PRAVDA hefur ráðizt heiftarlega á brezka stjórn- málamanninn Konna Zilii- acus, sem vikið var úr brezka Alþýðuflokknum fyrir nokkru vegna Rússa- vináttu hans, en Zilliacus átti fyrir nokkrum árum viðtal við Stalin og hefur til þessa verið lofsunginn af kommúnistum. Pravda stimplar Zilliac- us sem stríðsæsingamann og segir, að vörn hans fyr- ir Tííó sýni, að liann þjóni í raun og veru húsbændum Títós, heimsveldissinimnum í Bretlandi og Bandaríkjun- um! Konni Zilliacus hefur fyrir skömmu átt viðtal við Tító og tekið ákveðna af- stöðu með lionum í deilu hans við Kominform, en gagnrýnir Rússa fyrir of- ríki þeirra við leppríki sín í Austur-Evrópu. Þegar kommúnistar réSu Jón Axel að bœjarútgerðinni -------------+----- Útgerðin er nú eitt bezt rekna út- gerðarfyrirtæki á iandinu. ÞEGAR Bæjarútgerð Reykjavíkur var stefnsett haust- ið 1946, greiddu kommúnistar því atkvæði, að Jón Axel Pétursson yrði ásamt Sveini Benediktssyni ráðinn for- stjóri bæjarútgerðarinnar. Þeir hafa nú sett af stað sví- virðilega áróðursherferð gegn Jóni Axel, sem þeir sjáM- ir áttu þátt í að ráða sem forstjóra útgerðarinnar. Reyk- víkingar hafa þó ekki ástæðu til þess að sjá eftir því, að Jón Axel skyldi takast þetta starf á hendur. Bæjarút- gerð Reykjavíkur er nú annað af tveim stærstu útgerð- arfyrirtækjum landsins, og liefur verið mjög vel stjórn- að, svo að orð fer af meðal þeirra, sem bezt þekkja. Jón Axel hefur ekki nema 850 krónur í grunnlaun sem for- stjóri bæjarútgerðarinnar, og eru það tvímælalaust lægstu laun útgerðarforstjóra á landinu, þótt hann hefði vel get- að fengið þau hækkuð, ef hann hefði viijað. Hvað halda menn til dæmis, að Tryggvi Ófeigsson hljóti í laun fyrir að stjórna jafnmörgum togurum? Og er það óeðliíegt, að forstjórar bæjarútgerðarinnar séu tveir, þegar Tryggvi hefur tvo bræður sína sér til aðstoðar við stjórn sinna skipa? Loks má minna á það, að kommúnistar sjálfir greiddu Steindóri Árnasyni, forstjóra bæjarútgerðarinn- ar í Neskaupstað, sem á eitt skip, 1400 krónur í mánaða- laun, eða 60—70% meira en Jón Axel fær fyrir að stjórna fjórum skipum hér. (Sjá enn fremur grein um bæjarút- gerðina á 5. síðu blaðsins í dag).

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.