Alþýðublaðið - 08.01.1950, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 08.01.1950, Blaðsíða 5
Sunnudagur 8. janúar 1950. A1 bVBURLAÐIÐ B ÞJÓÐVILJINN, dagblað Rússa hér í bæ, hefu.r nú hert lygaherferð sína gegn Alþýðu- Ookknum. Beinist lygin og róg urinn að mér persónulega nú Um sinn, það gera bæjarstjórn- arkosningarnar. Kerfisbundinn rógur skal hafinn um alla þá, sem í'kjöri eru eða gegna trún- aðarstöðum fyrir Alþýðufiokk- inn, login skal af þeim öll æra, ef þess er kostur. Því skal logið að samningar hafi verið gjörð- Ir við Sjálfstæðisflokkinn um Etjórn bæjarmála Reykjavíkur. eða öðru því, er hentar í það eða hitt skiptio — allí' í sam- ræmi við fyrirskipanirnar. sem öllum kommúnistaflokkum hafa verið gefnar af húsbænd- um þeirra austan við járntjald- ið. Þess á milli skal svo láta vel að þeim, og bjóða þeim sam- vinnu og samfylkingu, eða hvað það nú allt heitir á þeirra máh, ef ske kynni að svo væri af jbeim dregið, að hægt væri að fleka þá með fagurgala og fleðulátum til að reisa þann gálga, sem þeir og margir Öeiri yrðu síðan hengdir í. Á íslandi verður þeim ekki kápan úr því klæðinu, þó svo illa hafi til tekizt í Póllandi, Rúmeníu, Ungverjalandi, Tékk óslavíku og fleiri löndum, þar sem lýðræðissinnar hjálpuðu þeim til valda. Til þess að sýna nokkuð bar- áttuaðferðir þessarar. fimmtu- herdeildar þykir mér hlýða að rifja nokkuð upp um mig persónulega. og störf mín hjá Reykjavíkurbæ og tildrög að samþykktum fyrir bæjarútge.rð Reykjavíkur. Jón Áxel Péfursson: Árið 1925 réðist ég sem hafn. sögumaður við Reykjavíkur- höfn. Hef ég verið starfsmaður hjá Reykjavíkurbæ alla tíð síð an að undanteknum tveim ár- um, er ég hafði frí frá störfum án launa og gegndi þá fram- kvæmdastjórastaríi hjá Alþýðu sambandi íslands. Öll þessi ár hef ég starfað meira og minna i verkalýðshreyfingunni og Al- þýðuflokknum og unnið að því af fremsta megni, að alþýðan fengi bætt kjör sín efnalega Og menningarlega. Stundum var þessi barátta hörð, þá voru vel flestir þeir, sem nú gala hæst úm ást sína á alþýðústéttunum , og umhyggju sína fyrir vel- j ferð þeirra, víðsfjarri og höfðu þó sannarlega ekki síður en ég og margir fleiri bæði aldur og krafta til þess að vera með. En hvar þeir voru, mega þeir bezt, sjálfir vita og hvers vegna þá vantaði í hópinn þegar erfiðast j gekk. Eitt af þeim mörgu málefn- tim, sem Alþýðuflokkurinn hefur barizt fvrir í bæjarstjórn Reykjavíkur er bæjarfitgerð á togurum. Um tvo áratugi hef- ur sú barátta staðið. Kommún- ístarnir voru andvígir þessu máli — vildu enga bæjarútgerð. Sjálfstæðismenn vildu heldur ekki bæjarútgerð, einstaklings rekstur var þeirra kjörorð. Hinir fyrri, kommúnistarnir, sáu þó brátt að slíkt var ekki vænlegt hjá alþýðu manna og snerust á yfirborðinu, og hafa nú hin síðari ár spilað sig sem fylgjandi því máli, en flest bendir til, að í því sem svo mörgu öðru, gjöri þeir það af íllri nauðsyn og af ótta við sína kjósendur. Það má því með sanni segja, að það hafi orðið hlutskipti okk ar alþýðuflokksmanna, að sann færa Reykvíkinga og ótal marga fleiri um nauðsyn þess að bæjarfélögin eignuðust þessi stórvirku tæki, togarana. Sam- hlíða hefur svo einstaklings- rekstur togara haldið áfram. Árið 1946, var það vitað að Reykjavíkurbær mundi eign- ast fleiri eða færri af ný- sköpunartogurunum. sem voru í byggingu Sjáyarútvegs- nefnd Reykjavíkurbæjar, er skipuð var - samkvæmt sam- þykkt bæjarstjórnar, og var ráðgefandi fyrir bæjarstjórn og bæjarráð í málefnum sjávar- útvegs, (léf ' meðal annars teikna Svíþjóðarbátana flesta, stærri gerðina ásamt fleiru mjög nytsömu) var falið að fara með málefni bæjarútgerð- ar Reykjavíkur. í nefndinni roru þá sömu menn og eru nú, var og er ég einn meðal þeirra. Sjávarútvegsnefndin fól Sveini Benediktssýni og mér að gegna framkvæmdastjóra- starfi til bráðabirgða. Var það eamþykkt með öllum atkvæð- um nefndarmanna — einnig [ulltrúa kommúnista. Þegar þessi samþykkt var gerð var einn togari væntan- iegur á næsta ári. þ. e. í árs- byrjun 1947, áð því er álitið yar. Það var Ingólfur Arnar- son. Þá var ekkert á það minnst —: engum getum að því leitt — að þetta væri bitlingnr til mín — að þetta væri gjört sam- kvæmt samningi milli Sjálf- stæðisflokksins og Alþýðu- flokksirs til þess að tryggja völd hins fyrrnefnda. Líður svo og bíður, og komni únistaklíkan hefur ekkert við þetta að athuga 1946,-1947 og 1948. Þó fengu þessir herra- menn eitt tilfelli eins og mætti orða það, því ósköp sakleysis- lega spurði Steindór Guð- mundsson að því á bæjarstjórn arfundi „vegna réttlætisins“, hvort framkvæmdastjóri bæj- arútgerðarinnar, J. A. P., væri Jón Axel Pétursson. Við Sveinn Benediktsson önnuðumst -framkvæmda- stjórn bæjarútgerðarinnar hluta af árinu 1946 og 1947 sam an, en rétt er að geta þess hér, p.ð við áttum það sameiginlegt að vilja hag, og velferð þessa nýstofnaða bæjarfyrirtækis í Uvívetna. Frumdrög að samþykktum fyrir bæjarútgerð Reykjavík- ur voru samin samkvæmt fyr- irlagi bæjarráðs. Sjávarútvegs- nefnd Reykjavíkur gekk frá heim. á fundi, og voru allir nefndarmenn sammála. einnig fulltrúi kommúnista, Ingólfur Jónsson. Þar þar lagt til, að ejávarútvegsnefnd annaðist ntjórn útgerðarinnar og réði framkvæmastjóra, einn eða fleiri og var það í samræmi við það, sem áður hafði gerst varðandi þessi mál. Frumdrög þessi voru síðan send bæjar- ráði, er gerði á þeim nokkrar breytingar, er sjávarútvegs- nefnd taldi til bóta, en breyttu t engu þessum tveim atriðum, að sjávarútvegsnefnd færi með ctjórn og framkvæmdastjórar væru fleiri en einn. Og enn "reiddi kommúnistinn atkvæði c-nn a hafnsögumannslaunum,1 með, án nokkurs ágreinings. jafnframt því að hafa laun hjá bæjarútgerðinni og Camp-1 Knox-nefndinni. Þessum fúll- trúa átti þó að vera þetta kunn ugast, því um það leyti endur- nkoðaði hann alla reikninga bæjarins, eða átti að gjöra það. En er það var upplýst, að ég hafði aðeins haft laun meðan ég var hafnsögumaður, þá dimmdi ýfir ásjónum þeirra bótt vonir stæðu til, að ein- hverjir tryðu því gagnstæða. Ög enn var enginn samningur nefndur. Árin 1948 og 1949 hef ég verið framkvæmdastjóri að rhestu einn. Sveinn Benedikts- son hefur þó ávallt gegnt þeim störfum, er ég þurfti að fara ut- an vegna byggingar skipanna eða annars í sambandi við komu hinna nýju skipa. Ég hef þann- ig verið framkvæmdastjóri til bráðabirgða í rúm þrjú ár. Það má lá mér það hver sem vill, — fyrst ég á annað borð léði máls á því að vera fram- kvæmdastjóri til bráðabirgða, þótt ég greiddi því atkvæði í njávarútvegsnefnd, að ég yrði það áfram. Árið, sem leið, hef ég haft í laun fyrir að vera fram- kvæmdastjóri kr. 850,00 í nrunn á mánuði, eða nákvæm- lega sömu iaun og hafnsögu- menn Reykjavíkur hafa. Má liver se mvill öfunda mig af þeim launum, en öðrum störf- um hef ég ekki gegnt nerna rtörfum í þágu bæjarrnálefn- anna. Bæjarútgerðin er ungt fyrir- tæki — hún byrjar með fjögur skip og góðan hug borgaranna, einkum þeirra, sem um sjóinn hugsa og skilja þýðingu útvegs- ins frá bænum. Er ánægjulegt til þess að vita, hversu margir fylgjast af alhug með þessu nýja atvinnufyrirtæki bæjar- ins, ungir sem gamlir. Það er erfitt .verk og vanda- samt og á einskis eins meðfæri nema í orði, að segja fyrir um. það, á hvern hátt hentúgas verður að gera út eins og nú horfir. Það benda allar líkur til, að margvíslegra ráða þurfi að' leita og mörgum aðferðum að beita til þess að sem beztur árangur náist fvrir þá, sem á skiþunum starfa, og fyrir bæj- arbúa, sem eiga þau. Þeir, sem vilja bæjarútgerð Reykjayíkur og Reykjavíkurbæ vel, þeir munu aldrei íþyngja útgerðinni með óþörfu starfsliði, hvorki á rjó né landi. Ég er einn af þeim, og svo er uni alla alþýðuflokks menn. Það er þá og jafn víst, að teljum við hag Bæjarútgerðar Reykjavíkur betur borgið méð bví að fleiri menn séu kvaddir | til starfs við hana, á sjó eða landi, við almenna vinnu, eða framkvæmdastjórn, þá munum við haga okkur eftir því og fjölga mönnum, svo að aðkall- andi verkefni verði leyst af hendi. Skiptir það engu máli, hvort rógur og níð fimmtu her- deildarinnar verður í ökla eða eyra. Að lokum nokkrar spurning ar til liðssveitar Stalins á Is- landi. Sigfús Sigurhjartarson: Þú hefur vænti ég ekki J:os- ið sjálfan þig í tryggingaráö? Ef svo er, veitir þú þér þá bit- ling? Á hverju lifa herramenr.Iin- ir Sigfús Sigurhjartarson, Eln- ar Olgeirsson, BrynjóJfur Bjarnason, Sigurður Guðnason, Eggert Þorbjarnarson? Hvaðan Cá þeir Iaun sín og hversu rnib il eru þau? Jón Axel Pétursson. Listi AíjjýSuilokksiffis í Hveragerði lagður fram ALÞÝÐUFLOKKURINN og Framsóknarmenn hafa lagt Eram sameiginlegan lista v.ið bæjarstjórnarkosningarnar í Hveragerði, og er hann þan.aig ckipaður: Jóhannes Þorsteinsson, odd- yiti. Ragnar G. Guðjónsson, ve :-.l unarmaður. Gunnar Magnússon, gar'ð- yrkjumaður. Ólafur Helgason, kaupfélags stjóri. Stefán G. Guðmundsson, ■smiður, Þorvaldur Sæmundss., verka maður. Bergþór Bergþórsson, verkn- maður. Emelía Friðriksdóttir, frú. Þráinn Sigurðsson, garð- vrkjumaður. Stefán J. Guðmundsson, hreppstjóri. Á lista Alþýðuflokksins ög frjálslyndra til sýslunefndar er síra Helgi Sveinsson í kjöri, Eem aðalmaður og Ingimar S.ig urðsson garðyrkjumaður, vsra.. maður. Samelginlegur lísli í Ólafsví ALÞÝÐUFLOKKSMENN og framsóknarmenn í Ólafsvík hafa lagt fram sameiginlegan lista við hreppsnefndarkosn- ingarnar, sem fram eiga að fara seint í þessum mánuði. Sex efstu menn listans eru þessir: _ 1. Jónas Þorvaldsson, 2. Ottó Árnason, 3. Jóhann Kristjánsson, 4. Alexander Stefánsson, 5. Guðrnundur Jensson og 6. Víglundur Jónsson. I öðru, þriðja og fimmla sæti eru Alþýðuflokksmenn, en framsóknarmenn í fyrsta, fjórða og sjötta. „Ingólfur Arnarson“, fyrsti togari Bæjarútgerðar Reykjavíkur. Unglingar brufusf inn í Kleppsholti MILLI JÓLA OG NÝÁRS var brotizt inn í matvöru- verzlun KRON við Langholts- veg, og stolið þaðan 200 krón- um. Enn fremur var brotizt þar inn í mjólkurbúð. Rannsóknarlögreglan hefur haft upp á þeim sem innbrotið gerðu og reyndust það vera unglingar.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.