Alþýðublaðið - 08.02.1950, Side 1
Veðurhorförs
Austan os suðaustan
kaldi, sunis staðar dá-
lítil snjókoma eða
slydda.
Alþingi sam-
þykkir þáttíöku
í Evrópuráðinu
' SAMEINAÐ ÞING sam-
þykkti í gær með 35 atkvæð-
um gegn 8 að Island skuli ger-
ast aðili að Evrópuráðinu.
Greiddu kommúnisíar at-
kvæði á móti málinu, en bar-
átta þeirra gegn því fór á
furðulegan hátt í mola.
Fulltrúi kommúnista fékk
málinu margfrestað í utanrík-
isnefnd, og tvisvar sinnum var
búið að fresta afgreiðslu þess í
sameinuðu þingi vegna veik-
inda -Finnboga Rúts Valdimars-
sdnar. Nú var hann enn fjar-,
verandi, og enginn kommún-
isti treysti sér til að mæla gegn
málinu, enda þótt Einar Ol-1
geirSson hafi fengið beiðni Rúts '
um að gera það fyrirfram. Bað ■
Einar enn um frest, en forseti
kvaðst ekki geta frestað mál-
inu öllu lengur en búið var að
gera.
Stefán Jóhann Stefánsson
hafði framsögu fyrir meirihluta
utanríkisnefndar, og rakti
hann nokkuð sögu þess máls og
þýðingu þess. Við atkvæða-
greiðsluna greiddu kommún-
istar atkvæði á móti og einnig
Páll Zóphóníasson, þrír Fram-
sóknarmenn sátu hjá, en sex
þingmenn voru fjarverandi.
Jóhannes Jóhannes-
son fyrrverandi
bæjarfógeti látinn
JÓHANNES JÓHANNES-
SON fyrrverandi bæjarfógeti
og forseti sameinaðs þings and-
aðist í gærmorgun 84 ára að
aldri.
Jóhannes lauk stúdentsprófi
árið 1886 og lögfræðiprófi 1891.
Hann var um skeið sýslumaður
í Norður-Múlasýslu og á Seyð-
isfirði, og síðan bæjarfógeti í
Reykjavík til 1928, er það
embætti var lagt niður. Hann
var þingmaður Norður-Múla-
sýslu frá 1900—1914 og þing-
maður Seyðfirðinga 1916 —
193Í. Forseti sameinaðs þings
var hann 1918—1921 og aftur
frá 1924—1926.
Útbreiðslufundur
barnaverndarfé-
lagsins í kvöld
BARNAVERNDARFÉLAG
Reykjavíkur heldur útbreiðslu-
fund og kynningarkvöld í Breið
firðingabúð í kvöld kl. 8.30.
BJÖRGVIN BJARNASON útgerðarmaður hefur
Frá A ustur-Pýzkalandi
Býðsttilað greiða kaup sjómann-
anna, ef hann fái útflutningsleyfi
fyrir öllum fjórum bátunum!
nú sett skilyrði fyrir þvi, að hann greiði sjóveðin, sem
á bátum hans hví'la. Að því er Alþýðublaðið hefur
frétt, hefur borizt orðsending frá Björgvin þess efnis,
að hann sé fús til að greiða skuldir sínar hér heima,
þar á meðal 3—400 000 krónur af ógreiddu kaupi sjó-
manna, ef hann fái útflutningsleyfi fyrir bátunum
fjórum, sem nú liggja í Bonávista á Nýfundnalandi.
Af þessu virðist það augljóst,
að Nýfundnalandsstjórn vilji,
ekki veita Björgvin það 150 000
dollara lán, sem Alþýðublaðið
hefur áður skýrt frá, nema
geti tryggt sér útflutn-
ingsrétt fyrir bátana, svo að
þeir verði eign Nýfundnalands-
manna (eða Björgvins í Ný-
fundnalandi).
Það verður að kallast furðu-
leg ósvífni af Björgvin að
hann skuli setja sltilyrði
fyrir því, að hann greiði
skuldir sínar hér lieima, eft-
ir að hann hefur flúið úr
landi með bátana og sent
sjómennina kauplausa heim.
Mál þetta verður því flókn-
ara og erfiðara, og framkoma
Björgvins ósvífnari, sem meira
fréttist um málavöxtu. Björg-
vin setur nú íslenzku sjómönn-
unum, sem hann skuldar
3—400 000 krónur í kaup-
greiðslur, þau skilyrði, að þeir
geti fengið þessa peninga, sem
hann skuldar þeim, ef íslenzka
þjóðin vilji fórna bátunúm
fjórum til Nýfundnalands-
manna. Ef Björgvin fær ekki
útflutningsleyfið, má búast við
því, að sjómönnunum verði
dæmd skipin (svo framarlega
sem Björgvin ekki hefur skap-
að skipunum skuldir ytra, sem
hafa forgangsrétt yfir sjóveð-
in). En fái sjómennirnir skip-
in, hver á þá að kosta heimför
þeirra? Það getur kostað ^kild-
ing að sigla fjórum bátum yfir
þvert Atlantshaf, og vegna
flótta Björgvins er sá kostnað-
ur óhjákvæmilegur.
Breiar viðurkenna
sljórn Bao Dais
BREZKA STJORNIN hefur
nú viðurkennt stjórn Bao Dais
í Indó-Kína, en stjórnin fer
með völd í fylkjunum Viet
Nam, Laos og Cambotiu, sem
nú eru sjálfstæð ríki innan
íranska sambandsins. Viður-
kenning þessi er eins konar
svar við viðurkemningu Rússa
á stjórn hins kommúnistíska
byltingaleiðtoga Ho Cþi Minhs,
sem ræður yfir allmiklu lands-
svæði við landamæri Kína, en
þó engum stórborgum og hvergi
nærri svo miklu landi, sem
kommúnistar vilja vera láta.
Öryggisráðið ræðir
Kashmirdeiluna
ÖRYGGISRÁÐIÐ ræddi í gær
Kashmirdeiluna, og skýrði full-
trúi Kanada, McNoughton, frá
því, að tilraunir hans til þess
að koma á sættum hefðu reynzt
árangurslausar. Fulltrúi Ind-
verja sakaði Pakistan um
hreina árás á Kashmír og vildi,
að öll áhrif þeirrar árásar væru
þurrkuð út, áður en atkvæða-
greiðsla færi fram í ríkinu.
Samvinna íhaidi og kommún>
isfa heldur áfram á Isafirði
íhaldið láíiaði þeim atkvæði í kosningun-
um, svo að einn kommúnisti kæmist a'ðS
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. ÍSAFIRÐI í gærkvöldi.
SJÁLFSTÆÐISMENN OG KOMMÚNISTAR skriðu enn
á ný saman á fyrsta fundi hinnar nýju bæjarstjórnar á Isa-
firði í kvöld og kusu forseta og varaforseta bæjarstjórnarinnar
í sameiningu. Kusu þeir Matthías Bjarnason, sjálfstæðismann,
forseta bæjarstjórnar, Harald Steinþórsson, kommúnista, fyrsta
varaforseta, og Baldur Johnsen, sjálfstæðismann, annan vara-
forseta. Samþykkt var á fundinum að auglýsa embætti bæjar-
stjóra á ísafirði laust til 1. marz, enda hefur Sigurður Hall-
Þessar tvær myndir eru frá borginni Chemnitz á hernámssvæði
RÚssa í Austur-Þýzkalandi. Efri myndin er af göngu kommún-
istasveita, en sú neðri af biðröð við matvöruverzlun í borginni.
dórsson nú látið af því starfi, og er því gegnt til bráðabirgða
af skrifstofustjóra embættisins.
Áður en þessi fyrsti fundur
hinnar nýju bæjarstjórnar var
haldinn, höfðu kommúnistar
boðið upp á samstarf allra
flokka um stjórn bæjarins.
Svaraði Alþýðuflokkurinn því
þannig, að hann væri til viðtals
við kommúnista um tveg'gja
flokka samstarf, og á svipaðan
hátt mun Sjálfstæðisflokkur-
inn einnig hafa svarað.
í viðræðum, sem síðan fóru
’fram með Alþýðuflokknum og
kommúnistum, bar 'lítið á milli
málefnalega, en kommúnistar
heimtuðu, að forseti bæjar-
stjórnar yrði valinn úr þeirra
flokki.
Þessu hafði Alþýðuflokkur-
inn ekki svarað endanlega, er
kommúnistar tóku þá ákvörð-
Framh. á 7. síðu.
Bidauit biður um
trauslsyfirlýsingu
BIDAULT hefur nú myndað
ríkisstjórn sína á ný, og er tal-
ið, að hann muni fá traustsyf-
irlýsingu þingsins, eins og hann
hefur beðið um. Þó er þessari
stjórn ekki spáð langlífi.
áslralir veita Burma
fjárhagsstuðning
ÁSTRALSKA STJÓRNIN
hefur samþykkt fjárhagslega
aðstoð til Burrna, og munu önn-
ur samveldislönd sennilega
gera hið sama. Er þetta í sam-
ræmi við ákvarðanir Colombo-
ráðstefnunnar.