Alþýðublaðið - 02.03.1950, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 02.03.1950, Blaðsíða 1
^etSurhorfurs Minnkandi suðvestanátt, skúrir, þegar líður á daginn. Forustugrein: Alþýðuflokkurinn og geng- islækkunin. XXXI. árgangur. Fimmtudagur 2. marz 1950. 52. tbl. nlraustið á ríkisstjórnina Tiliaga þriggja Aiþýðuflokksþingmanna: n nyja ne ezka jsingsins hél r I Slíkt leyfi væri fordæmi, sem gæíi haff hinar hæftulegusfu afleiðingar ÞPvÍK ÞINGMENN ALÞÝÐUFLOKKSINS, þeir Finnur Jónsson, Gylfi Þ. Gíslason og Haraldur Guðmundsson, fiytja á _aiþingi þingsályktunartillögu, þar sem skorað er á ríkis- stjórnina að Ieyfa Björgvini Bjarnasyni ekki útflutning á bát- mium fjórum, sem hann hefur flúið með til Nýfundnalands, gera ráðstafanir til þess að fá skipin aftur heim og tryggja skipverjum greiðslu á kaupi þeirra frá síðast liðnu sumri. ‘ ♦ Greinargerð flutningsmanna með tillögunni fer hér á eftir orðrétt: „Svo sem kunnugt er, sendi Björgvin Bjarnason útgerðar- rnaður á ísifirði þau fjögur skip, sem nefnd eru í tillög- unni, til fiskveiða við Græn- land vorið 1949. Áður en skip- in lögðu úr höfn, var gerður samningur um kaup og kjör sjómanna þeirra, er á þau voru ráðnir, og var þar gert ráð fyr- ir Grænlandsveiðum og sigl- ingu. Mun hafa verið ætlunin, að skipin færu að loknum veið- um til Breltands með saltfisk- farm. Þegar veiðum við Grænland lauk, síðla sumars, fengu skip- verjar tilkynningu um að sigla skipunum til Nýfundnalands, og var þeim ekki kunnugt um þá fyrirætlan fyrr en eftir að til Grænlands kom. Var skip- unum nú siglt þangað. Nokkru síðar sendi útgerðarmaðurinn 53 sjómenn, sem á skipunum höfðu starfað, flugleiðis heim til íslands án þess að greiða þeim nema lítinn hluta af sum- arkaupi þeirra. Fiskaflann 1 hafði hann selt fyrir erlenda mynt og eigi gert skil fvrir andvirðinu til gjaldeyriseftir- lits bankanna né heldur skilað þeim neinum gjaldeyri. Skip- verjarnir munu enn eiga hjá útgerðarmanninum Björgvin Bjarnasyni um 350 þús. kr. í ógreiddu kaupi, og hefur Al- þýðusamband Islands gert ýmsar ráðstafanir til þess að rétta hlut þeirra, en árangurs- laust. Þá mun öll úttekt íyrir kosti og öðrum útbúnaði til út- gerðar þessarar fyrir sumarið vera ógreidd hjá ýmsum verzl- unum hér í bænum. Um aðrar skuldir, er nema miklu hærri upphæðum, er eigi ástæða. til að fjölyrða. í blöðum í Nýfundnalandi er birtur nýársboðskapur forsæt- isráðherrans þar, hr. J. R. Framhald á 7. síðu. NEÐPvI DEILD brezka þings- ins kom saiTsan á fyrsta fund sinn í gær og endurkaus Clift- on Brown í einu hijóði forseta deildarinnar. Þingmenn brezka alþýðu- flokksins komu saman á fund síðar í gær og endurkusu Attlee forsætisráðherra í einu hljóði forseta þingflokksins. Þingmenn íhaldsflokksins héldu einnig fund í gærkvöldi og • flutti Churchill ræðu á þeim fundi. m veri MOSKVUUTVARPIÐ flutti þá frétt í fyrrakvöld, að sovét- stjórnin hefði hækkað gengi rúblunnar, leyst það frá gengi dollars, og ákveðið, að það skuli framvegis miðað við gull. Hefur dollar undanfarið verið 5,30 rúblur, en verður framvegis ekki nema 4 rúbl- ur. Jafnframt þessu hefði sovét- stjórnin, sagði Moskvuútvarp- ið, lækkað verð á vörum mjög verulega eða um 10—30%. ------------------- Kína (ær þýzkt stál í járnbraularleina STJÓRN Vestur-Þýzkalands hefur veitt samþykki sitt til þess, að kommúnistastjórninni í Kína verði seldar 15.000 lest- ir af þýzku stáli, sem nota á í járnbrautarteina í Kína. Dr. Klaus Fuchs.- í 14 ára fangelsi Léf Rússa hafa armál Breta. DR. KLAUS FUCHS, þýzki lfiarnbrkufræðingurinn, sem fyrir nokkru var tekinn fastur á Bretlandi og játaði á sig, að hafa látið Rússa vita um kjarn orkuleyndarmál Breta, var í gær dæmdur í 14 ára fangelsi í* London. Dr. Fuchs játaði á sig, að hafa í' fyrsta sinn látið Rússa vita um kjarnorkuleyndarmál Framhald af 1. síðu. 33: Yfirlýsing Stefáns Jóhanns: A þýðuflokkurinn gefur ekki feki í neinni stjórn, sem ætla að koma á gengislækkun TILLAGAN UM VANTRAUST á ríkisstjómina var samþykkt í sameinuðu alþingi að loknum útvarps- umræðunum í gærkvöldi með 33 atkvæðum þing- manna A'Iþýðuflokksins, Framsóknarflokkisins og kommúnista gegn atkvæðujm ■ 18 þingmanna Sjálf- stæðisfl'okksins, en einn þingmaður ’hans, Ólafur Thors, var fjarstaddur. Breytingartillaga um að tengja vantra'ustið hinu framkomna gengislækkunar- frumvarpi ríkisstjórnarinnar var hins vegar felld með 18 atkvæðum gegn 15, en 18 sátu hjá og einn var fjarstaddur. Við útvarpsumræðurnar um vantraustið í gærkvöldi töl- uðu af hálfu Alþýðuflokksins Stefán Jóh. Steíánsson og Emil Jónsson; af hálfu Fram- sóknarflokksins Hermann Jón- asson og Eysteinn Jónsson; af hálfu kommúnista Ásmundur Sigurðsson og Einar Olgeirs- son og af hálfu Sjálfstæðis- flokksins Bjarni Benediktsson. Snerust umræðurnar að veru- legu leyti um gengislækkunar- frúmvarpið og lýstu ræðumenn Alþýðufíokksins yfir því, að þeir væru frumvarpinu and- vígir og greiddu vantraustinu atkvæði vegna þeirrar stefnu ríkisstjórnarinnar, er þar kæmi fram. SKOLLALEIKUR FRAM- SÓKNAR. Ræðumenn Framsóknar- flokksins lýstu yfir fylgi síriu við gengislækkunarhugmyná - ina, en þóttust þó vera and- vígir einstökum atriðum hins fram komna frumvarps. Kom glögglega fram í ræðum þeirra, Víttur af félagi danskra blaðateiknara fyrir háðteikningu af Gyðingum, sem kom í blaðinu „Land og folk“. Frá fréttaritara Alþýðublaðsins KHÖFN í gær. FÉLAG DANSKRA BLAÐATEIKNARA hefur látið alvar- lega vanþóknun sína í ljós á því, að einn meðlimur þess, kontm- únistinn Herluf Bidstrup, hefur birt í flokksblaði sínu, „Land og folk“, teikningu, sem hæðir Gyðinga og minnir sterklega á blaðateikningar og myndir nazista af Gyðingum. Teikning Bidstrups er háð- vera komnir til Danmerkur, teikning af nokkrum pólskum þar á meðal einum, sem ber á .flóttamönnum, sem eiga að Framhald á 7. síðu. að samkomulagsumleitanir hafa að undanförnu farið fram milli Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins og báðir flokkarnir í raun og veru verið sammála um megihatriði geng islækkunarfrumvarpsins, þar er fyrir lá að mynda stjórn á grundvelli samþykktar þess en án málefnasamnings að öðru leyti. Upplýsti Hermann Jónasson, að Framsóknar- flokkurinn hefði *sett það skil- yrði að fá forsætisráðherra í hinni nýju stjórn, en Sjálf- stæðisflokkurinn ekki fallizt á það og' hefði Framsóknarflokk- urinn þá samþykkt, að Sjálf- stæðisflokkurinn skyldi til- nefna forsætisráðherrann. Lá fyrir í aðalatriðum, hvernig háttað skyldi verkaskiptingu stjórnarinnar og átti Fram- sóknarflokkurinn að fá utan- ríkismálin, dómsmálin, við- skiptamálin, samgöngumálin og menntamálin. Stjórnar- myndun þessi fór þó út um þúfur á síðustu stundu, en Hermann og Eysteinn drógu enga dul á það, að fyrir Fram- sóknarflokknum vakir að, taka upp samvinnu við íhaldið og telur það eitt bjargræði lands- ins, að hann hafi á hendi fram- kvæmd gengislækkunarinnar. Boðaði Hermann nýja stjórn á breiðari grundvelli eftir að minnihlutastjórn íhaldsins væri fallin. Bjarni Benediktsson lofaði gengitllækkunarfrumvarpið á hvert reipi og furðaði sig mjög á vantrausti Framsókn- arflokksins, þar eð báðir flokkarnir væru í öllum aðal- atriðum sammála um þetta „mikla mál“, eins og hann orð- aði það. Gaf hann greinilega í skyn í síðari ræðu sinni, að Sjálfstæðisflokkurinp væri fyllilega til viðtals um mynd- un nýrrar ríkisstjórnar með Framsóknarflokknum og lauk . (Frli. af 6. síðu.)’

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.