Alþýðublaðið - 02.03.1950, Page 8
'Gerizt askrifendur
Alþýðublaðið inn á
I hvert heimli. Hring-
' ið í síma 4900 eða 4908.
Fimmtudagur 2. marz 1950.
Böm ög uogliogar,
Kornið og.seljið t
AlþýÖublaðíÖ. ;
Allir vilja kaupa I
Alþýðublaðið.
r fi
. mari
ræðir kaupgjalds- og
og gengislækkunina
MIÐSTJOKN ALÞYÐUSAMBANDS ISLANDS hcfur
bpðað alla sambandsstjórnina og formenn eða aðra fulltrúa
úr stjórnum allra verkalýðsfélaga landsins til ráðstefnu, sem
■baldin verður í Eeykjavík clagana 12.—14. marz næstkomandi.
Mun ráðstefna þessi ræða dýrtíðar- og kaupgjaldsmálin, svo
og frumvarp ríkistjórnarinnar um gengisfellingu og fleira, og
bvernig verkalýðurinn skuli bregðast við því, ef að lögum
verður.
Miðstjórn Alþýðusambands-*
iris samþykkti á fundi sínum
20. febrúar s. 1. að boða til þess
arar ráðstefnu, og hefur öllum
sambandsfélögunum nú verið
skrfiað bréf og þeim boðið að
senda fulltrúa á ráðstefnuna.
Ætlazt er tií þess, að for-
menn félagsins mæti á ráð-
stefnunni, en þar sem svo stend
ur á að þeir geti ekki sjálfir
mætt, er gert ráð fyrir að vara-
formenn, eða aðrir fulltrúar úr
stjórninni er stjórn viðkom-
andi félags velur, komi í þeirra
stað. Verða þannig saman komn
ii’ á ráðstefnunni ábyrgustu
forustumenn verkalýðshreyf-
ingarinnar í landinu, en búizt
er við að ráðstefnuna sitji um
150 manns.
Ráðstefnan verður sett í AI
þýðuhúsinu við Hverfisgötu
stunnudaginn 12. marz, en held
ur síðan áfram í Iðnó, mánu-
daginn 13. og þriðjudaginn 14.
marz.
---------—*—----------
Fjársöfnunin lil
ilfsavarne
gekk vel
FJÁRSÖFNUN til slysavarna
fór nýlega fram af hálfu
kvennadeildar slýsavarnafélags
ins í Reykjavík.
Tekjurnar urðu sem hér seg-
ir: Fyrir seld merki kr. 20,944;
Ágóði af skemmtun kr. 3 000;
Gjöf kr. 500. Saínað alls kr.
24 444.
Slysavarnafélagskonur þakka
bæjarbúum framlög þeirra til
slysayarna, og hinum mörgu
börnum og unglingum, sem við
merkjasöluna störfuðu, dugnað
þeirra og árvekni.
Málfundur FUi
veröur í kvöld
MÁLFUNDUR FUJ, sem
fresta varð í gærkveldi,
vegna útvarpsumræðna frá
alþingi, verður í kvöld á
venjulegum stað og tíma.
Stjórnin.
Sfræíisvagoasljérar
segja upp samn-
ingum
STRÆTISVAGNSTJÓRA-
DEILD bifreiðastjórafélagsins
Hreyfils hefur samþykkt við
allsherjar atkvæðagreiðslu að
segja upp samningum hjá
Strætisvögnum Reykjavíkur.
Samningarnir gagna úr gildi 1.
apríl næstkomandi.
Þrjú lyfsöluleyfi
auglýst til umsóknar
ÞRJÚ LYFSÖLULEYFI liafa
verið auglýst laus til umsókn-
ar, tvö í Reykjavík og eitt á
Seyðisfirði. Umsóknum ber að
skila til landslæknisskrifstof-
unnar fyrir 1. maí, en leyfin
verða veitt af heilbrigðismála-
ráðherra, eftir umsögn land-
læknis.
Samkvæmt ósþ bæjarstjórn
ar Reykjavíkur hefur heil-
brigðismálaráðuneytið veitt
leyfi til þess að stofnsettar
verði tvær nýjar lyfjabúðir í
Reykjavík, önnur fyrir Aust-
urbæ, Hiíðahverfi og Norður-
mýri, en hin fyrir Vesturbæ,
Melana og Skjólin.
Umsóknir um þessi lyfsölu-
leyfi hafa nú verið auglýst, og
jafnframt óskað eftir upplýs-
ingurri frá umsækjendum um
möguleika þeirra -á útvegun
húsnæðis og öðru ér þarf til
reksturs lyfjabúðanna, svo og
hvenær þær geti hafið starf-
vækslu.
Umsóknir um lyfsöluleyfið
á Seyðisfírði eiga einnig að
berast fvrir 1. maíyen lyfsal-
inn, sem þar hefur verið, Jo-
han Hellerup, hefur verið
yeitt lyfsöluleyfi við nýstofn-
aða Iyfjabúð í Keflavík. Á
sínum tíma veitti Finnur Jóns-
son, fyrrverandi heilbrigðis-
málaráðherra, sjúkrasamlagi
Keflavíkur að stofnsetja nýja
lyfjabúð, en samlagið mun
ekki hafa treyst sér til við
rekstur hennar þegar til kom,
og var lyfsöluleyfið því aug-
lýst í haust, og veitt lyfsalan-
um frá Seyðisfirði.
Yfirfærir Lands-
bankinn nú þeg-
ar á nýju gengi!
LANDSBANKINN hætti
öllum yfirfærslum síðastlið-
inn mánudag vegna frnm-
varps stjórnarinnar um
gengislækkunina. Þó mun
bankinn hafa yfirfært bráð-
nauðsynlegar greiðslur, og’
þó aðeins ef viðkomandi
hafa fallizt á að leggja inn
fé sem svarar yfirfærslunni
á því gengi, sem frumvarp
stjórnarinnar gerir ráð fyr-
ir.
Meðal þcirra gr.ciðslna,
sem ýfirfærðar hafa verið
samkvæmt þessari . fyrir-
fram gengislækkun Lands-
bankans eru périingasend-
ingar til námsmanna. Fýrir
hverja 100 dollara séndingu,
sem eftir núverandi gengi
kostar 930 kr., veröa að-
standendur nú þegar að
leggja fram yfir 1000 ki.,
sem verður gengið, e£ frum-
varp stjórnarinnar nær
fram að ganga.
Það hlýtur að vera vafa
bundið, hvort Landsbank-
inn hefur lagalegan rétt til
að yfirfæra strax á breyttu
gengi, og væri fróðlegt að fá
það upplýst, á hvaða for-
sendum þetta hefur verið
gert.
Þá er augljóst, að hér
dregur til mikilla vandræða,
ef bankarnir yfirfæra ekki
nema brýnustu nauðsynja-
greiðslur í langan tíma,
hvert svo sem nýja gengið
verður.
Hreyfill iekur við
rekstri Litlu bíla-
stöðvarinnar
SAMVINNUFÉLAGIÐ
HREYFILL hefur. tokið við
rekstri Litlu bílastöovarinnar
í Reykjavík. Hefur eigandi
stöðvarinnar, Þorsteinn Þor-
steinsson, leigt félaginu stöð-
ina frá og með 1. rriarz.
Vísitalan komin
upp í 347 stig
KAUPLAGSNEFND hefur
reikriað út vísitölu framfærslu
kostnaðar í febrúarmánuði og
reyndist hún vera 347 stig, eða
fimm stigum hærri en í mán-
uðinum á undan.
Jóhanna Egilsdóítir kosin formaður
VKF Framsóknar í 16. sinn !
------—»..
ÖII stjóroin endurkosin á aóalfund-
ínum, sem haldinn var á mánudag.
—..............
VERKAKVENN AFÉL AGIÐ FRAMSÓKN í Reykjavík
hélt aðalfund sinn á mánudagskvöldið, og var Jóhanna Egils-
dóttir endurkosin formaður félagsins í 16. sinn, en alls hefur
hún nú verið í stjórnmni í 28 ár. Aðrar konur í fráfarandi
stjórn voru einnig endurkjörnar.
Stjórnina skipa:
Jóanna Egilsdóttir formað-
ur, Jóna Guðmundsdóttir vara
formaður, Anna Guðmunds-
dóttir ritari, Guðrún Þorgeirs-
dóttir gjaldkeri og Guðbjörg
Brvnjólfsdóttir fjármálaritari.
í varastjórn voru kosnar:
Pálína Þorfinnsdóttir og Hólm
fríður Ingjaldsdóttir.
Auk stjórnar og varastjórn-
ar skipa þessar konur trúnað-
arráð félagsins: Guðrún Ingv-
arsdóttir, Ingveldur Einars-
dóttir, Elín Ingvarsdóttir,
Kristín Andrésdóttir, Sigríður
Hannesdóttir, Guðrún Þórar-
insdóttir, Elín Guðlaugsdóttir
og Margrét Guðmundsdóttir.
Loks voru kosnir fulltrúar í
eftirtaldar nefndir: Vorboða-
nefnd, Hallveigarstaðanefnd,
bandalag kvenna, áfengis-
varnanefnd, mæðrastyrks-
nefnd og kvenréttindanefnd.
Félagið á nú um 63 þúsund
krónur í sjóðum og hafa eignir
þess aukizt allverulega á síð-
asta starfsári.
Á síðasta ári gerði félagið
tvenna kaupsamninga, fyrst í
marz og síðar í júní, og hækk-
aði tímakaup verkakvenna
samtals úr kr. 1,85 í kr. 2,20
grunnkaup, eða um kr. 1,05 á
tímann, þegar vísitöluuppbót-
in er reiknuð með.
Uýskipaðir skéla-
sfjórar og kennarar
HINN 18. febrúar 1950 skip
aði menntamálaráðuneytið eft
irtalda skólastjóra og kennara
frá 1. sept. 1949 að telja:
Frú Gertrud Friðriksson
kerinara við gagnfræðaskólann
í Húsavík, Ingvar Þórarinsson
kennara við sama skóla, Jóhann
Þorsteinsson kennara við
Flensborgarskóla í Hafnarfirði,
Jón Jónsson kennara við ungl-
ingaskólann í Dalvík, Þorgeir
Ibsen skólástjóra barnaskólans
í Stykkishólmi, Bjarna Andrés
son kennara við sama skóla,
Árna M. Rögnvaldsson skóla-
stjóra barnaskólans í Önguls-
staðaskólahverfi, Vilbörgu
Auðunsdóttur kennara við
barnaskólann í Keflavík, Aðal
stein Gíslason og Stefán Iíalis
son kennara við sama skóia,
Karl Helgason kennara við
barnaskólann á Akranesi, Ein-
ar M. Þorvaldsson kennara við
barnaskólann á Akureyri, Þór
gunni Björnsdóttur kennara við
barnaskólann í Grýtubakka-
skólahverfi og Ólöfu H. Péturs
dóttur kennara við barnaskól-
ann í Seltjarnarnesskólahverfi.
Jóhanna Egilsdóttir.
Aðalfundur Hlífar 1
AÐALFUNDUR verkamanna-
félagsins Hlífar í Hafnarfirði
var haldinn föstudaginn 24.
febr. s. 1.
Á fundinum var lýst kosn-
ingu stjórnar, en aðeins ein til-
laga um ■ stjórn hafði komið
fram og var hún frá uppstill-
ingarnefnd. Voru því þeir
menn, er tilnefndir voru sam-
kvæmt þeirri tillögu, sjálf-
kjörnir í stjórn félagsins, era
þeir eru: Hermann Guðmunds-
son, formaður, Helgi Jónsson,
ritari, Ólafur Jónsson, gjald-
keri, Grírnur Kr. Andrésson,
varaformaður, Sigurður T. Sig-
urðsson, vararitari, Jens Run-
ólfsson, varagjaldkeri ogÆjarni
Erlendsson, fjármálaritari. —
Varamenn voru kosnir: Sigurð-
ur Einarsson, Guðjón Sigur-
finnsson, Kristinn Guðmunds-
son. — Endurskoðendur voru
kosnir: Óskar .Evertsson, Sig-
urðúr Einarsson og til vara
Helgi Sigurðsson.
Skemmfikvöld |
Alþýðuflokksins |
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG
REYKJAVÍKUR og Félag
ungra jafnaðarmanna halda
spila- og skemmtikvöld I
föstudaginn 3. marz kl. 8 1
síðdegis. Skemmtunin verð I
ur í Iðnó.
Félagar fjölmennið og
takið með ykkur gcsti.
Munið að hafa með ykk-
ur spil.
Nánar í blaðinu á morg- |
un. 3