Alþýðublaðið - 21.03.1950, Side 1
iVeðurhorfurs
Suðaustan stinnings-
kaldi, þíðviðri og áá-
lítil rigning með köfl-
um.
Forustugrein:
Óskir verkaiýðsins
að engu hafðar.
'J
XXXI. árgangur.
Þriðjudagur 21. marz 1950.
66. tbl.
LANDSBANKINN hóf í gser sölu erlends gjaldeyris
samkvæmt hinu nýskráða gengi krónunnar. Fer hér á
e.ftir söluverð gjaldeyris hinna einstöku þjóða, sem Is-
lendingar hafa mest viðskipti við, eins og það er nú eftir
gengisfellinguna. í svigurn er gengið eins og það var fyrir
breytinguna:
1 sterlingspund
Bandaríkjadoilar
100 danskar krónur
100 sænskar ltrónur
100 norskar krónur
1000 franskir frankar
100 belgiskir frankar
100 svissneskir frankar
100 gyllini
Kanadiskur dollar
100 tékkneskar krónur
Belgiskir jafnaðarmenn berjast
gegn heimkomu Leopolds
-——..............» ■■ ----
Alger óvissa eon um nýia stjórnar*
myndyr) eða heimkomu konongs.
fsl. kr. nú: fsl. kr. áður:
45,70 ( 26,22)
16,32 ( 9,36)
236,30 ( 135,57)
315.50 ( 181,00)
228.50 ( 131,10)
45.63 ( 26,75)
32,67 ( 18,74)
373.70 ( 214,40)
429,90 ( 246,65)
14,84 (8,51,35)
32.64 ( 18,73)
BELGISKIR JAFNAÐARMENM héldu flokksþing sitt um
helgina, og samþykktu þeir nær einróma, að berjast gegn því
af öllum mætti, að Leopold konungur komi aftur til Belgíu.
Mun flokkurinn beita öllum löglegum vopnum í baráttu sinni,
þar á meðal allsherjarverkfalli, ef þörf þykir, og er þegar
byriuð söfnun í baráttusjóð.
Bándaríkjamenn
nú ialdir vera
yfir 1S1 miiljén.
ALLSHERJAR MANNTAL
verður tekið í Bandaríkjunum
um mánaðamótin ,og er búizt
við, að íbúar landsins reynist
um 151 500 000, eða 19 000 000
fleiri en 1940. Slíkt manntal er
tekið á 10 ára fresti vestra, og
var hið fyrsta tekið 1790. Hef
ur sérstakt lið manna verið
þjálfað til manntalsins, og verð
ur spurt um marga aðra hluti
en nöfn og heimilisföng. Alls
mun manntalið kosta stjórnina
90 milljónir dollara. Mikill til
flutningur á fólki hefur átt sér
stað í Bandaríkjunum undan-
farin ár, og hefur mannfjölgun
í ríkjunum á Kyrrahafsströnd
inni unmið 40—50%.
Ástandið í Belgíu er að öðru
leyti óbreytt. Eyskens hefur
enn ekki tekizt að mynda nýja
stjórn, en mótmælaverkföll
breiðast út og munu um 30 000
manns hafa verið frá vinnu í
gær, aðallega í Bríissel og Ant-
werpen.
Frjálslyndi flokkurinn er nú
klofinn í konungsmálinu, og
eru hinir frönskumælandi með
limir flokksins á móti konungi.
Hefur bilið milli flokksbrot-
anna stöðugt aukizt hina síð-
ustu daga. Þá hafa komið fram
efasemdir í kristilega flokkn-
um, sem annars hefur verið ó-
skiptur í fylgi sínu vió mál-
stað Leopolds.
Enginn einn flokkur hefur
meirihluta á þingi og er þv-í tal
ið erfitt að sjá nokkra leið til
stjórnarmyndunar um þá stefnu
Eyskens og flokks hans að
Leopold komi heim aftur.
Kvöldbænir fara fram í Hall
grímskirkju á hverju ltvöldi
nema sunnudaga og miðviku-
daga kl. 8 stundvíslega.
framfíðarinnar
• kaupið og hverníg
verðlagið næstu mánuðina?
-.....-------
Kolin haéka mjög bráölega mikið í verði;
kaupið verður íyrirsjáanlega óbreyif í aprii
------------------*------
ALÞÝÐA MANNA liorfir nú með meiri kvíða til framtíð-
arinnar en húri hefur gert í heilan áratug. Allir verkamenn
og launamenn vita, að gengisiækkunin boðar skerðingu á ltjör-
um þeirra. En hve mikil hún verður, það eigá menn eftir að sjá.
Menn spyrja fyrst um það, hvert kaup þeirra verði, og síðan
um verðlagið. Fyrstu svörin eru þau, að kolin muni stórhækka
mjög bráðlega, en kaupið verður að öllum líkindum óbreytt í
næsta rnánuði.
Hafið gælur á
verðiaginu
ALMENNINGUR er nú
mjög hvattur til þess að vera
á verði gegn verðhækkun-
um. Ríkisstjórnin gaf í gær
út tilkynningu, þar sem
bannaðar eru allar verð-
hækkanir á þeim vörubirgð-
um, sem til eru í landinu, og
er því Iofað, að stjórnin
muni gera ráðstafanir til að
hafa hendur í hári þeirra,
sem reyna að fá óeðlilegan
gróða af gengislækkuninni,
og hegna þeim. Mikil hætta
er á því, að þeir, sem vilja
gera sér vandræði þjóðar-
innar að féþúfu, telji mönn-
um trú um, að ýmsar vörur
séu keyptár til landsins eftir
gengislækkunina og spenni
þannig upp verðlagið.
Það fyrsta, sem menn þurfa
að venja sig við í sambandi við
kaupið. er að hætta að tala um
grunnlaun og mánaðarlega dýr
tíðaruppbót. Það er úr sögunni,
og menn hafa nú ekki 700 í
grunn, heldur hreinlega 2100
krónur í kaup.
Annað er það, að nú kemur
ný vístitala. Vístitalan fyrir fe
brúar var upp á gamla mátann
347. Nú er verið að reikna út
vísitöluna fyrir marz, en bún
verður eitthvað hærri. Þá
verður bætt inn í hana húsa-
leigu í nýju húsunum, sem full
gerð hafa verið eftir 1945, og
síðan verður kjötið sett inn í
vísitöluna óniðurgreitt. Þetta
mun hækka hana verulega, en
sú hækkun verður ekki bætt
upp með hækkuðu kaupi, held
ur verður slegið striki yfir
gamla vísitölureikninginn og
hin nýja vísitala marzmánað-
ar talin vera 100.
Um næstu mánaðamót, 1 ap-
ríl, á að greiða kaup eftir apríl
vísitölunni, sem að vísu verð-
ur ekki tilbúin fyrr en eftir
miðjan mány,ðinn. Ef þessi. ap-
ríl vísitala hækkar um meira
en 5%, eða 5 stig, þá fá nienn
uppbót, sem því nemur. Ef hún
hækkar ekki um 5 stig (og það
'eru litlar lílcur á að liún geri
það svo snemma), þá fá menn
engar uppbætur í apríl.
Ef vísitalan fer yfir 105 fyr-
ir maí. fá menn uppbót og eins
fyrir júnímánuð. En eftir það
verða engar uppbætur greidd-
ar, hversu mikið, sem vísital-
an kann að hækka, fyrr en 1.
janúar 1951. Þá verða greidd-
ar uppbætur, en svo ekki aft-
ur fyrr en 1. júlí 1951. Þá á
allt að vera komið í lag, að því
er hagfræðingar ríkisstjórnar-
innar telja, svo að gengisfalls-
lögin gilda að þessu leyti ekki
lengur.
RÓLEGUR DAGUR
Forseti staðfesti gengislög-
in á sunnudag og komu þau til
framkvæmda þegar í gær. Bank
arnir hófu aftur yfirfærslu, en
allt gekk rólega, enda voru
menn ekki áfjáðir í að yíir-
íæra leyfi sín eftir að þeir sáu
hið nýja verð á gjaldeyrinum.
Þeir menn, sem eru svo vel
efnum búnir, að þeir hafa und
anfarin ár eignazt einstaka
pund, dollar eða danska krónu,
eða getað birugðið sér út fyrir
pollinn, hristu höfuðið, er þeir
lásu nýja gengislistann. Pundið
á kr. 45,70, dollarinn á 16,32 og
danska krónan á 2,36! Náms-
maður, sem hafði sótt um styik
til framhaldsnáms erlendis, aft
urkallaði umsóknina, og sjó-
menn bölvuðu í hljóði er þeir
reiknuðu út, hvernig gjaldevr-
isskammtur þeirra minnkar.
Þannig var Reykjavík dag-
inn eftir gengishrunið mikla,
20. marz 1950. Yfirborðið ró-
Lýst ettir vitnum að
slysi á Suðurlands-
braut.
FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ 17.
marz milli kl. 9 og 10 varð
stúlka fyrir bifreið á Suður-
iandsbrautinni og fótbrotnaði.
Rannsóknarlögreglan biður
sjónarvotta, ef einhverjir
kynnu að vera, eða þá, sem
einhverjar upplýsingar geta
gefið um slys þetta, að gefa
sig fram hið allra fyrsta.
legt„ en undir niðri óvissa og
kvíði fyrir framtíðinni.
Ðungal og séra Sigurbjörn Einars-
on rökræða um trú og vísindi.
Á foodi Stúdentafélags Reykjavíkur,
sem haldlnn verður f Tjarnarbiói f kvöld-
STUDENTAFELAG REYKJAVÍKUR heldur fund í Tjarn-
arbíói í kvöld, og hefst hann kl. 8,30. UmræSuefni verður að
þessu sinni „Trú og vísindi“, og verða þeir frummælendur
prófessorarnir Níels P. Dungal og Sigurbjörn Einarsson. Að
ræðum þeirra loknum verða frjálsar umræður eftir því, sem
tími leyfir.
Frummælendur hafa eins og
kunnugt er látið þessi mál
mikið til sína taka, og mun því
mörgum leika hugur á að
hlýða á rökræður þeirra. Einn
ig má vænta, aj> ýmsir aðrir
fróðir menn taki til máls á
íundinum.
A fundum þeim, sem félagið
hefur’ haldið í vetur, hefur
verið svo mikið fjölmenni, að
ekki hafa allir fengið sæti og
er mönnum því ráðlagt að
koma stundvíslega.
Eins og fyrr er öllum stú-
dentum, sem framvísa félags*-
skírteinum, heimill aðgangur
að fundinum. Þeir stúdentar,
sem ekki hafa enn vitjað fé-
lagsskírteina, ættu að gera það
í Tjarnarbíó kl. 5,15—7, og
komast þannig hjá bið. því að
afgreiðsla hvers skírteinis tek-
ur nokkurn tíma.
Þá er ákveðið að stúdenta-
félagið efni til kvöldvöku að
Hótel Borg n. k. föstudags-
kvöld. Þessi kvöldvaka verður
með • svipuðu sniði og fyrri
kvöldvökur félagsins í vetur.
Þar verður margt til skemmt-
unar, m. a. hinn vinsæli spurn-
ingaþáttur. Þetta verður síð-
asta kvöldvaka félagsins á þess
um vetri.