Alþýðublaðið - 28.03.1950, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 28.03.1950, Blaðsíða 8
Gerizt áskrsfendur að Alþýðublaðinu. Alþýðublaðið inn á v | hvert heimili. Hring- ið í síma 4900 eða 4906 Þriðjudagur 28. niarz 1950 Börn og unglir.gaf. Komið og seljið , j AlþýðublaðiÖ. j Allir vilja kaupa ] AlþýðublaSið. ! Fylgl ko’mmúnisfa i prentara* sféffiniii fer enn þverrandi Magnús H. Jónsson endurkosinn for- maður HfP með miklum atkvæðamun. MAGNÚS H. JÓNSSON var cndurkjörinn formaður Hins íslenzka prentarafélags með miklum atkvæðamun fram yfir fdrmannsefni kommúnista við nýafstaðið stjórnarkjör í félag- iuu. Fékk Magnús 120 atkvæði, en Sigurður Guðgeirsson, er kommúnistar stilitu upp gegn Magmisi, ekki nema 65. En í fvrra hiaut Magnús 102 atkvæði við formannskjcr, en Stefán Ögmundsson 78. Magnús H. Jónsson. Samkomulag um .verðgæzlustjóra' a alþingi FRUMVARP Framsóknar- manna um verðlag, verðlags- eftirlit og verðlagsdóm var til j umræðu í efri deild d gær, og virðist svo sem stjórnarflokk- arnir hafi samið um afgreiðslu málsins með nokkrum breyt- ingum, en andstöSuflokkarnir eru í stórum dráttum sammála því. Aðalbreytingin, sem gerð verður á verðlagsmálunum, er eú, -að settir verða upp verð- lagsdómar, og verðlagsstjóri verður skipaður að fengnum tillögúm stéttarsambanda og landssambanda ýmis konar. Verðlagsstjóri verður framveg- is kallaður „verðgæzlustjóri'1. 11. hverSi Alþfðu- flokkslélags Reykjavíftur ! ELLEFTA HVERFI Al- í þýðuflokksfélags Reykja- | víkur efnir til fræðslu- og ! spilafundar í Þórscafé n.k. ; föstudag, kl. 8 síðd. Fund- i arefni: Félagsvist, sameiginleg kaffidrykkja, stutt ræða. Félagar, mætið stundvís- lega og takið með ykkur ! spil. UM HELGINA tók til starfa 'iýtt gistihús í Vestmanna- eyjum, og er eigandi þess Úrslit kosninganna voru birt á aðalfundi Hins íslenzka prentarafélags, sem haldinn var á sunnudaginn var. Að öðru leyti fór stjórnarkjörið þanhig, að Kjartan Ólafsson var endurkjörinn gjaldkeri, Meyvant Ó. Hallgrímsson var kjörinn fyrsti meðstjórnandi, en fyrir í stjórninni voru Arni Guðlaugsson ritari og Iiörður Óskarsson annar meðstjórn- andi. í upphafi fundarins var minnzt Gunnlaugs Ó. Bjarna- sonar, sem var heiðursfélagi í FIÍP, og nýlega er látinn. Sú breyting var gerð á lög- um íélagsins á aðalfundinum, að árgjald félagsmanna var hækkað um tvær krónur á viku. Þá var samþykkt að af- 1 henda prentnemafélaginu 2000 krónur að gjöf. 19 keppendur áfíust við á hnefaleika- mófinu HNEFALEIKAMEISTARA- j MÓT Ármanns fór fram í I íþróttahúsinu við Hálogaland á sunnudaginn og voru áhorf- . endur margir. Þátttakendur í mótinu voru 19. Fyrst fór fram sýninga- leikur milli Sigurjóns Þórar- insonar og Birgis Sigurðsson- ar og Harðar Hjörleifsonar og Friðriks Welding, Úrslit í hinum einstöku flokkum urðu sem hér segir: í þungavigt. sigraði Jens Þórðarson Jón Ólafsson auð- veldlega. í bantamvigt sjgraði Krist- ján Sveinsson Leif Ingólfsson. í fjaðurvigt sigraði Rafn Viggósson Theódór Theódórs- son. í léttvigt sigraði Sigurður Jóhannsson Guðmund Karls-, son eftir ágætan leik. í veltivigt sigraði Grímur Ævarr Kristján Jóhannsson. í millivigt sigraði hann snjalli hnefaleikari Björn Ey- þórsson Kjartan Guðmunds- son. í léttþungavigt sigraði Al- fons Guðmundsson báða sína keppinauta með miklum yfir- búrðum og sýndi hann einna beztu leikina á mótinu. Helgi Benediktsson útgerðar- maður. Hótelið nefnist H.B. og eru í því 40 gistiherbergi. ASalfundur Kven- félags Alþýðu- iloftkslns er í ftvöltf KVENFÉLAG Alþýðu- flokksins heldur aðalfund í Alþýðuhúsinu við Hverfis- götu (niðri) í kvöld kl. 8.30. Á dagskrá fundarins er kosning • stjórnar og önnur eenjuleg aðalfundarstörf. Félagskonur eru hvattar il þess að sækja fundinn. Guðm, S. Guðmundsson skák- meisfari Reykjavíkur 1959 — .............■». Hraðskákmótið fer fram í kvöld kl. 8. SKÁKMEISTARI REYKJAVÍKUR varð að þessu sinni Guðmundur S. Guðmundsson. Hlaut hann 6Vá vinning í úr- slitakeppninni. Annar varð Baldur Möller með 6 vinninga, eií 3., 4. og 5. urðu Árni Snævarr, Guðmundur Ágústsson og Lárus Johnsen með 4Í4 vinning hver. 5., 7. og 8. urðu Sveinn Krist- insson, Eggert Gilfer og Guðjón M. Sigurðsson með 4 vinninga hver. og 9. og 10. Benóný Benediktsson og Friðrik Ólafssors með 3 Zú vinning. VerSa gömlu fogar- arnir nú gerSir ÚH EÍNN ,AF KOSTUM .gengis- Iækkunarinnar, se'm mikið var haldið fram, vár sá, að gömlu togararnir mundu þegar verða gerðir út á ný. Einhver töf virðist þó ætla að verða á því, og að minnsta kosti hefur ekki borið á miklu lífi í Kveldúlfs- togurunum, sem legið liafa við Löngulínu mánuðum saman. Menn tóku eftir því í gær, að einn af þingmönnum Sjálf- stæðisflokksins auglýsti í út- varpinu tvo togara og einn línuveiðara til sölu. Þetta eru gamlir togarar, sem legið hafa inni á Sundum, og virðist Gísli ekki hafa mikla trú á því, að skapazt hafi rekstrargrundvöll ur fyrir þá með gengislækkuu- inni, úr því að hann vill nú losna við þá. Aðeins þrír gamlir togarar cru nú gerðir út, allir frá Hafn arfirði. Að vísu er erfitt að fá menn á togara, en ekki hefur heyrzt um tilraunir til að fá menn eða annan viðbúnað vegna útgerðar þeirra gömlu togara, sem legið hafa. Utborgun í bæjar- húsunum viS Bú- sfaðaveg verður frá 15-25 þús, ftr. Á SÍÐASTA bæjarráðsfúndi var samþykkt að selja allar í- búðirnar, sem bærinn er að láta reisa við Bústaðaveg og þar í grennd, en alls verða í- búðirnar 224. Verða íbúðirnar seldar með jafnaðarverði, þannig að sambærilegar íbúðir verði seldar sama verði fok- heldar, án tillits til þess, hvort þær verði fyrr eða síðar full- búnar til afhendingar. Jafnframt var ákveðið að kaupendur greiði sem trygg- ingarfé og sem greiðslu upp í raflagningarkostnað sem hér segir: Kaupendur 2ja herbergja í- búða greiði kr. 15 000. Kaupendur 3ja herbergja í- búða greiði kr. 20 000 og kaup- endur 4ra herbergja íbúða greiði kr. 25 000. Síðasta umferð skákmóts- ins var tefld á sunnudaginn og fór þannig: . Baldur Möller vann Guðjónt' M. Sigurðsson, Guðmundur Ágústsson vann Svein Krist- insson, jafntefli gerðu: Eggert Gilfer og Friðrik Ólafsson, Árni Snævarr og Lárus John- son, Guðmundur S. og Benóný Benediktsson. Hraðskákmót Reykjavíkui’ verður í kvöld að Þórscafé og fcyrjar kl. 8. Sigurvegarinn á. því móti verður hraðskák- meistari Reykjavíkur. Vænt- anlegir þátttakendur erui minntir á að hafa töfl með sér. Verðlaunaafhending fyrir skákmót Reykjavíkur, í öllum flokkum og hraðskákinni fer fram á fimmtudagskvöld aS Þórsgötu 1. -----------e---------- Bifreið ekur fram afbryggju^ Á SUNNUDAGINN Iaust eftir hádegið munaði minnstu að bifreið æki í höfnina, en hún fram á bryggjuna, en þeg- einni smábátabryggjunni fynjv vestan Sprengisand. Var þetta fólksbifreið og ók hún fram á bryggjuni, en þeg- ar bifreiðarstjórinn ætlaði að hemla, rann bifreiðin og íór með framhjólin út af bryggj- unni og vá þannig salt á henni.- Mótorbátur frá Akranesi, sem var R415. Um tildrög slyssins er þetta leyti, lyfti bifreiðinni að framan með spilinu, og tókst þannig að koma henni aftur upp á bryggjuna. Vilhj. S. Vilhjálmsson kosinn for- maður Félags íslenzkra rithöfunda ———— -------------------- 37 rithöfisodar eru nú i félaginuo FÉLAG ÍSLENZKUA RITHÖFUNDA hélt aðalfund sinn í Tjarnarcafé á sunnudaginn, og var Vilhjálmur S. Vilhjálms- 9 fogarar selja son kosinn formaður félagsins. Meðlimir í Félagi íslenzkra rithöfunda eru nú 37. Auk Vilhjálms S. Vilhjálms- sonar voru þessir rithöfundar kosnir í stjórnina: ritari Jón Björnsson, gjaldkeri Elinborg Lárusdóttir og meðstjórnend- ur Jakob Thorarensen og Gunnar M. Magnúss. Jakob Thorarensen, sem verio hef- ur gjaldkeri félagsins frá upp- ; hafi, baðst að þessu sinni und- j an því starfi í stjórninni. j Endurskoðendur voru kosn- j ir Þorsteinn Jónsson og Axel Thorsteinsson, en í nefnd til að endurskoða lög félagsins voru kosnir þeir Árni Óla, Helgi Sæmundsson og Indriði Indriðason. NÍU íslenzkir togarar hafa selt afla sinn í Bretlandi f.cá því um miðja síðustu viku, og náðu flestir togararnir tnjög hagstæðri sölu. Plæstur varð Jón íorseti með 10 833 pund. Togararnir, sem seldu í Bret landi, voru þessir: ísborg seldi 182 vættir fyrir 9090 pund, Maí 139 smálestir fyrir 7347 pund, Venus 12S smálestir fyrir 6463 pund, Bjarni Ólafsson 209 smálestir fyrir 9609 pund, Jón forseti 227 smál. fyrir 10 833 pund, Surprise 190 smál. fyrir 9520 pund, Röðull 220 smál. fyrir 10 322 pund, Gylfi 217 smál. fyrir 10 401 pund og Bjarni riddari 205 smál. fyrir 10 35S Pund- . .. ..

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.