Alþýðublaðið - 31.05.1950, Side 6

Alþýðublaðið - 31.05.1950, Side 6
6 ALÞfrÐURLAÐiÐ Miðvikudagur 31. maí 1950. Ritsíjóri sæll! Það er þá ekki tíðindalaust þar syðra hjá ykkur, fremur en endra nær. Þar rekur hver stór viðburðurinn annan, og mundi hver þeirra um sig nægja heilu sveitarfélagi til umtals í hálft annað ár. En hjá ykkur verður hver slíkur viðburður að þoka fyrir öðrum nýjum, áður en hann er útræddur, — hvað þá að nokkrum hafi tekizt að hugsa neitt að ráði orsök hans eða af- leiðingar. Og svo er nú það. . Ekki er ég enn farinn að gera alvöru úr því að skreppa suður til ykkar og athuga þjóðleik- húsið; var hálít í hvoru að hugsa um að hleypa heimdrag- anum hérna um daginn og skoða Gullfoss hinn nýja í sömu ferð- inni, en ekki varð af því. Ég fór að ryðja til mós nokkrum dögum áður, fékk svo afleitt giktarkast í mjóhrygginn, að ég gat mig ekki hreyft skrækja- laust; lá því uppi í rúmi og hlustaði á móttökuathöfnina í útvarpinu mér til afþreyingar. Þótti mér ræða Ólafs ; míns Thors við það tækifæri bæði sköruleg og karlmannleg og sýnu betri en kveðjuræða sú, er hann flutti Björgvini hinum ísfirzka go bátum hans. Hinsveg ar get ég ekki neitað því, að mér þótti það stangast dálítið á. þegar sami maðurinn, sem varið hafði flótta smámennisins, tók nú að vegsama stórhug þeirra, sem vildu falla með sæmd og í glitklæðum, ef ekki yrði hjá falli komizt, og þá mundi mér hafa þótt móttökuræðan betri, ef ég hefði ekki áður hlýtt kveðjuræðunni. Efast ég ekki um það samt, að þar hafi ver- ið Ólafur minn allur, er hann ræddi um fall í glitklæðum. en hin orðin hafi hann mælt utan- garna, en þó af drenglyndi sínu; hefur hugsað líkt og Ólöf 'ríka, formóðir hans, að ekki sæmdi að allir gerðu, aðsúg að ólánsmanninum, og hefur slíkt Iunderni jafnan ríkt verið í ætt Skallagríms. Þá heyrði ég og hitt og þetta frá Listamannaþinginu hérna á dögunum, mátti þó illa að vera, því að þá var ég giktarlaus. Hlustáði því á sumt með öðru eyranu, eins og maður segir, og hafði því ekki nema hálf not af andríkinu. Þá hef ég og, fyr- tr tilstyrk blaðanna, nokkuð getað fylgzt með eftirleiknum, »— orustu Helga míns Hjörvar við sígaunapiltana, og má það merkilegt heita, hvað sá maður getur verið bæði vígreifur og vopndjarfur, og það því frem- ur, sem gegnir menn hafa upp- lýst, að ekki neyti hann stríðs- öls fyrir orustu, heldur sé hon um berserksgangurinn í blóð borinn. En meðal annarra orða. Það hef ég fregnað á skotspónum, að lokið sé vist Hjöryars hjá út- varpinu, hafi fengið leyfi frá störfum um skeið, og veit mað- ur, hvað það þýðir, þegar um opinbera starfsmenn er að ræða. Var og á sínum tíma ráða gerð um það meðal forráða- manna útvarpsins, að koma hon um í sveit, •— af siðferðislegum ástaeðum, — að mig minnir. Heí ur mér nú komið til hugar, hvort ég gæti ekki fengið hann til mín, — sem vinnumann, gætum við kallað það, — því að ekki er margmennið, hvorki á mínu heimili né næstu bæj- um og einkar siðlátt fólk, það sem það er, og ólíklegt til þess að íreista manns, þótt veikur væri á svellinu; tek það fram, að engin heimasæta er nú í hreppnum yngri en hálfsextug, og ekki nein þýzk stúlka þeim megin heiðar. Efast ég ekki um að ég mundi margt gagn geta af Helga haft, einkum til snún- inga, því að alltaf hefur hann sýnt að honum má til margs bregða. Efast ég til dæmis ekki um, að hann gæti flutt mjólk- ína og setið á sláttuvél; mundi ég hæla honum heldur en hitt og eggja mátulega. Að vetrin- um til veit ég að hann yrði mér notadrjúgur við fjósaverkin; - — ég á öll rit Selmu Lagerlöf og kynni þá að lána honum eitt- hvert þeirra með sér í fjósið; gæti hann þá þulið yfir kusum og kálfum og þyrfti hvorki að sakna sinnar raddar né sinnar Selmu. Verði hins vegar einnig horfið að því ráði að koma drengjunum tveim til mönnun- ar í sveit, mundi ég telja ráð- legra að koma þeim ekki fyrir í næstu hreppum, þar eð frið- samt hefur jafnan verið með okkur, hreppstjórunum. í sýsl- unni, og mundi okkur þykja miður, yrði sú sætt rofin fyrir skjólstæðingakrit eða ef til vill mannvíg, — mannorðsvígum mætti að minnsta kosti gera ráð fyrir. Með beztu kveðjum til allra aðila. Filipus Bessason hreppstjóri. Auglýsið í Albýðublaðint! eldri dóttir mín fór að heiman, hef ég ekki fengið að heyra hana í eitt einasta skipti“. En það var ekki hægt þetta kvöld. Martin varð að mæta í herbúðunum en hann kom næsta dag og það var heppi- legt að herra Kleh hafði ekki of mikið vit á músík, annars hefði hann aldrei getað trúað því, að þessi ungi meistari væri nemandi Rechenmachers gamla. Lotta tók eftir því, og þegar eftir fyrstu tónana, hvísl aði hún að mér, að „strákur- inn kynni áreiðanlega meira en faðirvorið“. Hann gat leik- ið hvaða lag, sem var. Hann lék allt sem við báðum hann um, smálög ,óperur, symfoní- ur, já, allt lék hann bara eftir minni. Leikni hans var dásam- leg og enn betri voru útskýr- ingar hans. Hann kom næstum því á hverju kvöldi þegar hann átti frí og á þessum kvöldum lærði ég að þekkja alveg nýja eigin- leika hjá Lottu og þeir voru sannarlega ekki lofsverðir. Hún var dutlungafull, grimm, og ráð rík. Það var alveg ómögulegt að ráða með neinni vissu í til- finningar hennar. Oft og mörg- um sinnum stóð hún niðri við hliðið og beið eftir Martin, en mjög oft lét hún hann bíða eftir sér í langar stundir, án þess að hafa minnstu ástæðu til þess. Stundum lét hún hann segja sér til syndanna eins og hún væri bara lítil og feimin skóla- stelpa, en stundum gerði hún gys að næstum því hverju ein- asta orði, sem hann sagði. Hann lánaði henni „Stríð og frið“. Hún las bókina fram und- ir morgun, og þegar hún var komin þar að, sem Andrei Bol- kowski lætur lífið, fór hún að gráta og grét sárt. „Það er hræðilegt, að svona lagað eins og styrjaldir skuli vera til,“ kjökraði hún. „Það er ekki hægt að þola það.“ Já, þetta hafði henni ekki dottið í hug fyrr, og þó var stríðið búið að standa í tuttugu og einn mánuð. En þegar hún skilaöi Martin bókinni aftur, sagði hún: „Þessi Tolstoj er hræðilegur maour, bókstaflega fyrirlitleg- ur. Allt, sem er rnikið og fag- urt, lætur hann farast Hann íætur Andrei deyja og hin dá- samlega Natascha verður bara rétt og slétt venjuleg húsmóð- ir. Og hvað hefur hann gert úr Napoleon?“ „Hann hefur séð hann með sínum augum, sem hégómleg- an mann með sína galla og ..“ „En Napoleon var hetja. Hann var mesti persónuleiki, sem uppi hefur verið síðustu aldirnar." „Maðurinn er aldrei neitt meira en hugsjónin, sem hann berst fyrir. Hugsjón Napoleons var frönsk yfirþjóð, og vegna bessarar hugsjónar sveik hann aðra meiri, frönsku bylting- una.“ „Hvað varðar mig um hug- sjónir hans. Hann sigraði allan heiminn.“ „Og til þess fórnaði hann þúsundum mannslífa,“ skaut ég inn í. „Þú verður að muna eftir því, að undirrót allra þeirra styrjalda, sem hann háði, var metnaður og valda- græðgi. Hefur þú ekki sjálf sagt, að .. . . “ En Lotta hugsaði ekki leng- ur um það, sem hún hafði sagt. „Hann var meira virði en líf allra þessara þúsunda," hróp- aði hún örg, án þess að skeyta hið minnsta um kvalasvipinn á andliti Martins. „Ég á ekki við íranska stórveldið, heldur cjálfan hann, já, hans eigin per sóna var meira virði en líf þess- ara nafnlausu hermannaþús- unda, sem enginn vissi nokkurn skapaðan hlut um annað en að þeir voru til og að annars hefðu beir fengið að lifa langa ævi til þess eins að verða gamlir og gráir.“ „Það er næstum því eins og að heyra Helmut tala,“ greip Martin fram í fyrir henni. „Jæja? Og hvað er með það? Það getur vel verið að Helmut sé ágætis maður. Já, það getur vel verið að hann sé stórgáfað- ur og að yður sé illa við hann af því að ... . “ „Af því að ég sjálfur er bara einn af hinum litlu og nafn- lausu hermönnum? Var það eklti það, sem þér ætluðuð að segja?“ Lotta ypti öxlum. Hún hafði munninn dálítið opinn, svo að maður gat séð oddmjóar augn- tennurnar. „Dreymir yður aldrei um að sigra allan heim- inn?“ „O, jú, ef til vill, en ekki vegna sjálfs mín, heldur miklu fremur vegna allra liinna mörgu þúsunda hermanba, — og eins og einn af þeim.“ „Jæja, með þeim öllum sam- an í einum hópi?“ sagði Lotta og setti upp fyrirlitningar- grettu. „Það er ekki mikils krafizt.“ Þegar Martin var farinn, tók ég hana í karphúsið. „Þii veizt ekki hvað þú ert að gera,“ sagði ég. „Þú veizt ekki einu sinni þegar þú ert að misþyrma sálarlífi annarra.“ „Hvers vegna lætur hann þá fara svona með sig?“ sagði hún forstokkuð. „Sannaðu bara orð mín. Hann kemur hingað aftur á morgun.“ ,,Já, af því að hann er hrif- inn af þér.“ „Ég mundi ekki leyfa nein- um manni að fara svona með mig, jafnvel þó að ég væri að deyja af ást til hans.“ En Martin kom ekki, hvorki næsta dag eða næstu daga. Á sunnudaginn breytti Lotta á- ætlun. Hún fór á hljómleika í' staðinn fyrir að fara á skauta- svæðið. Ég hafði ekki tíma til að fara með henni, en um klukkan tvö, þegar ég stóð við gluggann og horfði niður á göt- una, sá ég hvar Lotta og hann komu labbandi í mesta bróð- erni. Herra Schmiedel, sem allt af hafði fengið slæmt kvef um jólaleytið, af því að dyrnar á húðinni stóðu þá alltaf opnar, hafði í þetta sinn ekki kennt sér nokkurs meins. Og hin ágæta kona hans, „sem alltaf var grátandi yfir kvefi hans. og hitasótt, sem því fylgdi, grét nú enn meira vegna þess, að hita- mælirinn vildi ekki fara yfir þrjátíu og sjö gráður, og það iafnvel þrátt fyrir daglangar göngur með hermönnunum. Það var eitthvað bogið við þetta, fannst henni. „Ef hann verður ekki bráðum veikur, þá verður hann að fara til vígvall- anna, þrátt fyrir allt,“ kvein- aði hún. Og herra Kleh fór líka að gera ráð fyrir þeim mögu- ieika. í marzbyrjun spurði hann Lottu allt í einu að því, hvort hún mundi vilja taka að sér reglulega vinnu í verzlun- inni, eða hvort hann ætti að fara að útvega sér aðra af- greiðslustúlku. Hann ætlaði að láta hana Iiafa tvö hundruð krónur á rnánuði í kaup, og það var sama upphæð sem hann mundi verða að borga vandalausum. Til mikillar undrunar fyrir mig, samþykkti Lotta þetta umhugsunarlaust. „Það er að minnsta kosi betra en að vera hlægileg stelpa, sem situr heima og hefst ekkert að,“ sagði hún við mig. „Með þessu móti fæ ég að minnsta kosti tækifæri til þess að hitta mann- eskjurnar.“ Að því loknu fór hún að gráta yfir því, að hún missti svo mikinn tíma í það, hvað faðír hennar væri erfiður viðfangs. „Ef ekki væri þetta bannsetta stríð, þá mundi ég bara strjúka að heiman með hverjum, sem vildi gefa mér tækifæri til þess að læra það, sem mig langar til, en síðan, þegar því væri lokið, þá mundi ég tafarlaust stökkva frá hon- um.“ En það var nú einu sinni stríð, og herra Kleh gleymdi

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.