Alþýðublaðið - 31.05.1950, Blaðsíða 8
jGerízt áskrif endur
Alþýðublaðinu.
I Alþýðublaðið inn á
| bvert heimili. Hring-
j ið í síma 4900 eða 4906.
Miðvikudagur 31. maí 1950.
Börn ög unglingar.
Komið og seljið
Alþýðublaðið. ]
Allir vilja kaupa
Alþýðublaðið. j
Vinna við fjöida fokheldra bygg-
inga að sföðvast vegna efnisskorts
Þar á meðal eru Bústaðabyggingarnar,
iðnskólinn og Kleppsholtsskóíinn.
FJÖLMAEGAE BYGGINGAK, sem fokheldar eru eða
komnar langt áleiðis, eru nú að stöðvast vegna efnisskort, og
þýkir uggvænlega horfa um atvinnu þeirra manna, sem stunda
byggingavinnu, bæði verkamanna og ýmissa stétta iðnaðar-
manna. Trésmiðaféiagið hefur nú skýrt frá því, að meðal þeirra
bygginga, sem eru að stöðvazt eða hafa þegar stöðvazt, séu bæj-
arhúsin við Bústaðaveg, iðnskólinn, harnaskólinn í Kleppsholti
Höggmyndin !andsýn' var afhjúp-
uð við Sfrandarkirkju í fyrradag
■■■ ......... . 1 » —
Hugmyndin er fengin úr þjóðsögum um
upphaf Strandarkirkju og Engilsvíkur
HÖGGMYNDIN LANDSÝN eftir Gunnfríði Jónsdóttur
myndhöggvara var afhjúpuð við hátíðlega athöfn að Strandar-
kirkju á annan í hvítasunnu. Höggmynd þessi er kona, sem held-
ur á krossmarki og horfir til hafs. Er hugmyndin fengin úr þjóð-
sögum um upphaf Strandarkirkju of nafn víkurinnar, Engilsvík
ur, en á hóli skammt frá þeirri vík og kirkjunni stendur mynd-
in.
og fjöldi smáhúsa.
Samkvæmt upplýsingum Tré
smiðafélags Reykjavíkur er á-
standið í byggingarmálunum
nú síður en svo glæsilegt. A
síðasta vetri bar þegar nokkuð
á . atvinnuleysi meðal húsa-
smiða, enda hefur þeim fjölg-
að um hart nær 200 frá því á
stríðsárunum, þegar atvinna
við byggingarframkvæmdir
var mjög mikil, jafnvel meiri
en lærðir smiðir gátu annað.
Nú eru allmörg hús í smíðum,
en við mörg þeirra er lítið eða
ekkert unnið í bili, ýmist vegna
fjárskorts eigenda, sem eru
búnir með allt handbært fé og
fá hvergi lán til þess að ljúka
IJfcpid landsímans
Framhald af 1. síðu.
reksturs símans, er áætlaður
ca. kr. 1.080.000.
Samtals verður þá allur auk-
inn árlegur kostnaður lands-
símans veg'na gengisfellingar-
innar 20. marz 1950 ca. kr.
7.655.000. Verði dregið úr fram
kvæmdum lækkar þessi upp-
hæð nokkuð.
Auk þessa kemur fram í eitt
skipti (20. marz 1950) gengis-
tap á ógreiddum gjöldum
vegna skeyta- og talþjónust-
unnar við útlönd frarn til 20.
marz 1950 og á efnisskuldum
við erlend firmu, er nemur ca.
kr. 2.362.000.
Áætlað er að símgjaldahækk
unin samkvæmt hinni nýju
gjaldskrá símans gefi ca. kr.
5.010.000 auknar tekjur á ári“.
------ ----*------.—
Um 2000 manns
séi itiinjagflpa-
MIN J AGRIP ASÝNIN GU
Ferðaskrifstofunnar og Heim-
ilisiðnaðarfélagsins lauk um
helgina. Alls sóttu sýningua
um 2000 manns.
Flestir sýningarmunirnir
munu innan skamms verða til
söiu í ferðaskrifstofunni.
-----------o-------------
í DAG klukkan 2 e. h. flytja
prófprédikanir í kepellu háskól
ans guðfræðikanditatarnir Gísli
Kolbeins, Helgi Tryggvason og
Kristján Robertsson og klukk-
an 5 síðdegis kandidatarnir
Magnús Guðmundsson og Jón-
as Gíslason.
við húsin, eða vegna efnis-
skorts ,sem hefur verið tilfinn-
anlegur um alllangt skeið.
Ekki bætir það horfur fyrir
bá, sem eiga lífsafkomu sína
undir byggingaframkvæmdum,
að enn hafa engin fjárfesting-
arleyfi fengizt fyrir íbúðarhús-
urn í Reykjavík á þessu ári, og
allt er í óvissu um hvenær þau
verða veitt, ef þau verða
nokkur veitt á árinu.
Fyrir nokkru fól trúnaðar-
mannaráð Trésmiðafélags
Reykjavíkur stjórn félagsins
að ná tali af formanni fjárhags-
ráðs og reyna að fá hjá honum
upplýsingar um við hverju
mætti búast um veitingu fjár-
festingarleyfa og innflutning
byggingarefnis á þessu ári.
Formaður og varaformaður fé-
lagsins áttu svo stutt viðtal við
formann fjárhagsráðs, en á því
var í rauninni ekkert að græða.
Upplýsingar um væntanleg
fjárfestingarleyfi og efnisinn-
flutning fengust engar aðrar en
þær, að fjárhagsráð hefði að
vísu gert einhverja áætlun um
innflutning byggingarefnis, en
engin trygging væri fyrir því
að mögulegt verði að frani-
kvæma liana. Ef nokkuð má af
þessu viðtali ráða, væri það
helzt það, að útlilið sé jafnvel
enn verra en menn höfðu búizt
við.
Frá atvinnulegu sjónarmiði
trésmiða sérstaklega og raunar
margra annarra iðnaðarmanna
er efnisskortur sérstaklega ó-
hagkæmur. Efnið, sem fer til
innréttinga húsanna, er tiltölu-
lega lítill hluti reiknað í gjald-
eyri, en vinnan aftur á móti
allverulegur þáttur. Sama
magn af timbri — svo dæmi sé
tekið — skapár miklu meiri
vinnu þegar það er notað til
innréttinga en þegar það er not
að til að gera húsin fokheld.
Atvinna húsasmiða mundi því
verða mun drýgri ef þeim hús-
um, sem byrjað hefur verið á,
væri haldið áfram þar til þeim
er lokið, enda þótt það kostaði
það að byrjað væri á nokkru
færri húsum. Þá er húseigend-
um gerður illur grikkur með
því að stöðva vinnu við hús
þeirra þegar búið er að binda í
þeim marga tugi og oftast
hundruð þúsunda króna, og sé
enn fremur litið á húsnæðis-
skortinn, bæta fokheld hus
ekki úr honum meðan þau eru
á því stigi og væri því vitur-
legra — einnig frá því sjónar-
miði — að Ijúka byggingu
þeirra.
Irskur bókmennta-
fræðingur og skáld
fiytur fyríriesfra hér
ÍRSKUR bókmenntafræðing-
ur og skáld, Mac Hugh, er kom-
inn hingað og flytur á næst-
unni fyrirlestra við báskóla fs-
fands og Þjóðleikhúsið. Mr.
Mac Hugh er kunnur fyrirles-
ari; hefur flutt fvrirlestra við
marga háskóla í Bandaríkjun-
um svo og víða á Norðurlönd-
am. Það er írska ríkisstjórnin,
sem stvrkir för hans liingað.
Mr. Mac Hugh er, einn kunn-
asti leiklistargagnrýnandi í
Dublin og hefur sjálfur samið
tvo sjónleiki, er sýndir hafa
verið í Abbeyleikhúsinu. Hefur
það orðið að ráði, að hann flvtti
tvo fyrirlestra á vegum Þjóð-
leikhússins um .Abbeyleikhús-
ið og írska leiklist. Verða þeir
haldnir í hinum svonefnda
,,litla sal“ í Þjóðleikhúsinu
þriðjudaginn 6. júní og mið-^
vikudaginn þann 7. kl. 5 e. h.
Fyrirlestrar Mac Hugh í há-
skólanum munu fjalla um írsk-
ar fornsögur, þjóðsögur og
helgisögur og áhrif þeirra á nú-
tímahöfunda, írska. Þeir verða
fluttir næstkomandi fimmtu-
dag og föstudag kl. 8.30 síð-
degis í 1. kennslustofu háskól-
ans, og verður aðgangur öllum
heimill og ókeypis. Kvað dr.
Einar Ólafur Sveinsson í við-
tali, er blaðamenn áttu í gær
við fyrirlesarann og hann, að
þetta væri annar írski mennta-
maðurinn, sem fyrirlestra flyt-
ur við háskólann, en írskur
þjóðsagnafræðingur, Délargy,
flutti þar fyrirlestra veturinn
1947 á vegum þjóðsagnafræða-
félagsins írska.
Frá . Abbeyleikhúsinu barst
þjóðleikhúsinu íslenzka að gjöf
hinn kunni sjónleikur Lyngesr
,,Riders to the sea“, leikinn inn
á „taperæmu“ af írskum leik-
urum, og flutti Mac Hugh þjóð-
leikhúsinu gjöfina.
ÍSLANDSMEISTARARNIR
í innanhúss handknattleik
kepptu við Finnana í gær-
kveldi að Hálagalandi og unnu
Finnar með 7 gegn 4. í hálf-
leik var jafntefli 3 : 3. Fram
byrjaði með að gera 2 mörk á
fyrstu 8 mínútunum (Orri
gerði þau bæði). Á 10. mínútu
gerðu Finnarnir sitt fyrsta
mark, og nokkru síðar gerði
Fram 3. markið, 3 : 1. Á sein-
ustu mínútum hálfleiksins
kvittuðu Finnarnir. Fram
brenndi af vítakasti í þessum
hálfleik.
I byrjun síðara hálfleiks
gerðu Finnarnir mark úr víta-
kasti 4:3 fyrir Finna. Á 16. og
18. mínútu gerðu þeir enn tvö
mörk og litlu síðar það 7. Er
6 mínútur voru eftir af leik
gerði Fram sitt 4. mark og
þannig endaði leikurinn.
Athöfnin hófst með guðs-
þjónustu í kirkjunni. Sóknar-
presturinn, síra Helgi Sveins-
son í Hveragerði, prédikaði, en
biskup landsins, síra Sigurgeir
Sigurðsson, þjónaði fyrir alt-
ari. Kirkjukórinn í Hveragerði
söng við messugerðina.
ÞJÓÐSAGAN
Síra Helgi rakti í stólræðu
sinni þjóðsöguna um Engilsvík.
Þjóðsögurnar eru raunar fleiri
en ein, en sú, sem síra Helgi
íylgdi, er á þá lund, að endur
fyrir löngu hafi skip með timb
urflutning verið að kojna af
hafi. Átti það að hafa lent í
miklum óveðrum og sjóhrakn-
ingum, og var komið nærri
landi, án þess að skipsmenn
vissu, hvar þeir væru staddir
eða hvort þá bæri þar að, sem
auðið yrði að lenda heilu og
höldnu. Gerðu þeir þá bæn sína
og hétu því að reisa kirkju þar,
sem þeir kæmu að landi, ef
lendingin tækist giftusamlega.
Sáu þeir þá allt í einu til lands,
og var ljós á ströndinni. Þeir
stefndu skipi sínu þangað og
lentu í vík einni, en kona, vaf-
in himnesku ljósi, vísaði þeim
leiðina. Heitir víkin síðan Eng-
ilsvík, og sagan segir, að skips-
menn hafi efnt heit sitt og
byggt kirkjuna þar, sem nú er
Strandarkirkj a.
NÝR TURN MEÐ VITA
Síra Helgi gat þess í lok
ræðu sinnar, að sóknarnefnd
og sóknarprestur í Selvogi
vilji gera það að tillögu sinni
að reistur verði nýr turn á
Strandarkirkju, og þar komið
fyrir ljósavita og radíóvita.
Mun biskupinn vera mjög
hlynntur þessari hugmynd. Þá
skýrði hann frá því, að þau
hjónin Svanhildur Þorsteins-
dóttir og Sæmundur Stefáns-
son hefðu fært kirkjunni kal-
eik úr silfri og patínu að gjöf.
MYNDIN AFHJÚPUÐ
Að lokinni guðsþjónustunni
var gengið út á hólinn og söng
kirkjukórinn þar, en síðan
flutti biskupinn ræðu og af-
hjúpaði myndina. Þá voru
Markmaður Finna vakti
mikla athygli.
Leikmenn Fram sýndu
greinileg þreytumerki er á leið,
enda léku sömu menn hjá þeim
allan leikinn út, en Finnarnir
skiptu stöðugt um menn, og
gerði það gæfumuninn.
sungin tvö erindi eftir Gunn-
fríði Jónsdóttur sjálfa, og að
lokum kynnti biskupinn hana
fyrir mannfjöldanum, sem
fagnaði henni ákaft.
SíSari hluti vormóls
ÍR fer fram í kvðld
SÍÐARI HLUTI vormóts ÍR
fer fram í kvöld á íþróttavell-
inum og hefst kl. 8,15 síðd.
Keppt verður í kringlukasti,
110 m. grindahlaupi, stangar-
stökki, 200 m. hlaupi, 400 m.
hlaupi drengja, spjótkasti, há-
stökki, 400 metra hlaupi, 800
m. hlaupi og 1000 metra boð-
hlaupi.
Meðal keppenda eru t. d.
Gunnar Huseby, sem varpaði
kúlunni nær 16 metra nú um
helgina, og mun það vera bezta
aírekið í þessari grein í Evrópu
í ár. Hann keppir einnig í
kringlukasti og er Islaudsmet-
inu talið hætt. í drengjahlaup-
inu keppa 9 ungir og efnilegir
menn. í spjótkasti er Jóel Sig-
urðsson meðal keppenda. 200
metra hlaupi verður keppnin
vafalaust hörð milli þeirra $
Harðar Haraldssonar og Guð-
mundar Lárussonar frá Ár-
manni, Finnbjarnar Þorvalds-
sonar ÍR og Trausta Eyjólfs-
sonar KR, og þá verður 400
metra hlaupið ekki síður spenn
andi, en þar keppir sem gestur
þýzkur aíreksmaður í frjálsum
'íþróttum, Ulrich Jonath aS
nafni við þá Reynir Sigurðsson
ÍR og Ásrnund Bjarnason KR.
Hið vinsæla 1000 metra bóð-
hlaup rekur svo lestina ,en þar
eigast vl ðtvær sveitir frá ÍR
og KR og ein sveit frá Ármanni.
isrstall ræir iw
fátækt og ásfjorn
MARSHALL, fyrrverandi ut
anríkisráðherra Bandaríkjanna,
sagði í gær, er hann minntist
fallinna hermanna, að ekki
væru . allar uppreisnir þjóða
runnar undan rifjurn kommún
ista. Margar þjóðir berðust:
fyrir því að losna við fátækt og
óstjórn. Marshall taldi það
miklu skipta Bandaríkin, ,að
sílk barátta tækist, ,því að á
miklu gæti oltið, hvort þessar
þjóðir veldu leið lýðræðisins
eða leið kommúnismans.