Alþýðublaðið - 14.06.1950, Blaðsíða 1
^feðtirhoríör;
Þykknar upp meti vestan
og síðar sunnan kalda. Dá-
lítil rigning með kvöldinu.
*
r • .
Forustugrefn:
Leiguíbúðir.
XXXI. árgangur.
Miðvikudagur 14. júní 1950.
129. tbl.
Tvö á eina fiðlu
Joy Nichols og Dic'k Bentiey, sem sjást hér á myndinni leika
bæði á eina fiöiu, eíu frá Ástraliu, en eru nú á meðal vinsæl-
ustu listamanna brezka útvarpsins. „Tvö á eina fiðlu“ vakti
mikla atbygli og aðdáun brezkra útvarpshlustenda.
Samþykktu og á foodi i fyrra kvöSd, að
láta fara frain aiSsheriaratkvæða-
greiðslö tim heimiid ti! vinnustöðvunar.
ALMENNUK FUNDUR LAUNÞEGA í Verziunarmanna-
félagi Reykjavíkur, haldinn í fyrrakvöíd, samþykkti að krefjast
sömu launauppbóta fyrir launþega verzlunarstéttarinnar og
starfsmenn ríkis og bæja hafa nii fengið. Þá var samþykkt til-
laga um það, að lata fara fram allsherjaratkvæðagreiðslu meðal
launþega um Iieimiid til vinnustöðvunar eða annarra aðgerða
gagnvart þcim fyrirtækjum, sem sanmingar náist ekki við.
Enn fremur var samþykkt að sameina allar þrjár launþega-
deildir félagsins.
Samþykktir fundarins hljóða
svo:
KREKJAST LAUNAUPP-
BÓTA.
„Almennur lauribegafundur
í VR haldinn í Tjarnacafé mánu
daginn 12. júní 1950 samþykkir
að heimila launakj aranefnd að
semja við atvinnurekendur um
somu launauppbætur og starfs-
menn ríkis og bæja hafa hlotið
á þessu ári.
Fáist því eigi framgengt, fel
ur fundurinn launakjaranefnd
í samráði við stjórn VR að gera
þær ráðstafanir, sem nauðsyn-
legar eru málum launþega til
framgangs".
iirnesiiigar sg
geriu jafnleili, YX
í GÆR var leikinn 8. leikur
mótsins. Þar léku KR og Akur-
nesingar og varð jafntefli, 1:1.
Eftir þennan leik er staðan
þannig: Fram hefur 5 stig, KR
4, Víkingur 3, ÍA 3 og Valur 1.
Nú eru aðeins 2 leikir eftir;
annars vegar milli Fram og
KR, og verður það úrslitaleik-
urinn.um titilinn: „Bezta knatt
spyrnufélag ársins 1950“, hins
vegar milli Vals og Víkings.
SAMEINING LAUNÞEGA-
DEILDA VR.
„Almennur launþegafundur
í VR, haldinn í Tjarnarcafé
mánudaginn 12. júní 1950, sam
þykkir að sameina sérdeildir
VR í eina launþegadeild og
kjósa 5 manna nefnd til að
undirbúa stofnun deildarinnar
og gera uppkast að reglugerð
fyrjr hana.“
ALLSHERJARATKVÆÐA-
GREIÐSLA
„Almennur launþegafundur
í VR, haldinn í Tjarnarcafé
mánudaginn 12. júní 1950, sam
þykkir að fela stjórn félagsins
og launakjaranefnd að láta
fara fram svo fljótt sem unnt
er, allsherjaratkvæðagreiðslu
meðal launþega um heimild
fyrir stjórn félagsins og launa-
kjaranefnd til vinnustöðvunar
eða annarra nauðsynlegra að-
gerða hjá þeim sérgreinafélög-
um og einstökum fyrirtækjum,
sem ekki nást samningar við.“
Samningatilraunir hafa stað-
ið yfir frá áramó.tum milli
verzlunamannafélagsins og at-
vinnurekenda um kjör verzlun-
armanna.
rezki Alþýðuílokk--
urinn andvígur Schu-
man samsieypunni
BKEZKI JAFNAÐAR-
MANNAFLOKKURINN gaf í
gærmorgun út yfiriýsingu um
Schuman-áætlunina, þar sem
því er algerlega hafnað, að
hinar ýmsu þjóðir láti vald yf-
ir þungaiðnáði sínum í hendur
aiþjóðanefndar, er væri hafin
yfir hinar ýmsu ríkisstjórnir.
Telja brezkir jafnaðarmenn, að
eini grundvöllurinn fyrir slíkri
sameiningu sé þjóðnýting á
iðnaðinum í öllum þátttöku-
löndum.
í greinargerð þessari kemur
greinilega fram óttinn við að
myndaður verði voldugur auð-
hringur, er fari með stjórn
hinna sameinuðu iðngreina, eh
þar með væri barátta jafnaðar-
manna fyrir ítökum alþýðunn-
ar yfir atvinnugreinunum í
hverji landi að engu gerð.
Þessi yfirlýsing hefur vakið
athygli og vonbrigði á megin
Jsndinu, sérstaklega í Frakk-
þandi, og er hún þar kölluð ein-
angrunarsinnuð. Bretar benda
liins vegar á, að samvinna þjóða
í milli eigi að vera milli ríkis-
stjórna.
Yfirlýsingin getur haft alvar
leg áhrif á stjórnmálin í í'rakk-
landi og kann að hafa þau á-
brif, að franskir jafnaðarmenn
hætti að styðja Schuman-áætl-
unina og þar með ríkisstjórn-
ina. Þeir hafa stutt áæílun
Schumans með ýmsum skilyrð-
um.
-----———»-----——
STALIN var í gær viðstadd-
ur fund í æðsta ráði Sövétríkj-
anna, er fjárlögin fyrir 1950
voru lögð fram.
Clement Attlee.
ÞRJATIU OG NIU manns
fórust í gær, ev frönsk Skymast
erflugvéi hrapaði í Persaflóa.
Aðeins átta af farþegum flug-
vélarinnar komust lífs af, og
aSeins fjögúr lík liafa fundizt.
Flugvélin var á leiðinni frá
Saigon til Frakklands og hafði
síðast komið við í Karachi.
Flestir farþegarnir voru opin-
bcrir starfsmenn í Indó-Kína.
Franskrar flugvélar var í
gær saknað á Madagaskar.
HELIKOPTER FERST
Stærsta helikopterflugvél
heimsins fórst í gær í South-
ampton og fórust þrír menn
með henni.
DEAN ACHESON flutti í
gærkvöldi ræðu í Dallas, og er
þetta hin fyrsta af fjórum, sem
hann ætlar að ílytja.
Aðíld að Evrópu-
ráðinu sam-
þykkl í Bonn
NEÐRI DEILD þingsins í
Bonn samþykkti í gær gegn at-
kvæðum jafnaðarmanna, að
Vestur-Þýzkaland skyldi gerast
meðlimur Evrópuráðsins með
þeim skilyrðum, sem boði um
þátttöku fylgja. Efri deildin
hefur þegar samþykkt slíka til-
lögu.
Þingið samþykkti samhljóða
að kommúnistanum undan-
skildum, að víta samning aust-
ur-þýzku stjórnarinnar við Pól-
verja um landamæri ríkjanna.
Kommúnistaþingmaðurinn
Maj? Reiman reyndi að mót-
mæla sam}/kktinni og hefja
ræðu utan dagskrár, en hann
var þá gpröur brottrækur af
þingi um skeið fyrir framkomu
sína.
llíanflokka þing-
menn
hlula í Kóreu!
KOSNIN.GARNAR - Á
KÓREU, sein fram fóru fyr-
ir skömmu, voru. sögulegar
fyrir tvennt. í fyrsta iagi var
enginn drepinn á kjördag,
en í síðustu kosningum létu
44 íífið. Þá tönuðu bæði
stjóruarflokkurinn og stjórn
arandstaðan rniklu. Stjórn-
arfloltkurinn fékk aðeins 22
þingmenn, en hafði aöur 71,
og stjórnarandstaðan 21, en
hafði 69. Þingið skipa 210
fuiltrúar, svo að ekki er
styrkur flokkanna mikill, en
aðrir þingmenn eru utan
flokka, og hafa beir mikinn
meirihluta á þinginu.
Forsætisráðherann
falaði í neðri
deild þingsins
KRAFA FRAKKA um það,
að Bretar bindi sig fyrirfram
til þáttöku í Schuman- sam-
steypunni, áður en umræður
um hana hófust, varð til þess,
að brezka stjórnin sá sér ekki
fært að gerast aðili að umræð-
unum, sagði Clement Attlee,
forsætisráðherra Breta, í neðri
deiidinni í London í gær. Hann
tók fram, að þetta fyrirbyggði
þó alls ekki, að Bretar gerðust-
aðilar að hinu nýja samstarfi á
síðara stigi, er undirbúningur
þess kemst lengra áleiðis.
Attlee sagði í ræðu sinni, að
brezkir sérfræðingar athuguðu
nú mál þetta, en athugun þeirra
væri enn ekki komin á bað stig,
að vænta megi tillagna frá
Bretum. Hann sagði enn frem-
ur, að Schuman-áætlunin
væri stórbrotin hugsjón, sem
enn hefði ekki verið athuguð
í smáatriðum.
Þessa afstöðu ber ekki að
skilja svo, hélt Attlee áfram,
að Bretar séu mótfallnir Schu-
man-áætluninni, þvert á móti.
Þeir vildu stuðla að aukinni
samvinnu Evrópuríkjanna í
efnahagsmálum og standa þar
fremstir í sveit. Brezka stjórn-
in yrði þó að taka vandlega til-
lit til hagsmuna og öryggis
þegna sinna, og hefði því, að
svo lsomnu máli, ekki treyst
sér til að lofa Frökkum sam-
þykki sírm fyrirfram.
Þegar Attlee hafði lokið
máli sínu, reis Churchill upp
og spurði, hvort Schuman-
áætlunin yrði ekki rædd í
enska þinginu, en Attlee taldi
ekki liggja nægilegar upplýs-
ingar fyrir, og yrði því að
fresta því.
--------—«>—---------
NEÐRI DEILDIN í Suður-
Afríku hefur samþykkt 'frum-
| varp um það, að hinir ýmsu
kynþættir þar í landi skuli búa
í aðskildum hverfum.
ammiur nr
SKÖMMTUNARST J ÓRI
hefur tilkynnt, að „skammtur“
nr. 8 á fyrsta skömmtunarseðli
1950 (rauður að lit) skuli vera
lögleg innkaupaheimild fyrir
250 gr. af skömmtuðu smjöri
frá og með deginum í dag, 13.
júní til júlímánaðarloka.