Alþýðublaðið - 06.07.1950, Qupperneq 8
LEITIÐ EKKI GÆF-
UNNAR langt yfir skammt;
kaupið miða í bifreiðahapp-
drætti Sambands ungra
jafnaðarmanna. —
Fimmtudagur 6. júlí 1950.
ALÞÝÐUFLOKKSFÓLK!
Takið höndum saman við
unga jafnaðarmenn og að-
stoðið við sölu happdrættis-
miða í bifreiðahappdrættS
Sambands ungra jafnaðar-
manna. j
Leikflokkurinn „Sumarges tir“
í fyrrasumar efndu nokkrir reykvískir leikarar til ferðalags um
Norður- og Suðurland, og sýndu þar víðs vegar gamanþætti.
erlenda og innlenda. Nefndu þeir leikflokk sinn Sumargesti.
Nú leggur þessi leikflokkur af stað í annað sinn, og hyggst nú
fara um allt land með gamanleikinn ,.Á leið til Dover“ eftir
A. A. Milne, kunnan brezkan höfund. Leikflokkinn skipa Sig-
rún Magnúsdóttir, Robert Arnfinnsson, Klemenz Jónsson,
Haukur Óskarsson, Erna Sigurleifsdóttir, Valdemar Lárusson
og Steindór Hjörleifsson.
Péíur Einarsson kom dönsku kepp-
endunum mesí á óvarí í keppninni
------—e-------
Beztu menn íaodskeppoinnar eigast viö
á íf>róttavellinum í kvöld.
„PÉTUR EINARSSON var sá íslenzku keppendanna, sem
kom okkur mest á óvart með frábærum keppnisvilju, þótt
hann bæri ekki sigurorð af öllum okkar mönnum“, sagði for-
maður danska frjálsíþróttasambandsins, Thor Dahl-Jensen, í
samsæti, sem framkvæmdanefnd landskeppninnar hélt öllum
keppendum hennar á Gamla Garði í fyrrakvöld. í þessu tilefni
færði formaðurinn Pétri að gjöf frá danska frjálsíþróttasam-
bandinu myndastyttu úr eir á marmarastalli, og er styttan af
lilaupara. Lárus Halldórsson, formaður íslenzka frjálsíþrótta-
ráðsins, gaf í sama skyni einum keppanda danska landsliðsins
veglega gjöf, fálka úr íslenzkum leir, gerðan af Guðmundi
Einarssyni frá Miðdal, og hlaut hana hinn glæsilegi kringlu-
kastari Dananna, Jörgen Munk-Plum, sem í keppninni tvísló
danska metið.
í ræðu sinni dáðist Thor
Dahl-Jensen að getu íslenzkra
íþróttamanna og tók fram, að
•árangur þeirra í landsliðs-
keppninni væri mikil land-
kynning fyrir ísland. Hann
lauk miklu lofsorði á allan und
irbúning keppninnar, útbúnað
hennar, dómara og alla starfs-
menn. Samkvæmisstjórinn, Er-
lendur Ó. Pétursson, formað-
ur framkvæmdanefndarinnar,
flutti ræðu og þakkaði gestun-
um. komuna og prýðilega fram
komu, og sérstaklega beindi
liann þakklætisorðum til hinna
íslenzku íþróttamanna, sem
gert hefðu þjóð sinni þann
sóma að sigra í landskeppninni
með mikilli sæmd og drengi-
legri framkomu.
I dag fer fram aukakeppni
hér á íþróttavellinum milli
hinna dönsku og íslenzku í-
þróttamanna. Hefst hún kl.
'' 8,30. Fyrsta greinin er 100 m.
hlaup' Má búast við, að sprett-
hlauparar okkar hafi hug á að
verða ekki á eftir Schibsbye í
þetta skipti. í 1000 metra
híaupi keppir meðal annarra
Pétur Einarsson og sennilega
Magnús Jónsson. Verður sú
keppni vafalaust mjög hörð og
spennandi, og sennilegt að
þessar nýju stjörnur okkar á
millivegalengdum séu nú bún-
ar að læra það mikicj, að sigur
Dananna sé engan veginn viss.
Síðan fer fram 4x200 metra
boðhlaup, og má búast þar við
ágætum árangri, ekki sízt ef
Hörður verður búirm að ná sér
eftir meiðslin í gær, sem þó er
engan veginn víst. Þar að auki
verður keppt í spjótkasti,
stangarstökki, kringlukasti,
hástökki, 200 metra grinda-
hlaupi og í 200 og 800 metra
hlaup
Innbrot í Völund
BROTIZT var inn í fyrrinótt
í trésmiðju Völundar við
' Klapparstíg og Skúlagötu.
Hafði þjófurinn komizt inn í
afgreiðsluna og brotið upp og
eyðilagt peningaskáp og stolið
einhverju úr honum. Einnig
gerði þjófurinn tilraun til að
brjótast inn á aðalskrifstofu
fyrirtækisins, en tókst það
ekki.
Byggingariönaðarmenn hefja
harða sókn gegn gervimönnunum
'
Sama og engar nýbyggingar á döfinni og
atvinnuhorfur byggingamanna slæmar.
Jón G. Jónsson.
kærðir fyrir að vinna störf fag
manna og það sem af er þessu
ári munu þeir vera litlu færri.
BYGGINGARIÐNAÐARMENN hafa nú hafið haróa sókn
gegn gervimönnum, sem vinna störf iðnaðarmanna við hús-
byggingar og hefur Sveinasamband byggingamanna og Tré-
smiðafélag Reykjavíkur ráðið sérstakan mann í þjónustu sína
til þess að hafa á hendi eftirlitsstarf og koma í veg fyrir að
ófaglærðir menn vinni fagmannavinnu við byggingar, en að
því hafa verið mikil brög'ð að undanförnu.
Atvinnuhorfur byggingariðn-
aðarmanna eru nú hinar
ískyggilegustu, þar eð sama og
engar nýbyggingar eru nú á
döfinni, og verður ekki séð
fram á annað en að stórfellt
atvinnuleysi skapist með haust
inu meðal iðnaðarmana, og er
því skiljanlegt að þeir taki
hart á því, þegar ófaglærðir
menn ganga í störf þeirra, og
draga þannig úr atvinnumögu-
leikunum. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Jóni G. Jónssyni,
formanni sveinasambandsins,
og Guðmundi Halldórssyni,
formanni Trésmiðafélagsins
munu nú milli 700 og 800 iðn-
aðarmenn í Reykjavík hafa
lífsuppeldi sitt af byggingar-
iðnaðinum.
Samkvæmt lögum hafa hús-
byggingaiðnaðarmenn einir
rétt á að vinna fagvinnu í hús-
um, að undanskildum húseig-
endum sjálfum, en að undan-
förnu hefur mikið borið á því
að svokallaðir gervimenn hafi
lagt hönd á pólginn og tekið að
sér störf iðnaðarmannanna.
í nýju bæjarhúsunum við
Bústaðaveg hefur þegar komið
til árekstra út af þessu, en í-
búðirnar þar hafa verið af-
hentar kaupendum fokheldar,
og eigendum gefinn kostur á
að vinna við húsin eftir því
sem þeir geta, en eftirlitsmað-
ur byggingariðnaðarmannanna
Þorsteinn Löve, hefur þegar
orðið þess áskynja, að þar hafa
ófaglærðir menn tekið að sér
iðnaðarstörf hjá íbúðaeigend-
um.
Hins vegar er byggingarmál-
unum í bænum nú svo háttað,
að heita má að Bústðaavegs-
húsin séu einu verkefnin, sem
framundan eru, því auk þeirra
húsa hefur aðeins verið byrjað
á byggingu eins húss í bænum
á þessu vori, þrátt fyrir þau 60
leyfi, sem fjárhagsráð mun
hafa veitt til nýbygginga á
þessu ári. Tvísýnt er að byrjað
verði á nokkru af þeim húsum
á þessu ári, þar sem mjög mik-
ill hörgull er á byggingarefni
og f jármagni til þeirra, og víða
eru hús, sem byrjað var á síð-
astliðið ár, stöðvuð vegna efn-
isskorts.
Atvinnuhorfur byggingaiðn-
aðarmanna eru því síður en
svo glæsilegar, og munu þeir
því leggja allt kapp á, að þeir
einir sitji að þeirri litlu bygg-
ingavinnu, sem til fellur, svo
sem þeim ber réttur til, en út.i-
loka alla gervimenn. Á síðasta
ári voru um 150 gervimenn
Maður bíður
bana af bílsly
MAÐUR varð fvrir bifreiði
á Hverfisgötunni í fyrradag/ogý
slasaðist miki'ð. Var hanre
fluttur á landsspítalann og:
lézt han þar um hádegið í gær..
Maður þessi hét Steingrímur
Benediktsson, til heimilis aði
Njálsgötu 94. Hann var tæp-
lega 35 ára að aldri.
Slysið vildi til um kl. 15,25
á þriðjudaginn á Hverfisgöt-
unni á mótsvið Gasstöðina, á.
þeim stað, sem strætisvagnarn.
ir hafa viðkomu. Telja sjónar-
vottar, að maðurinn hafi geng:
ið út á götuna fyrir framan.
strætisvagn er stóð á viðkomu.
staðnum, en í sama bili ók
fólksbifreiðin R 4084 fram úr
strætisvagninum og lenti Stein:
grímur fyrir bifreiðinni og:
kastaðist í götuna.
Var hann með meðvitund
eftir fallið, en var strax flutt-
ur á landsspítalann og þar lézt
han um hádegið í gærdag.
Rannsóknarlögreglan biður
sjónarvotta að slysinu að gefa
sig fram til viðtals. Sérstak-
lega vill hún beina þeim til-y
mælum til farþeganna, sem
voru í strætisvagninum á
þessum stað,
Urvalslið knattspyrnumanna írá
Sjálandi kemur á sunnudaginn
----------------—--------
I iiðinu eru maréir af beztu knatt-
spyrnumönnum Danmerkur0
ÚRVALSLIÐ KNATTSPYRNUMANNA frá Sjálandí,
Sjællands Boldspil Union, kemur hingað með Gullfaxa n. k.
sunnudag og keppir hér þrjá leiki. I flokknum eru 21 maðui',
að fararstjóranum meðtöldum. Liðið kemur hingað í boðí
Knattspyrnuráðs Reykjavíkur. Fer fyrsti leikurinn fram n. k.
mánudag, og keppa gestirnir þá við Reykjavíkurmeistarana
Fram. Annar leikurinn er við íslandsmeistarana KR, og fer
hann fram á miðvikudagskvöld. Seinasti leikurinn, og sá þeirra,,
sem vitað er að Danirnir hafa mestan hug á að vinna, fer fram
föstudaginn 14. júlí, og þá við úrvalslið úr Reykjavíkurfélög-
unum.
íslenzkir knattspyrnumenn
hafa fengið að reyna, að Sjá-
lendingar eru sterkir knatt-
spyrnumenn. Árið 1939 j^paði
lið Fram, sem þá voru íslands-
meistarar í knattspyrnu, fyrir
sjálenzku úrvalsliði í Sorö með
4:3, og í fyrra tapaði landslið
íslendinga fyrir þeim í Næst-
ved með 5:3. í liðinu eru marg-
ir beztu knattspyrnumenn
Dana, m. a. miðframvörðurinn
í landsliði þeirra, sem einnig
leikur í þeirri stöðu með þessu
liði.
Sala aðgöngumiða að kapp-
leikjunum hefst n. k. laugar-
dag á íþróttavellinum, stend-
ur yfir frá kl. 2—6 þann dag,
og á sunnudag frá kl. 10—12 og
1—4. Þeir, sem kaupa miða
fyrir alla leikina í senn, fá þá
15 krónum ódýrari en ef þeir
væru keyptir fyrir hvern leik
um sig.
Sfarf verðgæzlusfjóra
VERÐGÆZLUNEFND, það
er nefnd sú, er kjörin hefur
verið til að gera tillögu um val
verðgæzlustjóra, hefur nú aug-
lýst starf verðgæzlustjóra laust
til umsóknar. Eiga væntanlegir
umsækjendur að senda um-
sóknir sínar til formanns nefnrl
arinnar, Jóns Sigurðssonar,
framkvæmdastjóra Alþýðusam
bands íslands, fyrir 1. ágúst
næstkomandi.
•_y