Alþýðublaðið - 25.07.1950, Síða 8
LEITIÐ EKKÍ GÆF-
IJNNAR langt yfir skammt;
kaupið miða í bifreiðahapp-
•di-ætti Sambands ungra
jafnaðarmanna. —
ALÞÝÐUFLOKKSFÓLKi
Takið höndum saman við
unga jafnaðarmenn og að-
stoðið við sölu happdrættis
miða í bifreiðahappdrættí,
Sambands ungra jafnaðar >
manna. (
inar Krisíjánsson óperusöngvari
heldur söngskemmíun í Tivoli
EINAE KRISTJÁNSSON óperusöngvari hefur dvalið hér
að undanförnu í fimm vikur ásamt fjölskyldu sinni í sumar-
íeyfi, en er nú á förum héðan. Hann heldur söngskemmtun í
Tívolí n. k. fimmtudagskvöld og syngur þar íslenzk og ítölsk
lög.
Sem stendur er Einar fastráð
inn hjá konungiega leikhúsinu
í Kaupmannahöi'n til 1. júlí
næsta ár. Þar hefur hann verið
síðan í árslok 1949, að hann
var hjá konunglegu óperunni í
Sfokkhólmi, og er hann nú bú-
seítur í Kaupmannahöfn. Við
konunglega leikhúsið í Kaup-
mannahöfn syngur hann aðal-
lega í Mozartóperum, t. d. í
óperunum „Cosi fan tutti“,
„Don Juan“ o" „Brúðarrán-
inu“, sem ailar eru eftir Mo-
zart. Þegar hann kemur úr
sumarleyfi sínu, byrjar hann
strax að syngja í spánskri
óperu, sem leikhúsið tekur til
meðferðar.
I þessari ferð sinni til íslands
hugðist hann ekki halda söng-
skemmtanir, heldur hvíla sig
eingöngu. Hann hefur þó sung-
íð á tveim stöðum utan Reykja-
víkur í ferðinni, á Akureyri og
á Isafirði, á báðum stöðunum
^ vitanlega fyrir fullu húsi. I\
fimmtudagskvöldið gefur hann
Reykvíkingum kost á að hlýða
á sig, og syngur þá í Tívolí kl.
8,30. Á söngskránni eru vinsæl
Einar Kristjánsson.
íslenzk og ítölsk lög og a. m. k.
tvær aríur, úr óperunni ,,La
danza“ eftir Rossini og aríuna
úr „Bajazzo11 eftir Leoncavallo.
Dr. Urbantschitsch aðstoðar.
Þetta er eina tækifærið, sem
Reykvíkingum gefst til þess að
heyra söng þessa viðurkennda
listamanns. Hann fer til Dan-
merkur á laugardaginn kemur.
Hátíðjeg athöfn |>ar á/synnudagino.
—-— -----♦—■—■—-
FJÖLMENNI var viðstatt minningarathöfnina í tilefni af
endurreisn Borgarvirkis á sunnudaginn, að minnsta kosti tölu-
Hélt upp á níræðis-
afmællð með
íyrstu flugfereðinni
NÝLEGA tók A'rnfríður
Sigurðardóttir, til heimil-
is á Blönduósi, sér ferð á
hendur til Reykjavíkur með
einni af Douglas flugvélum
Flugfélags Islands í þeim til
gangi að halda upp á níræðis
afmæli sitt með skyldfólki
sínu, sem býr í höfuðstaðn
um. Var þetta í fyrsta skipti,
sem Arnfríður flaug, og
fannst henni mikið til flug
ferðarinnar koma.
Er hún hafði dvalist
nokkra daga í Reykjavík
flaug gamla konan síðan aft
ur til Blönduóss, og er ekki
ólíklegt, að hún eigi eftir að
fara fleiri flugferðir um æf-
ina.
Tifoislar í Þýzka-
landi slofna
nýjan flokk
TITOISTAR í Vestur- Þýzka
landi hafa myndað með sér nýj-
an flokk í Dússeldorf, og kalla
þeir hann Óháða verkamanna-
flokkinn. Standa að flokknum
þýzkir kommúnistar, sem rekn
ir hafa verið úr kommúnista-
flokknum.
Á þingi sameiningarflokks-
ins í Austur-Þýzkalandi var
samþykkt að endurskipuleggja
flokkinn eftir rússneskri fyrir-
fynd, og síðan var samþykkt,
að hinn endurskipulagði flokk
ur tæki að sér yfirstjórn komm
únistaflokks Vestur-Þýzka-
lands.
FULLTRÚAR Atlantshafs-
ríkjanna koma saman á fund í
London í dag og ræða sameig-
inlegar varnir þeirra.
100 smálesfa bláhvalur barst til
hvalstöðvarinnar íyrir helgiga
Stærsti hvaíur, sem borizt hefur tif
Hvaífjarðar, og hinn mesli fengur.
-------—♦——----
STÆRSTI HVALUR, sem borizt hefu til hvalstöðvarinnar
í Hvalfirði, kom þangað rétt fyrir síðustu helgi. Var þetta 28'.
metra langur, eða sem næst „feriugur“, bláhvalur, og var
gizkað á, að hann væri um 100 smálesti að þyngd. Reyndist
mikium erfiðleikum bundið að draga hann upp á skurðarplanið,.
og alls tók það tæplega sólarhring að ná honum upp og skera.
hann. Þar sem bláhvalirnir eru verðmætustu hvalir, sem hér
veiðast, og lítið hefur veiðzt af þeim, er hér um hinn mestai
feng að ræða.
Það var hvalbáturinn Whale^ ----------------------------------
IV, sem kom með þennan mikla
hval að landi. Varð fyrst að
bíða eftir fiöru til þess að koma
á hann böndum, og var þá vír
brugðið um sporð hans, eins og
venja er að gera. Þetta reynd-
ist þó ekki nægilegt til að ná
honum upp, því að sporðurinn
slitnaði af.
Þá var sett keðja í hvalinn
og vír fram fyrir ginig á hon-
um, en keðjan slitnaði og hékk
hann þá á vírnum. Loksins var
sett í hann sterkari keðja, og
tókst þá loksins að ná honum
upp á skurðarplanið. Hafði þá
tekið rúmlega 10 tíma að ná
honum upp.
Bláhvalur þessi mældist 85
fet eða rúmir 28 metrar á
lengd, og þar sem hann var
hæstur var hann 3—4 metrar,
sða tvær mannhæðir, þegar
þann lá á planinu. Er áætlað,
að hvalurinn hafi vegið rúm-
lega 100 smálestir.
Þegar hér var komið málum,
var byrjað að skera hvalinn, og
lók það starf samtals 12 tíma.
Var hann allur bræddur og
fyllti kjötið 10 potta, en í hval-
stöðini eru 7 pottar, svo að
tvífylla varð þrjá þeirra.
Alls hafa nú 150 hvalir
veiðzt, en voru nokkru fleiri í
fyrra á sama tíma. Hafa þeir
veiðzt djúpt út af Faxaflóa.
Bifreið velfur
í Kömbum
Á SUNNUDAGSMORGUIý-
INN valt bifreið í Kömbum og:
meiddist ein kona, sem í bíln-
um var, töluvert, en meiðsl
hennar munu þó ekki verat
hættuleg. ■
Bifreið þessi var úr Reykja-
vík, lítil fjögurra manna einka-
bifreið, og var hún rullskipuS
farþegum.
Hý gerð eidflugu
NÝ GERÐ af eldflugu v’ar
reynd í Bandaríkjunum í gær,
og er þetta fullkonari gerð'
hinna V-2 flugna. Flugan er
með aðra minni eldflugu festa-
við sig. Skauzt hún fyrst 16
km. í loft upp á 3 sekúndum,
en þaut svo áfram með 5750
km. á klst.
—-------«.--------
Erlend tersiíp í
heimsékn hér .
vert á aimáð þúsund manns. Fjöldi manns var þar úr Reykja-
vík, alimargir úr BorgarfirSi, Skagafirði og nofðan af Siglu-
fírði, auk Húnvetninga, sem voru geysifjölmennir. Veður var
hið ákjósanleofasta.
Halldór Sigurðsson frá Þver
á, formaður nefndarinnar, sem
sá um endurreisn virkisins, setti
Kýhósia hefur orðii
r
I
KÍGHÓSTA hefur orðið vart
hér í bænum, og er vitað um
eitt tilfelli. Borgarlæknir hef-
ur bent fólki á, að ef það eigi
heilsuveil börn, geti verið rétt
að bólusetja þau gegn kíghósta-
smitun. Sömuleiðis tekur hann
vara fyrir því, að koma með
ung börn á biðstofur lækna eða
þar sem margmenni er saman
komið.
CHURCHILL hefur í ræðu í
Alberthöllinni í London sagt,
að viðburðirnir í Kóreu varði
Evrópubúa jafn mikið og þeir
mundu, ef barizt væri í byggð-
um Norðurálfu.
athöfnina og stjórnaði henni.
Ræður fluttu Friðrik Brekkan,
rithöfundur, Hannes Jónsson,
Eyrrverandi alþm., formaður
Húnvetningafélagsins í Reykja
vík, Sigurður Nordal próf.,
Guðbrandur ísberg sýslumað-
ur og Ragnar Jónsson formaður
Húnvetningafélagsins á Siglu-
firði. Frumort kvæði fluttu
Skúli Guðmunsdson alþm.,
séra Sigurður Norland, og Björn
G. Björnsson, Hvammstanga.
Þá flutti Baldur Pálmason
kvæði, er Kristín Björnsdóttir
hafði ort í tiléfni hátíðarinnar.
Enn fremur söng Karlakór Vest
ur-Húnvetninga nokkur lög, en
á milli atriða lék lúðrasveit.
jSjálf athöfnin fór fram í
virkinu, er nú er orðið eins
líkt því, sem það var í upp-
hafi og unt mun vera að gera
það, en að henni lokinni háfst
dans á palli á ásnum, sunnan
klettaborgarinnar. Var dansað
fram eftir kvöldi.
'æðslusíldin nú rúmlega
hl. meiri en á sama tíma í fyrra
Búið að saita í 2637 tirnnur, en ekkert
um þetta leyti í fyrrasumar.
Á MIÐNÆTTI síðast liðinn laugardág var bræðslusíldar-
aflinn orðinn 103 494 hektólítrar, og búið var að salta í 2 637
tunnur. Á sama tíma í fyrra var bræðslusíldin 33 345 hektó-
lítrar, en söltun var þá ekki hafin. Bræðslusíldaraflinn er því
rúml. 70 000 hl meiri en á sama tíma í íyrra.
159 skip, sem veiða með 257
nótum hafa fengið þennan afla,
en allmörg skip eru enn ekki
komin á skrá.
Eftirtalin 17 skip hafa aflað
1000 mál og tunnur:
Helga, Reykjavík 2908, Fagri
klettur, Hafnarfirði 2198, Skapt
fellingur, Vestmannaeyjum
2124, Stígandi, Ólafsfirði 1780,
Fanney, Reykjavík 1530, Edda
l'Hafnarfirði 1487, Björgvin,
Dalvík 1360, Snæfell Akureyri
1328, Ingvar Guðjónsson, Ak-
ureyri 1291, Einar Þveræing-
ur, Ólafsfirði 1258, Guðm. Þor-
láksson, Reykjavík 1250, Súl-
an, Akureyri 1218, Hilmir
Keflavík 1180, Hvanney, Horna
Eirði 1154, Haukur I. Ólafsfirði
1150, Garðar, Rauðuvík 1148
og Sigurður, Siglufirði 1024.
Lítil síldveiði var um helg-
ina, enda var óhagstætt veður,
SÍÐAST LIÐINN FÖSTU-
DAG komu hingað í heimsókn
tvö æfingaskip úr norska flot-
anum. Með skipunum eru all-
mörg sjóliðsforingjaefni og
fóru þeir og aðrir skipsmenn á
Þingvöll síðast liðinn laugardag
í boði ríkisstjórnarinnar. í gær
komu til Reykjavíkur ‘ þrír
tundurspillar ur Bandaríkja-
Elotanum, en fjórði tundur-
spillirinn er væntanlegur í dag.
Skip þessi eru hingað komin í
kurteisisheimsókn. í dag mun
einnig brezka varðskipið
„Wave“ koma í heimsókn,: en
það er til eftirlits brezkum
fiskiskipum hér við land og'
hefur oft komið hingað áður £
sams konar erindum.
og í gær var svo mikil þoka og
dimmviðri að síldarleitarflug-
vélarnar gátu ekki flogið.
Um helgina barst þó dálítið
af síld til Raufarhafnar, en að-
eins einn bátur kom til Siglu-
Ejarðar. Á sunnudaginn fengu:
aðeins tveir bátar afla, en í gær
voru nokkru fleiri með veiði,
en afli var tregur.