Alþýðublaðið - 30.08.1950, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 30.08.1950, Qupperneq 7
Miðvikudagur 30. ágúsl 1950 ALÞVÐUBLAÐIÐ 7 ðium levkia Föstudáginn 1. sept. komi börnin í skólana sem hér segir: Kl. 1.30 börn fædd 1941 (9 ára). Kl. 2 börn fædd 1942 (8 ára). % Kl. 3 börn fædd 1943 (7 ára). Kennarar skólanna mæti sama dag kl. 1. Innritun: Laugardaginn 2. sept. kl. 10—12 komi öll 7—9 ára börn (f. 1943, 1942 og 1941), sem ekki hafa þegar verið innrituð í skólana. Eldri börn, 10—12 ára, óskast tilkynnt í þeim skóla, er þau eiga að sækja í vetur, fyrir miðjan sept- ember. , Börnin hafi með sér flutningstilkynningar frá þeim skólum, er þau voru í síðast. SKÓLAST JÓRARNIR. Nægar birgðir fyrirliggjandi. Ný framleiðsla kemur í hvegý viku. \ Reykhús S.Í.S. Sími 4241. Dugleg Télrflunardúika, sem kann skil á bókhaldi og almennum skrif- stofustörfum, óskast hið fyrsta. — Hraðritun æskileg. Umsóknir sendist Sambandi íslenzkra samvinnufélaga Framhald af 3. síðu. Heldur ekki vitum við um versnandi sölumöguleika og lækkandi verð á íslenzka fisk- inum í Bandaríkjunum. Hins- vegar er nú á leiðinni til New York yfir 100 smálestir af fisk- flökum og verðið ey hækkandi. Okkur hefur nýlega borizt bréf frá /skrifstofu, okkar í New York þar sem hún biður um 8000 smálestir af fiskflökum til 1. júlí 1951. F/nir þetta glögg- lega hve orðrómur Tímans er gripinn úr lausu lofti. Það er rétt hjá Tímanum, að það hefur verið sendur til Bandaríkjanna fiskur, sem ekki var sérverkaður fyrir þann markað eins og tíðkazt hefur. Þetta var ekki léleg vara og ekki heldur blandað saman við neitt. Ekki var hér heldur um neitt leyndarmál að ræða. Samband ísl. samvinnu- félaga seldi fyrst þennan um- rædda fisk til Bandaríkjanna og síðar seldi Sölumiðstöðin samskonar fisk þangað. í þessu sambandj er rétt að geta þess að Bretar yóru í sum ar að selja samskonar íslenzkan fisk á Banda^íkjamarkaðnum. Það er heldur ekkert laun- ungarmál, að okkur hafa bor- izt ýmsar aðfinnslur um pökk- un og frágang á fiskinum frá Bandaríkjunum, sem jafnótt eru sendar til frystihúsanna og á þann hátt reynt að koma í veg fyrir frekari endurtekningu. Að lokum teljum við þessi skrif Tímans mjög óheppileg og ekki vænleg til þess að vinna ís- lenzkri framleiðslu álits á er- lendum mörkuðum. Er Atflee fram- Framhald aí 4. síðu. inga. Og þetta er Tíminn nú að reyna að verja með fá- heyrðu rugli um vinnumála- pólitík jafnaðarmanna á Norð urlöndum og Bretlandi. Hvort myijdu þeir ekki brosa, ef þeim væri frá því sagt, að hér á landi væri verið að reyna að draga þá í dilk slíkrar stefnu og stimpla þá sem jábræður íslenzkra fram sóknarfásista? Útför konunnar minnar og móður okkar, Evu Björnsdóttur, fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 31. ágúst og hefst með húskveðju að heimili hennar, Hverfisgötu 83, ld. IOV2 f. h. Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað. Karl Stefán Daníelsson og börn. Kommúnisium má hvergi treysfa Framh. af 5. síðu. ■ að beita þau ströngum refs- ingum. Stéttarfélag, sem starfar líkt og Verkalýðsfélagið í Tálknafirði, og haft er þannig að skálkaskjóli fyrir atvinnu- rekendur, ■— þótt kommúnistar sé.u, — á ekki að fá að njóta neinna réttinda innan heildar- samtaka alþýðunnar. Þau eiga ekki samleið með öðrum verka- lýðsfélögum. Þau hafa svikið hið vinnandi fólk. og munu æ- tíð svíkja er á reynir, því þeim er ætlað það hlutverk að þjóna klækjabrögðum og htgs- munum kommúnistaforingj- anna. V 1——mmm* M msmnmM Tilkynning irá skrlf- stoiu borgar- læknis.. - HEILBRIGÐISEFTIRLITIÐ í Reykjavík hefur að undan- förnu látið fara fram rann- sóknir á rúsínum í verzlunum hér í bænum. Rannsóknir þessar, sem fram kvæmdar voru af Atvinnu- deild Háskólans, hafa leitt í ljós, að nokkurra skemmda hefur orðið var í vissum hluta rúsínubirgðanna, sem komu í sérstakri sendingu. Heilbrigðiseftirlitið hefur nú látið flokka þessa vöru og verð- ur sá hluti birgðanna, sem reynist skemvidur, fjarlægður úr verzlununum. Eyrirlestur um ísland vestan hais DR. HENRY GODDARD LEACH, fyrrverandi forseti norræna félagsins í Bandaríkj- unum, sem hér var á ferð í sumar, flutti á laugardaginn var erindi um lýðveldið ísland á 213 ára afmæli borgarinnar Shutesbury í Bandaríkjunum. Enn fremur las dr. Leach upp kvæðið ,,Þótt þú langförull legðir“ eftir Stephan G. Step- hansson, í enskri þýðingu eftir Lee M. Hollander. Þýzkir Gyðingar eiga að fá skaðabætur SKAÐ ABÓTADÓMSTÓLL, sem Bandaríkjamenn hafa stofnað í Núrnberg, kyað í gær upp þann úrskurð, að þýzk bæj arfélög og sveitarfélög væru skyld til þess að bæta þýzkum Gyðingum, ef krafizt yrði, að fullu það eignatjón, sem þeir hefðu orðið fyrir á dögum Hit- lersstjórnarinnar, er þeir voru knúðir til þess að láta eignir sínar af ehndi fyrir lítið eða ekkert verð. ---------»--------- Graziani sleppt GRAZIANI h'ershöfðingja, sem hafður hefur verið í haldi á Ítalíu síðan í ófriðarlok, var sleppt úr fangelsi í gær. Hann var nýlega dæmdur til 19 ára fangelsisvistar fyrir sam vinnu við Þjóðverja eftir að ít- alía hafði slitið bandalagi við þá. Sambands ungra jafnaðarmánna Vinningar í happdrættinu eru þrír: 1. Ný „Auslin" bifreið, 5 manna 2. Peningarkr. 500,00 3. Peningar kr. 500,00 Verð miðanna er 5,00 kr. Dregið verður 1. sept. n.k. — FUJ-félagar og annað Alþýðuflokksfólk um land allt er beðið að taka virkan þátt í sölu miðanna, sem afgreiddir eru hjá formönnum félaganna. — Alþýðuflokksfólk! Takið þátt í happ- drættinu með því að kaupa miða og selja miða. — Aðeins nokkrir dagar þar til dregið verður. — Happdrættinu verður t ekki frestað. Happdrættisnefndin.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.