Alþýðublaðið - 03.09.1950, Qupperneq 7
Sunnudagur 3. september 1950
ALÞÝÐIJBLAÐIÐ
i
$|a Víkingur nr. 194
heldur fyrsta fund haustsins
næstk. mánudag 4. sept. kl.
8,30 í Góðtemplarahúsinu.
I. Inntaka nýrra félaga.
II. Ilagnefndaratriði: i-> .
1. Kvartett syngur.
2. Erindi.
3. Pikkur og Pjakkur: —
Samtalsþáttur.
4. Upplestur.
Félagar! Fjölsækið á þennan
fyrsta fund haustsins og kom-
ið með innsækjendur. ÆT.
Auglýsið í
Alþýðublaðinu!
læknir
gegnir sjúkrasamlags-
störfum fyrir mig þessa
viku.
FRIÐRIK EINARSSON
LÆKNIR.
16383 gestir komu í sjómanna-
heimili Siglufjarðar árið 1949.
......
Heiniiílð var starfrækt s 3y2-mánuð.
__ -----» -T---
ÁRSSKÝRSLA Gesta- og sjómannaheimilis Siglufjarðar
fyrir árið 1939 er hýkotniri ut, en þáð var 11. starfsár> stofnun-
arinnar. Alls komu 16.383 gestir í heimilið yfir starfstímabilið;
en bað voru 314 mánuður.
Var .þetta nci>kru minni að-* '
Ræða Trnans
Framh. á 7. síðu.
hámarki, og lét þá von í ljós,
að Kína gerðist ekki þátttak-
andi í átökunum þar, því að
mjög mikil hætta væri á, að
það myndi hafa ný.já heims-
styrjöld í för með sér.
Hann lagði áherzlu á það í
þessu sambandi, að Bandarík-
in hefðu ekki ágirnd á eynni
Formosu, og ætluðu sér ekki
að ráða neinu um framtíð
hennar, en tryggt hefði verið,
a.ð henni yrði haldið utan við
þau átök, sem nú ættu sér stað
í Austur-Asíu.
----------------
Skæruliir berjast
Framh. af 1. síðu.
Skæruliðarnir berjast ekki í
stórum sveitum heldur litlum,
20—>100 saman og virðast vera
sæmilega vel vopnum búnir.
Enginn efi er heldur talinn vera
á því, að þeir njóti mikillar
samúðar og hjálpar bænda á
þessum svæðum, sem ekki vilja
sætta sig við hina rússnesku kúg
un. Svo mikið er að minnsta
kosti vís.t, að hersveitum Sovéí
stjórnarinnar hefur aldrei tek-
izt að bæla þessa skæruliða nið
u’r til fulls eftir stríðið. Hafa
þeir stundum farið langar her
ferðir, méðal annars einu sinni
alla leið til Austur-Prússlands,
án þess að Rauða hernum haíi
tekizt að vinna buga á þeim,
þó að hann hafi stundum bar-
izt við þá daglangt.
í sumar hefur skæruliðahern-
aðurinn breiðzt út til Eystra-
saltslandanna, og er hann sagð-
ur sérstaklega umfangsmikill í
Lithaugalandi. En ekki alls fyr-
ir löngu á skæruliðum einnig að
hafa tekizt að rjúfa járnbraut-
ina frá Rússlandi til Lettlands
um lengri tíma, og virðist Sovét
stjórnin lítið fá við þetta ráð-
ið. þrátt fyrir vaxandi liðssafn
að á öllum þessum svæðum.
sókn en árið áður og stafaði það
af því að síldveiði var mjög lít
il um sumarið, og það litla sem
veiddist var aðallega austan
Siglufjarðar, svo að sjómenn
voru þar minna inni en venju-
lega.
Bókasafn heimilisins telur nú
um 2000 bindi, og voru ajls ián
uð út úr safninu 1300 bindi.
Voru bækurnar einungis lánað
ar um borð í skip, en allir gest-
ir heimilisins höfðu aðgang að
safninu og margir sátu við lesí
ur í lesstofunni.
Bækur safnsins ganga mjög
úr sér og er þörf á því að end-
urnýja safnið árlega en til þess
þarf mikið fé. Ýmsir velunnar-
ar heimilisins hafa styrkt safn-
ið með bókagjöfum, svo sem
ýmsir bókaútgefendur og útgef
endur blaða og tímarita. Alls
voru skrifuð 950 bréf af gestum
heimilisins, þar af nokkur af út
lendum sjómönnum.
Blöðin voru starfrækt á sama
áhtt og undanfarin sumur, og
var tala baðgesta yfir tímabil-
ið 4871.
Eins og áður var heimiiið rek
ið af stúkunni Framsókn nr.
187, en naut opinberra sívrkja
til starfsemi sinnar, 5000 krón-
ur frá ríkissjóði, 2000 krónur
frá Siglufjarðarbæ og 1500 krón
ur frá Stórstúku íslands. Auk
þess styrktu fjölda útgerðar-
menn og siómenn heimilið með
peningagj öf um.
skýlið að
Framhald af 1. síðu.
í fyrrinótt hófu þeir svo hörð
gagnáhlaup við Naktongfljót,
suðvestur af Taegu, og tóku þar
bæinn Sonyong aftur í gær.
Það er ógrynni liðs, sem inn-
rásarherinn hefur teflt fram á
báðum þessum vígstöðvum, um
50 000 manns að bví er talið er,
og orusturnar þær hörðustu,
sem verið hafa í öilu Kóreustríð
inu. Þykir augljóst, að nú hafi
átt að gera úrslitatilraun, til að
komast til Pusan og hrekja her-
sveitir sameinuðu þjóðanna ,,í
sjóinn“.
Góður afli hjá Vesl-
mannaeyjabálum
GÓÐUR AFLI hefur verið
þessa viku hjá dragnótabátum
Vestmannaeyinga. Tveir bátar
fengu til dæmis 6—8 lestir á
hálfum öðrum sólarhring. Drag
nótaveiðar stunda nú um 10
bátar írá Vestmannaeyjum.
ÞEIR UNGLINGAR, sem
vilja selja Árbók Slysavarnafé-
lags íslands í Reykjavík eru
beðin að mæta á skrifstofu fé-
lagsins í Hafnarhúsinu kl. 9 á
mánudagsmorgun.
Jarðarför mannsins míns,
Ólafs Þorlákssonar
fer fram þriðjudaginn 5r sept. kl. 13,30 frá Fossvogskapellu.
Ingiríður Guðjónsdóttir.
Þórunn Ólafsdóttiiv Guðrún Ólafsdóttir. Hilmar Luthersson.
Alúðurfyllstu þakkir færi ég ölium vinum og vandamönn-
um fjær og nær fyrir vinsemd og hluttekningu við fráfall og
jarðarför konunnar minnar og móður okkar,
Evu Björnsdóttur.
Fyrir mína hönd, barna minna og annarra aðstandenda.
Karl Stefán Daníelsson.
Frá Slysavarnafélagi
íslands.
í SAMBANDI við fréttir í
blöðunum um að rænt hefði
verið öllu og spillt úr skipbrots
mannaskýli Slysavarnafélags-
ins að Þönglabakka í Þorgeirs-
fiiði, vill Slysavarnafélagið
taka það frarn, að frásagnir
blaðanna um þetta hafa ekki
verig alveg réttar. Þannig er
ekki sjáanlegt að tilraun hafx
verið gerð til £ð ræna skýlið
að öðru leyti en því, að ein-
hverjir ferðalangar, sem í skýl
ið hafa komið, hafa gert sig
óþarflega heimakomna og tek-
ið traustataki á vistum þeim,
sem eingöngu eru ætlaðar fólki
í neyðartilfellum og þá sér-
staklega niðursuðuvörum, og
spilit ýmsum áhöldum eða glat
að. Af hinum fjölmörgu skýl-
um Slysavarnafélagsins víðs
vegar á landinu, hefur það að-
eins komið fyrir í tveimur
þeirra, í Hornvíkur og Þöngla
bakkaskýlinu, að gesti hefur
skort þær umgengisvenjur er
siðuðu fólkir særnir á slíkum
stöðum, og verður aldrei of vel
brýnt fyrir fólki, hvað örlaga-
ríkar afleiðingar það getur
haft, ef skýlin eru eydd að vist
um, sem þar eiga að vera til
taks fyrir skipbrotsmenn og
aðra, sem þangað þurfa að
leita í neyðartilfellum. Getur
svo farið, að þeir, sem þetta
geri hafi líf annarra á sam-
vizkunni, og getur Slysavarna
félagið því ekki annað en látið
taka hart á slíkum yfirtroðsl-
um, sem flokka verður með
hinurn verstu afbrotum.
Við upptalningu og athug-
un, sem látin var fara fram í
Þönglabakkaskýlinu, eftir
strand rússneska skipsins, kom
í ljós, þó að þarna hafi ýmis-
legu verið spillt, að nægar
vistir voru eftir til að hlynna
að skipbrotsmönnum um
skemmri tíma. Þar var bæði
nóg kaffi og kex, olíueldavél
og nægilegt eldsneyti, einnig
ábreiður og sjúkrakassi og eld
unaráhöld. En niðursuðuvörur
og mataráhöld höfðu verið tek
in.
Slysavarnafélagið hefur beð
ið sýslumanninn í Þingeyjar-
sýslu, Júlíus Havsteen, sem
einnig er stjórnarfulltrúi Norð
lendinga í stjórn Slysavarna-
félags íslands að láta rannsaka
hverjir hafa verið þarna að
Fáir farþegar með
Drotfningunni
AÐEINS 15 farþegar komu
hingað með Dronnsng Alexand
rine á föstudagskvöldið. Héðan
fór skipið á hádegi í dag til
Færeyja og Kaupmannahafnar
og voru farþe^^nir út 50.
Skriísfolan er lokuð
á morgun vegna flutnings.
Opnum afiur n.k. þriðjudag
í húsakynnum félagsins í Defensor við Borgartún.
Byggingarfélagið Brú h.f.
Silfurhringar
með mynd af íslandi fást á
Grettisgötu 6.
Jén Dalmannsson,
Skrautgripaverzlun.
Ný bók.
Sögur eftlr Vilhj. S. Vilhjálmsson.
í þessari nýju bók Vilhj. S. Villijálmssonar eru tíu sögur.
f.
’ýií
|o
I'
Rauðir seölar.
Mynd gamallar konu.
Lítill drengur.
Blessaður gamli maðurinn.
Blá gluggatjöld.
Síðasti blossinn.
Nýtt hlutverk.
Silfurbjöllur.
Bróðurleit.
Áning.
Allar bera sögurnar vott um vaxandi rithöfund, en stíll
höfundar er kunnur af skáldsögum hans. Mun óhætt að
fullyrða, að enn muni vinsældir Vilhjálms vaxa við þessa
bók hjá öllum þeim, sem unna góðum bókmenntum.
Þetta smásagnasafn er 182 blaðsíður að stærð.
Beztu bækurnar og beztu höfundarnir hjá
HELGAFELL
Kyiknar í húsi
í Grindavík
í FYRRADAG kom upp eld-
ur í húsinu Melstað í Grinda-
vík, og varð töluvert tjón af.
Slökkviliðið af Keflavíkurflug
veili kom til aðstoðar og enn-
fremur fólk úr ná^enninu, og
tókst fljótlega að ráða niður-
lögum eldsins.
Húsið skemmdist þó allmik-
ið innan, en miklu varð bjarg-
að af innbúi. Ókunnugt er um
eldsupptök.