Alþýðublaðið - 15.10.1950, Síða 1
inn í Norður-Kóreu
Myndin sýnir einn af skriOdrekum spmeinuðu þjóffanna og nokkra hermenn þeirra sækja
fram í kafgrasi fyrir noröan 38. breiddarbaug .nn í Kóreu. Grasið er svo hátt, að aðeins
höfuð hermannanna með stálhúfunum, s. o og byssur þeirra, standa upp úr því.
Oi
Sjómaður brauzl
inn í konungshöli
LÖGREGLAN í LONDON
handtók í gær 25 ára gamlan
sjómann, og var hann fundinn
sekur um að hafa brotizt inn í
Buckingham Palace, brezku
konungshöllina, og stolið það-
an skjalatösku.
Innbrot þetta átti sér stað
fyrir nokkrum dögum, og var
sjómaðurinn dæmdur í tíu
daga varðhald. Hann játaði af-
brot sitt þegar í stað eftir hand
tökuna.
I stórum
ænska lögreglan fann
sjókort í rússnesku skipi
ÞAÐ VAR UPPLÝST í Stokkhólmi í gær, að
Rússar kaupi nú hundruðum saman sænsk, norsk og
dönsk sjckort og flytji þau úr landi, og sömuleiðis er
vitað, að pölskir sjcmenn sem verið hafa í förum milli
Norðurianda, hafa keypt slík kcrt í stórum stíl og
miklum mun fl'eiri en til mála komi að nota þurfi á
viðkornandi skdpum. Hefur mál þetta vakið mikla at-
hygli cg tortryggni um öll Norðurlönd og leitt til að-
gerða af hálfu stjónarvaldanna í Svíþjóð.
SIGURB.TÖRN EZNAESSON prófessoi- segir í yfir-
lýsingu sinni, þar sem liaun afturkallar undirskrift sína
undir Stokkhólmsávavpið, nð luni liafi ekkj verið hugsuð
af hans hálfu sem ncin „ty: gisyfirlýsing við rússneska
stórveldistefnu né kommúnistíska ofbeldishneigð“.
Þessi orð prófessorsins verða ejkki ö'Jru vísi skilinn
cn að hann geri ser níi fulhi grein fyrir þyí, að það sé þó
einmití þetta, sem menn geri, vitandi e-ðá óafvitandi, með
því að skrifa undir Stokkhólmsávarpið: þéir lýsi yfir fylgi
sínu við rússneska stórveláistefnu og kommúnistíska of-
beldishneigð. E»a3 fer heldur ekki neiít á milli 'má!a, að
Stokkhólmsávarpið er rumiíð undan rifjum sovétstjórn-
arinnar og •unáirskriftum undir það safnað af kommin-
istnm.
Frétt þessi er þannig til kom
in, að liðsforingi á rússnesku
skipi, sem !á í höfn í Stokk-
hólmi, keyþti í fyrradag mik-
ið af sænskum sjókortum þar
í borginni. Var lögreglunni til
kynnt þetta, og þar eð óleyfi-
Ugt er að flytja saensk sjókort
úr. lándi í stórum stíl, gerði
hún leit í hinu rússneska skipi.
Iienni tókst þó ekki að hafa
upp á sænsku sjókortunum,
en fann hins vegar 400 norsk
sjókort og 300 dönsk. Gat lög-
reglan engar ráðstafanir gert,
þrátt fyrir þennaji fund sinn,
þar eð sænsk lög leggja aðeins
bann við útflutningi sænskra
sjókorta, og fékk skipið því að
sigla leiðar sinnar,
Mál þetta hefur hins vegar
vakið geysimikla athygli, þar
eða umrætt sldp er aðeins í
íörum milli Leningrad, Stokk-
hólms og London, en hefur
hvorki viðkomu. í norskum eða
dönskum höfnum. Þykir því
augljóst, að þessar miklu birgð
Framhald á 5. síðu
Tillaga Alþýðuflokksins um
lausn togaradeilunnar
--------*.-------
Samkomulag á grundvelli viðunandi
kaups og kjara fyrir togarasjómenn
-- eða þjóðnýting og útgerð togar-
anna af háifu ríkis og bæjarfélaga!
--------------------+-------
ÞINGSÁLYKTUNARTILLÖGU Alþýðuflokksins
um lausn togaradeilunnar hefur nú verið útbýtt á al-
þingi cg er hún svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að
leggja kapp á að koma hið allra bráðasta á sam-
komulagi í deilu þeirri, er staðið hefur um langt
skeið á n: illi sjómanna og togaraeigenda, enda
verði þá deilunni lokið með samningum, er tryggi
sjómönnum viðunandi kaup og kjör.
Fari svo, að togaraeigendur vilji ekki semja
upp á þau kjör, er siómenn treysta sér til að fall-
ast á, þá er ríkisstjórninni falið að undirbúa ráð-
stafanir til þess með aðstoð bankanna og stofn-
lánadeildar, að umráð og eignarréttur yfir ný-
sköpuna^togurunum verði fluttur yfir á hendur
ríkis og bæjarfélaga, sem taki að sér að hefja
þegar á ný útgerð togaranna“.
í greinargerð fyrir þessari þingsályktunartillögu segja
flutningsmenn hennar, en þeir eru Stefán Jóh. Stefánsson, Emil
Jónsson, Gylfi Þ. Gísiason og Finnur Jónsson:
„I hartnær 3V2 mánuff hefur staðið deila á milli sjómanna
og togaraeigenda, sem leitt hefur til þess, að allir nýsköpunar-
togararnir sunnan lands hafa legið við landfestar. Því þarf
ekki að lýsa, svo mjög sem það liggur í augum uppi, hversu
kvíðvænlegt það er, að beztu og fullkomnustu fiskiskipin skuli
ekki gerð út. Af því ieiðir hvort tveggja gjaldeyris- og atvinnu-
tap. Hingað til hefur ekki tekizt að ná sáttum á milli deiluaðila.
Það er beinlínis skylda ríkisstjómarinnar að leggja sig alla
fram til þess að fá deiluna leysta með samkomulagi. Er henni
því í tillögu þessari falið að leggja allt kapp á að koma hið
bráðasta á samkomulagi. Um leið er það undirstrikað, að
nauðsynlegt sé að tryggja sjómönnum viðunandi kaup og kjör.
Það er skylt að reyna samkomulagsleiðina til þrautar. Eri
ef togaraeigendur vilja ekki semja um viðunandi kjör til handa
framsæknustu framleiðslustéttinni, sjómönnunum á fiskiflot-
anum, má það samt ekki leiða til þess, að togararnir verði eklti
notaðir til veiða. Sýnist þá eðlilegast, a3 þjóðarheildin ,ríkið
og bæjarfélög, fái þá eignarrétt og umráð togaranna og tryggi
það með atbeina almannavaldsins. að þessi ágætu skip verði
gerð út þannig, að sjómennirnir, er á þeim vinna, fái viðun-
andi kjör.
Tillaga þessi er flutt til þess, að ríkisvaldið beiti fyrst og
fremst áhrifum sínum til sátta á milli deiluaðila. En takist ekki
aff fá sættir, er skapi sjómönnum lífvænleg kjör, verður að
undirbúa framkvæmdir, þar sem þjóðfélagsheildin ýtir skip-
unum úr naustum um leið og hún tryggir sjómannastéttinni
það kaup og þau kjör, sem hún fær við unað. Verður í fram-
sögu gerð nánari grein fyrir þessu máli“.
r
IIERSVEÍTIR sameinuðu
þjóðanna sækja nú fram til
Pyongang, höfuðborgar Norð-
ur-Kóreu, úr tveimur' áttum i
— að sunnan og austan. Eiga
hersveitirnar að sunnan 75 km.
ófarna til börgarinnar, en her-
'Framh. á 7. siðu-