Alþýðublaðið - 24.10.1950, Síða 8
r
Börn og unglingar,
Komið og seljið
Alþýðublaöiö.
Allir vilja kauþa
Alþýðublaöið.
Gerízt áskrifendur
að Alþýðublaðinu. .1
Alþýðublaðið inn á'
bvert heimili. Hring-'
ið í síma 4900 og 4906.'
Þriöjudagur 24. október 1950.
Kommúnisiar hand-
teknir í Banda-
m. irá landa
Manchuriu
TÓLF erlendir koœnúrii-t- j
ar yoru handteknir í Banda-
ríkjunum í gær, oy fer i:ú
fram allsherjar athugun á
ctarfsemi þeirra, samkværot
lögunum, sem bingið nýlega
camþykkti gegn vilja Trumans.
manna
isr kommúnisía talinn vera efíir
Karl 0. Runólfsson
fónskáld fimmtugur.
KARL Ó. RUNOLFSSON,
tónskáld er fimmtugur í dag.
í tilefni af því helgar útvarpið
honum nokkurn hluta af dag-
skrá sinni í kvöld, og verða þar
leikin tónverk eftir Karl.
------------♦---------
Tíðindalausf
á Raufarhöfn
EKKERT hefur gerzt nýtt í
rannsókn þjófnaðarmálsins á
Raufarhöfn um helgina. en
Júlíus Hafstein og fulltrúi
hajis halda rannsókninni
áfram.
Keflvíkingar kjósa
samninganefnd
TOGARASJÓMENN í Kefla
vík héldu fund í gærkveldi og
ræddu það, sem fram hefur
komið um sáttatilraunir í tog-
aradeilunni. Var kosin nefnd
tii þess að ræða við bæjarút-
gerðina.
HERSVEITIR SAMEINUÐU ÞJOÐANNA sækja enn hratt
fram í Kóreu og verður æ minna um varnir. Eru fremstu her-
sveilirnar nú aðeins 70—80 km. Irá iandamærum Manchuriu,
en suöur um landib er unnið að hreinsun skæruliða og Icyni-
skyttna.
--------------------------| gær var fra þv{ skýrt, að
hernaðaryfirvöld sameinuðu
þjóðanna teldu, að varla
myndu meira en 60 000 manns
vera eftir í skipulögðum kom-
múnistahersveitum í Kóreu.
Mikill fjöldi fanga hefur
enn verið tekin í Kóreu, og er
ekkert lát á uppgjöf kommún-
ista. Heildartala fanga er kom-
in upp í 120 000 og fer þeim
fjölgandi með hverjum degi.
GÓÐ REYNSLA AF HELI-
KOPTERF LUGVÉLUM. .
Helikoptervélar hafa reynzt
ameríska hernum svo vel í
Kóreu, bæði við njósnaflug,
birgðaflutninga til einangraðra
herflokka ou við mannbjörg
og mannflutninga, að ákveðið
hefur veriQ að skipuleggja 10
til 20 sveitir slíkra flugvéla
með um 40 helikopterum í
hverri. Munu þær fá til yfir-
ráða stórar vélar, sem geta bor
ið allt að 10 hermenn með full-
um búnaði.
Ameríski leiðangurinn lagði afsíað
austur að Vatnajökli á sunnudag
-------♦------
Helikopterflugvélin og sleðahundarnir
koma fil landsins f dag.
Hrifning á hljóm-
leikam symióníu-
hljómsveitarinnar
SYMFÓNÍUHLJÓMSVEITIN
hélt á sunnudag fyrstu tón-
leika sína á haustinu, og lék
verk eftir Mozart og Prokofi-
eff undir stjórn- Dr. Victors
Urbantschitsch. Verkin voru
Es dúr symfónía Mozarts (nr.
39) og „Pétur og úlfurinn“ eft-
ir rússneska tónskáldið Serge
Prokofieff. Síðarnefnt verk er
óvenju’eg „barnasaga11 í tón-
um og les þulur texta. Er þetta
hið skemmtilegasta og feg-
ursta verk, enda víðfrægt.
Lárus Pálsson var þulur.
Tónleikunum var mjög vel
tekið og hljómsveit, hljóm-
sveitarstjóri og þulur óspart
hyllt.
---------4---------
FRANSKA STJÓRNIN
skýrði í gær frá ætlunum sín-
um um varnir Evrópu, sem
lagðar verða fyrir þingið. Er
stjórnin gersamlega andvíg
endurreisn þýzks hers, en mæl
ir með Evrópuher undir stjórn
hermálaráðherra Evrópu.
Fyrirspurn til límans: Eru 73 millj.
LÆGRI tollur en 57 milljónir?
ÞAÐ ER FURÐULEGT, hví
líkum vitleysum Tímanum
deítur í hug að halda fram í
taugaóstyrk sínum vegna vax-
andi óvinsælda stjórnarinnar.
Nú móímælir blaðið þeirri full
yrðingu Stefáns Jóhanns, að
skatíar og tollar hafi hækkað
og þrengt að tryggingunum í
tí»» núverandi ríkisstjórnar.
Sannleikuriun ta"ar þó sínu
máli:
1) Verðtoliurinn # nam í
síjórnartíð Stefáns Jóhanns 57
miiljónum, en er nú í tíð Ey-
steins Jónssonar komin upp í
73 milljónir með minni inn-
íiutningi e:i áður! Þetta kall-
ar Tímínn að læJ^ka tolla, enda
{(ótt tollurinn sé að prósent-
töJu lægri en áður, af því að
hann er lagður á miklu hærri
uppliæSir cftir gengislækkun-
2) Það voru Alþýðuflokks-
menn, sem lögðu fram kröfu á
alþingi um lækkun skatta á
lágtekjur, en stjórnarlíðið
spyrnti á móti svo lengi sem
það þorði. Ilins vegar hefur
núverandi stjórn fellt niður
verðhækkunarskatt og komið
stóreignaskatti svo fyrir, að
hann dreifist og eignamenn
firina lítið sem ekkert fyrir
honum.
3) í stjórnartíð Stefáns Jó-
hanns var ávallt varið á fjár-
lögum til trygginganna þeim
upphæðum, sem forstjóri
Tryggingastofnunarinnar taldi
þörf fyrir. Nú skammtar Ey-
steinn tryggingunum 3,4 millj.
minna en brýn þörf er fyrir
og virðist ekki séð fyrir end-
ann á því, hvað núverandi
stjórn þrengir áð þessari
stofnun.
AMERÍSKU LEIÐANGURSMENNIRNIR, sem ætla að
fara á Vatnajökul til þess að reyna að bjarga Dakotavélinni,.
lögðu af stað eftir hádegi á sunnudaginn með allan nauðsynleg-
an farangur og útbúnað, en í dag er von á helikopterLugvél-
inni frá Nýfundnalandi, og mun hún flytja þá Árna Stefánssoni
jg Friðþjóf Hraundá''. þangað, setn leiðangursmenn komast inm
í óbyggðirnar á bifreiðum.
---------------------------♦ Farið var á þremur bifreið-
um héðan og eru Guðmundur
Jónasson og Egill Kristbjörns
son bifreiðarstjórar á tveim.
þeirra, en auk hinna 4 ameríku:
manna, sem ætla á jökulinn
fóru þrír aðrir ameríkumenn
með, og eru það bílstjóri og bif
reiðaviðgerðamenn.
Ætlunin var að fara austur
að Galtalæk í fyrrakvöld, en.
Sameinuðu þjóðirnar
Framh. af 5. síðu.
þau játazt undir það sem helga
skyldu að efla velgengni þeirra
og framfarir.
STUÐLAÐ AÐ SKOPUN
OG VIÐURKENNINGU
ALÞJÓÐALAGA.
Sérhver samþykkt allsherj-
arþingsins og annarra stofnana
sameinuðu þjóðanna stuðlar að
sköpun og viðurkenningu al-
þjóðalega, sem hvíla á grund-
velli stofnskrár sameinuðu þjóð
anna. Alþjóðadómstóllinn sker
úr þýðingarmiklum lögfræði-
legum ágreiningi milli ríkja og
gefur leiðbeiningar um alþjóð-
leg lögfræðileg vandamál.
Alþjóðleg mannréttindaskrá
hefur verið samþykkt mótat-
; kvæðalaust af allsherjarþing-
' inu. Er hún sú fyrirmynd, sem
öllum þjóðum ber að keppa að
í þeim efnum. Sameinuðu þjóð
irnar eru nú að vinna að sátt-
mála um mannréttindi, sem á
að vera lagalega skuldbindandi.
Þjóðréttarnefnd sa’/iéinuðu
þjóðanna hefur byrjað á því
þýðingarmikla verkefni, að
gera tillögur um þjóðréttar-
reglur.
HVAÐ ER FRAMUNDAN?
Ágreiningur stórveldanna
hefur komið í veg fyrir sam-
! komulag um mörg stórmál, svo
j sem eftirlit með kjarnorkufram
■ leiðslu, afvopnun og takmörk-
un vígbúnaðar og stofnun her-
liðs öryggisráðsins. Um mitt ár
1950 höfðu enn fremur 14 ríki
sótt árangurslaust um inn-
göngu í bandalagið.
1950 hafa Ráðstjórnarríkin
og nokkur önnur Austur-Ev-
rópu ríki neitað að taka þátt í I
fundum þeirra stofnana samein
uðu þjóðanna, sem fulltrúi kín-
versku „þjóðernissinna stjórn-
arinnar" á sæti í.
Aðalritari sameinuðu þjóð-
anna hefur lagt mjög mikla á-
herzlu á að leysa þyrfti deiluna
um umboð Kína. Hann hefur
krafizt nýrrar friðarsóknar og
hefur í ávarpi, sem er í tíu lið-
um, gert grein fyrir megin
vandarpálunum. Hann hefur
lagt til að utanríkisráðherrar
ríkjanna ættu með vissum milli
bili að mæta á fundum'örygg-
isráðsins. Til þess að komá þessu
til leiðar átti hann viðræður
við leiðtoga ríkisstjórnanna i
Bandaríkjunum, Bretlandi,
Frakklandi og Ráðstjórnarríkj-
unum og setti tillögur sínar á
dagskrá fyrir fimmta allsherj-
arþingið.
Sameinuðu þjóðirnar mæta
þeim ógnum, sem nú — í sept
ember 1950 — steðja að, von-
góðar um, að þrátt fýrir allt
takist þeim að sigrast á erfið-
leikunum. Þær geta íbent á,
hvernig tekizt hefur fjvrir at-
beina þeirra að leysa aeilumál
friðsamlega. Þótt óvænlega
horfi, verður haldið áfram að
reyna að leysa ágreininginn
milli stórveldanna. Sameinuðu
þjóðirnar eru eftir sem áður
eina stofnunin í heiminum, sem
„getur bjargað komandi kyn-
slóðum frá plágum styrjalda”.
--------------s>----------
íbúar í Smálöndum
fá ekki sfrætis-
vagna þangað.
AÐ FENGINNI UMSÖGN
forstjóra strætisvagnanna tel-
ur bæjarráð ekki unnt að láta
hefja strætisvagnaferðir í Smá
löndin, eins og íbúar hverfis-
ins hafa farið fram á.
Hins vegar' hefur bæjarráð
falið forstjóra strætisvagnann.a
að leita samninga við sérleyf-
ishafa Mosfellssveitarleiðar-
innar um að hefja sérstakar
ferðir í Smálöndin.
halda svo áfram í gær, svo
ha’.da áfram í.gær, svo langt:
sem komizt yrði, en upphaflega.
var ráðgert að fara í bílunum:
að Illugaveri. Ekki er þó vitað-
enn, hvort leiðangursmenn hafa
komist þangað í gær, og var
talinn hætta á því, að svo mik-
ill vöxtur væri kominn í'
Tungnaá, að hún yrði örðug
yfirferðar. En komist bílarnir
yfir hana, er þeim borgið.
Flogið verður hvern dag, semi
fært er austur til þess að fylgj-
ast með leiðangrinum, og verð-
ur kaptein Emmons, sem er for
ingi þessarar björgunarsveitar
.jafnan með í flugferðunum til
þess að fylgjast með öllu og'
gera þær ráðstafanir sem nauð:
synlegar eru hverju sinni, en:
hann hefur langa ævingu og
reynslu í að stjórna slíkum svað'-
ilförum, bæði í Alaska, Kanada.
og á Grænlandi.
Sleðaþundarnir, sem varpað
verður niður til leiðangursins
eru væntanlegir í dag til lands:
ins um leið og helikopterflug-
vélin, sem á að selflytja leiðang
urinn og farangurinn síðasta á-
fangann upp að jöklinum.
Stálvírinn skýtur
upp kollinum
á alþingi
"W" -M?
STÁLVÍRINN hefur enrs
skotið upp kollinum á alþingi..
Hafa þeir Þorsteinn Þorsteins-
son og Páll Zóphóníasson flutt:
á ný tillögu sína um upptöku.
umræðna á alþingi á stálvír
eða plastvír, enda falli þá þing
skriftir niður. Benda þeir á,
að þingmenn lesi nú ekki leng;
ur yfir ræður sínar eftir þing-
skrifurum og sé. umræðupart-
ur þingtíðinda því ekki örugg:
heimild lengur. Þeir vilja ekki.
fallast á tillögu Stefáns Jóh..
Stefánssonar frá síðasta þingi
um vikulega útgáfu á umræðu
hluta þingtíðindanna.