Alþýðublaðið - 31.03.1951, Side 5

Alþýðublaðið - 31.03.1951, Side 5
L,augardagur 31. . marz 1951. ALÞÝÐUBLAÐÍÐ 5 Bezfu fermingargjafirnar eru bækur slendingasagnaúfgáfunnar íslendinga sögur, 13 bindi .......... á kr. Byskupa sögur, Sturlunga saga, Annálar og Nafnaskrá, 7 bindi .. á k'r. Riddarasögur, 3 bindi ............... á kr. Eddukvæði, Snorra-Edda, Eddu- lyklar, 4 bindi ................... á kr. Karlamagnús saga og kappa hans, 3 bindi ........................... á kr. Fornaldarsögur Norðurlanda, 4 bindi á kr. 520.00 í skinnb. 350.00 165.00 í skinnb. í skinnb. 220.00 í skinnb. 175.00 270.00 í skinnb. í skinnb. Samtals 34 bindi á kr. 1700.00 í skinnb. ISLENDINGASAGNAÚTGAFAN býSur yður hvern einstakan bóka- flokk eða alla gegn 100 króna mánaðargreiðslum. ÍSLENDINGASAGNAÚTGÁFAN býður ávallt þjóðlegustu, beztu og ódýrustu bækurnar. Leitið nánari upplýsinga. íslendingasagnaútgáfan, Túngötu 7. Pósthólf 73. Símar 7508 og 81244. Reykjavík. Sigurjón Jóhannsson: Cjafir kapífalismans FYRIR STUTTU SÍÐAR íbarst mér í hendur bréf frá kunningja mínum og skólabróð ur. Mér varð hverft við, er ég 3as bréfið, því að þennan kunn- cingja minn hafði ég þekkt sem bjartsýnis- og hugsjónamann, en frá hverri línu andaði holl- köldu vonleysi, blandað biturri ádeilu á skipulag auðvaldsins, er hann hafði fyrrum dýrkað Zneð : áhuga æskumannsins. en af bréfinu að dæma, hafði sreynsla sjálfs hans gert hann reikulan í trúnni. Honum hafði sem mörgum íleiri þótt umbúðirnar fagrar og girnilegar, sem kapitalis- 5tn:nn hefur haft lag á að hylja óskapnað sinn í. En nú hafði !honum tekizt að festa sjónir á klóm og kjafti ófreskjunnar und ír gyllingunni. Hann hafði hrokkið sem upp af vondum svéfni er dýrlingur- ínn, er hann hafði tilheðið, Siafði óvænt og skyndilega klætt sig úr engilsklæðum í líki hins gamla, og í þeim búningi hefur jhinn fallni dýrlingur staðið á þröskuldinum hjá vini mínum ixndanfarna mánuði og fært hon um gjafir úr hinu óþrjótandi forðabúri kapitalismans. í bréfinu kallar hann að vísu jþessar gjafir glæpi og miskunn arlausar árásir á frelsi og sjálfs- ákvörðunarrétt einstaklingsins, <og má lá honum þá nafngift á þeirri forsendu, að hann hafi eigi þekkt til hlítar fyrr öll ein kenni alþjóða-kapitalismans, og því látið blekkjast af mærð- arfullu og sef jandi máli áróðurs kvarnar auðvaldsins. En nú er svo komið, að hann stendur örþrota og ráðlaus, en gjafapakkar forráðamanna auð valdsins berast látlaust til hans og verða æ fyrirferðameiri með hverjum deginum, sem líður. Frá miðjum nóvember síðast- liðnum hefur sama gjöfin bcr- jst til hans á degi hverjum: „At- vinnuleysi“, hefur staðið á pakk anum, gefandinn hefur verið Ólafs-Hermanns-Companiet, að alfirma hins alþjóðlega kapitai- isma á íslandi. Með hinni venju legu morgungjöf hafa borizt fleiri pinklar með áletruðum skrautmiðum frá sama firma: „Minnkandi kaupgeta“, „Hækk- andi vöruverð“, „Öryggislevsi“, „Brostnar framtíðarvonir ‘, ,,Húsnæðisskortur“, „Skulda- söfnun“, „Brostið lántraust", „Skortur á öllum sviðum“ o. s. frv. Gjafir í dag^ og gjafir á morgun, fyrirheit, sem trúfast- lega er staðið mð! Á meðan kunningi minn skrifar mér bréfið, segir hann, að konan sín hafi farið í heim- sókn til systur sinnar, en hann tjáir mér, að áður en hún hafi farið, hafi hún tahð aurana í sparibauk eldra barnsins þeirra, en að því búnu tekið slitnu skáp una sína, því að hún fékk enga kápu fyrir jólin. Þún þurfti að reyna að útvega brauð og mjólk handa börnunum. Hann skildi þau sannindi. Unga konan hans er orðin þreytuleg og þó er hún hugprúð, þótt efiaust sé dauf von hennar um betra hús- næði að vori. „Ég hefi ekki haft kjark til að segja henni, að sú von sé fyrir löngu dauðadæmd“, segir bréfritari minn orðrétt. Konan hans á systur og hún er gift manni, er lánið leikur við. Hann fær einnig gjafapakka eins óg bréfritari minn frá Ól- afs-Hermanns-Company, en á annan máta, því að eins og eðli legt er á kapitalistiska vísu, er annað veitt villueiganclanum við Austurstræti, en leigjend- unum í Camp-Knox-bragga- hverfinu. Villueigandirm fa-r á- vísun á meiri gróða. „Mikill gróði í dag, enn meiri á morg- un“, „Lögverndaður svartimark aður þér til handa, góði“. „Enn fremur veitum við þér tækifæri til .miskunnarlauss húsaleigu- okurs og til allskonar svindl- og braskmennsku“, þannig er orð anna hljóðan Ólafs-Hermanns- Companis-ins til villueigand- ans. Og gróði hans vex líka dag frá degi. Hann er þegar orðinn helzti buregisinn í drykkju- veizlum „fyrirfólks“ borgarinn- ar, og systir konunnar, er leig- ir í einu af braggahver.fi höfuð- borgarinnar, er orðin fín frú eftir kapitalistiskum hugsunar- hætti. Hún fékk kápu fyrir jól- in, og í örlæti sínu gefur hún systur sinni aura fyrir mjólk og brauði handa svöngum börn- um í Camp Knox. Hver dirfist svo að gagnrýna auðvaldsskipu- lagið?! Án þess þrífst .m.k. ekki mannúðarhugsjónin. Hver ætti að gefa hverjum, ef all- ir væru jafnir? Hvaða auð- jöfrar gætu þá lagt af mörkum nokkrar krónur í þágu Vetrar- hjálparinnar eða til annarra góðgerðastofnunar og séð svo nafn sitt í blöðunum, hljótandi blessun drottins fyrir góðverk- ið? Og hver myndi þá þiggja með klökkum huga leifar, er nýttust ekki á veizluborði höfð ingjans, eða föt, sem orðin væru Framhald á 7. síðu. Kvæði Þorsteins H Þorsteinn Iíalldórsson: SÓLBLIK. He’gafell gaf út. Reykjavík 1950. BÓKAMARKAÐURINN varð ekki ofhlaðinn Ijóðabókum að þessu sinni fyrir jólin, hver sem orsökin er. Óbundna málið virðist vera að þoka ljóðagerð- inni um set. Ein þeirra bóka, sem út komu fyrir jólin, var þó Ijóðabók Þorsteins Halldórs- sonar, Sólblik. Það verður naumast um höfundinn sagt, að hann hafi verið óðfús að koma Ijóðum sínum á framfæri, er hann dregur það allt til 50 ára af- mælis síns; því að Þorsteinn hefur kveðið í ajnum hópi um langt skeið við ýmis tækifæri. En tiltö’-ulega lítill hópur - - kunningjar og vinir — vissi að hann átti af nokkru að taka í þessari íþrótt. En Þorsteinn hefur nú leyst frá skjóðúnni, og allir eiga þess kost. að kynn- ast því, sem hann býr yfir. Ljóðabók Þorsteins skiptist í tvo hluta. í fyrri hlutanum eru þau ljóð, sem algerlega eiga tilfinningunum tilveru sína að þakka. — Síðari hlutinn, sem hann nefnir Vinaminni, er að vísu til orðinn af innri hvöt, en hlýtur þó að einhverju leyti að vera af því bergi brotinn, sem máske. mætti nefna — útmæl- ingu. Það, sem einkennir kvæði Þorsteins, skilst mér vera það, hversu glaðlegur og drengileg- ur ómur er í öllum kvæðum hans. Það leynir sér ekki, að hann „syngur frá eigin brjósti“, stælir hvergi eða þef- ar niður í annarra spör. Hann tekur hiklaust tóninn, þegar andinn kemur yfir hann og kveður af sjálfum sér. Þor- steinn hefur sýnilega lifað og litið margt um dagana. Hann á einnig svo móttækilegt með- vitundarlíf, að það, sem hann sér og heyrir, mótast varanlega í því, og auk þess hefur hon- um hlotnazt sú gáfa, að geta andað því frá sér í formi, sem okkur öllum er skiljanlegt, þótt við ekki séum öðrum hæfi- leikum gædd en að kunna að hlusta. í fáum orðum sagt, hjá honum haldast í hendur „hjarta og vöf“. Eftirtekt Þorsteins er sýni- lega vakandi. Þá er hann í æsku dvelur að Skálabrekku í Þingvallasveit sem hjarð- sveinn, mótast hið stórbrotna landslag í meðvitund hans, en hann veitir einnig athygli smá fuglinum, sem skýzt af hreiðri sínu í barmi fjárslóðans. Þegar ! hann, barn að aldri í skóla, er j leiddur fyrir örninn og lítur I hinn stórbrotna fugl og hina þróttmiklu-hramma með svart- allöorssonar. Skúlagötu 59, Reykjavík. Hafnarfjörður Heimilistæki væntanleg á næstunni. Þvottavélar, Hrærivélar, Ryksugur, Strauvélar Pöntunum veitt móttaka. Þorvaldur Sigurðsson og Jón Guðmundsson rafvlrkjar. Strandgötu 16. — Sími ,9375. . Þorstéinn Halldórsson. ar heljarklær, verður honum svo mikið um, að hann yrkir seinna út af þessu þróttmikíð kvæði. Það væri fróðlegt að vita, hve mörgúm í barnahópn- um hefur brugðið svo sem skáldinu; máske hefur þeirn einungis fundizt örninn „anzi pen“. Þá er annað kvæði í bókinni, sem fær nafnið „Hörpuleih- arinn“. Ekki ætla ég mér þá dul, að vera að tína það sundur með skýringum frá eigin brjósti. Kvæðið verður að les- ast og skynjast í heild. Það er auðskilið, að þarna er skáldið ekki í ró og næði að virða fyrir sér tign Þingvallasveitar Allt í einu virðist það vera statt í æðandi faldaféyki lífsins og sjá ekki annað ráð fyrir sér en að taka þátt í galsanum sem hinir og láta vaða á súðum. En hver er sá, sem hefur einhvern tíma á lífsleiðinni veríð stadd- ur í sporum skáldsins, ölvað- ur af gáskanum, með tauga- kerfi svo viðkvæmt, að jafn- vel minnsta snerting ómar lengi á eftir í sálarlífinu með ölvunarkenndri, seiðandi unun norðurljósahrifninga, að hann ekki kannist við sínar eigin kenndir. Sé sá til, sem ekki mætir þarna gömlum kunn- ingsskap, þá er hann — „úr skrítnum steini“ —. Það kvæði bókarinnar, sem bezt á við mína skapgerð, er „ísabrot“. — Það hefst svona: „Einn morgun, einn morgun á vori var allt orðið annað,“ Þetta fágæt.a skáldskapar- málverk hi-ttir svo naglann á höfuðið, að ég hlýt að gera grein fyrir því, hvernig á þvi stendur, að mér er það geðfellt. Kvæðið lýsir komu vorsins, Máske sökum þess, að ég er fæddur og uppalinn á Norður- landi til tvítugs aldurs, þykir rnér svo mjög til þess koma, að ég minnist þess ekki að þeir séu margir, sem. öT.u hreinna hafa gert fyrir sínum dyrum í náttúrulýsingu. Hér sunnan lands er veður- far vanalega svo milt, að lít- ils munar gætir sumars og vetrar. Skúrademburnar eru stöðugt að skola burt snjón- um, jafnt þótt vetur sé. Öðruvísi var þessu farið a Norðurlandi. Þar Iá allt und- ir snjó liðlangan veturinn og engum Norðlendingi kom i hug rigning eða hláka um miðjan vetur — alltaf bætti á snjó fram á vor. Máske hef- ur maður verið á skautum á Akureyrarpolli. Hélt því næst þeint heim í herbergi sitt með lofthita -:-0. Háttaði í skyndi í kalt rúmið, breiddi yfir höfuð. svo andardrátturinn hjálpaði tjl 'að ylja rúmfötin. Þó var Framh. á 7. síðu.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.