Alþýðublaðið - 22.04.1951, Page 5

Alþýðublaðið - 22.04.1951, Page 5
Sunnudagur 22. apríl 1951 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 Málgagn Sambands ungra jafnaðarmanna. Verkalýðurinn verður a§ sam- einasf um Álþýðuflokkinn EINS OG flestum er kunn- ugt, hefur stjórn Alþýðusam- bands Islands farið þess á leit við öll verkalýðsfélög landsins, að þau segðu upp samningum 1. marz, þannig að samningar væru lausir 1. apríl. Þessa óskar stjórn ASÍ vegna þess, að samþykkt var á alþingi í vetur frumvarp um, að fram- vegis skuli kaup til launþega ekki taka breytingum sam- kvæmt vísitölu, heldur miðast við vísitölu desembermán. s.l., 123 stig. Þetta frumvarp hefur í för með sér að kjör verkafólks yersna stórlega, þar eð vöru- yerð hækkar sífellt. Allar Iífs- nauðsynjar landsmanna hafa undanfarið alltaf verið að Siækka, og fyrirsjáanlegar eru miklar hækkanir vegna hins frjálsa gjaldeyris útgerðar. mönnum til handa. Það er einnig séð að verkalýðurinn kemst ekki af með lægra kaup en verið hefur undanfarið. Síðustu úrræði ríkisstjórnar- innar til bjargar bátaútvegin- •um munu því stórlega rýra ikjör verkalýðsins. Eitthvað þurfti þó að gera bátaútvegin- um til bjargar, um það éfast enginn, þótt skiptar séu skoð- anir um hvaða leiðir fara ætti. Bátarnir gátu ekki haldið á- fram vegna þess að allar vörur til útgerðar höfðu stórhækkað, en afurðaverðið staðið í stað. Því varð einhverjar ráðstafan- ir að gera útveginum til bjarg- ar. En það er nú orðið svo, að jafnt er á komið með verkalýð íandsins og bátaútveginn, hann stenzt það ekki, að allar nauð- synjar stórhækka, en arður erf iðis hans stendur í stað. — Því verður eitthvað að gera honum til bjargar, og stjórn ASÍ hefur orðið að grípa til þess ráðs að fivetja verkalýðsfélögin til að segja upp samningum til þess að rétta hlut sinn. Forsætisráðherrann, Stein- grímur Steinþórsson, sagði í út "varpsumræðunum 26. febr., að fcoðskapur ASÍ til verkalýðsfé- laganna væri óvarfærnislegur og enginn grundvöllur sé fyrir í Minningarspjöld Krabba- i meinsfélags Reykjavíkui ^ bfást í Verzluninni Remed-S IJ S ía, Austurstræti 7 og i? ,5 skrifstofu EIIi- og hjúkrun-i Ú ... • I arheimilisins Grund. S TrilSa. » Lítill trillubátur óskast. Upplýsingar í síma 9516. því að verða við kröfum ASÍ um að laun yrðu greidd sam- kvæmt vísitölu. Þegar útvegsmenn lögðu bát um sínum í byrjun vertíðar og sögðust ekki getá gert út sök- um stórhækkaðs verðs á nauð- synjum bátanna, en afurða- verðið stæði í stað, var það tal- ið eðlilegt af þeim sömu mönn- um, sem nú hóta alþýðunni öllu illu vegna þess að hún fer fram á réttlæti sér til handa. . Mannamunur er þetta og ekki annað. Ríkisstjórnin verð- ur við kröfum útgerðarmanna með glöðu geði, en þegar fátæk alþýða þessa lands fer fram á réttlæti sér til handa, er haft í hótunum við hana. í dagblað- inu Vísi 26. febr. er sagt m. a., að réttast væri að sýna verka- lýðnum í tyo heimana með því að stöðva framleiðslutækin jafnlangan tíma og verkföll verkalýðsins stæðu yfir. Grein in, sem þessi orð eru í, er und- irrituð ,,Geir“. Þessum „Geir“ skal bent á að verkalýðurinn getur ekki þolað að kjör hans séu skert hvað eftir annað. Hann verður að leita réttar síns eins og aðrir, sem órétti eru beittir, og þessa réttar síns leitar hann með verkföllum, því að þau eru hið eina vopn, sem verkalýðurinn getur beitt þegar á hann er ráðizt og stjórnarvöldin láta sem vind um eyrun þjóta úrræði þau, er hann telur happasælust til lausnar vandamálunum. Þeim mönnum, sem nú fara með stjórn landsmálanna, skal bent á, að verkalýðurinn er þjóðin, að undanteknum nokkr um hundruðum manna, sem lifa á því að arðræna verkalýð- inn — menn, sem ráða mjög miklu í þjóðfélaginu sakir fjár- hagslegs styrkleika —- menn, sem stjórna með sína eigin hagsmuni í huga, en ekki hags- muni þjóðarinnar allrar. Sumir hafa að Iíkindum haldið, að íhaldið, sem íslenzk- ur verkalýður varð að hevja harðvítuga baráttu við á fyrstu árum verkalýðsfélaganna, væri snúinn frá villu síns vegar að nokkru leyti og mundi í fram- tíðinni unna verkalýðnum þess að lifa mannsæmandi lífi, en það eru tálvonir. íhald er alltaf íhald, og það mun nota hvert tækifæri, sem gefst, til þess að ganga á hluta verkalýðsins. Til þess að koma í veg fyrir að íhaldinu takist það, verður íslenzkur verkalýður að sam- einast um Alþýðuflokkinn, sem mun leysa vandamál þjóðfélags ins með úrræðum jafnaðar-: stefnunnar. íslenzkur verkalýður tryggir því afkomu sína og landsins bezt með því að fylkja sér um eina íslenzka verkalýðstlokk- inn, Alþýðuflokkinn. Kristinn BreiðfjörS. Væri hægf að nofa kafháfa fil landhelgisgæzlu! sem hugsa fyrir morgundegin- um, ofbýður hin gengdarlausa- ásókn, er íslenzk fiskimið verða fyrir um þessar mundir. Þjóðir Evrópu, sem fyrir nokkru voru önnum kafnar við að berja sem hraustlegast hver á annarri, hafa snúið sér að friðsamlegri. störfum. Botn- vörpungar þeirra streyma nú í hundraðatali á veiðar í norð- læg höf og fara íslenzk fiskimið ekki varhluta af heimsóknum þeirra. Fiskigengdin, sem hafði strax vaxið, er fiskimið- in fengu hvíld á stríðsárunum, er nú aftur farin að minnka. Vérður ekki séð fram á annað með sama ’ áframhaldi en hin íslenzku mið verði nánast þurr ausin fyrr en varir. Yrði þá til lítils gagns fyrir íslendinga að eiga glæsilegan skipakost og einhverja hraustustu sjómenn í heimi (sem reyndar er búið að miður en skyldi), ef ekki er neinn fiskur við strendur lands ins. Virðast einkum vera þrjár leiðir til úrbóta. 1. Betri gæzla landhelginnar og stækkun hennar. 2. íslenzk fiskimið aðeins fyrir 'íslendinga. 3. Fiskiklak. íslenzk landhelgi er bundin FYRIRLESTUR í Aðventkirkj unni í kvöld kl. 8.30. EFNI: SáttmálsgerSin milli Guðs og mannsins. Sami íyi'irlestur verður fluttur í Templarahúsinu í Hafnarfirði kl. 5 síðdegis. Allir velkomnir. O. J. Ólsen. Fasteignaeigendafélags Kópavogshrepps verð- ur haldinn í Baðstofu iðnaðarmanna laugar- daginn 28. þ. m. kl. 3 e. h. Dagskrá samkvæmt félagslögum. Það er mikilvægt að félagsmenn fjölmenni á þennan fund stundvíslega. STJÓRNIN. Fuííírúaráð verkalýðsfélaganna mótmæfir sölu sfræfisvagna við 3 mílur samkvæmt samn- ingi, sem danska utanríkisráðu neytið gerði fyrir okkar hönd um aldamótin (1901), en þá vorum við aðeins útkjálki í Danaveldi. Þessum samningi, sem gerður var við Breta, hef- ur nú verið sagt upp. Ekki er samt víst, að Bretar fáist með góðu til að gefa mikið eftir. Aðrar þjóðir, eins og t. d. -Norð- menn, mundu þá heimta sömu réttindi gagnvart Bretum og íslendingar fengju, en Bretar og Norðmenn eiga nú í mála- ferlum fyrir alþjóðadómstóln- um 1 Ilaag út af hinni svo- nefndu 3 sjómílna reglu. ís- lendingar hefðu helzt getað beygt Breta á stríðsárunum, þegar þeim var lífsnauðsyn að fá fisk okkar, en slíkt hefði vit- anlega þurft að gera með lip- urð. En meðan við getum ekki stækkað landhelgina, verðum við að gæta þeiip, mun betur þeirrar, sem við höfum. Land- helgisgæzlan er og hefur verið hálf léleg, enda verið sparað við hana fé. Þó er um þessar mundir verið að smjða eitt nýtt varðskip og verður að því mik- ill og þarfur liðsauki. Hér er rétt að skjóta inn spurningu, sem var raunar tilefni þessarar greinar: Væri hægt að nota kaf Fulltrúaráð verkalýðsfé- laganna í Reykjavík hefur skrifað bæjarráði eftirfar- andi bréf: FULLTRÚARÁÐ VERKA- LÝÐSFÉLAGANNA leyfir sér hér með að mótmæla því ein- dregið að Reykjavíkurbær selji strætisvagnanna. Telur fulltrúa ráðið að það sé með öllu óverj- andi, að þessi helztu samgöngu tæki almennings verði afhent einstaklingum, þar sem rekstur strætisvagna af hálfu einstak- linga myndi fyrst og fremst mið ast við hagnaðarvon þeirra, en hagsmunir almennings látnir víkja fyrir gróðavon. Telur fulltrúaráðið, að með því að afhenda einstaklingum strætisvagnana, sé í raun og veru horfið frá þvx Ixlutverki, sem strætisvögnunum var upp- haflega ætlað, þ. e. að þjóna samgönguþörf almennings. í þessu efni má og benda á það, að meðan eirjstaklingar ráku þessi samgöngutæki áður fyrr, ríkti mjög almenn óánægja með rekstur þeirra, sem síðan leiddi til þess að bæjarfélagið neydd- ist til þess að taka reksturinn í sínar hendur. Fulltrúaráðinu er það full- ljóst, að með einkarekstri á strætisvögnunum myndx vei'ða mjög örðugt að viðhalda þeirri stefnu, sem ríkt hefur um rekst- ur vagnanna til þessa, þ. e. að eitt og sama gjald gilti á öllum leiðum, og að þeim, sem búa í úthverfum bæjarins verði framvegis tryggt það fjárhags- lega hagræði, sem af því leiðir. Þá verður að telja það mjög vafasamt, að einkarekstur tæki tillit til hinna háværu krafna almennings um aukin vagnkost og nýjar akstursleiðir. Loks viljum vér benda á það, að ef gripið yrði til þess óyndís- úrræðis að svipta almenning yfirráðum yfir strætisvögnun- um, þá er það gert gegn ein- dregnum mótmælum vagn- stjóranna, en slíkt myndi geta leitt til alvarlegra ái'ekstra milli vagnstjóranna og hinrsa nýju eigenda. Með skírskotun til þess. er áður segir, vill fulltrúaráðið mjög eindregið mælast til þess, að bæjaiTfirvöldin láti strætis- vagnana ekki af hendi til ein- staklinga, og telur Fulltrúaráð- ið sig hafa fulla ástæðu til að ætla, að krafa þessi sé borin j fram í nafni allra launþega í bænum og fyrir hönd hinna 35 verkálýðsfélaga, sem skipa full- trúaráðið. báta við landhelgisgæzlu? Yf- irburðir þeirra á mörgum svið- um eru augljósir. Þeir geta læðzt að veiðiþjófunum gegn- um myrkur undirdjúpanna, þegar þeir sæju ekkert skip svo langt sem augað eygði og teldu því áhættulaust að bregða sér inn fyrir landhelg- islínuna. Ekki yi'ði hægt að njósna um ferðir þeirra, eins og sannaðist fyrir stríð að gei't var um varðbátana. Aðalgalli þeirra er, að erfitt er að beita þeim ofansjávar í mikilli öldu. Hvernig væi’i að fá einn til reynslu nokkurn tíma? Engin tök virðast vera á því, að framkvæma í bráð þann möguleika, að íslenzk fiskimið yrðu aðeins fyrir íslendinga. Að vísu er það réttlætismál, en það eitt er ekki nóg. Stórveldi líkt og Bandaríkin og Rússlan.d búa ein að sínum fiskimiðura að mestu, enda hafa þau sterka herskipaflota, sem taka föst þau erlend skip, sem ekki hlýða boði þeirra og banni. Slíkar leiðir getur minnsta þjóð heims ins ekki farið. Þriðji möguleikinn, sem nefndur var hér að framan, var fiskiklak. Þetta atriði má þó eins og á stendur strika út. Á meðan erlendir botnvörpungai’ skafa íslenzk fiskimið, væri lítið búvit í því, að eyða miklu fé í það, að ala upp fisk handa hinum erlendu ræningjum. íslendingar eiga- því sem stendur ekki annarra kosta völ en að reyna að gæta sem bezt núverandi landhelgi og reyna að fá hana stækkaða. „KóIon.“ i

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.