Alþýðublaðið - 22.04.1951, Síða 8
Gerizt áskrifendur
a<S AlþýðublaSinu.
j Alþýðublaðið inn á
hvert heimili. Hring-
[ ið í sími 4900 og 4903
Sunnudagur 22. apríl 1951
Börn og unglingajg
Komið og seljið
AlþýðublaÖiS
Allir vilja kaupa
AíþýðubíaÖið
/
w * C' '\f t 'kia \ ' 1 ' I 1
Veróur i ðjaiísíæoishtisinu a priðju
dagskvöldið og hefs! klukkan 8,30
♦
KAPPRÆÐLR UM ST J ÓRNMAL AVIÐHORFIÐ fara
fram miHi ungra jafnaðarmanna og Heimdellinga á þriðju-
dagskvö’dið. Verður fundurinn haldinn í Sjálfstæðishúsinu og
hefst kl. 8,80, en þar eigast við þrír fulitrúar ungra jafnáðar-
manna og fjórir fulltrúar Heimdallar, félags ungra ílialds-
manna í Rcykjavík.
Kðviðr! á Reyðar-
firði í fyrsta sinn
um langt skelð
í GÆR vottaði fyrst fyrir
þíðviðri á Reyðarfirði, að því
er fregnir þaðan herma. Hlákan
var þó ekki það mikil að neitt
lát sæist á hinni þykku snjó-
breiðu.
Hingað til hafa verið nægar
heybirgðir í sveitinni, sem
bændur hafa miðlað milli sín,
en nú mun hey víðast hvar á
þrotum.
Stórir hópar rjúpna hafa
flykkzt niður í þorpið. Eru þær
mjög hungraðc.r, að því er virð-
ist. Smáfug1um eru víðast hvar
gefnir molar á fönn.
Söfusýning á minja-
gripum að sam-
keppni lokinnl
EINS OG KUNNUGT er
efndi ferðaskrifstofa ríkisins og
Heimilisiðnaðarfélag íslands
til samkeppni í vetur um bezt
gerða íslenzka minngjagripi, og
stendur samkeppni þessi yfir
enn þá.
Fyrir um það bil ári efndu
sömu aðilar til samlieppni um
minngjagripi, sem einkum
voru miðaðir við það að þeir
væru seldir erlendum ferða-
mönnum, en nú er ætlunin að
samkeppnin nái einnig til hag
nýtra muna, sem selja má á inn
lendum markaði. íérstök verð
laun verða veitt fyrir snjallar
hugmyndir, þótt viðkomandi
hafi ekki aðstæður til að sýna
munina fullunna.
I sambandi við þessa sam-
keppni hafa framangreindir að
ilar í hyggju að koma upp sölu
sýningu í sumar á þeim mun-
um, sem berast, og er þess
vænzt að sölusýningin verði
upphaf að minjagripa- og heim
ilisiðnaðarverzlun, sem ferða-
skrifstofan og heimilisiðnaðar-
félagið hafa í hyggju að stofna
í Reykjavík.
Þegar mun eitthvað hafa bor
izt af munum, en þeir sem hug
hafa á því að taka þátt í sam-
keppninni og enn hafa ekki skil-
að munum sínum eru beðnir að
senda þá svo fljótt sem unnt
er til ferðaskrifstofunnar í
Reykjavík eða útibúsins á Ak-
Ureyri.
+ Heimdellingar skoruðu á FUJ
til slíks kappræðufundar fyrir
nokkrum dögum, og var því
boði þegar tekið af ungum jafn-
aðarmönnum. Ræðumenn FUJ
á fundinum verða Benedikt
Gröndal ritstjóri, Jón P. Emils :
lögfræðingur og Kristinn Gunn
arsson hagfræðingur, formaður
FUJ. Fyrir Heimdall tala á
fundinum Ásgeir Pétursson, for
maður Heimdallar, Birgir Kjar-
an forstjóri, Gunnar Helgason,
erindreki Sjálfstæðisflokksins,
og Magnús Jónsson lögfræðing-
ur. Fundarstjóri, sem er til-
nefndur af FUJ, verður Pétur
Péíursson verðgæzlustjóri.
Stjórnmálafundir ungra
manna hafa verið haldnir
margir á undanförnum árum og
vakið mikla athygli. Höfðu
ungir jafnaðarmenn forustu
um þessi fundahöld og hafa allt
af verið boðnir og búnir til
þátttöku í þeim. Einvígisfund-
ur milli ungra jafnaðarmanna
og ungra íhaldsmanna hefur þó
ekki verið haldinn fyrr en nú,
þó að FUJ hafi iðulega eftir
því leitað. Er ungum jafnaðar-
mönnum það því mikið gleði-
efni, að Heimdellingar skuli nú
hafa gengið til móts við gamla
og nýja ósk FUJ um opinberar
umræður af hálfu félaganna um
stjórnmálaástandið í landinu
og skoðanamun jafnaðarmanna
og íhaldsmanna.
Aðgangur að fundinum á
þriðjudagskvöldið verður heim-
ill öllum, meðan húsrúm leyfir.
Vill Alþýðubkðið hvetja unga
jafnaðarmenn og annað Alþýðu
flokksfólk til að fjölmenna á
fundinn.
Þíðviðri um allt
land í gær - híii
4-7 sfig___________
I GÆR var hiti um alla land,
frá 4—7 stig. Mestur varð hit-
inn í Stykkishólmi 7 stig, en
hér í Reykjavík var 6 stiga
hiti. A Austurlandi var rign-
ing.
í dag' er búizt við þíðviðri
um land allt, og vaxandi suð-
austan átt og rigningu \egar líð
ur á daginn eða í kvöld.
Leikfiokkur FUJ
ÆFING verður í dag hjá
leikflokki Félags ungra jafn
aðarmanna í Alþýðuhúsinu
og hefst kl. 1,30. Áríðandi er
að allir mæti.
Glæsilegur sigur jafnaðarmanna I
finnska alþýðusambandinu !
--------------*------
Þeir femgu 150 fylltrúa kosna á þlná
þess, er. kommíinistar aðeins 70!
---------------+-------
JAFNAÐARMENN hafa borið glæsilegan sigur af liólmi í
fulltrúakjörinu til alþýðusambandsins á Finnlandi, en því lauk
15. apríl. Hefur forseti finnska alþýðusambandsins, jafnaðarmað-
urinn Aku Sumu, lótið svo um mælt, að 150 jafnaðarmenn
komi til með áð sitja þingið, en aðeins 70 kommúnistar. Raun-
ar geta þcssar tölur breytzt eitthvað, en augljóst er þó, a$
jafnaðarmenn hafa'sigrað kommúnista í fulltúakjörinu me®
miklum yfirburðum.
Emilía Borg sem Mereta Beyer.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍK-
UR auglýsir síðustu sýningu á
sjónleiknum Önnu Pétursdótt-
ur í kvöld.
Eitt kvikmyndahús bæjar-
ins. Nýja Bíó, hefur fengið kvik
myndina, sem gerð er eftir leik-
ritinu, svo nú mun margan fýsa
að gera samanburð á sjónleikn
um og myndinni. Hin unga leik
kona, Katrín Thors, sem leik-
ur aðalhlutverkið í sjónleikn-
um, er á förum til London til
framhaldsnáms, og er þess
vegna ekki sýnt, að Leikfélag-
ig geti endurtekið sýninguna á
leiknum, en í þau 8 skipti sem
leikurinn hefur verið sýndur,
hefur alltaf verið húsfyllir í
Iðnó og undirtektir áhorfenda
ágætar.
manni.
Brotizt var inn í verzlun Iler
manns Jónssonar að Brekku-
stíg 1. Var þaðan stolið 35 cart
onum af sírjarettum, ýmsum
tegundum. Einnig var brotizt
inn í Efnalaugina Lindina í
húsi Sjóklæðagerðarinnar, en
ekki er neins saknað þar af
verðmætum.
Stolið var og peningaveski af
drukknum manni. Taldi maður
inn, að í veskinu hefði verið
1100 krónur í peningum og
tveir happdrættismiðar í sku.lda
bréfahappdrætti ríkisins. Hafði
rannsóknalögreglan upp á þjófn
um þegar í gær, en hann taldi,
að ekki hefðu verið nema 400
krónur í veskinu. Sá hinn sami
hafði fyrir nokkru stolið úlpu
í húsi hér í bænum og selt hana
öðr.um manni niður við Nýja
bíó. Vill rannsóknalögreglán ná
tali af þeim, sem kevpti úlpuna.
Þá brauzt ungur maður inn í
bifreið í fyrrinótt og stal úlpu,
Kommúnistar ráku linnulaus
an áróður í kosningabaráttunni,
kölluðu jafnaðarmenn „sundr-
ungarmenn" í samtökum verka
lýðsins, en sjálfa sig „eining-
armenn" og héldu því fram allt
til síðustu stundar, að þeir
ættu vísan sigui’ í fulltrúakjör
inu. „Einingarmenn“ halda for
ustunni í alþýðusambandskosn-
ingunum“ sagði málgagn þeirra,
Ny Tid í Helsingfors, 13. apríl,
og daginn eftir, næst síðasta
dag kosninganna, komst annað
málgagn þeifra, Varpaa Sana,
svo að orði, að „einingarmenn“
hefðu gott forskot, því að þeir
hefðu hlotið 47000 atkvæði, en
„sundrungarmennirnir" aðeins
44 000 atkvæði. Jafnaðarmenn
hafa því unnið úrslitasiguris^u
á síðusta sólarhring kosning-
anna, sem stóðu yfir í þrjár
vikur, ef mark er takandi á þess
um fullyrðingum kommúnista-
blaðanna.
Kosningabaráttan var í senn
háð á vettvangi verkalýðsmál-
anna og hinna almennu stjórn-
mála. Kommúnistar sökuðu
jafnaðarmenn um undirlægju-
er í bifreiðinni var. Fann lög
reglan og bifreiðarstjórinn, sem
átti bifreiðina, þjófinn nokkru
síðar um nóttina, og var hann
þá í úlpunni. Annar maður
brauzt og inn í bifreið, sem stóð
á bifreiðastæði Hreyfils. Ekki
stal hann þó neinu, því komið
var að honum, er hann var að
leita í bifreiðinni.
„Sölumaður deyr"
frumsýning í kvöld
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ hefur í
kvöld frumsýningu á sjónleikn
um Sölumaður deyr, eftir Art-
hur Miller. Leikstjóri er Ind-
riði Waage, og leikur hann jafn
framt eitt aðalhlutverkið.
Leikrit þetta hefur farið sig-
urför hvarvetna, þar sem það
hefur verið sýnt, og má búazt
við mikilli aðsókn hér.
hátt gagnvart Bandaríkjununi,
en jafnaðarmenn lögðu mikla á
herzlu á að benda á kjör al-
mennings í Rússlandi og lepp-
ríkjum þess, frelsisskerðingunæ
og hina kommúnistísku stétta-.
skiptingu. ;
80 rétt svör bárus! frá
börnum um mynd-
irnar úr ævintýrum
H. (. Andersens
ÞEGAR sýningar hófust á
barnaleikritinu „Snædrottning
in“ efndi þjóðleikhúsið til get
raunar meðal barnanna, er
reyndi á um þekkingu þeirra á
æfintýrum H. C. Andersen.
Voru 14 mismundandi mjmdir
í leikskránni úr ævintýrum IL
C. Andersens og áttu börnin að
þekkja myndirnar og segja úr
hvaða ævintýri hver mynd var.
80 rétt svör bráust 05. dreg-
ið var um verðlaunin á sumar
daginn fyrsta og afhenti sögu-
maður í leikritinu börnunum
verðlaunin á leiksviði að lok-
inni sýningu. 1. og 2. verðlauns
voru ævintýri H. C. Andersens
bundin í skinnband og 3.
verðlaun 2. aðgöngumiðar í
leikhúsið. Þessi-hlutu verðlaun
in:
I. verðlaun: Auður Aðalsteins
dóttir, Sandgerði, 13 ára. 2.
verðlaun: Kristín Lárusdóttir,
Garðav. 4. Reykjavík. 10 ára.
3. verðlaun Guðrún K. Magnús
dóttir, Skarþhéðisgötu 2.
Reykjavík, 11 ára.
Miklir bardagar á
miðvígsföðvumim í
Kóreu i gær
MIKIÐ var barizt á miðvíg-
stöðvunum í Kóreu í gær.
Gerðu herir Kínverja og Noyð-
ur-Kóreumanna þar hvert á-
hlaupið af öðru, en þeim var
öllum hrundið.
Flugfloti sameinuðu þjóð-
anna gerði feikilegar árásir á
samgöríguleiðir kommúnista.
Kom til loftori’ustu yfir Norð-
ur-Kóreu milli flugvéla samein
uðu þjóðanna og kommúnista,
og var ein orrustuflugvél af
rússneskri gerð skotin niður í
þeirri viðureign.
TALSVERT VAR UM ÞJÓFNAÐ OG GRIPDEILDIR hér
í Reykjavík í fyrrinótt. Var brotizt inn í tvö hús og tvo bíla, en
þó yfirleitt litlu stolið. Þá var stolið peningum af drukknum