Alþýðublaðið - 20.06.1951, Blaðsíða 7
MiðV'iluidagur 20. júni 1931.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
! 7
Félagslíf.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
fer Heiðmerkurferð í
kvöld kl. 7 frá Austur-
velli til að gróðursetja trjá-
plöntur 1 mörkinni. Það er
þegar búið að gróðursetja
þúsund plöntur. Félagsfólk
er beðið að fjölmenna og
hjálpa til að ljúka við gróð-
ursetninguna á þessu sumri.
Farið er ókeypis fram og til
baka. Komið upp í Heiðmörk
og kynnist þessu dæmalaust
fagra friðlandi Reykvíkinga.
ÁRSÞING Frjálsíþróttasam-
bands íslands 1951 fer fram
í Reykjavík í sambandi við
Meistaramót Íslands í frjáls-
íþróttum 17.—22. ágúst n.k.
Mál. sem óskast tekin til með
ferðar á þinginu, þurfa að
berast stjórn sambandsins
mánuði fyrir þinghald.
Stjórn FRÍ.
„Hekia"
:r næstu ferð frá Reykjavík
l Glasgow annað kvöld,
mmtudaginn 21. júní. Nokkr-
farmiðar óseldir ennþá.
Alexandrine
Næsta ferð Dr. Alexandrine til
Pæreyia og Kaupmannahafnar
verður 29. þ. m. — Pantaðir
farseðlar óskast sóttir í dag og
á morgun. — Ósóttar pantanir
verða seldar á fimmtudaginn
21. þ. m.
Skipaafgreiðsla Jes Zimsen.
Erlendur Pétursson.
Esperanlisiar
Framh. af 5. síðu.
1000,000. Verður þar í innifalin
skemmtiferð, sameiginleg kaffi
drykkja og væntanlega ein mál
tíð.
Mótsgestum verður séð fyrir
gistingu á góðu hóteli, þeim
sem þess óska. Ef einhverjir
vilja hafa með sér svefnpoka,
verður þeim látið í té húsnæði
ókeypis. Eínnig má gera ráð
fyrir, að nokkrir menn geti
fengið gistingu hjá esperantist
um á staðnum.
Esperantistar í Reykjavík
hafa ákveðið að fara hópferð
með flugvél á mótið. Farið verð
ur úr Reykjavík eftir hádegi á
laugardag og komið aftur á
mánudagsnótt. Nauðsynlegt er,
að þeir, sem vilja taka þátt í
þeirri. ferð, hafi nú þegar sam-
band við Þorvarð Magnússon,
bókabúð KRON, Alþýðuhúsinu.
landsmótið fyrir I árum
----------------- .......
ÍR, er vann landsmót UMFÍ 1911, minn-
ist þess með íþróttainóti annað kvöld,
-------------------------.---------
ANNAÐ KVÖLD verðnr haldið opinbert frjálsíþróttamót hér
á íþróttaveilinum, og munu beztu íþróttamenn landsins keppa
þar í sex greinum, en þátttakendur verða valdir af mótsstjórn-
inni. Er mót þetta haldið af ÍR í tilefni þess, að 40 ár em liðin
frá því að fyrsta landsmótið var háð hér, en það fór fram
dagana 17-—25. júní árið 1911 og var hafdið af UMFÍ. ÍR sigr-
áði á mótinu með einu stigi, og heldur það mótið á fimmtudags-
kvöld til að minnast þess atburðar.
Allir þátttakendur í lands-*-
móti UMFÍ árið 1911 yerða
gestir ÍR á mótinu, en nokkr-
um beztu frjálsíþróttamönnum
iandsinS boðið að talta þátt í
keppninni. Er því fyrirfram
trygg't, að 'einvörðungu valdir
menn reyni með sér á mótinu
og má búast við mjög harðri
og skemmtilegri keppni.
Mótið hefst kl. 8,30 um kvöld
ið, en keppt verður í 100 metra
hlaupi, 1500 metra hlaupi,
stangarstökki, kúluvarpi, spjót
kasti og 4X100 metra boð-
b1aupi.
Ekki var vitað í gærkvöldi,
hverjir yrðu þátttakendur í
mótinu, nema hvað afráðið var,
að landsveitin, sem keppa á
fyrir Island í Osló, taki þátt í
boðhlaupinu. Landssveitin hef-
ur enn ekki verið valin, en þátt
takendurnir í landskeppninni
munu. ákveðnir fyrir annað
kvöld.
Framhald af 1. síðu.
keisara og ræddi við hann
stundarkorn, en um svipað
ieyti gekk sendiherra Banda-
ríkjanna, Iienry Grady, á fund
forsætisráðherrans, dr. Mossa
deghs, og átti við hann langar
viðræður. Var þegar á eftir lát
ið upp, að sendiherrann hefði
brýnt það fyrir forsætisráð-
herranum að fara varlega í
þessu máli og láta ekki hrekj-
ast út af braut vinsamlegra
samninga; en forsætisráðherr-
£nn er sagður hafa svarað því
til, að stjórn hans ætti mjög í
vök að verjast og sætti þegar
ómæii meðal þjóðarinnar fyrir
það, að lögin um þjóðnýtingu
olíuvinnslunnar skuíi eklti enn
þafa verið framkvæmd.
Engar frekari fregnir bárust
eí mali þessu frá Teheran í
gærkveldi, en á miðnætti í nótt
var sá frestur útrunninn, sem
íranstjórn veiti Anglo Iranian
----------------♦-----------
ræddri kennaradeild eru á-
kveðin í 14. gr. laga um kenn-
aramenntun. Uppeldismála-
þingið vill þó leggja áherzlu á,
að kennarar, sem þegar eru í
starfi, eigi kost á að Ijúka námi
í deildinni, enda þótt þeir hafi
ekki þreytt tilskilin próf.
6. Þingið vill enn fremur
leggja áherzlu á nauðsyn þess,
að þeir kennarar gagnfræða-
stigsins, sem numið hafa er-
iend mál hér á landi, stundi
framhaldsnám í sömu grein á
heimalandi málsins, hið minnsta
6 mánuði, svo að þeir nái leikni
í að tala málið. Telur þingið,
að þetta mundi leiða til hag-
nýtari tungumálakennslu.“
Samþykktir uppeldismála-
þingsins um unglingafræðslu
verða birtar síðar í blaðiu.
Skemmiifer
Framhald af 8. síðu.
hinir ákjósanlegustu kennarar.
en þess eru mörg dæmi erlend-
Ls, að rannsóknar- og kennslu-
störf eru þannig sameinuð.
Þingið lítur svo á, að með sam-
vinnu og góðu skipulagi mætti
hrinda hér í framkvæmd, án
mikils kostnaðar, einu brýnasta
nauðsynjamáli kennarastéttar-
innar.
4. UppeldismáMþinglð vill
benda á það, að þessi stofnun
mundi greiða stúdentum leið
að stuttu, hagnýtu námi, en
fjöldi stúdenta vex með ári
hverju. Starfssvið hennar yrði
reskileg rýmkun á starfssviði
B.A.-deiIdar háskólans, svo að
starfskraftar þeirrar deildar
nýttust í þágu kennaramennt-
unarinnar.
5 Réttindi til náms í um-
Framh. af 4. síðu.
tveggja ólíkra tímabila og þó
meira. Ef þú ferðamaður hef-
ur tíma til, ketur þú signt þig
upp úr sama bollanum og
munkar miðaldanna, skoðað út
burðarstein, þar sem nunnur
báru út börn sín forðum, því
guðsmennirnir voru stundum
,,klæddir skollabuxum neðan“
og engir hófsmenn. Hér sézt
hið meira en 100 ára gamla
bókasafn. Hér sjást íbúðarhús
íólksins frá 80—110 ára gömul
— lítið forngripasafn, sem seg-
ir okkur lærdómsríka sögu.
Þú munt einnig gista fleiri
eyjar. Hinn örskreiði flóabát-
ur, Baldur hinn hvíti úr Stykk
Lshólmi, mun flytja þig um inn
eyjarnar. Þú sérð Syefneyjar,
Hvallátur og Skáleyjar. Svo er
fyrirhugað að sigla inn og suð-
ur flóann, fram hjá Akureyj-
um, út með Skarðsströnd, fram
hjá Rauðseyjum, Rúffeyjum og
Langey og beygja svo loks aft-
ur upp sundin blá til höfuð-
staðar Breiðafjarðar, þar sem
rennireið hins nýja tíma bíður
þín og þer þig aftur suður til
heimkynnanna. Og svo er þér,
síðast en ekki sízt, fyrirhugað
að „ganga á Helgafell“ á vit
við Snorra goða, þar sem þú
r.érð í anda „tignarblæ yfir
brúnum“ Guðrúnar Ósvífurs-
dóttur. Ef til vill hrekkur til
bín lítill neisti af þeim afli. Ef
til vill kemurðu aftur — og
vafglaust gerirðu það •—• með
gullroða á vísifingri góðra og
ógleymanlegra minninga frá
hinu dýrðlega töfralandi, sem
þú af eðlilegri forvitni hins
leitandi anda, sem ekkert get-
ur látið ósnert af þeim undr-
um og furðum, sem þú kemst í
snertingu við, en sem fæstar
eru hér taldar.
Upplýsingar um ferðina fást
í síma 5593 og 3837.
13»k^... j. h.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við fráfall og
jarðarför
JÚLÍUSAR RÓSANTS JÓSEFSSONAR,
Ásvallagötu 63.
Börn og tengdabörn.
Ufsvars- og skaffaskrá
Hafnarfjarðar 1951
er komin úi,
Sölubörn komi í prenismiðjuna.
Sfúlka
vön vélritun og góð í reikningi og ensku
óskast strax. — Upplýsingar um menntun
og fyrri störf sendist afgreiðslunni fyrir
föstudagskvöld merkt: „Stundvísi.“
Riigerð Aðalsteins Helgasonar:
Sfóra-Brefíand oa Lifla-
Brefland á Ákureyri
fæst nú aftur sérprentuð hjá
höfundi þar á sfaðnum,
heldur fund í Hafnarhúsinu uppi,
miðvikudaginn 20. júní klukkan 18.
STJÓRNIN.
Orlofsferðir
Framhald af 3. síðu.
kvöldi þess 26. Fyrsta daginn
verður ekið austur að Vík og
gist þar um nóttina, en komið
við í Múlakoti og Dyrhólaey í
leiðinni. Næsta dag verður svo
ekið eins og leið liggur yfir
Höfðabrekkuheiði að Kirkju-
bæjarklaustri. Hinn 25. verður
umhverfi Klausturs skoðað,
Ðverghamar, Systrastapi,
Systravatn, Fljótshverfi o. fl.
og aftur gist á Klaustri. Síðasta
daginn verður svo haldið til
Reykjavíkur og farið hægt yf-
ir. Ferðaskrifstofan útvegar
gistingu og mat þeim, er þess
óska.
Hin ferðin verður helgarferð
í Þórsmörk, en vegurinn þang-
að var athugaður um síðustu
helgi og reyndist góður. Lagt
verður af stað á laugardaginn
kl. 13.30, en komið aftur á
sunnudagskvöld. Verður mörlc-
in skoðuð eins og tími vinnst
til. Nauðsynlegt er að hafa með
sér svefnpoka og nesti í þessa
ferð, en ferðaskrifstofan útveg-
ar tjöld og steinolíu.
Þeir, sem taka ætla þátt í
þessum ferðum, eru beðnir að
gefa sig fram í ferðaskrifstof-
unni ekki síðar en á föstudag.