Alþýðublaðið - 08.11.1950, Síða 2
ALÞÝÐUBLAÐiÐ
Miðvikudagui 8. nóv. 1950.
Úra-viðgerðir.
Eljót og góð afgreiðsla.
GrXJÐL. f.GÍSLASON,
Laugavegi H3.
sírrii 81218.
i 'fe
og einstakar íbúðir af
. ýmsum stærðum til sölu.
Eignaskipti oft möguleg.
SALA og SAMNINGAR.
Aðalstræti 18. Sími 6916.
Til í búðinni allan dag-
inn. — Komið og veljið
eða símið.
Síld & Fiskur.
ijLjésakrónur
1 með glerskálum og plast-
| skermum. VEGGLAMPA-
AR, margar nýjar gerðir
með fallegum pergament-
og plastskermum.
|Véla- og raftækjaverzlunin.
iTryggvag. 23. Sími 81279.
Minningarspjöld
Barnaspítalasjóðs
Hringsins
eru afgreidd í
Verzlun
Augustu Svendsen,
Aðalstræti 12, og í
Bókabúð Austurbæjar.
ur
Síld & Fiskur.
Úibreiðið
Albýðublaðið!
nmng
til verzlana
Áð gefnu tiíefni skal vakin atbygii á tilkynniiigu
verðiagsstjórans nr. 12l/]^49, sem er svohljóðandi:
...Viðskiptanefndin hefur ákveðið, að verzlanir
megi ekki hafa vörur á boðstólum, nema þær geti
gert verðlagseftirlitinu fulla grein fyrir hvaðan varan
er keypt.“
Brot á þessari tilkynningu verður litið á sem venju-
egt verðlagsbrot og tafarlaust kært.
Reykjavík, 7/11 1950.
VERÐGÆ ZLU ST J ÓRINN.
Súsmæður!
Ekkert mjólkurleysi, ef þér
eigið pakka af nýmjólkurdufti.
Fæst í flestum
matvöruverzlunum.
Samband ísl. samvinnufélaga
Hér með er vakin athygli á íllkynningu verðlags-
stjórans frá 14. nóv. 1947, þar sem segir m. a.:
„Iðnaðarvörur skulu ávallt einkenndar með nafni
éða vörumerki iðjúfyrirtækisins, þannig að unnt sé
að sjá hvar varan er framleidd."
Þá segir einnig í sömu tilkynningu:
„Enn fremur varðar það sektum að hafa slíkar
vörur á boðstólum, ef þær eru ekki merktar, sém að
framan greinir.“
Með því að það er til mikilla hagsbóta fyrir neyt-
endur að geta séð, hver framleiðir hinar ýmsu vöruteg-
undir, verður gengið ríkt eftir að áðurnefndri tilkynn-
ingu verði fylgt og verður tafarlaust kært til verðlags-
Jóms, ef út af er brugðið.
Reykjavík, 7/11 1950.
VERÐGÆZLUSTJÓRINN.
Reykvíkingar gengu í Rau
krossdeildina hér á sunnudaginn
1200 MANN-S gengu í Reykjavíkurdeild Rauða kross ís-
lands á sunnudaginn. Enn eiga nokkrir þeirra, sem söfnuðu fé-
lögu, eftir að gera skil, en komnir eru 1200 nýir félagar í
deildina.
Síðar mun reynt að senda í*
allmörg hverfi bæjarins, sem
ekki reyndist unnt að ná.til, en
þeir, sem vilja gerast félagar,
eru beðnri að hringja í skrif-
stofusíma R.K.Í. og láta skrá
sig sem félaga.
Reykjavíkurdeildin hefur
beðið blaðið að færa unga fólk-
jnu bezta þakklæti fyrir ágætt
starf og þakkar Revkvíkingum
skilning á starfseminni. Þessir
skólar önnuðust félagasöfnun-
ina:
Hjúkrunarkvennaskóli ís-
lands, Húsmæðraskóli Reykja-
víkur, Gagnfræðaskóli Vestur-
bæjar og Ljósmæðraskólinn.
Reykvíkingar, sem ekki náð-
ist til á sunnudaginn var, til-
kvnnið þátttöku yðar í síma
Rauða krossins, 4658, eða kom-
ið í skrifstofuna í Thorvaldsens
stræti 6.
BÓKAÚTGÁFAN NÐRÐRI
b.efur gefið út fimm nýjar bæk-
ur, „Jón biskup Arason“ eftir
Torfhildi Þ. Holm; „E1 Hakim“
cftir John Knittel; ,jHIyni og
hreggviði“; ,,A reki með haf-
ísnum“ eftir Jón Björnsson og
„Einmana á verðinum“
,.Jón biskup Arason“ er ann-
að og þriðja bindið af heildar-
Útgáfu rita Torfhildar Þ. Holm,
en Brynjólfur Sveinsson
menntaskólakennari á Akur-
eyryi hefur búið söguna undir
prentun. ,;E1 Hakim“ er eftir
svisneskan höfund, þýdd af
Vilhjálrni Guðmundssyni, og
gerist austur á Nílarbökkum,
Enn harðar umræður á alþingi um
aðstoð við harðindasyæðin
Dcilt
„Fegurðarsamkeppni”
Bláu stjörnunnar í kvöld
um hluti íandbúnaðar og útvegs
■ ii.iiKiníui.uj: + .:.. /.
UMRÆÐUM um aðstoð vegna vandræða bænda á Austur-
landi og sjómanna og verkamanna á Vestfjörðum stóðu mest-
allan fundartíma efri deildar í gær. Tóku þingmenn og ráð-
herrar stjórnarinnar illa í tillögu Alþýðuflokksmanna um að-
stoð við atvinnuvegina á Vestfjörðum, og tóku flutningsmenn
tillöguna aftur í þeirri von, að stjórnin mundi fást til að sinna
málinu af alvöru á öðrum vettvangi eða í öðru formi.
Umræðurnar í gær snerust*
annars um atvinnuvegina í
heild, r/g kendi nokkurs met-
ings um þáö, hvort meira hefði
verið gert fyrir sjáve.rútveg
eða landbúnað undanfarin ár.
Karl Kristjánsson sagði, að
landbúnaðunnn væri öruggasti
atvinnuvegurinn, og væri það
því fyrsta skylda hverrar
stiórnar að hlúa að honum, og
Hermann Jónasson , kvað hall-
ærisstyrkinn nú smágreiðslu á
vanrækslusynd þjóðfélagsins
við landbúnaðinn. Hara’dur
Guðmu.udsson benti á, að ör-
yggi landbúnaðarins byggðist
á öruggum markáði en sá
markaður væri það fólk, er lif-
ir á sjávarútvegi. Kveð hann
það skyldu hverrar stjórnar
aö vera glöggskyggn á hag og
hlut allra hluta þjóðarinnar.
Stiórnarmenn ákærðu Al-
þýðuflgkksmenn um að flytja
tillögu þessa um aðstoð við
stöðvuð atvinnutæki á Vest-
fjörðum í augiýsingaskyni.
Kannibal Vrldimarsson mót-
mælti þessu harðlega og kvaðst
reiðuhú.inn að taka tillöguna
aífur ef ríkisstjórnin lofað,i
velvilja við málið á öðrum vett-
vangi, svo að vonir yrðn til að
atvinnutækjum Vestfjarða yrði
komig í gang. Hann fékk að
vísu ekki bein loforð um þetta,
en tók, tillöguna aftur í von um
slíka lausn.
Bráðabirgðelögin um aðstoð
við bændur á óþurrkasvæðinu
voru því samþykkt óbreytt og
afgreidd til neðri deildar.
Námsflokkum íjöigað
í HandíðaskólaRum.
KENNARADEILD Handíða-
skólans efnir til ókeypis kennslu
í handavinnu fyrir stúlkur á aldr
inum 13—19 ára. Hverjum
námsflokki verður kennt einn
dag í viku, kl. 3—5 síðdegis. Ung
frúnnar Sigríður Arnlaugsdóttir
og Elínborg Aðalbjarnardóttir,
sem báðar eru kennarar við
kennaradeild skólans, kenna á
námskeiðum þessum.
Stúlkur, sem vilja taka þátt
í þessu námi, verða að hafa
sent skrifstofu skólans umsókn
ir sínar fyrir lok þessarar viku.
Vegna mikillar aðsóknar að
síðdegis- Qg kvöldnámskeiðum
handíðaskólans hefur orðið að
fjölga námsflokkum í nokkrum
námsgreinum. Auk frú Ester
Búadptt.r.r listmálara, sem kenn
ir teiknun og meðferð lita á
kvöldnámskeiði, kennir Jóhann
es Jóhannesson listmálari sömu
greinar á öðru kvöldnámskeiði,
sem er í þann veginn að byrja.
en saga þessi hefur hlotið
geysimikla útbreiðslu. „Hlynir
og hreggviðir“ er annað bindið
af Þáttum úr Húnaþingi, en
fvrra bindi þeirra nefndist
„Svipir og sagnir“. „Á reki með
hafísnum“ er unglingasaga, en
Jón Björnsson hefur áður sent
frá sér ágætar unglingasögur.
„Einmana á verðinum“ er
unglingabók eftir norska ,rit-
höfundinn Bernhard Stokke,
en þýdd af Helga Valtýssyni.
BLÁA STJARNAN hefur
vetrarstarfsemi sína mej sýn-
ingu í Sjálfstæðishúsinu í
kvöld. Skemmtiskráin nefnist
að þessu sinni „Fegurðarsam-
keppnin" og er með meira re-
výusniði en fyrri skemmtanir
stjörnunnar. Alls eru ofin sam-
an um 15 sýningaratriði, leik-
rit, listdans og fleira, en sýn-
ingin er í tveim þáttum. Ðans-
ona hafa þær Sigríður Ármafin
og Sif Þórs æft, en laiktjöld
má’aði Magnús Pálsson. nýr
leiktjcldamálari. í hléinu milli
þátta hefur Iris tízkusýningu.
-------------^---------
NálíúrulæknSngamenn
i
kynna síefnu sína í
manneldismálum.
NÁTTÚRULÆKNINGAFÉ-
LAGIÐ oj? Werg-elandsfélagifi
bnðu allmörgum gestum til há-
degisverðar í Sjálfstæðishúsinu
í gær, en Jiár var eingöngu
fram horið soðið og hrátt græn
meti. svo og jurtasallöt ailsi
konar.
Er þetta einn liðurinn í starf
semi samtakanna til að kynna
almenniiyfi stefnu sína -í mann-
eldismálum og þær fæðutegu.nd
ir, sem þau telja heilsusamleg-
astar. Meðal gesta við liádeg-
isverðinn voru nokkrir læknar,
húsmæðarkennarar, hjúkrunar-
konur og fleiri aðilar, sem
náttúrulækningamenn tejla að
einkum geti haft áhrif á matar-
ræði þjóðarinnar.
í ræðu, sem Björn L. Jónsson.
hélt við þetta tækifæri, gat
hann þess m. a„ að nýtt græn
meti væri nú hægt að hafa hér
á borðum svo að segja allt árið,
nema síðari hluta vetrar, en
þann tíma væri nauðsynlegt að
flytja inn grænmeti og ávexti.
Benti hann á, að innflutnings-
yfirvöldin ættu fremur að
leggja áherziu á innflutning
þessara fæðutegunda, en draga
fremur úr innflutningi sykurs
og hveitis, sem væru snauð að
næringarefnum; í stað rúgmjöls
ætti að flytja inn ómalað rúg
o. s. frv.
Náttúrulækningafélagið vinn-
ur nú að því af kappi að eíla
heilsuhælissjóð ginn, en félagið
hefur ákveðið að koma upp
lieilsuhæli á jörð sinni, Gröf
í Hrunamannahreppi, og verð-
ur það byggt í áföngum.
Um þessar mundir efnir fé-
lagið til happdrættis fyrir
heilsuhælissjóðinn. í happdrætt
inu eru 10 vinningar og dregið
verður 24. desember.
Landsþing NFLÍ samþykkti
að reyna að koma upp vísi að
hressingarhæli strax á næsta
sumri, og er það mál nú í at-
hugun.
í sambandi við útbreiðslu-
störf samtakanna má geta þess,
að á næstunni verður opnuð
sýning á meðferð og neyzlu
matar, sem náttúrulækninga-
msnna telja hollastan og bezí-
an, Verður sýningin í húsnæði
Húsmæðrafélags Reykjavíkur
að Borgartúni 7,