Alþýðublaðið - 26.11.1950, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 26.11.1950, Blaðsíða 4
4 ALÞYÐUBLAÐIÖ Sunnudagur 2G. nóvember 1950 Útgefandi: AlþýSuflokkurinn. Ritstjóri: Stefán Pjetursson. Fréttastjóri: Benedikt Gröndal; þing- fréttaritari: Helgi Sæmundsson; auglýs- ingastjóri: Emilía Möller. Rilstjórnar- simar: 4901 og 4902. Auglýsingasími <506. Afgreiðslusími 4900. Aðsetur: Al- 1 ý'ðubúsið. AlþýðuprenWiiðjan h.f. Flokksþingið ÞING ALÞÝÐUFLOKKS- INS og Alþýðusambandsins setja svip rinn á Reykjavík um þessar mundir. Þingi ungra I jafnaðarmanna lauk síðast lið inn sunnudag, og sama dag kom þing Alþýðusambandsins sam- an til funda. Það lauk störfum sínum í fyrradag, en í dag hefst svo þing Alþýðuflokksins; en það er jafnan háð samtimis þingi heildarsamtaka verka- lýðshreyfingarinnar. Viðhorfin í íslenzkum stjórn málum er nú ærið breytt frá því sem var fyrir tveimur ár- um, þegar síðasta þing Alþýðu- flokksins sat á rökstólum. Þá sat að völdum í landinu ríkis- stjórn undir forsæti Alþýðu- flokksins. Hún átti við marga og mikla erfiðleika að stríða, en henni tókst að bægja hættu at- vinnuleysis og skorts frá dyrum þjóðarinnar. Allir, sem vildu vinna, áttu kost á at- vinnu. En nú fer með völdin samstjórn borgaraflokkanna. Hennar 'fyrsta verk var að ráð ast í gengislækkunina, sem átti að verða allra meina bót sam- kvæmt boðskap þeirra, er fyrir henni gengust. Átta mánaða reynsla hefur hins vegar leitt í ljós, að afleiðingar gengislækk unarinnar hafa einmitt orðið þær, sem Alþýðuflukkurinn sagði fyrir, — og þó máske enn þá válegri. Atvinnulíf lands- manna er í molum. Atvinnu- Ieysi er víða komið til sögunnar og hætta þess vex með hverjum degi, er líður. Dýrtíðin og verð ■ bólgan hefur aldrei verið meiri. Ýmsir ófyrirsjáanlegir erfíðleih ar hafa steðjað að þjóðmni und anfarna mánuði. En það breytir engu um aðgerðaleysi og for- sjárskort ríkisstjórnarinnar og stuðningsflokka hennar. Þjóð- in átti einnig oft í vök að verj- ast í valdatíð þeirrar stjórnar, sem Alþýðuflokkurinn veitti forstöðu, og þó tókst að halda í horfinu. Munurinn er sá, að núverandi stjórn hefur haldið öðru vísi og verr á málum en hin. Þessi ó- heillaþróun er afleiðing af því spori, sem þjóðin steig til hægri í síðustu kostningum. Breyting til batnaðar kemst ekki á fyrt en þjóðin hefur vikið af þeirri braut, sem hún Iiefur fetað und ir forustu borgaraflokkanna frá og með síðustu kosningum, og valið sér forystu Alþýðuflokks ins á ný. I Meginverkefni Alþýðuflokks þingsins, sem hefst í dag, verð- ur að marka stefnu flokksins í andstöðunni og baráttunni við núverandi ríkisstjórn jafn- framt því, sem það einu sinni enn boðar þjóðinni úrræði jafn aðarstefnunnar og vísar íslend inguin leið htdmar út úr ógöng unum og öngþveitinu. Alþýðu- flokkurinn mun á sviði dægur- baráttunnar nú sem endranær veita verkalýðshreyfingunni allt það brautargengi, sem hann má, og taka upp ó sviði étjórnmálabaráttunnar þau máL er mótuð voru S hinu nýlokna þingi Alþýðusambandsins. Stefnuyfirlýsing sú, sem AI- þýðuflokkurinn birtir þjóðinni að loknu þingi sínu í ár, kemur áreiðanlega til með að vekja mikla athygli. Hann er í dag hinn eini raunverulegu fulltrúi andstöðunnar við ríkisstjórn borgaraflokkanna. Iiommúnist ar hafa .þvgrfaijidí á,huga á inn- leiidum stjórnmálum, utanrik- isstefna Rússa er þeim fyrir öllu, enda hefur þjóðin sann- færzt um, að flokkur þeirra á lítið skylt við íslenzkt þjóðh'f og baráttumál hins vinnandi fólks í landjnu. Þeir eru erlent útibú á íslandi. Andstæðingar ríkisstjórnarinnar, sem virða lýðræðið og þingræðið, geta því aðeins átt samleið með Al- þýðuflokknum. Hann vill sam eina allt frjálslynt fólk í land- inu undir merki sínu og heyja baráttuna með því gegn erfið- leikunum tíl að firra þjóðina því versta, sem yfir Ivenni vof- ir af völdum borgaralegrar óstjórnar. Borgaraflokkarnir hafa kast að grímunni í augsýn fólksins. Þeir hafa svikið öll þau lot'orð, er þeir gáfu í síðustu kosning- um. Þjóðin hefur sannfærzt um, að atvinnuleysi og skortur fer í kjölfar samstjórnar þeirra. Og þó er það, sem nú er komið á daginn, aðeins byrjunin. Rik isstjórn, sem jskellir skollaeyr- um við rökstuddum kröfum landsmanna um raunhæfar ráð stafanir til úrlausnar aðsteðj- andi vanda og lætur sem hún viti ekki af hættunni, sem víða er þegar orðinn veruleiki, hún dæmir sig sjálf. Og hún er sam félaginu því hættulegri sem valdatími hennar verður lengri. ífc Alþýðublaðið vill fyrir hönd Alþýðuflokksins bjóða fulltrú- ana á flokksþingið velkomna til starfs. Þúsundir alþýðuheim ila í landinu vænta þess, að A1 þýðuflokkurinn mó.ti raunhæfa og rökstudda stefnu í vandamá! um samtíðarinnar og gangi heill og sterkur til baráttunnar fyr- ir því að bjarga fólkinu úr greipum óttans, atvinnulevsi"- ins og skortsins. Það er því mikið fagnaðarefni, að Aiþýðu flokkurinn hefur aldrei verið samhentari og einbeittari en j nú. Alþýðublaðið væntir þess, | að flokksþingið skeri ú.r um; það, að Alþýðuflokkurinn sé j vel vaxinn þeim vanda að rækja sitt mikla hlutverk. Sfjórnarkjör í Sjó Reykjavíkur ftófsf í gær STJÓRNARKJÖR í Sjó- mannafélagi Reykjavíkur stendur nú yfir. Hófst það í gær í skrifstofu félagsins í Al- þýðuhúsinu við Hverfisgötu og stendur yfir urn nokkurn tíma. Skrifstofan er opin alla virka daga frá klukkan 3—7 eftir há- degi. ___________ Hugmyndasamkeppni um fegrun Tjarnarinnar HUGMYNDAKEPPNI mun eiga að fara fram um fegrun og útlit. Tjarnarinnar og hafa frumdrög að útboði um sam- keppnina verið lögð fyrir bæj- arráð. Var bæjarverkfræðingi og forstöðumanni skipulags- deildar falið málið til frekari athugunar. Norðmenn gefa jó!a- tré til Reykjavíkur N ORSK-Í SLENZKA félagið hefur ákveðið að gefa til ís- lands 10—12 metra hátt jóla- tré á þessu ári, og verður það væntanlega sett upp á Austur- velli eins og í fyrra. Er verið að höggva tréð í Maríudal í Noregi þessa dagana og er bú- izt við, að það komi til lands- ins með Brúarfossi fyrir jól. í fyrra var Oslóborg í samvinnu Í £ m s FÆKKUN PRESTAKALLA er allmikið hitamái í efri deild alþingis. * * * Sérstaklega hefur því verið mótmælt, að Hrafnseyrarprestakall, en í því fæddist Jón Sigurðsson, verði lagt niður. * * Vill a. m. k. einn þingmaður gera það £.ð heið- ursprestakalli. * Þá þykir illa búið að sjálfum Þingvöllum, að "þár skuli ekki einu sinni sitja prestur. . .. S^apijiv.semt sjiiýrslum fæðast að aneðaltali tæplega þrjú lausaleiksbörn á dag á Islandi, en jafnvel þetta fer hú minúkaúdi á kréppútímum, þvf að fæðingúm óskil- getinna fækkaði um 41 í fyrra frá árinu 1948, sem var að vísu metár. FRAMSÓKN segir, að Eysteinn hafi minnkað tolla og skatta með gengislækkunarlögunum. * * * Annað segja Hag- tíðindin, en samkvæmt þeim var verðtollur til 1. október í ár 2 milljónum hærri en á sama tíma í fyrra, innflutningsgjald af benzíni 3,5 milljónum hærrá og söluskattur 8 milljónum hærri. NOKKRAR KVIKMYNDASTJÖRNUR komu nýlega við í Keflavík: Dinah Shore, Jack Benny og brezka stjarnan Pat- ricia Rock. UKRANÍUMAÐURINN dularfulli er nú í haldi Iijá útlendingaeftirlitinu, og hefur yfirheyrsluni verið haldið áfram, án árangurs, að því er næst verður kom- izt. * * * Maðurinn talar rússnesku, þýzku og ensku. * * * Kunnugir leikmenn telja, að hann liljóti að hafa komizt sem laumufarþegi til Keflavíkurvallar, úr því hann kom fyrst til Hafnarfjarðar. BÓKAMARKAÐURINN: Ragnar í Smára er nú svo til hættur að gefa út þýddar bækur. * * * Hann segir, að íslenzk- ar bækur muni seljast betur, þar sem hagur almennings er þrengri og menn telji meira verðmæti í innlendum bókum. * * Annar útgefandi segir, að bóksala hafi minnkað í ár á Vestur- og Norðurlandi, en aukizt til sveita og á Austurlandi, en sé svipuð annars staðar. Þegar karfi er landaður í HÆRING, er hann fyrst settur á bíl og ekið með hann upp í bæ til að vega hann, en síðan ekið niður á bryggju og fiskurinn settur í verksmðijuna. Nokkur forvitni er á að vita, hvor verður forstjóri hinn- ar sameinuðu áfengis- og tóbakseinkasölu, Guðbrandur Magn- ússon eða Jóhann Möller, eða hvort það verður einhver þriðji maður. * * * Einkasölurnar verða vafalaust sameinaðar (þótt alþingi hafi ekki enn afgreitt lög um það) og kemur sameining in þá til framkvæmda 1. júlí 1951. SORGLEG ÖRLÖG: Þegar kanadiska flugvélin fórst í Alpafjöllum með 51 pílagrím og 7 manna áhöfn, var hún á leið til Keflavíkur. * * * Flugþernan í vélinni hét frú Johnson og var kona Melvins A. Johnsons, sem er fulltrúi kanadiska flugfélagsins í Keflavík. * Var ætlun hennar að verða eftir í Keflavík í þessari ferð og hætta svo alveg flugi. ÍBÚAR BÚSTAÐAVEGSHÚSANNA eru að velta því fyrir sér, hvort þeir muni þurfa að biðja um aðstoð Slysavarna- félagsins til að fá götuljós sett í hverfið, svo að þeir ekki fari sér að voða í holræsum og skurðum, er þeir vinna við húsin á kvöldin. við félágið um þetta mál, en að kosti í ágúst s. 1. sumar ekki þessu sinni sér félagið eitt um enn rýrt kaupmátt verka- l gjöfina. mannslaunanna það, að hann væri orðin minni en 1948. En Kaupmáttur launanna s t ÞJÓÐVILJINN var í gær að reyna að snúa út úr upplýs- ingum, sem fram komu í aðal ræðu Helga Iiannessonai’, for. seta Alþýðusambandsins, á hinu nýafstaðna sambands- þingi. Helgi Hannesson sagði, eins og frá var skýrt hér i blaðinu, að þrátt fyrir gengis- lækkunina hefði á kjörtíma- bili þeirrar Alþýðusambands stjórnar, sem kosin var á sam bandsþingi 1948, tekizt að koma í veg fyrir það, að kaup máttur verkamanns launa rýrnaði; en á það hefði sam- bandsþingið 1948 lagt aðalá- herzlu. HELGI HANNESSON byggði þetta á útreikningi, sem ekki ótrúverðugri maður en Torfi Ásgeirsson, hagfræðingur Al- þýðusambandsins og fulltrúi þess í kauplagsneínd,' gerði í ágúst s. 1. suihar. En sá út- reikningur sýndi. að hækkun verðlags og kaupgjalds hafði til þess tíma numið alveg því lama, miðað við árið 1948, — hvorttveggja hækkað síð- an um 25 stig. ÞJÓÐVILJINN þegir í gær al- veg um þennan útreikning Torfa Ásgeirssonar hagfræð- ings, sem kommúnistar töldu þó einu sinni fullfæran til þess, að reikna slíka hluti út; því að það voru einmitt þeir, sem á sínum tíma tilnefndu hann fulltrúa Alþýðusam- bandsins í kauplagsnefnd. En nú þykir Þjóðviljanum það ekki heppilegt fyrir komm- únista að vera neitt að flíka því, að það, sem Helgi Hann esson sagði, hafa verið byggt á útreikningum þessa ágæta hagfræðings; því að auðvitað vakir það eitt fyrir Þjóðvilj- anum að reyna að ná sér niðri á Helga. OG ÞAÐ, sem Þjóðviljinn seg- ir er þetta: Þarna sjáið þið, Helgi Hannesson ,,telur verka menn fullsæmda af kjörum sínum, og er hinn ánægðasti ; með þróun undanfarinna ára! Verkamenn þurfa, að hans dómi, ekkert að vera að kvarta. Þeir hafa jafngóð kjör og 1948. Gengislækkun og at vinnuleysi er aðeins kommún istískur áróður, sem enginn skyldi mark á taka“. FYRIR ÞESSU RUGLI Þjóð- viljans er vitanlega ekki neinn fótur. Ekkert af þessu sagði Helgi Hannesson í ræðu sinni. Hann benti aðeins á það, og hrakti þar með allar blekkingar kommúnista um störf Alþýðusambandsstjórn- ar undanfarin tvö ár, að það hefði tekizt að varðveita kaupmátt verkamannalaun- anna, þrátt fyrir gengislækk- unina. Með þessu var geng- islækkunin vissulega í erigu afsökuð; enda sér hver heil- vita maður, hvað í þessum upplýsingum felst: Það er kauphækkunin, sem verka- menn, fengu sumarig 1949, sem veldur því, að verðhækk unin af völdum gengislækk- unarinnar hafði að minnsta þá kauphækkun var gengis- lækkunin þá búin að gleypa og gera að engu! HVORKI Helgi Iiannesson né sá meirihluti, sem honum fylgdi á Alþýðusambands- þinginu, gaf neina átyllu fyr- ir Þjóðviljann til þess að halda því fram, að hann sætti sig við þá kjaraskerðingu, sem gengislækkunin hefur valdið. Það er aðeins Þjóð- viljalygi. Samþykktir sam- bandsþingsins sýna og að því fer víðs fjarri. Þar er ein að- alkrafan, að dýrtíðin og kjara skerðingin af völdum gengis- lækkunarinnar verði stöðv- uð, — eða kaupið hækkað að öðrum kosti svo að kaup- máttur verkamannslaunanna verði ekki rýrður! BRETAít OG FRAKKAR háfa efnt til ráðstefnu um öfl- un hráefna, sér í lagi til hers lantlanna. Er ráðstefna þessi halclin í London, og hófst húii í gær.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.