Alþýðublaðið - 15.12.1950, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 15.12.1950, Qupperneq 5
Föstudagur 15. desember 1950 ALÞYÐUBLAPtÐ 6 FÞJóðská!d mm þeir í raui ÞEIM fækkar nú óðurn, sem uppaldir eru vi5 rímnakveð- skap og sögulestur, og eins er um hina, sem muna farand- skáld og sagnaþuli. Seinastur larandskálda hér á landi, sem ftokkuð kvað að, var Símon | Dalaskáld, en af sagnaþulun- * tsm mætti telja að síðastur hafi Verið Sigfús Sigfússon frá Ey- vindará, því að þó að hann færi fyrst og fremst um Aust- Urland til þess að safna sögum jþá sagði hann einnig sögur, bvar sem hann kom, og með Inonum Iifði ómengaður andi Jhinna gömlu sagnaþula. Símon Dalaskáld mátti muna tvær ævirnax. Eftir að hann gaf út fyrstu rímur sínar, 28 ára gamall, voru prentaðar eft- ír hann á aðeins tveim ára- lugum 14 ljóðabækur og rímna flokkar. Hann fór um land allt, Og víst er það sannmæli, sem Matthías segir í eftirmælum fcínum eftir Símon: f,Fögnuðu skáldi hjón og hjú, hátíð varð á palli, tnörg ein snötur baugabrú hrosti þá við kalli. Kvað um börn og hal og hrund thelzt þó ungu fljóðin); hundrað oft á hálfri stund í'.rutu tundur-ljóðin.“ En það voru sízt allir, sem litu svipað á Símon á. efri ár- um hans og séra Matthías jgerði. Ég minnist þe^s, að þá er Bólu-Hjálmarssaga var gef- in út, var fundið að Brynjólfi á Minna-Núpi fyrir aQ birta þar lofkveðlinga um Síinon, og minnir mig, að talið væri verð- ugra að birta þessa vísu: 5,Símon Dala-dröllungur, drottins valinn nautspungur, einiægt falar eldgríður, á honum talar hrútskjaftur.“ Einnig man ég‘eftir, að Þor- Bteinn skáld og ritstjóri Gísla- son sætti átölum fyrir að birta mynd af Símoni í Óðni. Til þessarar breytingar bar einkum tvennt. Annað var al- ínenns eðlis: Á síðustu árum Símonar hafði sú alda, sem jreis með ritdómi Jónasar um rímurnar, fært í kaf í vitund velflestra bókmenntalegar stað reyndir frá nauðatímum ís- lenzku þjóðarinnar, nýr skáld- Bkapur breytt smekk manna *— og rímnakveðskapur og rímur var hvort tveggja orðið fcannfært hjá menningarlegum snobbum úti um byggðir lands- ins og í höfuðstaðnum. Hitt var bundið persónu S;nonar: Paö var sannast að segja fyrir- hafnar- og vandameira að finna gullkorn í skáldskap hans, heldur en leir og þá málma, sem eru gulli miklum mun verðminni. Þá var og Símon ó- lærður og umkomulaus aiþýðu maður, sem orðinn var andiega og líkamlega vanheill af margra áratuga óreglu, útigangi og ein stæðingsskap. Og — eins og Jón skáld Magnússon sagði: „Hann var brot af eldri öld . . .“ Nú er enn um skipt. Nú eru það ekki einungis fáir menn, sem líta með þakklæti og virð- ingu til rímnaskáldanna horfnu, menn, sem hafa vit- andi vits rýnt í fornar skræður og komið augar á, hvernig það hefur mátt verða, að sagnfræði legur og skáldskaparlegur á- hugi varðveittist með þessari kvikkvöldu þjóð á nauðöldum hennar — og íslenzk tunga geymdist og þróaðist lítt breytt og svo að segja mállýzkulaus, svo að hið forna málgull lá of- anjarðar og snillingshendurnar þurftu ekki að grafa til þess, þá er smíða skyldi gersemar nvrr- ar menni ngarlegrar gullaldar. Nú viðurkenna allir, sem vilja menntaðir teljast, þá þakkar- skuld, sem þjóðin stendur í við rímnaskáldin, og margir líta ekki einungis á rímnakveðskap inn sem á sínum tíma nauðsyn- lega forðagæzlu og bjargróða- ráðstöfun, heldur þora þeir að fullyrða, að rímurnar séu út af fyrir sig merkileg bókmennta- grein, sem við getum verið stoltir af, enda hefur víðkunn- ur erlendur merkismaður, pró- fessor Craigie, gerigið í ábyrgð fyrir því að svo sé —■ og er slík ábyrgð að minnsta kosti jafn- gild því, að íslenzkur rithöf- undur hljóti nokkra lofsamlega erlenda ritdóma. Þá eru og til þeir menn, sem telja, að rímna- kveðskapurinn eigi sér mögu- leika til endurnýjunar — og að æskilegt sé, að rímur í að nokkru nýrri mynd — verði einn þáttur íslenzkra fram- tíðar-bókmennta. Loks hefur verið stofnað rímnafélag til Út- gáfu á rímum — og var það, sem kunnugt er, stofnað fyrir forgöngu prófessors Craigies. Rímnafélagið hefur nú látið prenta úrval úr ljóðum Símon- ar Daluskálds, en réttinn til út- gáfu þeirra hefur frú Friðgerð- ur Andersen, dóttir skáldsins, gefið Rímnafélaginu. Hefur síra Þorvaldur Jakobsson, áður prestur í Sauðlauksdal, valið ljóðin, en Snæbjörn Jónsson bóksali ritað formála. Bókin er nærfellt 500 síður, og flytur hún útdrætti úr rímum Sím- UM VERÐ A JOLATRJAM OG GRENI Að gefnu tilefni og til leiðbeiningar fyrir almenning skal það fram tekið, að verð á jólatrjám 02 greni má hæst vera sem hér segir: JOLATRE HEILDSALA SMASALA Frá 0,60 m. til 1 mtr. kr.' 18,00 kr. 25,00 pr. stk. 1 — — 1,5 — — 22,00 — 30,00 — 1,5 — — 2 — — 27,75 — 37,00 -— — 2 — . — 2,5 ' — — 37,25 — 50,00 — — 3 — 60,00 — 80,00 . — — . 4 — — 86,25 •— 119,00 — — 5 — — 180,00 — 250,00 — — 7 — — 480,00 — 660,00 — — 8 — — 775,00 —1070,00 — —: GRENI — 5,00 pr. kg. — 6,75. pr. kgT-. Verðið á greni má ekki vera hærr, þótt það hafi verið búntað saman, enda á það að seljast eftir vigt. VERÐGÆZLUST JÓRIS N onar, tækifærisvísur og önnur Ijóð. Framan við úrvalið er birt erfiljóð Matthíasar Joch- umssonar um Símon, en aftast í bókinni kvæði, sem Jón skáid Magnússon orti við fráfall hans. I bókinni eru þrjár mynd ir af Símoni á ýmsum aldri ■—- og loks er þar á nótum kvæða- lag hans. I formála Snæbjarnar Jóns- sonar er gerð glögg grein fyrír ýmsu því, er útgáfuna varðar, og sitthvað er þar sagt, sem ég minnist ekki að hafa séð áður um Símon og ritverk hans. En þá er það sjálft úrvalið iir kveðskap Símonar. Er þar satt að segja ekki um auðugan garð jað gresja með tilliti til anda- ' giftar og öruggrar smekkvísi ’ um orðaval, en hins vegar er hagmaslskan mikil og margt sérlegt í kvæðunum. Símon hefur fyrst og fremst lagt á- herzlu á rímið og afköstin og að öðru leyti látið sér nægja að hugsa sem svo með tilliti t)l lesandans: Þeim er nóg, sem skilur. Eru og margar sannar sögur um það, hve hraðkvæður Símon var, og er engin ástæða til að rengja rímaðar frásagnir hans um afköstin, þó að hann hafi verið af þeim jafnhreyk- inn og góður beitingarmaður er af að beita fleiri lóðir á klukkutíma en félagar harss. Annars virðist það augljóst við samanburð á t. d. Arons- og Kjartansrímum og ýmsum hin- um síðari kveðskap Símonar, að lífskjör hans og sú stefna, sem líf hans tók, hafi frekar dregið úr eðlilegum þroska hans sem skálds heldur en auk- ið hann. Verður það aldrei sagt með neinni vi'ssú, hvað úr Sím- oni hefði getað orðið sem skáldi með góðri menntun og hagkvæmum aðstæðum,. svo hagmæltur sem hann var og minnisgóður á ■ hvað eina, er hann heyrði eða las — og svo miklum áhlaupadugnaði sem hann var gæddur. En trúlegt er, að hann hefði orðið afkasta mikið og alþýðlegt góðskáld, sem skipað hefði sinn sess með prýði, þótt ekki teldist hann til hinna stóru spámanna. í stað þess varð hann hinn fljót- kvæði farandsöngvari og skemmtimaður stórra og smárra úti um byggðir lands- ins — þjóðskáld í þeirri .merk- ingu, að hann orti fjöldamim til gleði og gamans augnabliks- vísur og skemmtikviðlinga —- og fullnægði með rímum sín- um rímnautn alþýðunnar, kenningagleði hennar og sagna þorsta — þjóðskáld eins og Matthías skilgreinir í vísunni: „Þjóðskáld voru þeir í raun, þjóð sem huggun kváðu, og kappnóg þóttu kvæðalaun, ef kotungs gisting þáðu.“ Og ■þessi útgáfa á úrvali úr kveðskap síðasta rímna- og far ahdskáldsins á íslandi er við- urkenning á því, sem hið mikla þjóðskáld tók fram við andlát Símonar fyrir hálfum fjórða áratug: „Nú er mál að þú, vor þjóð, þeirra drekkir minni, sem að kauplaust kjark og móð kváðu móður sinni.“ Guðm. Gíslason Hagalíiv Félagslíf Gúðspekinemar. Stúkan Septíma heldur fund í kvöld kl. 8.30. Einleikur á fiðlu, erindi: „Ríki Tíva“, flutt af Grétari Fells. Fjölmennið stundvíslega. Ármenningar! — Skíðamemn! Skíðaferðir í Jósefsdal um helgina verða á laugardag kl. 2 og kl. 6. — Farið frá íþróttahúsinu við Lindax- götu. Farmiðar í Hellas. Þeir sem ætla sér að dvelja uxn jólin og nýárið í Jósefsdal láti vita fyrir kl. 6 á mánu- dag.í síma 2165 Stjórnin. Stúkan Morgunstjarnan nr. 11 heldur 65 ára afmælisfagnað sinn n. k. sunnudag kl. 7,30 e. h. í Góðtemplarahúsinu í Hafnarfirði. Templurum er 'heimil þátttaka með gesti. Aðgöngumiðar fást hjá Gu6- jóni Magnússyni, Strand- göstu 43, föstudag og laug- ardag til kl. 6 e. h. Undirbúningsnefndin, er sönn saga um öndina sem fór með ungana sína áttá frá varpstaðnum í Skuggahverfi, niður á tjörn. — Skemmtileg saga. — Skemmtilegar myndir JÓLABÓK BARNANNA í ÁR

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.