Alþýðublaðið - 17.12.1950, Side 9
■
6. og síðasta bindi ævisögu séra Árna Þórarinss,
- .VIeð þessari bók hefur Þórbergur Þórðarson lokið verki, sem á engan sinn líka í bókmenntum samtíðarinnar.
Séra Árni Þórarinsson var tvímælalaust einn merkasti, fjölgáfaðasti og skemmtilegasti menntamaður þess
Á' lands fyrr og síðar. Samstarf hans og séra Árna stóð í mörg ár, þeir gerðust í senn miklir og einlægir vinir og
S jvo mun að lokum hafa farið að séra Árni leyfði Þórbergi að skyggnast dýpra í einkalíf sitt og persónuleg
K /iðhorf en títt er um ævisagnaritara.
Stórbrotnasta ævisögurit í bókmenntum samtíðar innar.
Bœkur og ritföng
Aust. 1 — Laugavegi 39.
Niálse 65
Aðalstr. 18,
Sunnudagur 17. desember 1950
ALÞYPUBLAPIP
BOKAVERZLUN ÍSAFOLDAR
5 nýjar bækur
r
frá Isafoldarprentsmiðju
Mamma skilur allt
D U L EVB Ö G N EGYPTALANDS
eftir Paul Brunton. Frú Guðrún Indriðadóttir hefur þýtt þessa ágaetu bók. Paul Brunton er orðinn kunnur íslenzkum lesendum. Bók hans
Dulheimar Indíalands hefur verið lesin með athygli og aðdáun um la)id allt. Duiarmögn Egyptalands er ef til vill enn þá dularfyllri og
rnerkilegri. Brunton lýsir í þessari bók af aðdáanlegri snilld pýramídunum, konungagröfunum, launhelgunum og musterunum í Egj-pía-
iandi. Hann Iýsir og skýrir trú manna og siði. Á einum stað segir hann, er hann hafði sko'ðað Pýramída: „Þegar vörðurinn opnaði fram-
Iiliðið, skömmu eftir dögun, reikaði út úr Pýramídanum maður, þreytulegur til augnanna, lúinn og rykugur. Hann gekk niður eftir hinuni
niik’u tilhöggnu klettum út í morgunsólskinið og horfði ljósfælnum augum yfir landið, flatt og kunnugt. Honum varð það fj’rst fyrir að
anda að sér djúpt nokkrum sinnum. Því næst sneri hann andliti sínu ósjálfrátt móti Ra, sólinni, og þakknði hljóður hina blessuðu gjöf
ljóssins mannkyninu til handa“. LESIÐ DULARMÖGN EGYPTALANDS um jólin. Þið getið ekki fengið betri bók.
VIRKIÐ í NORÐRI
eftir Gunnar M. Magnúss. Þetta er þriðja og síðasta bindi verks-
ins og fjallar um atburði á sjó og við strendur landsins. Aftan
við bindið er skrá yfir alla þá er fórust af völdum ófriðarins,
ásamt mynd og stuttu æviágripi.
NONNI
EIRÍKUR HANSSON
eftir Jón Sveinsson. Freysteinn Gunnarsson þj'ddi. — Af öllum
Nonnabókunum er Nonni vinsælastur og sú bók er víðfrægust,
enda eru allar bækur Jóns Sveinssonar við Nonna kenndar. Með
þeirri bók tók séra Jón Sveinsson sess meðal frægra rithöfunda
og varð eins og kunnugt er víðlesinn höfundur. Árið 1943 var
búið a'ð gefa út 103.000 eintök af Nonna í Þýzkalandi, en auk þess
hefur hann verið þj'ddur á meira en tuttugu tungur. Nonni var
fyrsta bók Jóns Sveinssonar, sem Freysteinn þýddi. Nú, eftir tæp
þrjátíu ár, kemur þessi þýðing út aftur að mestu leyti óbreytt.
eitir J. Magnús Bjarnason. Þeir, sem komnir eru á fullorðinsár, munu kannast við söguna um Eirík Hansson. Þegar hún kom fj’rst út hér
á Iandi, var hún lesin um aJTt land af ungum og gömlum. Fólkið fylgdist af áhuga með litla íslenzka dregnum, sem fór til Ameríku, og það
liíði með honum ævintýrin, sem hann ratáði í þar vestra. — Þá voru fólksflutningar héðan af landi vestur til Ameríku og þarna opnaðist
nj'’r töfraheimur. En ævintýrin eru þ'au sömu í dag og þau voru þá, og j’ngri kynslóðin mun fagna komu þessarar bókar, og hinir eldri
rvfja upp gamlar og góðar endurminningar. „Og kjnlegar sögur ha nn kunni og llög“. — Eiríkur Hansson er bæði gefinn út heilu lagi
og í þremur sjálfstæðum heftum.
Ný saga um Hjalta litla, eftir Stefán Jónsson. Hjalti
litli er vinsælasta unglingabókin, sem samin hefur
verið á síðari árum. Hún seldist upp á skömmum
tíma, og síðan hefur verið látlaus eftirspurn eftir bók-
inni. Nú cr komin ný saga um Hjalta litla — og þó
framhald hinnar fyrri. Hjalti er að stækka. Eftir
rnjaltir morgni á — mjakast Hjalti að slæiti. Og
hann er samvizkusamur og gerir það, sem hann get-
ur. Smækkar ljárinn strá og strá — stækkar skári á
teigi. Það er gaman að fylgjast með Hjalta Iitla og
athuga umhverfi hans og samferðamenn. MAMMA
SKILUR ALLT er jólabók barnanna, og þeir full-
orðnu liafa líka gaman af henni.