Alþýðublaðið - 21.12.1950, Blaðsíða 4
4
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Fimmtjidagar 21. des. 1950.
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Hitstjóri: Stefán Pjetursson.
Fréttastjóri: Benedikt Gröndal; þing-
fréttaritari: Helgi Sæmundsson: auglýs-
ingastjóri: Emilía MÖller. Ritstjórnar-
eímar: 4901 og 4902. Auglýsingasími
4906. Afgjei'ð^lusími 4900. Aðsetur: Al-
þýðubúsið.
AlþýðuprenWiiðjan h.f.
Pólitísk stiga-
ménnska
HEIÐARLEGT FÓLK stend-
ur jandrandi andspænis þeirri
staðreynd, að ríkisstjórnin og
meirihluti alþingis hefur nú
fellt úr gildi það ákvæði gengis-
laganna, að dýrtíðaruppbót á
kaup skuli reiknuð út á ný-í
júlí næsta sumar, á grundvel’.i
þá gildandi vísitölu. Og það
spyr, hvort stjórnmálamenn
borgaraflokkanna hér á landi
séu raunverulega þeirrar skoð-
unar, ao þeir geti með köldu
blóði svikið þannig þau loforð,
sem þeir hafa gefið frammi
fyrir allri þjóðinni og meira að
segja látið festa í lög? Ef svo
er, þá eru þeir áreiðanlega ein-
jr um slíka stjórnmálasiðfræði.
Annað eins blygðunar’eysi og
svikin um dýrtíðaruppbótina á
kaupið í júlí næsta sumar er
alveg óhugsanlegt í nokkru ná-
Jægu landi.
'!<
En því miður er það ekki
einsdæmi hér á landi. Þetta er
í annað sinn á aðeins nokkrum
jnánuðum, sem núverandi rík-
isstjórn gerir sig bera að slík-
um svilcum við verkalýð og
launastéttir landsins á einmitt
þeim ákvæðum gengislækkun-
arlaganna, sem sætta áttu all-
an almenning við gengislækk-
un krónunnar og gera honum
unnt að rísa undir þeirri dýr-
tíð, sem fyrirsjáanleg var af
völdum hennar. Fyrri svikin
Voru faiin í hinni dæmalausu
fölsun vísitölunnar, í júlí síð-
ast liðið sumar, þegar hafa átti
af verkalýðnum og launastétt-
unum verulegan hluta þeirrar
dýrtíðaruppbótar á kaupið,
sem þeim bar á síðara helm-
ingi þessa árs, samkvæmt ský-
lausum ákvæðum gengislækk-
unarlaganna. Að vísu varð
ríkisstjórnin þá að gefast upp
Við þessa þokkalegu tilraun af
þvj, að verkalýðssamtökin tóku
til sinna ráða. En söm var gerð
hennar fyrir því; og þá þegar
blandaðist engum heiðarlegum
manni hugur um, að í núver-
andi ríkisstjóm eru pólitískir
Stigamenn að verki.
j ^
Það er og nú komið á dag-
inn, að þeir hafa síður en svo
breytt um hugarfar, þó að þeir
yrðu að hætta við fölsun vísi-
tölunnar og láta undan síga
fyrir réttlátri reiði fólksins
síðast liðig sumar. Það, sem
ekki tókst þá, á bersýnilega að
takast nú með þeirri breytingu
á gengislækkunarlögunum, sem
pamþykkt var af stjórnarflokk-
unum á alþingi í fyrradag. Að-
eins er nú ekki lengur um það
eitt að ræða, að hafa nokkurn
hluta lofaðrar og lögboðinnar
dýrtíðaruppbótar af verka-
lýðnum og launastéttunum í
hálft ár, eins og ætlunin var
ineð vísitöluíölsuninni í júlí
síðast liðið sumar; nú á að
svíkja launafólkið um a 11 a
frekari dýrtíðaruppbót síðari
hluta komandi árs, hvað svo
sem vísitala framfærslukostn-
aðarins kann að hækka. Og
Hugmysidasamkeppni '
um fegrun og úflif Tjarnarlnnar
Bæjarráð hefur ákveðið að efna til hugmyndasam-
keppni um fegrun og útlit Tjarnarinnar í Reykja-
vík. Útboðsskilmála og uppdrætti má fá í skrif-
stofu hæj arverkfræðings gegn kr. 50,00 skilatrygg-
ingu eftir kl. 3 e. h. föstudaginn 22. des. 1950.
BORGARSTJÓRI.
Hafið slefnumóf
við
Rafskinnu-
gluggann
bessi svik við það eru framin,
bó að það sé öllum vitanlegt,
að dýrtíðin heldur áfram að
vaxa hröðum skrefum og er
begar orðin miklu þungbærari
fyrir allan almenning, en nokk-
urn óraði fyrir þegar ohappa-
spor gengislækkunarinnar var
stigið.
Hinir fínu herrar í ráðherra
stólunum halda nú sjálfsagt,
að hér með sé þessu máli lokið.
En það halda líka allir stiga-
menn, þegar þeim hefur
heppnazt eitthvert ódæðið.
Stundum kemur það þó fyrir,
að slíkur verknaður hafi nokk-
ur eftirmál; og vel mætti svo
fara, að enn væri ósagt síð-
asta orðið um það launarán,
sem stjórnarflokkarnir sam-
þykktu á alþingi í fyrradag.
Alþýðuflokkurinn og Alþýðu-
sambandið létu og ekki undir
höfuð leggjast að vara ríkis-
stjórnina við, áður en hún
steig þetta nýja óhappaspor.
Það getur farið svo, að það
verði lítill vinnufriður í land-
ínu á næsta ári, ef dýrtíðin
heldur áfram að vaxa og lof-
aðri dýrtíðaruppbót á kaupið
verður haldið fyrir hinu vinn-
andi fólki.
Blaðamannafélag íslands
efnir til áramótafagnaðar í
Tjarnarcafé á gamlárskvöld fyr
ir félagsmenn, gesti þeirra og
velunnara félagsins. Aðgöngu- ‘
Engin spil og ekki keríi. — Rafmagnskertin, sem
bila. — Engar varaperur. — Okrið á jólagren-
inu. — Andarungar á Lækjartorgi.
ÁÐUR HEF ÉG vakið athygli
á því, að nú, í fyrsta skipti síð-
an löngu fyrir aldamót, fást eng
in spil fyrir jólin. Til viðbótar
er það nú komið í Ijós, að ekki
fást kerti, lítil kerti, fyrir þessi
jóí. Að vísu munu nokkrir
stokkar hafa komið í verzlan-
irnar, en þeir voru svo fáir að
aðeins fáir nutu.
ÞAÐ HEFUR MJÖG færzt í
vöxt undanfarin ár, að menn
hafi keypt rafmagnskerti og
sett þau á jólatrén, og hafa þessi
kerti verið flutt inn frá ýmsum
löndum. En sá galli er á, að kert
in vilja bila og ef eitt kerti bil-
ar þá logar ekki_ á neinu í „ser-
íunni“. Hins vegar hafa raf-
magnsverzlanirnar ekki getað
flutt inn aukakerti eða perur,
svo að nú eiga fjölda margir
„seríur", sem þeir ekki geta not
að. Er þetta mjög slæmt.
NÚ ER ÞAÐ orðinn fastur
vani að skreyta borgina fyvir
jólin-. Vinir okkar erlendis senda
risastór jólatré og bærinn kaup
ir önnur, og öll eru þau sett
upp á helztu stöðum í bærum.
Auk þess hefur Fegrunarfélag-
ið nú sett upp fagra jólapotta
á ýmsum gatnamótum og var
það vel gert, en til viðbótar eru
svo jólatré og jólagreni á verzl-
unarhúsum. Allt verður þetta
til þess að setja jólasvip á bæ-
inn.
FÓLK KVARTAR mjög und-
an okri á jólatrjám og jólagreni.
Hámarksv-erð hefur .verið sett á
miðar fást á ritstjórnum blað-
anna og í fréttastofu útvarpsins
þessar vörur, en verðlagseftir-
litið mun á undanförnum árum
lítið eftirlit hafa haft með söl-
unni. Nú kemur í ljós að það á
sér stað okur með grenið og er
því nauðsynlegt að gefa þess-
ari verzlun auga.
EFTIR ÞVÍ, sem mér hefur
verið sagt á að selja grepið efí-
ir vigt. Seljendurnir hafa ekki
nláiar vogir á sölustað, en binda
hins vegar grenið í knippi og
kemur svo í ljós að knippið er
miklu léttara en verðið segir
til um. Almenningur verður að
vera vel á v-erði í þessu. sem
öðru. Verðgæzluef'irlitið getur
ekki náð tilgangi sínum nema
með aðstoð almennings enda
ætti honum einmitt að v-sra það
ljúft að veita slíka aðstoð.
SAGAN UM ANDAHJÓN-
IN, sem leituðu sér að bústað í
Reykjavík og bjuggu sér hreið-
ur að húsabaki við Lindargöíu
er alveg ágæt. Skemmtilegust
er þó sagan af því þegar mamm
an fór með alla ungana sína í
nýjan bústað, af Lindargötunni,
niður Hverfisgötu, um Lækj-
argötu og niður á Tjörn. Það
var ævintýralegt ferðalag, og
ekki hættulaust fyrir smáfugl-
ana, sem sáu margt nýstárlegt
og voru fullir af forvitni. Það
var enginn hægðarleikur að
passa Tugga, sem alltaf vildi
skoða allt af eigin. raun.
ÞETTA ER BRÁÐSKEMMTI
LEG BARNABÓK, málið og
myndirnar þannig að öll lítil
börn. skilja þegar lesið er fyrir
þau. Og jafnvel án þess, því að
myndirnar einar út af fyrir sig
er sjálfstæð saga.
| Mesti baráttumaSur vfrjálsrar verzlunar”! \
s
Skipaáfgerð ríkisins
„Skjaldbreið”
EINAR OLGEIRSSON er nú
orðinn svo skeleggur baráttu-
maður „frjálsrar verzlunar“,
að þingskörungar íhaldsins
mega skammast sín gagnvart
heildsölunum og stórútgerðar
mönnum í samkeppninni við
hann. Síðasta framlag Einars
til landsmáianna fyrir jóla-
leyfi alþingis var að fíytja til
lögu um, að tekinn skyldi upp
sá háttur á ný að veita ýmsum
aðilum „frjálsan gjaldevri“
í stórum stíl með því að gefa
útflutning á öl'íum fiski báta-
flotans frjálsan og innflutning
svo til frjálsan fyrir útflytj-
endur fiskjarins.
AFLEIÐING ÞESSA yrði sú,
að verð á fjölmörgum nauð-
synjum myndi stórhækka í
verði eins ■ og reynslan af
„frjálsa gjaldeyrinum“ hefur
all.taf • leitt í ljós. En komm-
únistum liggur það i léttu
rúmi. Almenningur mun hins
vegar telja* að rikisstjórnin
og meirihluti hennar á al-
þingi hafi þegar bundið hon-
um nógu þunga bagga, þótt
ekki verði við aukið að ráði
ur mun að' vonum spyrjí
hvað því valdi, að Einar OI-
■ geirsson og flokkur hans berst
nú fyrir því, sam þjónar heild
salanna; og stórú tgerðarmann
anna hafa til þessa verið ein-
ir um að'heimta.
ÞEIRRI' SPURNINGU er auð-
velt að svara. Baráttan fyrir
„frjálsum gjaldeyri“ er alltaf
af sömu rótum runnin. Hún er
sprottin af gróðafíkn þeirra
aðila, sem fengju bætta að-
stöðu til auðsöfnunar, ef þess
ir verzlunarhættir væru upp
teknir. Hitt er annað mál, að
þessir herrar' segja fólkinu í
landinu aldrei sannleikann,
heldur reyna þvert á móti að
telja því trú um, að beir beri
hagsmuni þess fyrir brjósti,
þegar þeir berjast fyrir „frjáls
um gjaldeyri“. Einar Olgeirs-
son er einnig í því efni undir
sömu sök seldur og heildsal-
arnir og stórútgerðarmennirn
ir; og Þjóðviljinn reynir að
telja kjósendum hans trú um,
að Vísir og Morgunblaðið
segi í rauninni satt og rétt',
þegar þessi málgögn íhaldsins
eru að burðast við að reka er
, Einars Olgeirssönar. Og marg
indi þeirra aðila, sem vilja ó-
trauðir auka verzlunarspill-
inguna!
LEYNDADÓMURINN við
þessa baráttu Einars Olgeirs-
sonar er sá, að hann veit, að
verzlunarfyrirtæki kommún-
ista fengju aðstöðu til að raka
saman gróða á viðskiptum við
Rússland og leppríki þess, ef
kröfu hans um „frjálsan gjald
eyri“’ yrði sinnt. Þess vegna
gengur hann nú á alþingi feti
lengra en fulltrúar heildsal-
anna og stórútgerðarmann-
anna í baráttunni fyrir „frjáls
um gjaldeyri". Þessir verzlun
arhættir myndu að sjálfsögðu
leiða til þess, að heildsalarnir.
og stórútgerðarmennirnir
hrepptu „feitar kýr“ í hallær
inu, en hagur almennings
þrengjast sem svaraði hinum
aukna gróða þeirra. En komm
únistum liggur slíkt í léttu
rúmi. Ef „frjáls gjaldeyrir'
verður vatn á myllu flokks
þeirra. þá stendur ekki á Ein
ari Olgreissyni að tileinka sér
hugsjónir heildsalanna og stór
útgerðarmannanna.
til Húnaflóahafna hinn 27. þ.
m. Tekið á móti flutningi til
hafna milli Ingólfsfjarðar og
Skagastrandar í dag og á morg-
un. Farseðlar seldir árdegis á
laugardag.
Hekla
vestur um land til Akureyrar
hinn 28. þ. m. Tekið á móti
flutningi til áætlunarhafna á
morgun og laugardag. Farseðl-
ar seldir á miðvikudag.
Herðubreið
austur til Fáskrúðsfjarðar hinn
28. þ. m. Tekið á móti flutningi
til hafna milli Hornafjarðar og
Faskrúðsfjarðar á laugardag.
Farseðlar seldir á miðvikudag.
„Esja”
austur um land til Siglufjarðar
hinn 29. þ. m. Tekið á móti
flutningi til áætlunarhafna
milli Reyðarfjarðar og Húsa-
víkur á morgun og laugardag.
Farseðlar seldir á fimmtudag.
r
„Armann”
til Vestmannaeyja hinn 28. þ.
m. Vörumóttaka daglega.