Alþýðublaðið - 24.01.1928, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 24.01.1928, Blaðsíða 4
4 JcLÞÝÐUBUAÐIÐ ur þeirra Sv. Jóhahiiss. og Árna Jónss. (gersenii). Get ég trúáð því, að þær vinni mikla og almenna hylli, þvj að raddfegurð og með- ferð gerir þær ekki síður prýð,i_ legar en þær voru upphaflega. Nú geri ég ráð fyrir, að al- menningur sæki þessa skemtuin vel. Mega menn gera sér miklar vonir nm snilli kvæðamannsins og fjölbfeytni efnisins. 23. jan. 1928. .lósep S. Húnfjörð. [Alþýðublaðinu er Ijúft að birta þenna greinarstúf herra Hún- fjörðs. Rímnakvieþsfeapurinn var list, er var mikill þáttur í and- legu lífi alþýðunnar á landi hér, og rímnaiögin mörg eru snildar- fögur og merkileg. Þeim, er þetta ritar, hefir gefist kosiur á að heyra herra Jón Lárusson kveða. Hann -hefir fagra óg mikla röcld, kveður af skapþunga og hrifni og kann fjölda af kvæðalögunr, bæði fögrurn og skoplegum. Hann kennir lögin við þá menn, er hann hefir lært þau af, og kvsður þau svo sem þeir kváðu. Er það ung- ;um og gömlum hin bezta skemt- Mn að hlýða á kveðskap hans.| Innlemdtíðiiidi. Vestmannaeyjum, FB., 23. jan. „Óðinn". feom hingað í gær með 4 þýzka togara tekna að landhelg- isveiðum. Rannsófen hófst, í gær. Stirð tíð og slæmar gæftir. Lít- ið afiast. Afspyrnurok i nótt. Vestmannaeyjum, FB., 23. jan. Botnvörpungarnir íjórir. senr „Óðinn“ tók, eru allir frá Geste- miinde. „Emma Engel1' og „Fried- reich Ludwig fengu tóíf þúsund og fimm himdruð króna sekt hvor, afli og veiðarfæri upptækt. Áfrýjuðu báðir. „Tyr“ og „Or;ion“ bíða dóms. Sissa (IfigfiMBfi ©gg WðpÍMfiio Næturlæknlr í nótt er Magnús Pétursson, Grunidarstíg 10, sími 1185. F. U. J. Munið eftir fundinum i kvöld. Rætt verður um bæjarstjórnar- kosningarnar. Allir ungir jafnað- armenn verða aö mæta. Sig Eggerz snýr baki við frjáls- lynduin. Heyrst hefir, að Sig. Eggerz sé meðmælandi á C-listanum. Félag ungra jafnaðarmanna heldur fund í kvöld ki. 8V2,. í Good-Templara- húsinu uppi. Sigurður Jónasson talar. Anglýsendur eru vinsamliega beðnir að lujma auglýsingum í Alþýðubiaðið eigi síðar en kl. IOJ/2 þann dag, sem þær eiga að birtast, en helzt dag- inn áður, Sfnaas’' 2íS5© og ©S8 ,Lyra“ kom ki. 2 í dpg. Enginn fundur veröur í kvöld í Jafnaðar- mannaféiagi fslands. Verður fundi frestað sakir annara funda og vegna þess, að Fiskiþingið er háð í Kaupþingssalnum. S. R. F. í. heldur aðalfund á fimtudags- kvöLdið ki. 8V2 í Iðnó. Einar H. Kvaran rithöfundur heldur fynir- lestur um nýja, mjög merkilega bók, er fjallar um sálarraiinsókn- ir. « Jafnaðarmannafélagið Sparta hteldur aðalfund sinn í kvöld kl. 8'að Kirkjutorgi 4 uppi. Félagarnir eru beðnir að mæta. Saltskip kom í gær til Hallgríms Bene- diktssonar & Co. Lagarfoss kom í niorgun. Togararnir. Jón forseti og Skúli fógeti komu báðir af veiðum í gær og fóru til Englaúds. Veðrið. Heitast á Seyðisfirði, 2 stiga hiti. Kaldast á Grímsstöðum, 8 stiga frost. Hægviðri um land alt. Djúp lægð norðan við FæTeyjar á norðausturleið. Öninur lægð yfir Suður-Grænlandi. Nærri kyrrstæð. Suðaustan kul á Halanum. Horf- ur: Bieytileg átt, en einkum vest- an á Suður- og Vestur-landi. Suð- \æstan ás 'Norðurlandi. Norðanátt á Auistfjörðum. Orkomulaust á Norðurlandi og Suðausturlandi. Hólaprentsmiðjan, Hafnarstrætl 18, prentar smekklegast og ódýc- ast kranzaborða, erfiljóð og alls smáprentan, sími 2170. Útsaia á brauðum og kökum frá Alþýðubrauðgerðinni er á Framnesvegi 23. Húa jafnan til aðlo. Húa tekin í amboðssölu. Kaupendur. að húa- am oft til taks. Helgi Sveinsson, Aðalsfr. 11. Heíma 10—12 og 5—7. Muntð eftir hinu fjölbreytta úrvali af vegejmyiadtiin ís- lenzkum og útlendurn. Skipa- laayudíF og fl. Sporöskjurammar Freyjugötu 11, sími 2105. Myndir innranunaðar á sama stað. Vörasalinn, Hverfisgötu 42, tek- ur ávalt tii sölu alls konar notaða muni. Fljót sala. SJppkvefkja fæst mjög ódýr hjá beykjunum 1 Geirskjallara við Vesturgötu. Ðivanar fást með sérstöku tæki- færisverði, ef samið er strax, Að- alstræti 1. Hvernig íhaldsmenn björguðu. „Mgbl.“ segir að íhaldsmenn í bæjars.tjórn hafi bjargað málum lóðaieigjenda. En hætt er við að manni, sem væri að drukkna, þætti björgunin ganga seint, ef ekld væri hafist handa fyrr en eftir hálft fjórða ár, en slík var meðferð íhaldsmeirihlutans á máli þessu. Og þegar málið ioks ætl- áði fram að ganga, kom íhalds- forkólfurinn Pétur Halldórsson með tillögu um að fresta því, en hún var drepin með tilstyrk jafn- aðarmanna. Ritstjóri og ábyrgðarmaðut Haraldur Guömundsson. Alþýðuprentsmiðjan. William ie Queux: Njósnarinn mikii. 'breytt irásögn mín um fund hi,ns myrta manns. Það, var eðlilega í skýrslu þessari iteklð fram, að ég hefði fyrst fundið lik híns dauða útlendings, enn fremur, að eng- Snn vissi nein deili á mér, en að iögreglan le’itaði upplýsinga u;m mig um alla borgina og næriiggjandí héruð. Ég hló dátt að þessu og sagði svo hátt og alvariega: „Ég vonast eftir og treysti því, að yðar hágöfgi, Sir Henry Mönkhouse! ,segi yfir- mawii Sootland Yards i trúnaði, hver ég er. Það má hreint ekki vitnast, hver ég er í raun réttri. Ef svo slysalega tækist tii, eru framtíðartækifæri mín sem leynisendils Bretastjiórnar erlendis glötuð og eyðilögð með öMu, og auk þess yrði frelsi og líf mitt í hættu erlendis og jafnyel í mínu eigin föðurlandi." „Ö! Blessaðir verið þér, Jardine íoringi! Það skil ég' mætavel. Þér megið reiða yður á, að ég geri allar nauðsynlegar ákvar&'- anir og fyrirskipanir til yfirrnainns jScotland Yards og annara málsaðila réttvísinnar. Alt, sem þér hafið verið við þetta riöinn, niun iajmáð verða. Ég skal svo sjá um, að þér séuð iausir við allan veg og vanda af þessu rnáli, og niujn aldrei verða eftir yður spurt því viövíkjandi. Ég hugði yður sérstaklega færan um að aðstoða Scotland Yard i því að geta botnað éitthvað í þessum mikla leyndardómi. En augljósiega hafið þér ekki tíma til þess. Yðar starf í þarfir hans há- göfgi Clintons lávarðar og hans hátignar konungsins og hins brezka veldis er miklu meira og mikilvægara en' skyndidauði eða morð eins erlends flakkara, jafnvel þótt hann liafi verið pólitískur njósnari." Ég þagði. „En þó er sorglegt," tók bann upp þráð samtalsins að nýjiu, „að þér verðið að hverfa til Italíu svona undir eins. Af öllum mönn- um í öllunt heimi þekkið þér pólitíska spæj- ara betiur og vitið meira um hætti þeirra en nokfeur annar maður. Það er .eíginlega óþolandi, að þér verðið að fara brott og getið alls ekkert látið yður þetta mál skifta, og þó segi ég aftur: Enginn er eins fróður um pólitiska leynisendla og þér eruð.“ Hann talaði með ákefð og var auðsæilega mikið niðri fyrií'" Ég hló með sjálfum mér, þegar ég mimt- ist alls þess, sém. ég í raun og veru vissi um starfsemi ýmiss konar njósnara. I imanrík isráöherrann horfði á rnig með þrungnum, starandi augum. Það var að brjótast um í honum æsing. „Mér ségir hug- ur um, að þetta sé ilikynjað, pólitískt morð- mál,“ hrópaði hann og hentist upp af stóln- um. „Viar ekki stúlka með honum eða —; annárs gerir það nú ekki svo sérstaklega til. En ég vænti ekki —? Væri yður nú öld- ungis ' ómgöulegt að dragayferð yðar nokkra daga? Mér fins.t það ríöa ‘svo mjög á, að þér fáist eittliviað meira við þetta ögeðs- lega mál. Mér finst — Hann var orðinn mjög ákafur. Ég flýtti mér því að fullvissa hann um, að ég yrði að leggja af stað til Rómatoorgar með kvöld- inu; annars væri staða miím og heiður i veðL „Og þér getið ekki gefið oss neinar upp- lýsingar nú, er varpi einhverju ljósi á þetta?“ sagði hann nokkru rólegri og sett- ist niður aftur. „Nei, því er.nú miður, — ég get alls engr ar upplýsingar gefið, — álls en@ar.“ Hvað annað gat ég sagt, þar sem ég hafði lofað að ijúga heiinar vegna?

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.