Alþýðublaðið - 01.08.1951, Síða 1
fær harðorða á-
f A.-Berlín
C|jórn |C
sarsiþykkf F
íreysíist ekki fil að riffar
keppnisleyfi hans
■ r
Oskar, al mál hans sé rannsakað nú jsegar
NÍÐURSTAÐAN í máli Gunnars Fwseby verður
bersýniiega sú, að hann fær barðorða áminningu
vegna framkomu sinnar í Lond'on, en heldur áður
feágru ieyfi tiil að keppa í Austur-Per’ín. Var þessi
afstrða mörkuð á fundi stjórnar ÍSÍ í fyrrinótt, og
'greiddu þrír stiórnarmenn >af fimm atkvæði með til-
Fgu, er gekk í bessa átt.
Huseby mun hafa tekið sér far í grer á’eiðis til Berlínar,
þar sem hann keppir snemma í þessum mánuði. Standa vonir
til, aS hann heyi þar einvígi í kú’uvarpi við Heino Lipp, sem
er liandhafi Evrópumetsins í þessari íþróttagrein.
Spánverjar selja
Rússum kopar
En hafa lofað Banda
ríkjunum fyrsta
kauprétti að þýð-
ingarmiklum málm
um
Máli Gunnars Huseby var
vísað til stjórnar ÍSÍ eftir að
stjórn FRÍ hafði fjallað um það
og meirihluti hennar ákveðið
að leyfa Huseby að keppa í
Austur-Berlín, en formaður
hennar og fararstjóri íslenzku
fi'jálsíþróttamannanna í Bret-
landsförinni hafði krafizt þess,
að honum yrði bannað að keppa
oftar erlendis á þessu ári.
SAMÞYKKT ÍSÍ
Tillaga sú, sem meirihluti
stjórnar ÍSÍ samþykkti á fundi
sínum í fyrrinótt, er svohljóð-
andi:
„Framkvæmdastjórn I-
þróttasambands íslands (ÍSÍ)
er samþykk stjórn Frjálsí-
þróttasambands íslands (FRÍ)
í því að veita Gunnari Huse-
by harðorða áminningu
vcgna framkomu hans í Lon
don eftir brezka meistara-
mótið, en treystir sér ekki
til að rifta samþykkt FRÍ
um keppnisleyfi honum til
handa í Berlín í ágúst n.k.,
þar eð mál þetta hefur ekki
verið rannsakað nægilega,
en framkvæmdastjórnin ósk
ar eftir því, að það verði
gert nú þegar.“
Samkvæmt þessu eru horf-
ur á, að framhald verði á
þessu máli Gunnars Huseby.
Hins vegar er nú endanlega á-
kveðið, að hann sé frjáls að því
að keppa á Berlínarmótinn.
Alþýðublaðinu er ókunnugt
um, hverjir í stjórn ÍSÍ
greiddu ofanskráðri tillögu at-
kvæði og hverjir á móti. Það
hefur heldur ekki átt þess kost
að fá að kynna sér áminning-
arbréf stjórnar FRÍ til Gunn-
ars Huseby.
De Gasperi biður um
fraustsyfirtýsingu
konung sinn
VEGNA FRETTA UM AÐ
tilslakanir myndu gerðar við-
vikjandi markalínu herjanna í
Koreu hefir utanríkismálaráðu
neyti Bandaríkjanna gefið út
tilkynningu um að afstaða
sameinuðuþjóðanna sé óbreytt
og krefjist þess sem fyrr að
markalínan verði dregin þar
gem herirpir nú hafa stöðu.
De Gasperí.
DE GASPERÍ hélt ræðu í
ítalska þinginu í gær þav sem
hann ferði grein fyrir stefnu
stjórnar sinnar og bað um
traustsyfirlýsingu þingsins.
Sagði hann að stjórn sín myndi
vinna að efiingu Atlanzhafs-
banda'agsins, endurskoðun frið
arsamrvnganna og þá sérstak-
lega viðvíkjandi Trieste. Einn
ig lcvað hann stjórn sína myndi
hefja skelegga baráttu gegn
nýfasistum og kommúnistum.
RPÁNVERJAR virðast nú í
nok^urri klípu síðan þeir báðu
fiárhagsaðstoð frá Bandaríkj-
unum, og að því er talið er,
veittu bandaríska flughernum
afnot af fiugvöllum á Spáni.
Nvlega hefur upplýstst, að
Spánverjar hafi fyrir skömmu
samið við Rússa um sölu á
2000 lestum af spænskum kop-
ar, að því er blaðið New York
Times skýrir frá. Mikil leynd
hefur hvílt yfir þessum samn-
ingum, en blaðið telur það ó-
hjákváemilegt að spænksa
stjórnin sé með í verki vegna
hins stranga eftirlits stjórnar-
innar á málmútflutningnum.
Álítur N. Y. Times það lík-
legast, að Spánverjar hafi lof-
að að selja Rússum koparinn,
en fá í stað þess að endur-
heimta 1000 spænska stríðs-
fanga, sem nú eru í Rússlandi
síðan í síðari heimsstyrjöld, er
herdeild þessi barðist með
Þjóðverjum.
Sannanir hafa fengizt fyrir
því, að síðustu þrjár vikur
hafa farið tvær sendingar af
hreinum kopar frá Spáni til
Rússlands gegnum Sviss. Kop-
arinn hefur verið greiddur í
svissneskri mynt. Sagt er að
magn koparsendinga þessara
hafi verið 25 þúsund lestir og
hafi koparinn verið seldur fyr
ir milligöngu Egypta nokkurs.
Blaðið telur að þar sem
Spánverjar og Bandaríkja-
menn séu að gera með sér stór
fellda samninga, sé líklegt að
Spánverjar hætti koparútflutn
fngi þessum og setji bann á út-
flutning hráefna til hernaðar-
framleiðsl í löndunum handan
járntjaldsins, enda hafa fréttir
borizt um það, að Spánverjar
hafi lofað Bandaríkjamönnum
fvrsta kauprétti að málmum,
er hafa mikla þýðingu fyrir
hergagnaframleiðsluna.
Farinn fil Slrassburg
UTANRÍKISRÁÐHERRA
Bjarni Benediktss. fór í gær-
morgun flugleiðis til London
áleiðis til Strassbourg til þess
að sitja ráðherrafund Evrópu-
ráðsins, sem haldinn verður í
Strassbourg dagana 2. til 5. ág-
úst.
Myndin er tekin í gærmorgun er franski tugþrautarmeistarinn,
Ignace Heinrich, stígur upp í flugvélina, og Norðurlandamet-
hafinn í tugþraut, Örn Clausen, kveður keppinaut sinn og
óskar honum góðrar ferðar. (Ljósm.: Kr. Sig.)
Tugþrautarmeistararnir kveðjast
Harriman telur samkomulagshorf-
ur nú góðar í olíudeilunni í Iran
-... ♦ ■
Bretar hafa ákveðið að senda samn-
inganefnd til íran. Olíuvinslan í
Abadan stöðvuð.
-------«.------
AVERELL HARRIMAN, FULLTRÚI TRUMANS Banda-
ríkjaforseta kom til Teheran í dag eftir stutta dvöl í London,
þar sem hann ræddi við brezku stjórnina um nýjustu orðsend-
ingu íranstjórnar til málamiðlunar í olíudeilunni. Harriman
tjáði fréttamönnum a'ð hann væri mjög ánægður með árangup
þann er náðst hefði til samkomulags og taldi nú betri horfug
enn nokkurn tírna fyrr að einhverjar sætti kynnu að nást milli
deiluaðila. Kvaðst hann vera brezku stjórninni þakkiátur fyrir
undirtektir hennar á orðsendingu Iranstjómar og þá sérstak-
lega fyrir þá ákvör'ðun stjórnarinnar að senda samninganefnd
undir forustu Stokes innsiglisvarðar konungs til íran.
Harriman gekk þegar á fund
utainríkislráðhdþra íran. Ekki
var látið uppi hver skilaboð
Harriman flutti íranstjórn en
ta’ið er að hann muni hafa
skýrt undirtektir brezku stjórn
arinnar.
Erlendir blaðamenn í Teher
an hafa látið í Ijós, að þeir
búist við um að báðir deilu
aðilar munu fúsir til að slaka
til á fyrri kröfum sínum. Að
minnsta kosti telja þeir líklegt
að íransjórn krefjist þess ekki
skilyrðislaust að Bretar viður-
kenni algerlega rétt Iranstjórn-
ar á þjóðnýtingu brezkra eigna
þar í landi. Einnig það að íran
stjórn sé fús á að hefja samn-
inga á þeim grundvelli, sem.
Bretar einnig hafa fallizt á, að
eignir Anglo-íranian olíufélags
ins séu yfirteknar af Iran, en
að Bretar fari að einhverjuleyti
með stjórn þess.
F-jórir brezkir tundurspillar
er lágu fyrir ströndum íran í
öryggisskyni, ef til þeirra
þyrfti að grípa til að verja líf
brezkra borgara í Abadan,
hafa horfið á brott til Basra.
í gæi- hættu oMuhreinsunar-
stöðvarnar í Abadan að starfa
vegna þess að nú eru allir olíu
geymr fullir þar að engin olía
hefir vtrið f'utt þaðan í fjórar
vikur.