Alþýðublaðið - 01.08.1951, Page 7

Alþýðublaðið - 01.08.1951, Page 7
Miðvikudagur 1. ágúst 1951. ALÞYÐUBLAÐIÐ 'V'V'./" F é I a g s I f f . irfugiar! Ferðir um helgina: 1. Göngu ferð um Brúarskörð. Ekið að Úthlíð í Biskupstungum. — Gengið upp að Strokk á láug ardag og gist þar uppi í Skörðunum. — Næsta dag gengið um Rótasand á Hlöðu velli. Þar verður farangurinn skilinn eftir á meðan gengið er á Hlöðufell (1188 m.). Síð an gengið vestur að rótum Skjaldbreiðar og gist þar. Síðasta daginn gengið yfir hátind Skjaldbreiðar (1.060 m.) og um Eyfirðingaveg oy Goðaskarð á Hofmannaflöt. 2. Iiringferð um Þingvalla- vatn á reiðhjólum. — TJppl. í VR, Vonarstr. 4, í kvold kl. 8.30—10. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ráðgerir að fara tvær skemmtiferðir yfir næstu helgi (frídag verzlun- armanna), og verður lagt af stað í báðar ferðirnar á laug ardaginn kl. 2 frá Austur- velli. Önnur ferðin er: Um Snæfellsnes og út í Breiða fjarSareyjar. Ekið til Stykk- ishólms og gist þar næstu nótt. Á sunnudaginn farið út í Klakkseyjar, Hrappsey, Brokey og víðar um eyjarn- ar. Gengið á Helgafell um kvöldið. Á mánudag ekið í Kolgrafarfjörð og Grundar- fjörð eða suður að Búðum og Arnarstapa og heim um kvöldið. 2Vz dags ferð. Hin ferðin er: Til Hvítárvatns, Kerlingar- fjalla og Hveravalla. Ekið austur með viðkomu hjá Gullfossi og gist í sæluhús- unum í Hvítárnesi, Kerling- arfjöllum og Hveravöllum. Skoðað hverasvæiðið í Kerl- ingarfjöllum. og gengi.ð á fjöllin. Frá Hveravöllum gengið í Þjófadali og á Rauð koll eða Þjófafell og þá ef til vill á Strýtur. Gengið á Blá fell í bakaleið ef bj.art er. Gist til skiptis í sæluhúsun- um. 2’í> dags ferð. Farmiðar séu teknir í síðasta lag.i fyrir kl. 12 á föstudag. I - N. N I N G A R O R Ð" s nýkomnir. Fýrirliggjandi skothurða- bindivír og bindilykkjur. ALMENNNA r BYGGINGARFÉLAGIÐ Borgartúni 7. sími 7490 ,,Þar sem góðir menn far.a, eru guös veg,ir.“ GUÐLAUG JÓNSDÓTTjR, fyrrverandi Ijósmóðir, andaðist að heimiþ dóttur sinnar að Arnaríelli, Arnarstapa 23. júlí s. 1. og vantaði þá tvo mánuði á að vera 91 árs gömul. Hún var fædd að Fjósum í Dyrhólahreppi í Mýrdal í Vest- ur-Skaptafellssýslu 24. septem- ber 1860. Ung fluttist hún að Mikiholti í Miklholtshreppi í Snæfells- nessýslu, eða árið 1882, og var þar í 4 ár og fluttist svo að Ingjaldshóli í Neshreppi ytri í sömu sýslu árið 1886, sem ráðs- kona hjá Tómasi hreppstjóra og Narfa, syni hans, er varð unnusti hennar, en hún missti svo rétt fyrir brúðkaup þeirra, Ljósmóðurfræði lærði hún hjá Hirt,i lækni Jónssyni í Stykkishólmi 1887, fyrir Nes- hrepp ytri og var þar starfandi ljósmóðir í 3 ár. Að Borgarholti í Miklholtshreppi fluttist hún 1890 og starfaði þar sem Ijós- móðir í 2 ár. Þaðan fluttist hún að Arnartungu í Staðarsveit og bjó þar í 10 ár með manni sín- um, Pétri Jónssynj frá Borgar- ho’.ti, er hún giftist 1893. Þaðan fluttust þau hjónin að Dal í Miklholtshreppi og bjuggu þar í 4 ár. Allan þann tíma starfaði hún sem ljósmóðir í 3 hrepp- um: Miklhoitshreppi, Staðar- sveit og Eyjahreppi, enda þótt hún væri ekki ráðin nema í þann hrepp, sem hún bjó í, og tæki laun aðeins þar. Vorið 1907 fluttust þau hjón- in að Ingjaldshóli og bjuggu þar í 23 ár. Al’an þennan tíma tók Guðlaug á móti börnum sem ljósmóðir, bæði í Nes- hreppi og innri hluta Breiðu- víkurhrepps, í forföllum ljós- móður, og- hjá vinum sínum frá fyrri árum sínum á íngjalds- hóli, og þeir voru margir. Síð- asta barninu tók hún á móti, er hún var 73 ára görnul. Mann sinn missti Guðlaug 1931. Þau hjónin eignuðust 7 börn, og komust 6 þeirra til fullorðinsára, og eru nú 5 á lífi og 3 fóstursynir. Síðan Guðlaug missti mann sinn hefur hún að mestu dval- izt hjá börnum sínum, og nú lengst hjá dóttur sinni, Guð- laugu á Arnarfelli á Arnar- stapa. Hún var rúmföst og, blind síðustu árin, en hélt ó- skertum sálarkröftum fram á síðustu stundir og fylgdist með öllu sem ung væri, enda komu a’úr gestir inn til hennar og töluðu við hana, sem var bæði þeim og henni mikil gleði. Guðlaug var fríð kona, svip- urinn hreinn og glaður; hún bar aldurinn vel fram að átt- ræðu, en eftir það fóru líkamsr kraftar að bila, enda kunni hún aldrei að hlífa sér, á meðan þrek entist. • Sem ljósmóðir var hún dug- Innilegt þakklæti vottum við öllum þeim, sem sýndu okkur hluttekningu og vinarþel við andlát og útför ÖNNU SIGRÍÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR frá Króki. Vandamenn. til Vestmannaeyjá í dag. Tek ið á móti flutningi alla. virka' daga. Guðlaug Jónsdóttir. leg og lánsöm með afbrigðum: vissu allir, að henni var óhætt að treysta; enda varð aldrei að neinni sængurkonu, er hún var hjá. Á hennar fyrstu Ijósmóður- tíð var ekki auðnáð í lækni í veikindum; en það vissu allir, að ef náðist í hana, þá gekk alit vel. Það fylgdi henni svo mikill andlegur kraftur, að þjáningar gleymdust við að sjá hana. Heimili þeirra Guðlaugar og Péturs var • gestrisið að góðum íslenzkum sveitasið, og var þá húsmóðirin vanalega „hrókur alls fagnaðar“. Ég var 3 ár á heimili hennar og þekkti hana vel, og betri tengdamóður og ömmu.get ég ekki hugsað mér. Það var eitt, sem mér fannst einkenna hana frá öðru fólki, og það var, að engum mislíkaði eða sárnaði, þótt hún vandaði um eða segði meiningu sína. Það vjssu allir, að hún var allt af jafn góð. Á níræðisafmæli hennar 24. sept. s. 1. var henni' sýndur margs konar sómi og vinsemd að verðleikum. Börn, frændur og vinir söfnuðust í kring um hana; henni voru flutt kvæði og erindi um störf hennar. —- Hún brosti í sólskin.i minning- anna, tók í hendur öllum vin- unum og talaði eitthvað við alla; því sálin var sterk, þótt líkaminn gæti ekki hreyft sig. Sem áður var sagt, á hún 5 mannvænleg börn á lífi, 20 barnabörn og 20 barna-barna- börn; með öðrum orðurn 45 af- komendur á lífi. Nú hafa jarðneskar leifar hennar verið fluttar að Ingjalds hóli, staðnum sem hún unni mest. Þar hvíl unnustinn, eigin maðurinn og sonurinn, er hún missti 31 árs gamlan — Nú er sem ég sjái hana brosa yfir bæði sorgum og gleði jarðlífs- ins; því nú ,,fær andinn hafizt hátt í himinljóma“. Ingvedur Á. Sigmundsdóttir. Siglfirðingar umru Framara ANNAR FLOKKUR Úr knattspyrnufélaginu Fram í Reykjavík keppti tvo leiki á Siglufirði um helgina við II. flokk ú.r Knattspyrnufélagi Siglufjarðar, og unnu Siglfirð- ingar báða leikina. Fyrri leikurinn fór fram á laugardag, og unnu Siglfirð- ingar þá með 4 mörkum gegn 2. Á súnnudaginn fór síðari leik- urinn fram og unnu Siglfirð- ingar þá einnig með 2-rnörkum gegn 1. Seljum leirmuni á verkstæðinu á miðviku- og fimmtudögum frá kl. 2—6. Önnur sortering selst ódýrt. Leirbrennsla Benedikts Guðmundssonar, Sjónarhól — Sogamýri. Frá Félagi votta Jehóva 1 hefur Alþýðublaðinu borizt eftirfarandi athugasemd sem svar við grein Ólafs Ólafs- sonar kristniboða. Herra ritstjóri! VÉR HÖFUM LESIÐ með óumræðilegri ánægju smágrein þá, sem birtist í blaði yðar í dag varðandi votta Jehóva og bíblíufélagið „Varðturninn“. Vér leitumst ávallt við að koma á framfæri eftirgrenslan og rannsókn á boðunar. og prédik unarstarfi voru og kenningum þeim, er vér flytjum. Því er oft og tíðum þannig varið, að tómlæti og sinnuleysi á meðal fólksins veldur því, -að það verð ur fórnarlamb rangs áróðurs og óspnninda. Vér treystum því, að hin mjog svo frjálslynda og frelsisunnandi íslenzkaþjóð muni með ánægju heyra báðar hliðar á þessu máli og muni ekki í fljótfærni kornast að nið urstöðu fyrr en hún hefur heyrt báða aðilja. Það er yon, að þegar upplýsingar eru birtar um fé’agsskap vorn og starf- semi, þá séu allar fullyrðing- ar byggðar á staðreyndum, og állt, sem andstæðingi vorum liggur á hjarta, verði gert heyr inkunnugt. Vér höfum engu að leyna. Starfsemi vor þolir full- komna rannsókn, og vér erum glaðir, að einhver maður hefur að lokum ákveðið að vekja at- hygli fólksins á þessu málefni. Andstaða slík sem kemur fram í ritgerðinni í blaði yðar, er algeng í öllum löndum. Margir eru þeir, sem tala illa um oss. Að sjálfsögðu ber ekki að harma þvílíka mótstöðu sökum þess, að trúarbragðaleiðtogar og aðrir töluðu illa um höfund kristninnar og postula hans. Eitt er það, sem vér treyst- um, að andstæðingur vor geri. Og það er, að hann ræði um boðskap þann, sem vottar Je- hóva flytja nú til dags og kenn ingar þær, er vér boðum og eru birtar í bókinni „Guð skal reynast sannorður“. Einnig að hann taki ekki þann kostinn, að hlaða rógburði á og tala illa um framliða menn, eins og margir gera, sökum þess að þeir, seni gengnir eru til graf- ar, geta ekki svarað slíkum róg burði sjálfir, þótt vér getum talað fyrir munn þeirra. Til þess að almenningur sjálf ur komist í skilning um mál- efni það, er ..hér ’urn ræðir, vildum vér allra vinsamlegast hvetja lesendur þá, er hafa í fórum sínum bíblíukennslubók ina „Guð skal reynast sann- orour“ að lesa og rannsaka hana Þannig mun hann verða fær um að komast að niður- stöðu. Því a ðþegar á allt er litið, þá munu allir þeir, er játa Krist, vera sammála post- ulanum Páli, að „Guð skal reyn ast sannorður, þótt sérhver maður reyndist lygari“. Með þölík fyrir birtinguna. Reykjavík, 28. júlí 1951. Oliver A. Macdonald fulltrúi bíblíufélagsins „Varð- turninn“ unum fjórfaldasl FLUTNINGAR með flugvél- um Flugfélags íslands hafa aukizt all verulega á fyrstu sex mánuðum þessa árs, miðað við sama tíma í fyrra. Fluttir voru nú 10 326 farþegar eða um 26% fleiri en s. 1. ár. í innanlands- flugi voru farþegarnir 8 490, en 1 836 ferðuðust á milli landa. Vöruflutningar með „Föx- unum“ hafa næstum því fjór- faldazt það sem af er þessu ári, borið saman við sama tíma í fyrra. Á fyrra árshelmingi þessa árs fluttu þeir alls 254 770 kg af ýmiss konar varn- ingi, þar af 222 705 kg inrtan- lands og 32 065 kg á milli landa. Vöruflutningar fara nú varandi ár frá ári, og er allt útlit fyrir að þeir verði mun meiri á þessu ári en nokkru sinni fyrr. Póstflutnngar hafa rösklega tvöfaldazt frá áramótum til júníloka, og námu þeir nú 45 383 kg, en 20 689 kg á sama tíma í íyrra. Alþýðu- blaðinu! lesaBsncesa

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.