Alþýðublaðið - 14.10.1951, Síða 4

Alþýðublaðið - 14.10.1951, Síða 4
4 ALÞÝfHJBLAÐlÐ Sumfutlágur 14. oldóber 1351, Útgefandl: AlþÝöuflokkurinn. Ritstjóri: Stefán PjeturssoB. Auglýsingastjóri: Emilía Möller Ritstjórnarsími: 4901 og 4902. Auglýsingasími: 4906. AfgreiÖslusími: 4900. Menningarlegt land- kynningarslarf ÞAÐ eru góð tíðindi, að í ráði skuli að gefa út íslenzku fornritin á enskri tungu. Und- irbúningur þessarar útgáfu er þegar hafinn fyrir atbeina ís- lendinga og Breta, og munu ís- lenzkir og brezkir fræðimenn annast útgáfustarfið undir for ustu Sigurðar Nordals prófess- ors pg Turville-Petre norrænu kennara við Oxfordháskóla. Verða sögurnar gefnar út á ís- lenzku og ensku og þess gætt, að málið verði. aðgengilegt al- menningi í Bretlandi, en eldri þýðingar fornritanna á ensku hafa þann galla, að málið á þeim er fornt og torskilið al- þýðu raanna, Naumast mun þurfa að fara um það mörgum orðum, hvílík kynning fornbókmenntanna þessi fyrirhugaða útgáfa verði. Með henni er verið að opna undraheim norrænna fræða með þeim lykli, sem útbreidd- asta þjóðtunga Vesturlanda er og verður. Gildi hennar mun i ekki einskorðast við Bretland. | Útgáfan mun verða lesin og notuð af öllum áhugamönnum um norræn fræði utan íslands, sem skilja enska tungu. Hún mun ekki aðeins verða fræði- mönnum kærkomin, heldur er hún einnig líkleg til vinsælda meðal a’þýðu. Nú mun áhugi á norrænum fræðum meiri á Bretlandi en í nokkru öðru landi utan íslands, enda er Þýzkaland í sárum efti r heims styrjöldina og ósigurinn, en þar hafa íslenzk fræði löngum átt hauk í horni. Á Norður- löndum virðist ganga helzt til seint að vekja almennan áhuga á íslenzku fornritunum, enda þótt nokkrir snilldarmenn þar leggi stund á norræn fræði. 'fi Fornritin eru mesta framlag íslendinga til heimsmenning- arinnar og eins og kjörin til að vekja athygli útlendinga á landi okkar og þjóð. Þess vegna skiptir miklu máli, að þau fari sem víðast og kalli nafn ís- lands út um heim. Þessi fyrir- hugaða útgáfa fornritanna á ensku er því sannkö'luð menn- ingarleg landkynning. Smáþjóð, sem vill halda sæmd sinni og vera frjáls og sjálfstæð, ber heilög sky’da til að varðveita menningarerfðir sínar, og í því efni búum við íslendingar flest um öðrum betur. Og af áhuga á fornritunum leiðir að sjálf- sögðu forvitni á nýrri bók- menntum þjóðar, sem smíðaði slíkar andlegar gersemar í ár'j dögum sínum, landinu sjálfu og þjóðháttum. Sannast að segja hafa ís- Iendingar gert of lítið að því að reka þetta menningarlega landkynningarstarf út á við. Þó hefði sannarlega mörgum fjármunum verið verr varið síðan við urðum fjárráða og bjargálna. Við höfum tO dæm is ekki gert okkur nægilega Ijóst, að þekking útlendinga á fornritunum væri, okkur ómet- an’egur styrkur í baráttunni fyrir endurheimt handritanna, hinna þjóðlegu dýrgripa, sem hvergi eiga heima nema á ís- landi. Fáfræði og afskiptaleysi annarra þjóða er okkur ekki síður hætta í því sambándi en andúð eða tregða af hálfu þeirra, sem nú hafa handritin undir höndum og eru ófúsir að skila þeim á ný. Og sennilega höfum við einnig lagt of litla stund á að laða erlenda fræði- menn að landi okkar og þjóð. Á þessu sviði eigum við áreið- anlega mikið verk óunnið. Okk ur ætti ekki að skorta leiðtog- ana í þeirri menningarsókn, og vonandi láta ekki óbreyttu liðsmennirnir lengi á sér standa, þegar lúðurinn gellur. Hreyfiafl norrænna fræða á að vera almennur áhugi íslend- inga. ,Maður og kona' og jmyndunar- veikin komin úl í leikriiasafni menningarsjóðs TVO NY LEIKRIT eru kom- in út í leikritasafni menningar- sjóðs. Eru þau ,.Ma‘ður og kona“, alþýðusjónleikur, búinn fyrir leiksvið af Emil Thorodd- sen og Indriða Waage sam- Því er stundum haldið fram, íkvæmt hi=.ni frægu skáldsögu að norrænudeild háskólans ræki ekki hlutverk sitt sem skyldi. Á það skal engin dóm- ur lagður hér. Hitt er stað- reynd, að nú leggja fleiri menn og konur stund á norræn fræði en nokkru sinni fyrr meðal Jóns Thoroddsens, og „Imynd- unarveikin“, gamanleikur eftir Mo iére, þýddur af Lárusi Sig^ urbjörnssyni og Tómasi Guð- múndssyn. Lárus Sigurbjörnsson ritar eftirmála að báðum leikritum okkar íslendinga. Þó er hinn iþessum. Segir þar, að „Maður almenni áhugi á fornritunum !og kona“ hafi fyrst verið sýnt naumast slíkur sem vera þyrfti. Skólarnir eiga tvímælalaust sök á þessu eins og því, að á- af Lelkfélagi Reykjavkur 1934, en leikrit’ð hefur hlotið ein- stakar vinsældir hér í bæ og hugi unga fólksins á bókmennt ,víða úti á lanti. Hinn k’assíski um almennt virðist fara dvín- | gamanleikur. ..ímyndunarveik- andi ár frá ári, þrátt fyrir ; in“, var sýndur í fyrsta skipti lengdan skólatíma og síaukið jhér á landi 1886. Er það fyrsta skólabákn. Hér er. þó um að leikritið, sem hér er gefið út ræða- það, sem á og þarf að eftir Moliére, hinn mikla snill- vera grundvöllur menntar og ing leikritunar í heimsbók- menningar á Islandi; og bezta vörn tungunnar, þegar hættur steðja að henni úr öllum átt- um, er fagrar bókmenntir og lifandi bókmenntaáhugi. Og naumast verður heldur hjá því komizt að benda á, að hinni' vísindalegu útgáfu fornritanna hér heima miðar allt of hægt áfram. Auðvitað kemur ekki til má’a, að henni sé hraðað á kostnað nákvæmninnar. En við eigum svo mörgum norrænu- fræðingum á að skipa að ætla mætti, að aukinn skriður gæti komizt á þessa útgáfu, sem hlýt ur að verða ómetanleg í sam- bandi við aðrar útgáfur forn- ritanna, þar á meðal þá, sem nú er í undirbúningi á ensku. Við megum umfram allt ekki láta vera hljótt um þessi at- riði, því að deyfðin og sljó- leikinn getur leitt til dauða. menntunum. Áskrifendur að leikritasafn- inu, sem gefið er út í samvinnu við þjóðleikhúsið, fá leikritin við lægra verði heldur en í lausasölu. Ný sýning opnuð í Listvinasainum SÝNINGU þeirra Barböru og Magnúsar Árnasonar í Listvinasalnum lauk í fyrra- kvöld og hafði þá staðið í 10 daga og 20 myndir höfðu selzt. í dag kl. 1 opnar sa’urinn aftur með myndum eftir íslenzka listamenn eldri sem yngri, e’ns Okkar á milli sagt... BYGGINGARFÉLAG VERKAMANNA hefur nú í smíðum 80 fermetra íbúðir, sem munu ekki kosta meira en 160 000 krónur, og verður leigan í þeim með kjörum fé’agsins 500 krón- ur á mánuði *** Svipaðar íbúðir eru seldar á 220—250 000 kr. á frjálsum markaði, og þær eru leigðar fyrir 1500 krónur á mánuði *** Er það furða, þótt þingmenn Alþýðuflokksins berj- ist fyrir því að efla byggingu verkamannabústaða? Sigfús Sigurhjartarson fór í gær með Gullfossi áleiðis til Moskvu og Krímskaga, og er ætlunin, að hann fái bæði andlega og líkamlega heilsubót *** Jón Rafnsson hefur nú dvalizt alllengi austur á Rússland:- Vigfús „vert“ á Hreðavatni er ekki eini íslendingurinn, sem fer í hnattferð þessa dagana *** Heimskring’a segir svo frá: „Arthur Gook, trúboði frá Akureyri, var staddur ásamt konu sinni. frú Kristínu Steinsdóttur, í Winnipeg yfir síðustu helgi. Þau hjónin hafa verið á ferðalagi hringum hnöttinn nærri árlangt og eru nú á leið heim til íslands aftur. Á leið- inni héðan koma þau við á Bermuda og víðar.“ SKYLDUTRYGGING BIFREIÐA er nú 30 000 kr., en á iamkvæmt frumvarpi fyrir alþingi að hækka í 300 000 kr. *** Einn bifreiðarstjóri, sem tryggður var fyrir aðeins 30 000 kr., varð að greiða um 300 000 kr. í bætur til manns, sem varð fyrir bíl hans *** Af hækkun skyldutryggingar áætlar frum- varpið að iðgjöld hækki a. m. k. um 15%. BYGGJENDUR SMÁÍBÚÐARHÚSA ættu að athuga, a'ð ráðinn hefur verið sérstakur maður, Arinbjörn Þor- kelsson byggingameistari, til þess að fylgjast með bygg- ingunum og vera ráðunautur þeirra, sem á ráðum þurfa að halda v?ð byggingarnar. PÓSTÞJÓNUSTAN þarf að vinna upp 750 000 krónur og LANDSSÍMINN 3 150 000 krónur á næsta ári, og er sennileg- ast, að þetta fé verði tekið með hækkandi póst- og síma- gjöldum. Á AÐ KOMA myndastytta á Miklatorg? *** Það er nú verið að ljúka við malbikun torgsins, og vilja sumir sérfræð- ingar EKKI setja styttu á torgið til þess að trufla ekki athyg’i bílstjóra *** Hins vegar telja margir leikmenn sjálfsagt og hættulaust að setja styttu á torgið. FRAMSÓKNAEMENN eru nú byrjaðir „nýsköpun“ á Rannveigu, til þess að reyna að gefa henni örlitla von um að komast að aftur *** Eysteinn ákvéður að veita fé til bygginga, en lætur það ekki koma fram í fjárlögurium, heldur leyfir Rönku að bera fram sérstakt frumvarp um þáð! ÍHALDSFUNDURINN í Sjálfstæðishúsinu á dögunum var ekki eins glæsilegur og Morgunblaðið vildi vera láta *** Það var ekki fundarfært fyrr en klukkutíma of seint, og á eftir ræðum Bjarna Ben og Gunnars Thor talaði ekki ein'sál, svo að Ólafur Thors hljóp upp á senuna og sagði meðal annars, að Gunnar væri svo ágætur maður, að hann ætti skilið þennn hálfa mánuð suður í löndum! myndir uppi, m ánefna: Ás- grím Jónsson, Jón Engilberts, Jón Þorleifsson, Jóhannes Jó- hannesson, Kjartan Guðjóns- og alltaf er á milli sýninga. son, Kristínu Jónsdóttur, Nínu Meðal þeirra, sem nú eiga Trvggvadóttur, Kristján Dav- Vörn okursins í „blaði neytenda” ÞAÐ ER SÖK SÉR, að Vísir og Morgunblaðið, málgögn heild salastéttarinnar og hverskon- ar brasks, reyni að verja verzlunarokrið, sem þróast hefur í skjóli hinnar svoköll uðu „frjálsu verzlunar” síðan verðlagseftirlitið var illu heilli afnumið. Við öðru var varla að búast af þeim blöð- um. En á hinu höfðu menn tæpast átt von, að Tíminn, sem þykist vera blað kaupfé- lagsskaparins og þar með neytenda, teldi sér nauðsyn- legt vegna stjórnarsamstarfs ins við heildsalaflokkinn, að gerast verkfæri í höndum okraranna til þess að bera blak áf verknaði þeirra. * EN ÞAÐ ER engu að síður þetta sem gerzt hefur. Það líður varla svo öagur, að Tíminn reyni ekki að verja okrið eða afsaka á einhvern hátt. Og að vísu verður því ekki néit- að, að honum hljóti að renna blóðið til skyldunnar í því efni, þrátt fyrir allt glamur um neytendasamtök, sam- vinnu og bætta verzlunar- háttu, því að Framsóknar- flokkurinn var með hinu í- haldinu í því að afnema verð- lagseftir’itið og gefa verzl- unarokrinu lausan tauminn! EN HVAÐ ER ÞAÐ ÞÁ, sem Tíminn hefur helzt að segja okrinu til varnar. Jú, hann segir, að hér hafi verið svart- ur markaður í stjórnartíð Stefáns Jóhanns og honum hafi þurft að útrýma: og það hafi tekizt svo, að „verð margra vara sé nú lægra en það var á svarta markað- inum"! Þannig hefur Tíminn hvað eftir annað orðað vörn sína. Það á að sætta fólk við okrið í skjóli hinnar frjálsu verzlunar, að verð margra vara sé þó enn ekki komið upp fyrir svarta markaðsverðið á árum mesta gjaldeyrisskorts- ins og vöruskortsins! HVÍLfK VÖRN fyrir hið frjálsa okur! Auðvitað þegir Tíminn um það, að þrátt fyrir svartan markað í stjórnartíð Stefáns Jóhanns, sökum gjaldeyris- skorts og vöruskcrts, voru flestar, ef ekki allar nauðsynj ar, fáanlegar við skaplegu verði á löglegum markaði. Svo var skömmtuninni og verðlagseftirlitinu þó fyrir að þakka. En hvernig er það nú undir stjórn íhaldsflokkanna? Nú fæst engin vara lengur við skaplegu verði. Hið frjálsa okur síðan verðlagseftirlitið var afnumið, hefur hækkað allt verðlag í landinu upp í gamla svarta markaðsverðið, eða svo má það heita, eins og Tíminn sjálfur verður að við urkenna; enda má segja að gamli svarti markaðurinn hafi beinlínis verið löggiltur með bátagjaldeyrinum. — Það er ekki að furða, þótt Tíminn, sem þykist vera blað neytenda, sé upp með sér af slíkiun árangri hinnar svo- kölluðu „frjálsu verzlunar”! íðsson, Sig. Sigurðsson, Skarp- héðinn Haraldsson, Snorra Ar- inbjarnar, Valtý Pétursson og Þorvald Skúlason. Er hér um að ræða málverk, vatnslita- myndir, svartlist og teikning- ar, og flest nýjar myndir, sem ekki hafa sézt hér áður. Að venju er salurinn opinn dag- lega frá kl. 1 til 10 og er að- gangur öllum ókeypis. Allar myndirnar eru til sölu.- Um næstu helgi opnar List- vinasalurinn nýja sýningu, sem mun án efa verða um- deild sýning. Eru það nýjar myndir eftir Ásmund Svéins- son, bæði í tré og stein. Meðlimatala Listvinasalar- ins fer sívaxandi, enda er ár- gjaldið mjög lágt miðað við þan nfjölda sýninga og kynn- ingarkvölda, sem meðlimirnir fá fyrir árgjaldið. Fer hagur þessarar ungu stofnunar nú óðum að komast á traustan grundvöll. Rennistál ■ a Skurðarjárn f Rafsuðuvír. ■ m Slippfélagið sími 80123 •

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.