Alþýðublaðið - 31.10.1951, Page 8
Gerizt áskrifendur
að Aiþýðubiaðinu.
; Alþýðublaðið inn á
; bvert heimili. Hring-
ið í síma 4900 og 4906.
Börn og iinglingaf^
Komið og seljið !
Aiþýðublaðið
Allir vilja kaupa. !
Alþýðublaðiö
Miðvikudagur 31. október 1951
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Skorað á aila atvinnulausa að mæía
fil atvinnuleysisskráningar
-------*------
Aldrei meiri ástæða en nú til þess að
mæta tfl skráningar vegna atvinnuhorfa.
Á MORGUN befst a.vinnuleysisskráning í Reykjavík. og
fcr skráningin fram í ráðningarskrifstofu Reykjavíkurbæjar í
Bankastræti 7. Það eru eindregin tilmæ'i stjórnar fulltrúaráðs
verkalýðsfélaganna og atvinnuleysisnefndarinnar til allra, er
vinnulausir eru, a’ð j:eir látissekki undir höfúð leggjast að láfa
skrá sig.
Eins og áður hefur verið get j
ið í Alþýðublaðinu, skrifaði !
stjórn Fulltrúaráðs verkalýðs-
íélaganna í Reykjavík og at-
vinnuleysisnefndin, stjórnum
allra verkalýðsfélaga í Reykja
vík nýlega og' minnti þær á at
vinnuleysisskráningiina, sem
fram fer fvrstu dagana í nóvem
ber. Jafnframt var það brýnt
Blaðið Heims-
kringla 65 ára
VESTUR-ÍSLENZKA blaðið
„Heimskringla“ átti 65 ára af
mæli í september síðastliðn-
um, og af því tilefni var gefið
út sérstakt afmælisblað. Er þar
rakin saga Heimskringlu, getið
stofnunar blaðsins og byrjunar
örðugleika og fleira.
Fyrsta tölublað Heimskringlu
kom út 9. september 1886, og
var fyrsti ritstjóri blaðsins Frí
mann B. Anderssen, en alls
hafa ritstjórarnir verið 14 á
þessum 65 ára starfsferli
Heimskringlu, meðal þeirra
skáldin Gestur Pálsson og Jón
Ólafsson. Núverandi ritstjóri
Heimskringlu er Stefán Einars
son og hefur hann verið rit-
stjóri blaðsins samfleitt frá
1930, en áður frá 1921 — 1924.
fyrir stjórnum félaganna, að
be:ta sér fyrir því, hver í sínu
félagi, að atvinnulaust fólk í fé
lögunum mætti til skráningar-
innar, en það er mjö” þýðingar
mikið að engin, sem atvinnu-
laus er, vanræki að láta skrá
sig.
Oft þegar atvinnuleysisskrán
ing hefur farið fram befur ver
ið mikil tregða á því, að með-
limir verkalýðsfélagana hafi
látið skrá sig, þótt þeir væru
atvinnulausir. Þetta befur hins
vegar leitt til þess að atvinnu
leysisskráningin hverju sinni
hefur ekki sýnt rétta mynd af
atvinnuástandinu, og torveldar
það að sjálfsögðu aðstöðu beild
arsamtakanna gagnvart því
opinbera, þegar bornar eru fram'
kröfur um atvinnubætur af
hálfu ríkis eða bæjar, eða fyrir-
greiðslu þessara aðiia um að
greitt verði fyrir aukinni at-
vinnu.
Aldrei hefur þó verið ríkari
ástæða til þess en nú fyrir at-
vinnulaust fólk, að mæta til
atvinnuleysisskráningar, því að
atvinnuástandið er nú þannig
í bænum, að atvinnuleysi mun
nú vera meira en dæmi eru til
á sama árstíma um að minnsta
kosti 10 ára skeið. Er því fyrir
sjáanlegt að atvinnuleysi muni
verða mjög tilfinnanlegt í vet-
ur, ef ekkert verður aðgert nú
þegar.
Aflinn til sepfernberloka 72 þúsund
smál. meiri en á sama tíma í fyrra
-----.....
Aflinn nemur 329 698 smálestum; þar
af er síld 82 007 smálestir.
FISKAFLINN frá 1. janúar til 30. sepetember 1951 varð
alls 329 678 smák, þar af síld 82 007 smál., en á sama tíma 1950
var fiskaflinn 257 723 smál., þar af síld 46 474 smál., og 1949
v.ar aflinn 287 176 smál., þar af síld 64 286 smál.
h ' /
Fiskaflinn í september 1951
varð 22 528 smál., þar af síld
10 418 smál., en til samanburð-
ar má geta þess, að í september
1950 var fiskaflinn 20 463 smál,
þar af síld 11 966 smál.
Hagnýting aflans frá 1. janú-
ar til septemberloka var sem
hér segir, talið í smálestum (til
samanburðar eru setar í sviga
tölur frá sama tíma 1950):
ísvarinn fiskur 30 338 (26 802)
Til frystingar 83 120 (47 113)
Til söltunar 58 870 (96 526)
Til herzlu 6 440 ( 475)
I fiskimjölsverk-
smiðjur 67 313 (38 658)
Annað 2 590 ( 1 675)
Síld:
Til söltunar 19 450 (17 116)
Til frystingar 3 792 ( 4 949)
Til bræðslu 58 765 (24 409)
Þungi fisksins er miðaður
við slægðan fisk með haus, að
undanskilinni síld og þeim fiski,
sem fór til fiskimjölsvinnslu;
en hann er óslægður.
Landsljóri Frakka
í (ambodia
myrtur í gær
DU REYMOND, landsstjóri ’
j Frakka í Cambodia í Indó-Kína
I var myrtur á skrifstofu sinni í
i gær. Álitið er að hér sé ekki :
um pólitískt morð að ræða. held
ur hafi hann verið myrtur af
þjónustu marmi sínum sem j
hvarf eftir að morðið varð upp !
víst. Annar þjönn hefur verið
handtekinn.
Kielland hyllfur eflir
symfóníutónleik-
ana í gærkveldi
HVERT EINASTA SÆTI í
þjóðleikhúsinu var skipað í
gærkveldi er symfóníuhljóm-
sveitin hélt síðari tónleika sína
undir stjórn norska hljómsveit-
arstjórans Olavs Kielland; og
lófaklappinu ætlaði aldrei að
linna, að tónleikunum loknum.
Hljómsveitarstjórinn var hvað
eftir annað kallaður fram og
hylltur, en hann er nú á förum
héðan, — fer á fimmtudaglnn.
Viðfangsefni hljómsveitarinn
ar í gærkveldi voru: Hjalar-ljóð,
stórbrotinn forleikur eftir Ei-
vind Groven, eitt af fremstu
núlifandi tónskáldum Norð-
manna, hin undurfagra Hol-
bergsvíta eftir Grieg og hin
tryllingslega sjöunda symfónía
Beethovens, sem aldrei áður hef
ur verið leikin opinberlega hér
á landi.
Á meðal hinna mörgu áheyr-
enda í þjóðleikhúsinu í gær-
kveldi mátti sjá sendiherra
Norðmanna, Andersen-Rysst.
—--------»----------
Góðar aflasölur á
Bretlandi í gær
í GÆR seldu tveir togarar
í Grimsby, og náðu báðir á-
,gætri sölu. Júní úr Hafnarfirði
seldi 3538 kits fyrir 12 506
sterlingspund og Harðbakur
seldi 3481 kits fyrir 11 389
pund.
í fyrradag seldi Karlsefni í
Þýzkalandi 26614 tonn fyrir
10 327 pund, og ísborg seldi
æinnig í Þýzkalandi í fyrra-
dag, en ekki hefur enn frézt um
sölu hennar.
Slátrun tefsf vegna
valnavaxla
í FRÉTT frá Höfn í Horna-
firði segir að vegna rigninga
og vatnavaxta hafi bændum á
fjórum bæum í Lóni austan Jök
ulsár ekki tekist að reka fá sitt
til slátrunar í Höfn, og mun það
vera einsdæmi, að ekki sé bú
ið að slátra fé þar um þetta
leyti hausts. Slátrun fjár úr
nærsveitum Hornafjarðar er
hins vegar lokið.
Aívinnuleysi á Isafirði en togar- í
ar Isfjrðinga sigla með aflann! |
----------♦---——-— , ;
ATVINNULEYSI er nú á ísafirði, þótt bæjarstjórnin ;
gcri allt, sem í liennar valdi stendur, til þess að bæta úr >
því. Fjöldi fólks hefur leitað þaðan brott eftir atvinnu, ;
og þeir, sem heima eru, hafa ekki við ncitt að vera: ;
m
Landvinna hefur þar undanfarin ár aðallega byggzí ;
ó verkun og nýfingu bátafisks, en nú er aflaleysi á báta- «
mi'ðunum og enginn fiskur berst á land. Atvinnuleysi sjó- »
manná bætist því ofan á atvinnpleysi landverkafólks. ;
Beinasta leiðin til þess að lileypa fjöri í atvinnulífið ;
cr því sú, að togarar leggi þar afla á land. Mundu tveir 3
togarar nægja. í
Og tveir togarar cru einmitt gerðir út frá ísafirði. 3
Hvers vegna cru þeir eklci látnir leggja aflann upp heima, Ej
svo að ísfirzkt verkafólk fái að njóta vinnunnar v?ð að 3
verka hann? Eða finnst íhaldsmönnunum í stjóm útgerö- 3
arfyrirtækisins ísfirðings h.f. ef til vill ekki taka því að 3
ráða bót á atvinnuleysi bæjarbúa, þótt það sé gerlegt og 3
sennilega þeim sjálfum að skað’ausu? 3
Bæjarsfjórn Isafjarðar gerir
ráðsfafanir gegn atvinnuleysi
------•-----
BÆJARSTJÓRN ÍSA-
FJARÐAR hefur fengið 100
þús. kr. lán hjá Brunabóta-
félagi íslands til þess að
hægt sé að halda áfram
vinnu við lagningu vatns-
veitukerfis um bæinn og
bæta um leið úr hinu tilfinn-
anlega atvinnuleysi bæjar-
búa.
Hafa milli 20 og 30 menn
fengið vinnu við vatnsveitu-
lagninguna, en haldíð verður
látlaust áfram meðan tíð
lcyfir og verkið endist.
Þá hefur bæjarstjórnin
komið 20 mönnum til vinnu
á Keflavíkurflugvelli. Bæj-
arstjórnin leitast eindregið
við að draga úr atvinnuleys-
inu; en skapandi atvinnu’íf
liggur þar a'ð heita má i
dvala.
---------*----------
Nýt! leikrif effir DavíS
Stefánsson sýnl í
Þjóðfeikhúsinu
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ hefur
keypt sýningarrétt á nýju leik
riti eftir Davíð Stefánsson.
Þetta er stórbrotið skáldverk,
sem vekja mun mikla athygli.
Þjóðleikhúsið mun sýna leik
ritið eins fljótt og tök verða á„
Kvikmynd Lofts „Niðursefningur.
inn" frumsýnd á laugardaginn
NÆST KOMANDI LAUGARDAG ver’ður hin nýja kvik-
mynd Lofts Guðmundssonar ljósmyndara, „Niðursetningurinn11,
frumsýnd í Nýja Bíói. Þeta er litkvikmynd með tali og tónum,
gerð eftir samnefndri sögu og kvikmyndahandriti Lofts ljós-
myndara; Brynjólfur Jóliannesson annast leikstjórn.
Kvikmyndin tekur til með-
ferðar þjóðlífsmynd frá árun-
um fyrir aldamótin, eða um
miðja nítjándu öld, og segir
þar frá vist niðursetnings og
umkomulausrar stúlku á heim
ili, þar sem ekki ér mulið und-
ir þurfalinga og sveitarómaga.
Margt kunnra leikara fer með
hlutverk í myndinni, en Bryn-
jólfur Jóhannesson leikur aðal
hlutverkið. Önnur helztu hlut-
verkin leika þau Bryndís Pét-
ursdóttir, Anna Guðmundsdótt
ir, Jón Aðils, Jón Leós, Valur
Gíslason og Haraldur Á. Sig-
urðsson. Kvikmyndin, sem öli
gerist í sveit, sýnir og ýmissa
þætti sveitalífsins, og er leit-
azt við að allt umhverfi og frá
sögn sé með sem sannsöguleg-
ustum blæ, eftir því sem því
varð við komið.
Kvikmyndin er að mestui
leyti tekin að Hækingsdal í
Kjós, en þar stendur gömul bað
stofa. Var kvikmyndin öll tek
in í sumar, eins og áður hefur
verið frá skýrt í blaðinu. Fyrir
nokkru fór Loftur utan með
myndina til samsetningar, og
virðist það hafa vel tekizt.