Alþýðublaðið - 15.11.1951, Blaðsíða 8
Gerizí áskrifendur
að Alþýðublaðinu.
! Alþýðublaðið inn á
| hvert heimili.. Hrin'g-
( ið í síma 4900 og 4906.
Alþýðublaðið
Fimmtudagur 15. nóv. 1951
Börn og unglingaí
Komið og seljið J
Alþýðublaðið
AUir vilja kaupa. ]
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
uneytið fyrirskipar alhugun á
bæjarfélaga landsins
Framhald af 1. síðu.
hinn pilturinn einnig að berja
hann; en því næst tóku þeir af
honúm peningaveskið, en í því
fundu þeir 1900 krónur. Tóku
þeir peningana. en telja sig
hafa lagt veskið á brjóst manns-
ins.
Skildu þeir við^manninn áð-
ur en hann raknaði úr rotinu,
fóru og keyptu sér meira á-
fengi, leigðu síðan bifreið, óku
í ýmsum bílum um nóttiria og
komust meðal annars til Kefla-
víkur ásamt tveim öðrum pilt-
ism og tveim stúlkum. Þaðan
komu þeir morguninn eftir og
skildu við samferðafólkið.
Keyptu þeir sér því næst meira
vín og óku upp í Skíðaskála.
Þar létu þeir bílinn fara, en
létu annan sækja sig. Þegar í
bæinn kom fengu þeir sér mat
á matsöluhúsi, h'ittu þar tvær
stúlkur og óku þeim heim. Að
því búnu keyptu þeir enn eina
fæsku af áfengi og fórú með
„ hana til stúlku, er þeir þekktu;
en um kvöldið ætluðu þeir í
bíó. en voru þá svo drukknir,
að þeir treystu sér ekki þangað.
Sváfu þeir svo af nóttina heima
bjá öðrum þeirra, en morgun-
inn eftir kl. 7 voru þeir mættir
\;ið vínverzlunina og keyptu
þar áfengi, þegar opnað var.
Kéldu þeir síðan til Hafnar-
f jarðar og voru þar fram yfir
hádegi. IGukkan 5 í fyrradag
íóru þeir svo í Austurbæjarbíó
og héldu niður í bæ eftir kvik-
myndasýninguna; en þar lentu
þeir , flasinu á rannsóknarlög-
reglunni, og játaði annar á sig
ránið og árásina á manninn
strax í fyrrinótt; en hinn jótaði
í gærmorgun.
Sýndartillaga
íhaldsins sam-
þykkí í gær
' SÝNDARTILLAGA íhalds-
ins í húsnæðismálunum var
samþykkt á aiþingi í gær. Til-
lagan. frá minnihluta fjárveit-
ingarnefndar um að vísa sýnd-
artillögunni frá með rökstuddri
dagskrá var felld með 23 at-
kvæðum gegn 10. Tillagan var
síðan samþykkt með orðalags-
breytingu frá Páli Zóphónías-
sýni með 25 atkvæðum gegn 10.
Ekkert samkomulag
í Panmunjom
DEILUAÐILAR í Kóreu
liéldu fund í Panmunjom í gær,
en hann bar engan árangur. Á
greininsatriðið er enn sem áð-
ur það, hvar línar mill her-
sveitanna skuli dregin, þegar
vopnahléið komi til fram-
kvæmda.
Tilgangurinn er að draga úr úí-
gjöldum svo sem unnt er vegna
fjárhagsörðugleika bæjanna
FÉLAGSMÁLAtRÁÐUKEYTIÐ hefur með bréfi,
dagsettu 3. þ. m., lagt fyrir bæjarstjórnir allra kaup-
staða landsins, að láta nú í þessum mánuði framkvæma
athugun á rekstri bæjarsjóðanna og bæjarrekinna
stofnana með það fyrir augum, að draga úr útgjöldum
við re'ksturinn svo sem fært þykir.
í ágúst síðastliðnum ákvað
félagsmálaráðuneytið að hlut-
ast til um að láta slíka athijgun
fara fram fyrir næstu áramót,
enda hefur komið í 'jós, að kaup
staðirnir eiga flestir í veruleg
um fjárhagsörðugleikum. Á
fundi bæjarstjórr/nna fvrir
skcmmu komu fram tillögur og
áskoranir á ríkisstjórnina og
alþingi um að hlutast til um
að greitt yrði fram úr fjárhags
vandræðum kaupstaðanna með
ýmsu móti. Telur félagsmála-
ráðuneytið því fulla nauðsvn á
að gagnger athugun á fjárreið
um kaupstaðanna fari fram, áð
ur en sérstakar ráðstafanir þar
að lútandi séu gerðar
BRÉF RÁÐUNEYTISINS.
Um væntanlega tilhögun þess
arar athugunar segir svo í bréfi
ráðuneytisins til bæjarstjór-
anna:
„Ráðuneytið telur að athug-
un þessi verði bezt framkvæmd
með þeim hætti, að bæjarráð
eða fjárhagsnefnd velji þrjá
menn, er staðgóða þekkingu
hafa á málefnum kaupstaðar-
in í nefnd til þess að hafa athug
unina á hendi. Nefndinni ber
að afla sér nákvæmra upplýs-
inga um rekstur bæ/arsjóðs,
stofnana hans og ívrirtækja,
ræða við forstjóra og stjórnir
fyrirtækjanna og gera að því
búnu tillögur til stofnanana
sjálfra og bæjarráðs og fasta-
nefnda bæjarins um sparnað
í rekstri, eða breytir.gu og um-
bætur, sem nefndin telur rétt
að reyndar verði ril sparnaðar.
Það, sem stefna ber að, er
alhliða sparnaður í starfsmanna
h.'ildi, ,skrifstofukostnaði, bif-
reiðanotkun, húsnæði fyrir skri.f
stofur eða aðra starfsemi, sam
færsla á skyldum stoíuunum og
störfum og sérhvað annað er
hefur í för með sér beinan eða
óbeinan sparnað á fé fvrirtækj
anna eða bæjarsjóðsins.
Þá skal og látin fram fara
augmgæfileg athugun á því
með hverjum hætti ýmsum
stærri verkefnum, er bæjar-
stjórnin annast, svo sem gatna
gerð og viðhald gatna, götu-
hreinsun. sorphreinsun, bygg-
ingaframkvæmdir og annað
sem mikið fé kostar árlega,
verði bezt fyrir komið og kæmi
þar á meðal til álita hvort ekki
ætti að bjóða slík verk út í á-
kvæðisvinnu, a. m. k. að ein-
hverju leyti, ef því vefður við
komið. Ennfremur að athuga
gaumgæfilega frarnfærshikerf-
ið og sambandið milli þess ann-
ars vegar og Trygg í ngastofnun
ar ríkisins og sjúkrasamlagsins
hins vegar.
Þegar nefndin hefur lokið
störfum ber henni að skila bæj
arstjórn álitsgerð og tillögum
fyrir hverja stofnun sér.stak-
lega og fyrir bæjarsjóðinn í
heild. Bæjarstjórn skal svo, fyr
ir 15. des. n. k. taka afstöðu til
tillagnanna og senda ráðuneyt-
inu greinargerð sína ásamt upp
lýsingum um þann sparnað,
sem hún hefur ákvtðíð að fram
kvæma, og á grundvelli þeirra
tillagna sinna skal bæiarstjórn,
fyrir 31 des. 1951, hafa lokið
samningu fjárhagsáætlunar fyr
ir árið 1952.
Þegar bæjarstjórn hefur lok
ið samningu fjárhagsáætlunar
ber að senda ráðuneytinu á-
aetlunina, en það mun hér eftir
fylgjast betur með því, en ver
ið hefur til þessa, hvernig fjár
hagsáætluninni er íyigt
Bók eftir Ástu
Framhald af 1. síðu.
„Síðan „Líf og l:st“ birti
sögu hennar, Sunnudagskvöld
til mánudagsmorguns, í apríl
þessa árs, hefur margt og mis-
jafnt drifið á daga ungfrúarinn
ar. Hún hefur því frá mörgu
nýju að segja.
Ritið telur sér virðing að því,
að mega flytja þau tíðindi, að
von sé á bók eftir hana á næst
unni, sem hún hefur unnið að
í sumar og haust. Enginn efi
er á því, að með komu þeirrar
bókar veitir Ásta fersku og
heitu blóði inn í íslenzkt bók-
menntalíf, því að leitun er á
skáldsagnahöfundi, sem fer
jafnglæsilega af stað eins og
hún út á hina torsóttu og vand
rötuðu rithöfundarbraut.
Ásta er gædd þeirri ólgu, því
lífsmagni og þeim náttúru-
krafti, sem tilfinnanlega vant-
ar í ritverk unghöfundanna hér.
Framtíðin brosir við slíkri hæfi
ieikakonu á listasviðinu“.
Kaupgjaldsvísilalan
an hækkarum 5 slig
KAUPLAGSNEFND hef-
ur rciknað út kaupgreiðslu-
vísitölu fyrir nóvember
með tilliti til ákvæða 6. gr.
laga nr. 22/1950, og rcynd-
ist hún 144 stig, o? greiðist
á kaup frá 1. desember.
Hcfur vísitalan því hækk
að um 5 stig, en frá 1. scpt-
ember hefur hún verið 139
stig.
Kauplagsnefndin liefur
cnn fremur rciknað út vísi-
tölu framfærslukostnaðar í
Reykjavík hinn 1. nóvem-
her s.l. og reyndist hún 151
stig miðað við grunntöluna
100 hinn 1. marz 1950, og
hefur liækkað um tæpt eitt
stig, en síðast var hún
150,55.
Banaslys á Suð
landsbrauí
ÞAÐ SVIPLEGA SLYS varfS
síðdegis í gær á Suðurlands-
braut á móts við Vogahverfú
a'ð aldraður maður varð fyrir
bifreið og beið hana samstund-
is. Maðurinn hét Ingimar Jóns-
son, Ferjuvogi 19, 66 ára aS
aldri.
Ingimar var að koma meS
vörubifreið jir vinnu ofan úr
sveit. Sat hann í skýli ásamt
; öðrum mönnjun á palli bifrerð-
I arinnar. Hann fór út, er bif-
I reiðin nam staðar á Suðurlands
braut, og ók bifreiðarstjórinii
síðan af stað. Varð hann þá rétt
í þessu var við, að bifreið var
hemluð harkalega skammt frá,
og nam staðar aftur. Er að var
gáð, lá Ingimar örendur á göt-
unni. Hafði fólksbifreiðin R
1763 komið austur götuna og
Ingimar orðið fyrir henni, er
hann ætlaði yfir götuna. Bif-
reiðarstjórinn á fólksbifreið-
inni, kveðst ekki hafa séð
manninn, fyrr en rétt um leið
og hægri framhjólhlíf bifreið-
arinnar snerti hann.
Miklar umræðurum úfflufning
diikakjöfsins á alþingi í gær
------♦—----—
Kjötið innanlands á að læl^ka, ef útflutta
kjötið er selt hærra verði, segir Gylfi.
LANDBÚNAÐARMÁLARÁÐHERRA skýrði frá því k
alþingi í gær í svari við fyrirspurn Ilaraldar Guðmundssonar
um útflutning á dilkakjöti, að kindakjötsbirgðirnar í landinu
væru nú um 2750 tonn. Eru þar með talin 50 tonn fyrir
rýnlun og 200 tonn til útflutnings, sem þegar er ákve’ðinn til
viðhótar þeim 500 tonnum, scm búið er að flytja út. Raun-
verulega eru því ekki nema um 2500 tonn af kindakjöti eftir
,til neyzlu innan lands.
Haraldjrr Guðmundsson
benti á, að þetta væri stórum
minni birgðir til neyzlu innan
lands en undanfarin ár. Spurði
hann jrm það, hvort til mála
hefði komið að,flytja meira út
og hvort kjötskömmtun væri
fyrirhuguð, þar eð húast mætti
við skorti á kjöti. Fyrri spurn
ingunni svaraði ráðherrann
ekki beinlínis, en faldi ekki
þörf á kjötskömmtun, eins og
nú liti út.
Ráðherra upplýsíi, enn frem-
i ur út af fyrirspuj-n Haraldar,
J að fobverð útflutta kjötsins
( væri kr. 14,95 og fengju bænd-
ur af því kr. 13.00. Verð kiöts
á heimamarkaði væri, hins veg
ar kr. 11,00 til bænda. Hann
sagði, að bæði 1. og 2. flokks
kjöts væri flutt út, þótt sagt
hafi verið, eins og Haraldur
Guðmundsson benti á, að ein-
göngu væri flutt út valið kjöt.
Gylfi Þ. Gíslason, sem tal-
aði í þessum umræðum, spurð-
ist fyrir um það, hve mikið
væri þá flutt út af 1. og 2.
flokki, hvorum um sig; án upp
lýsinga um það væri ekki hægt
að átta sig fyllilega á verðinu.
Einnig spurðist hann fyrir
um það, hvaða áhrif þaS
hefði á verð kjctsins. imian-
lands, ef hærra vcrð fewgist
fyrir það, sem út væri fiutt.
Ef útflutningsvcrðið værí
hærra, ætti kjötvtrðið innan
larids að geta lækkaö að ó-
breyttum tekjum hænda. Og
ef betra kjöti væri flutt útr
en það, sem heinia vræri seltr
ætti kjötið einnig að lækka
innanlands a(f þeim ástæð-
um. Þessu sv^iði ráðherr-
an ekki.
Goðar söíur
— i
síðustu daga
UNDANFARNA DAGA hafa
íslenzkir togarar selt vel í
Bretlandi. í fyrradag seldí
Bjarni riddari 3613 kits fyrir
10809 stérlin/spund, Akurey
seldi í gær í Hull 3560 kits fyr
ir 10811 pund, og Egill rauði
seldi 3840 kits fyrir 9446 pund.
f gær seldi Helgafell í
Þýzkalandi 213 tonn fyrir 130
þúsund mörk.