Alþýðublaðið - 21.01.1945, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 21.01.1945, Blaðsíða 6
______________iðivýrn og uxn tima gat sv® Davíð Stefánsson fimmfuRiir i__________________________«L>T8U»UW» Fjórða forsefalímabil Roosevelts byrjað í giær tóik Roasevelt íortmlega við feitnsetaemi'þœ fctd Baraclaiúkjanna í íjc>rða siim. Em í þetta CTntrv er variaÆonseti hans annar, en áður, það er Harry Traman. Á myndinni sjást þeir hér hlið við hlið. HVAÐ SEGJA HIN BLÖÐEN Prh. af 4. síðu. aðeins hversdagslegt nafn, sem bregður fyrir í fundargjörð eða skýrslu. En af þeim fara annars engar sögur. Fámálugir staðfastir, skylduraeknir og tryggir reyndust þeir félagi sínu eins og öðrum. Aldrei níddust þeir á neinu því, sem þeim var trúað fyrir, Og félag ið þeirra hlaut lífsmátt sinn frá þeim. Það var þeirra kraftur, sem knúði fram sigrana, þolgæði þeirra og bjartsýn trúfesta sem bar ósigr- ana, Stilltir og æðrulausir þoldu þeir andstreymið. Verkakvérmafélagið Framsókn hefir átt marga af þessum ónefndu hermönnum, ekkert síður en önnur yerkalýðsfélög, og fyrir það þakka félagskonur nú og blessa minningu þeirra.“ Það eru ekki hvað sízt þess- ar ónefndu hetjur, sem hina jniklu sigra hafa unnið; og að feta í fótspor þeirra á að vera keppikefli hinnar yngri kyn- slóðar. Verkalýðshreyfingin iþarfnast þeirra nú engu síður en áður. Og enginn á frelsið og iréttlætið skilið nema sá, sem fyrir því berst. Eldhúsvaskar Handlaugar Fóllaugar Vafnssalerni Veggflísar hvítar og mislitar, fyTÍrliggjandi J. Þorláksson & NorSmann Bankastræti 11 Sírni 1280 IQQDQQQCOQOQC Ðtbreiðiö Alpfðublaðið XXXXXXXXXXXX Damaskinos Prh. 5. síöu os varð ekki kjörinn. Eftir að Þjóðverjar hernámu Grikkland, komu kirkjunnar menn sér saman um það, að biskupinn í Kórintu skyldi verða biskup í Aþenu. Fyrirrennara hans, Christanosi, erkibiskupi hafði verið vikið frá, sökum þess að hann hafði neitað að taka þátt í quislinga-stjóm Tsolakoglu hershöfðingja. Og Damaskinos neitaði því einnig, þegar til kom. Á þessum árum hernámsins varð vegur hans meiri en nokkru sinn fyrr. Og bústað- ur erkibiskupsins í Aþenu varð að höfuðvígi þeirra, sem mót- mæltu nazistastjórninni í land inu. Kirkjuhöfðinginn mótmælti hvers konar tilraunum til þess að brjóta á bak aftur þjóðernis tilfinningar Grikkja og styrkti hana eftir mætti. í umburðar- bréfum sínum sameinaði hann hinni kirkjulegu prédikun þjóð legan byltingaranda gegn yfir gangi nazista og benti þjóð sinni á eigin auð, fornan og nýj an, í bókmenntum og listum. Hann stofnaði kristilegan þjóðernisflokk (E.O.X.A.) og gaf sig sjálfan Þjóðverjum á hend ur sem fangi, í mótmælaskyni við morð Þjóðverja á pólitísk- um grískum föngum. Hann reis upp til varnar Gyðingum í Salóníki, þegar Þjóðverjar pynduðu þá og fangelsuðu. Persónuleg áhrif hans urðu með tímanum svo mikil, að á ráð- stefnu þeirri í Líbanon sem fram fór snemma á síðastliðnu ári, lögðu E.A.M.-menn það tií, að hann yrði ríkisstjóri Grikk lands. En reyndar var uppá- stungunni þá neitað. * En um þessar mundir var hann algjörlega ákveðin í hví að láta til sín taka í pólitísk- um deilum meðal þjóðarinnar meira en nokkru sinni fyrr. í læviblöin<jnu andx'úmisloftinu í &tjórn.má!ladeiLunum í Aþenu hljómuðu orð hans lág. og var- kár. Tækifæri hans til þess að verða leiðtogi þjóðar sinuar í valdastóli var undir því korniÖ, hversu vel honum tókst að hugsa erfcibiskup alhliða og frjálst með hag allr ar þjóðarinnar fyrir augum. — Og valdaferill hans hvílir á því sama unz yfir líkur. Fram að þessu hefir honum heppnazt vel þau áform, sem hann hefir tekizt á hendur. Sú staðreynd, að allir þeir flokkar, sem á annað borð vilja petta stjórnarfar í landinu. vilja hafá hann að foringja sínum, er éini vonarneistinn um það, að kom ast megi hjá blóðugri borgara- styrjöld og ógnaröld, sem svo oft hefir legið við í Grikklandi. Álykfun frá bindindis- málafundi í Grindavík BINDINDISMÁLA FUNDI, sem haldinn yar í Grindavík sunnudagínn 14 þ. m. að tilhlutun Umdæmisstúk- unnar nr. 1. var samþykkt eih- róma eftirfarandi ályktun: ,!Fund(urin,n telur að áfemgis neyzla íslendinga sé orðin slíkt þjóðairbcil1, að ekki verði við slfltt unað, og hinn mesti ósómi og skömm fyrir allan lamdslýð að eyða nú um 30 milljómum króna á ári í áifengi, meðan aðr ar þjóðir líða skorit og nauð. . Fumduirinn skorar á foryztu- krafta allra bindindi'S'sarrutaka í landinu að herða nú sókn og gera allt sem unnt er til þess að rá'ða bót á þeseu og að reyna að fá ssm flesta til þess að hafna áfenigimu og öllu því siðieysi og heimdilis'bctli, sem því fyigir. Jaifmfrairmt er skorað á alþmgi og ríkisistjórn að veita þesisiu al- vörunaáli athygli og að ge<ra rót tækar ráðisitafanir ti'l þess að losa landið við þamn óifögnuð, isem af áfengimu leiðir.“ Fundimn sátu um 140 manns og tóku til rmáls aork umdæmis templars þeir Ingimar Jóthann easion kennari, Pétur Sigiurös- &on erindneki, Jón Emgilberts- eon í Grindavík, Sigfvaldi S. Kaldalóns læknir og Guðmund- ur R. Ólafsson úr Grindavík. Frh. aí 4. afÖu. mýkt, syngjandi fögnuð. Og alls staðar fylgir hugur máli heili og óskiptur. Undir þessum öni tilfinningum logar funi mikilla skapsmuna og heits hjarta, svo að við skynjum þær í allri auð- legð sinni og ástríðumagni af óvenjulegum skýrleika, í per- sónulegri nálægð og uppruna- legri nekt. Þótt eigin geðhrif sé aflvaki flestra kvæðanna, fer því þó víðs fjarri, að tilfinningar beirra sé bundnar persónu skáldsins éinni saman. Þær eru ekki síð- ur víðfeðmar en margbreytileg- ar. í kvæðunpm kemur fram samúð með mörinunum, samvit- und með öllu því, sem lifir og finnur til, skyldleikakennd yið náttúruna, jörðina, moldina, jnóðurskautið. Og eins og yrkisefnin sjálf eru fjölskrúðug, er einnig margs háttar blærinn, sem yfir þau er brugðið. Hann tekur jafnt til djúprar alvöru, töfr- andi yndisþokka, beiskrar nepju og léttrar, leikandi kímni. Svo margir strengir eru á ljóðhörpu skáldsins frá Fagraskógi. En Davíð Stefansson hefur ekki einskorðað sig við kveð- skapinn. Hann hefur tekið höndum til allra höfuðgreina í riki skáldskaparins. Smásögur hans eru að vísu fáar, og leik- rit hans þrjú, sem hann hefur lagt við vaxandi alúð og natni, standa ótvírætt að baki beztu kvæðum hans og skáldsögunui Sólon Islandus, er birti nýjan og óvæntan þátt af gáfu hans og getu. Skáldið, er hafði tamið sér íþrótt kveðskaparins, gagn- orðs og hnitmiðaðs, setur saman langa sÖgu, veldur breiðri frá- sögn sundurlauss máls, skrifar hreimmikinn, samræman, vand- aðan stíl og skapar skýrar mannlýsingar, gæddar lífi og litum. Svo fjölbreyttum hæfi- leikum . er Davíð Stefánsson gæddur, þótt, hér sé ekki tóm til að gera því girnilega efni nein skil. En hvort sem yið lítum á gildi Davíðs fyrir bæinn, sem hann býr í, samtíð hans á ís- landi eða íslenzka skáldmennt, verður sýnt, hvílíku hlutverki hann hefur að gegna. Davíð sezt að á Akureyri skömmu eftir lát séra Matthí- asar. Það hefur sett mikinn svip á bæinn og orðið honum ómet- anlegur styrkur, að hann hefur nú í nærfellt sextíu ár lengst- um verið aðsetursstaður eins af höfuðskáldum þjóðarinnar. Og frá „ströndinni við yzta haf“ hefur rödd Davíðs lagt yf- ir landið, og hann hefur sungið sig svo inn í hjörtu íslendinga, að vafasamt er, hvort nokkurt íslenzkt skáld hefur jafnlengi átt jafnalmennum ástsældum að fagna af samtíð sinni. Þau ítök verða seint mæld eða veg- in. En á það má minna í því sambandi, að af sex kvæðabók- um Davíðs hefur hin síðasta verið tvíprentuð, en hinar fimm allar þríprentaðar, og tvisvar hefur verið gefin út skáldsag- an Sólon Islandus. Ekkert leik- sit hefur verið sýnt jafnoft á leinu og sama leikári hér k landí og Gullna hliðið, og ekkí minnist ég þess heldur, að ljóð- anæli nokkurs annars skálds £ íslandi hafi komið út í tveimus hejldarútgáfum, er skáldið stóffl á fimmtugu. Allt er þetta einstakt og furðulegt. En áhrif Davíðs taka einnig til sjálfra bókmennt- anna. íslenzk kveðskaparlist anun lengi bera þess menjar* að hann hefur plægt akur henn- ar, losað um jarðveginn, sv© að ekki er eins þétt að fræjurv um þjappað og áður, gróð- •ursett þar nýjar, safamiklar ilmjurtir og látið þær spretta eftir eigin vaxtarlögmálum. En mig langar sízt til að gera Davíð Stefánsson að neinni sögupersónu, er hann stendur nú væntanlega á miðju starfs- skeiði sínu og er á bezta þroska- aldri. Vonandi er óskapað jafn- mikið efni í sögu hans og þvl nemur, sem þegar er til. Ent eins og skáldskapur hans hefur hingað til verið, mun hann, ort- ur og ósaminn, lengi framvegis verða íslenzku þjóðinni yndis- auki og unaðsbót, hugsvölun og heilsulind. Steingrímur J. Þorsteinsson Grikkland ■ Frh. af 3. dðo. ÞÁTTUR grískra kommúnistai er ekki glæsilegur. Þeir taka þátt í stjórn landsins meÖ það eitt fyrir augum að ráð- ast aftan að samstarfsmönn- um sínum, þegar færi gefst. Churchill upplýsti einnig,, að þau vopn, sem Bretar hefðu látið til þessara mannar að sjálfsögðu án þess að vita, hvað undir bjó, hafi verið notuð til þess að granda her mönnum Breta, sem komu itil Grikklands til þess að aðstoða landsmenn í bar- áttunni gegn nazismanum, hinum sameiginlega óvini„ færa þjáðum lýð mat og vist ir. Gegn þeim og grískum samlöndum notuðu. kommún. istarnir vopnin; ekki gegn názistunum. Og slíkir menn þykjast vera að berjast fyrir þjóðfrelsi og lýðræði gegc. þýzka nazismanum. ---------T-------------- áuglýsing: Saumavélanálar, sauma- vélareimar, saumavélaolía, bezta tegund og gúmmi- 'hringar fyrirliggjandi. Magnús Benjamínsson & Co. §19 1 í Dodge, model 1940 Einnig 6 I o r í Fordson til söln Upplýsingar í síma 5733 /

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.