Tíminn - 07.01.1964, Qupperneq 4
i
f ■ ■' ,
ÍÞRDTTIr? ■ ÍÞRÚTTIF illlliii
1 _ RITSTJÓRI HALLUR SIMONARSON
Úrslit í 1 deild á íslands-
mótinu í handknattleik um
helgina:
Fram—FH
KR—Ármann
27:20
25:20
Staðan er þá þessi:
Fram 2 2 0 0 68:50 4
FH 2 1 0 1 56:52 2
Víkingur 2 1 0 1 35:35 2
KR 2 1 0 1 50:56 2
ÍR 2 1 0 1 50:60 2
Ármann 2 0 0 2 35:41 0
John Pennel, heimsmethaf-
inn í stangarstökki, fékk um
áramótin Sullivan-styttuna,
sem bezti áhugaíþróttamaður
Bandaríkjanna árið 1963.
Eins og kunnugt er, bætti
Pennel heimsmetið hvað eftir
annað síðast liðið ár og náði
bezt 5.20 metrum í lands-
keppni Bretlands og Banda-
ríkjanna í White City í Lund-
únum í ágúst. John Pennel er
fyrsti maðurinn í heiminum,
sem stekkur yfir sautján fet í
stangarstökki, hæð, sem flesta
bandaríska stangarstökkvara
hefur dreymt um. Pennel
hlaut yfirgnæfandi meirihluta
atkvæða í atkvæðagreiðslunni,
en þetta eru æðstu verðlaun,
sem áhugaíþróttamaður getur
hlotið í Bandaríkjunum.
INGÓLFUR ÓSKARSSON
var beztl maSur Fram t
leiknum á sunnudaglnn. —
Á MYNDINNI hér tll hllS-
ar sést hann skora eltt
hlnna ellefu marka sinna.
Hjaltl kom engum vörn-
um viS.
//
F.H. hlaut „knock out
í síðari hálf leiknum
Fram vann yfirburðasigur gegn F.H. -27:20
Alf-Reykjavík, 6. janúar.
Æsispennandi viðureign risanna Fram og FH' á sunnudagskvöld lauk með stórum sigri
Fram, sem skoraði 27 mörk.,gegn 20 FH-inga. Fram atfi sérlega góðan dag og lék sinn
bezta leik um langt skeið. Línuspil, hraði og öryggi — þetta þrennt sameinaði Fram af-
ar vel á fyrstu mínútunurrt í síðari hálfleik og það verkaði eins og vel útilátið „knock out"
á FH. Á þessum afdrifaríku mínútum í byrjun síðari hálfleiks, náði Fram sex marka for-
skoti, úr 12:12 í 19:13 og það var nokkuð, sem FH réði ekki við. — Einn öðrum fremur
var Ingólfur Óskarsson maðurinn á bak við þennan sigur Fram. Hann var inn á nær allan
leikinn og skoraði 11 af mörkum Fram. Að öðrum leikmönnum ólöstuðum, var hann lang- sínlj- En hann stóð vel fyrir sínu
og helt leiknuim vel niðn.
bezti maður vallarins.
Eins og vænta mátti var litli Ágúst og Ingóifur aftur. Staðan
1.
f MORGUN héldu hinir fimm
íslenzku skíðamenn, sem keppa
fyrir íslands hönd á Vetrar-Ol-
ympíuleikunum í Austurríki síð
ar i mánuðinum, utan. Með
þeim í förinni er Valdimar Örn-
ólfsson, en hann mun annast
þjálfun íslenzku sveitarinnar.
Hálogalandssalurinn troðf ullur,
þegar leikurinn hófst og ég reikna
fyllilega með, að áhorfendur hafi
fengið eitthvað fyrir aurana síua.
Það hitnaði heldur betur í glóð-
unum og dómarinn, Magnús Pét-
ursson, sem dæmdi mjög röggsam-
lega, vísaði samtals sjö leikmönn
um af velli um stundarsakir vegna
harkalegs leiks, fjórum leikmönn-
um úr FH-liðinu og þremur frá
Fram. Vítaköstin voru ekki skorin
við nögl, Fram fékk 11 vítaköst
og FH 3.
Taugaspenna yfirkeyrði leik-
menn beggja liða á fyrstu mínút-
um leiksins og það liðu þrjár mín-
útur áSur en mark var skorað. Það
var Ingólfur, sem skoraði fyrsta
markið — beint úr aukakasti —
en rétt áður hafði honum mistek-
izt vítakast, skaut í stöng. Fyrri
hálfleikurinn var mjög jafn, en
Fram var oftast yfir, eitt tii tvö
mörk. í fyrri háifleik jafnaði FH
stöðuna sex sinnum, en þegar hálf
leiknum lauk, hafði Fram eitt
mark yfir, 12:11.
Fyrstu 10 mínútur síðari hált’-
leiks voru þær þýðingarmestu i
öllum leiknum og á þeim voru úr-
slitin ráðin. Birgir jafnaði fyrir
FH 12:12, en nýliði Fram, Gylfi
Jóhannesson skoraði 13. marK
Fram. Ágúst Þór bætir 14. mark-
inu við, en Ragnar Jónsson skor-
ar 13. mark FH. Síðan komu fimm
mörk frá Fram í röð, Ingólfur
skoraði tvisvar sinnum í röð, þá
var 19:13, sex marka munur og
úrslitin ráðin. Þessi kafli leiksins
var skínandi vel leikinn af hálfu
Fram, er lék hratt og örugglega
og ógnaði með línuspili, sem gaf
nokkur vítaköst.
Spennan, sem legið hafði í lofv-
inu, dofnaði eftir þetta og þegar
yfir lauk hafði Fram sjö mörk yf-
ir, 27:20, en hefði óefað getað gert
sigurinn stærri með meiri vand-
virkni á síðustu mínútunum.
Framliðið með sínum taktisku
hliðum var greinilega betra liðið
í þessum leik. Það var liðinu mik-
ill stvrkur, að markvörðurinn, Þor
geir Lúðvíksson, var í essinu sínu
og varði vel, eins var vörnin í
styrkara lagi. Ingólfur Óskarsson
var aðalmaður Framliðsins og
hefur sjaldan átt betri leik, þóft
honum mistækist að skora úr 2
vítaköstum. Guðjón Jónsson og Sig
urður Einarsson voru einnig mjög
góðir svo og Ágúst og Jón Frið-
steinsson. Mörkin fyrir Fram skor-
uðu: Ingólfur 11, Guðjón 5, Ágúst
4, Sigurður E., Jón F., og Karl B.
2 hver og Gylfi 1.
FH gerði stóra skyssu í þessum
leik, sem vel má vera að hafi ver-
ið afdrifaríkari en í fljótu bragði
virðist, en það var að leika með
tvo „sentera" — og á köflum tvö-
falda vörn. Ekkert opnar betur fyr-
ir línuspil andstæðingsins en ein-
mitt þetta. Og skýringuna á 11
vítaköstuin, sem FH fékk næmd á
sig, má finna í þessu. Fram notaöi
línumennina óspart og þegar þeir
voru að búa sig undir að skjót.a,
þrifu FH-ingar í þá — og bein af-
leiðing voru vítaköst
Beztu menn FH í þessum leik
voru Ragnar og Hjalti í markiiiu,
sem m. a. varði tvö vítaköst- —
Mörk FH skoruðu: Ragnar 8, Birg-
ir 5, örn 3, Guðlaugur 2, Einar og
Páll 1 hvor.
Dómarinn, Magnús Péturssion,
var ekki öfundsverður af hlutverki
Þess má geta, að Fram og FH
mætast í síðari umferðinni 9. febr.
n. k. samkvæmt því, sem segir í
mótsskránni.
AUGL ÝSING
frá Bæjarsíma Reykjavíkur oq Hafnarfjarðar
Verkamenn vantar nú þegar viS jarðsímagröft.
Ákvæðisvinna. Enn fremur aðstoðarmenn við línu-
tengingar.
Upplýsingar gefa verkstjórar bæjarsímans Sölv-
hólsgötu 11, símar 22017 og 11000.
Starfsfólk
Konur og karlmenn óskast fii vinnu í frystihús
á Vestfjörðum. Ókeypis husnæði.
* 7 .
t
Upplýsingar í sjávarafurðadeild SlS sími 17080.
T I M I N N , þriðjudaginn 7. janúar 1963
r. /
r r
a i: