Tíminn - 15.01.1964, Síða 3

Tíminn - 15.01.1964, Síða 3
/ f SPÉGLITÍMANS LIÁLF MILLJÓN Ameríkubúa * * hafa nú keypt bókina, Kynd- illinn er útbrunninn, án þess a3 hafa séS hana. Þar er sagt frá morði Kennedys Bandaríkja forseta í myndum og texta. — Prentunin hófst fyrir þremur dögum og pantanimar voru í kringum 20.000 á dag. Þessi fyrirframsala hefur slegið öll met, en þegar er búið að þýða bókina á mörg tungumál og kemur hún út í flestum öðrum löndum heims. Bókin kemur út á vegum AP-fréttastofunnar og er prýdd AP-myndum og skrif- uð af blaðamönnum frá AP. í bókinni er hinztu ferð forsetans sem var til Dallas, nákvæmlega lýst og einnig förinni til baka, til Arlington-kirkjugarðsins. MINN 67 ÁRA gamli Indíána- * ’ höfðingi One Arrow er for- seti Sambands amerískra Indí- ána, og nýlega hélt hann ræðu í hreyfingunni, þar sem hann talaði um það, hve mjög tím- arnir hefðu breytzt. Nú borða flestir Indíánar þá kalkúna á þakkardeginum, sem hvíti mað- urinn hefur stolið frá þeim, sagði hann, og það sem verra er, ef ég sé Indíánakvikmynd í bældstöðvum okkar, þá æpa all ir Indíánadrengirnir upp yfir sig af hrifningu, þegar ame- rísku kúrekunum gengur vel, en skipta sér ekkert af hinum hugprúðu Indíánum. pú RUNU RANA og maður ■ hennar, Pradhyumna Rana hafa nú fengið skilnað og er það fyrsti skilnaðurinn, sem leyfður er í sögu Nepals, en þar eiga hjónin heima. Lög, sem heimila skilnað, gengu í gildi í Nepal í september síð- astliðnum og rétt á eftir lögðu þessi hjón inn umsókn sína. — Áður fyrr skildu hjónin ein- göngu að borði og sæng og konan hafði ekki leyfi til að gifta sig aftur, en maðurinn gat fengið sér aðra konu, þar sem fjölkvæni var leyfilegt, áð- ur en nýju Iögin gengu í gildi. TJ ÁRA GAMALL Þjóðverji, Herbert Sohellpfeffer var fyrir nokkrum dögum dæmdur í fjögurra ára fangelsi í bæn- um Draguignan í Suður-Frakk- landi. Afbrot hans var það, að hinn 16. september síðastliðinn brauzt hann inn á heimili kvik- imyndastjörnunnar Brigitte Bardot við Rivieruna og þegar austurríski hljómsveitarstjór- inn Herbert von Karajan kom honum að óvörum, gaf Herbert S honum glóðarauga. CTJÓRN spítalahverfisins í ^ Fredenberg í Danmörku fékk fyrir skömmu síðan þá snjöllu hugmynd, að koma á fót hárgreiðslustofu á spítalan- um fyrir kvensjúklingana. í Ijós kom, að ekkert rúirn var fyrir stofnunina í þeim húsa- kynnum, sem fyrir voru og var því afráðið, að byggja litla sjálf stæða byggingu við hlið spítal- ans. Hugmynd þessi hefur vak- ið svo mikla athygli að hundr- uð hárgreiðslukvenna og manna hafa sótt um að reka hárgreiðslustofu þessa upp á eigin spýtur. Þetta ætti að vera athyglisverð hugmynd fyr- ir spítala alls staðar í heimin- um. MIN 35 ÁRA gamla Elsie War- ’' ing, sem fannst með lífs- marki í kistu sinni, þegar starfsmaður líkhúss nokkurs, sem er í London, ætlaði að fara veita henni nábjargirnar, er nú látin. Hún var send frá spítala einum í London í líkhús- ið, þar sem það hafði verið stað fest opinberlega, að hún væri látin. En þegar starfsmaður lík ’hússins ætlaði að taka til starfa, heyrði hann látnu kon- una stynja. Það var strax kall- að á lækni, sem reyndi öndun- aræfingar og stúlkan var flutt á spítala, en allt kom fyrir ekki, því þó að þrír læknar væru yfir henni allan daginn, lézt hún um kvöldið. DARBARA HUTTON rekur ^ garðyrkju sína í miklum lúxusstfl. Til að hlífa ferskju- trjám þeim, sem eru á land- areign hennar í Californiu, við næturfrostinu, hefur hún látið þekja þau sobel — og minka- skinnum. Mikill her leynilög- reglumanna heldur vörð um þessi dýrmætu tré, en samt sem áður hafa sum skinnanna orðið þjófum að bráð. MINN NÝI forsætisráðherra * ’ Kenya, Joseph Murumbi, hefur nú lagt fram ný lög. — Framvegis á veiðimönnum í Kenya, að vera bannað að leggja dýr að velli með byssu. Þeir verða að láta sér spjót eða boga og örvar nægja. Hins veg- ar hefur Kenya verið eins kon- ar Paradís veiðimánna, en Mur- umi heldur því fram, að það þurfi ekki einu sinni hugrekki til þess að skjóta villidýr með byssu, þar að auki geti það ekki talizt íþrótt. Ef menn vilji sýna karlmennsku skuli draga fram boga og örvar eða spjót. KAÐ leit ekki út fyrir það, að * konurnar þrjár, sem skyndi lega urðu ekkjur við hinn hryllilega atburð í Dallas hinn 22- nóvember, mundu eiga gleði leg jól í vændum. Jacqueline Kennedy eyddi jólahátíðinni í kyrrþey á heimili tengdafor- eldra sinna, en eitthvað tilstand var samt haft vegna bamanna. Marie Tippit, ekkja lögreglu- þjónsins, sem skotinn var til bana, er hann var að rekja slóð morðingja Kennedys, eyddi síð- ustu helginni fyrir jól í það, að skreyta jólatréð ásamt böm- •j,m sínum, Allen, 14 ára,> Brendu 10 ára, og Curtis 5 ára. En á sjálfum jólunum yfir- gaf hún Dallas og heimsótti for- eldra sína og tengdaforeldra. í þeirri ferð lenti hún í bfl- slysi og skrámaðist smávegis á höfði. Á lögreglustöðinni í Dall- as hrúguðust upp bréf með pen MARIE TIPPIT ingagjöfum til Tippit-fjölskyld- unnar og á jólunum nam upp- hæðin $405.300. Allar Iíkur benda til þess, að upphæðin komist yfir hálfa milljón innan skamms. Þessi mynd af Eddie Fisher er tekin, þegar hann syngur „On the Street Where You Live“, í útvarpsstöðinni í Las Vegas. Hann á nú á hverjum degi von á því að heyra eitt- ■MMWniHMnM hvað frá lögfræðingum Elísa- betar Taylor, en þeir eru að undirbúa skilnað þeirra hjóna- Eddie skemmtir setn stendur á the Desert Inn í Las Vegas og segist vera mjög ánægður yfir því að fá skilnað. MARINA OSWALD Þótt undarlegt megi virðast, þá vom þessi jól ein þau dásam legustu, sem Marina Oswald, hin 22ja ára gamla ekkja morð- ingja Kennedys, hafði átt. — Hjónaband hennar og Harvey Oswalds hafði alltaf verið erf- itt. Á jólanóttina gat Marina farið til messu, en í fylgd með henni voru menn frá leyniþjón ustunni. Síðar hafði hún mikla ánægju af því, að opna 20 gjaf- ir, sem fjölskyldunni höfðu bor- izt, en þar á meðal voru 15 doll arar handa dætrum hennar tveimur. Marina heimsótti einn ig mág sinn, Robert Oswald, og heimsótti gröf manns síns. Marinu hafa annars verið gefn- ir 23.000 dollarar af góðviljuðu fólki, sem vill hjálpa henni til að byrja nýtt líf. CKYLDU íslenzkir drengir á- J líta skólagöngu sína eins dýrmæta og amerískir jafn- aldrar þeirra. f bænum Mart- insville í Indiana eru tveir drencir. sem krefjast tveggja milljón króna skaðabóta fyrir þriá daga sem þeim var mein- að að koma í skólann. .en það eru 18 kennslustundir. Ástæð- an fvrir banninu var sú. að skól inn hélt bví fram, að beir befðu brotið þá reglu. sem skólinn hafði sett um bað. að nemend- urnir mætt.u ekki koma akandi á sínum eigin hflum í «kólann. Strákarnir segjast ekki hafa brotið hessa reglu. bar sem heir hafi ekið á bifreiðastæðj, sem er marga metra frá sknlanum. en bað hafi ekki •---.mn f reglumim. TVÆR frægar amerískar kon- . ur hafa nú nýlega gift sig. Önnur er hin 17 ára gamla Sue Lyon, sú sem lék Lolitu, en eiginmaðurinn er Hampton Larnsden Fancher, 25 ára að aldri. Þetta er í annað skipti, sem hann giftir sig, en hann hefur undanfarið verið í f.vlgd með Sue, hvar sem hún hefur verið. Hih er milljónaerfinginn Gloria Vanderbilt. 39 ára göm- ul, og er hún að gifta si,g kvik- mynda-handritahöfundinum, — Wyatt Emory Cooper, sem er 39 ára gamall. Hann hefur með- al annars skrifað handritið að kvikmyndinni, The Chapman Report. Fyrri eiginmenn Gloriu eru leikarinn Agent Pat di Cicco, hljómsveitarstjórinn Leo pold Stokowski og leikstjórinn Sidney Lucnet. Þetta er í fyrsta hjónaband Coopers. „Traustir skulu hornsteinar" í áramótagrein, sem Páll Þorsteinsson, alþm. ritar í Austra, málgagn Framsóknar- manna á Austurlandi, segir m.a.: „fslendingar hafa bolmagn til að efla atvinnuvegi sína, m.a. með innlendum iðnaði, þótt út- 'lendingar séu ekki hafðir með í verki. — Og áfram verður haldið. En í þessu sambandi vakna spurningar: Hvar á land- inu verður síldariðnaðuirinn aukinn? Verður það gert í grennd við gjöfulustu síldar- miðin eða annars staðar? Verð ur ullin frá beztu sauðfjárrækt- arhéruðum landsins flutt suð- uir í þvott og til iðnaðar þar? Efling atvinnulífs er undir- staða íbúafjölgunar í hverjum landsfjórðungi. Orsakir þeirrar röskunar á byggðajafnvægi, sem orðin er, eru miklu fremuir þjóðfélagslegar aðgerðir, held- ur en þær, að landsgæðin hafi færzt til og fólkið flutt á eftir. Traustir skulu hornsteinar, ekki sízt undir þjóðfélagi og landsbyggð. í byggingu mann- virkis skal ríkja þungajafnvægi. Stórfelld röskun á landsbyggð er öllum íbúunum hættuleg, bæði þeim, sem eiga heima við Faxaflóa, og hinum, er búa á Austfjörðum eða Vestfjörðum, og þó þjóðarheildinni allri mestur háski. Höfuðborgin hvfl- ir á hornsteini í höfuðborg og kaupstað. Undan engum horn- steini má grafa og alla veirður að styrkja, jafnt, þegar bygg- ingin hækkar. Þetta er stað- reynd, sem enginn getur mælt í gegn með gildum rökum. Stéfnumunur „Viðreisnarstefna“ stjórnar- flokkanna hefur það að mark- miði að láta takmarkaða kaup- getu almennings vera skömmt- unarstjóra í þjóðfélaginu, diraga saman fé utan af landsbyggð- inni og ha'lda uppi háum vöxt- um. Fjármagnið á að leita þangað sem ve'ltan er örust og gróðalindirnar mestar og að- staða hinna auðugu til fram- kvæmda og viðskipta skal vera óheft af ríkisvaldinu. Á sama tíma eru framkvæmdir í þágu almennings taldar valda of- þenslu. Stefna Framsóknar- flokksins Framsóknarflokkurinn telur óhjákvæmilegt að setja þau takmörk á sviði efnahagsmála, að ríkisvaldið komi í veg fyrir hóflausa sóun gjaldeyris, s. s. tfl innflutnings bifreiða, sem hrúgast upp en seljast dræmt. Hann telur, að flokka verði framkvæmdir þannig, að það sitji í fyrirrúmi, sem er nauð- synlegast almenningi og þjóð- hagslega mikilvægast. Með stefnu sinni og starfi vill Fram- sóknarfl. beita sér fyrir því, að góðs lífsskilyrði séu hagnýtt og búseta tryggð íramvegis í öllum héruðum landsins og að- staða fólksins um gervallt land gerð sem jöfnust. Það á að vera auðveilt fyrir almenning að meta aðstöðu sína eftir þessum stefnumun. — Og rétt mat að þessu leyti hlýtur að vera hvatning til þess að veita Framsóknarflokknum vax andi brautairgengi.“ TÍMINN, miðvlkudaglnn 15. janúar 1964 —

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.