Tíminn - 15.01.1964, Blaðsíða 16

Tíminn - 15.01.1964, Blaðsíða 16
Ekkert skip fékkst fyrir Akraborgu, en viðgerð miSar betur en ætlað var Byrðinginn burt á bak og stjórn Seyðisfjörður ísi iagður 7-8 km út IH-Se/ðisfirði, 14. janúar. Seyðisfjörðu." er nú lagður eina «—8 km. frá kaupstaðnum, eða allt út að Hánefsstaðaeyrum. Und anfarið hafa vcrið miklar stillur Dýjavatnið notað við að slökkva húsbrunann KJ-Reykjavík, 14. janúar. UM KLUKKAN níu í morgxm kom upp eldur á bænum Álfsnesi á Kjalar- nesi. Eldsupptök voru í her- bergi á rishæð hússins, og mun líklegast hafa kviknað í út frá rafmagnsinntaki. Slökkviitðið í Reykjavík sendi tvo slökkviliðsbíla á vettvang og átta brunaverði. Var fyrst dælt vatni af bílun um, en síðan úr tjörn eða dýi, sem í er kaldavermsl, við túnfótinn í Álfsnesi._ — Brunadæla, sem er á Ála- fossi, var í viðgerð og kom því ekki að notum við slökkvistarfið. Er slökkvilið ið kom á vettvang, var búið að bera alla húsmuni úr kjallaranum og af hæðinni. Nokkrar sketnmdir urðu í herbergi því, er eldurinn kom upp í, en þar bjó Hilm- ar Helgason, og er hann hér á myndinni fyrir neðan. — Skemmdir urðu einnig af vatni í kjallara og á mið- hæðinni. í Álfsnesi býr Sig- urbjörn Eiríksson, veitinga- maður. Húsið í Álfsnési er byggt árið 1922, steinhús með timburinnréttinngu, kjallari, hæð og ris. (Ljósm.: Tím- inn-GE). á Seyðisfirði og frostið verið 3—5 siig, en í slíku veðri leggur fjörð- inn oft. ísinn er þó ekki mann- heldur. Einn bátur mun róa frá Seyðis- fiiði í vetur er það Auðbjörg, sem er um 11 lestir. Hún ætlaði í róð- ui í gærkvöldi. en komst ekki vegria íssins en i róðrinum á und- an hafði hún farið út klædd járn plótum til þess að verja sig fyrir isnum. ísinn nær alla leið út að Há- refsstaðaeyrum sem eru um 7—8 km. frá Sevðisf.arðarkaupstað. — Sjórinn er þarna ekki mjög salt- ur, þar eð fjórai ár renna í fjörð- inn, Fjarðará, Vestdalsá, Kolls- sraðaá og Söriastaðaá, og kemur því oft fyrir að fjörðinn leggur. Ekki er ísinn nannheldur, en í dag var enn 4 stiga frost, svo hann hefur heldur styrkzt. FIARÐARHEIÐI FÓLKSBÍLAFÆR! IH-Seyðisfirð., 14. janúar Fjarðarheiði er fær öllum bíl- um, og þykir það merkilegt, því si'ki og annað eins hefur ekki ge:-7t í fjölda mörg ár. Venjulega er heiðin ófær frá því í nóvem- ber ug fram f júní, en í vetur hafa jafnvel biiksbílar getað ek- ið tim heiðina greiðlega. Aðeins hafa verið farnai 3—4 ferðir um Fjarðarheiði í snjóbíl á vetur. Hádesfisklúbburínn — kemur saman í dag f Tjarnar- götu 26A á sama stað og tíma og venjulega. KJ-Reykjavík, 14. janúar. VIÐGERÐ á Akraborginni miðar vel áfram, og er jafnvel búizt við, að henni verði lokið um mánaðamótin, eða miklum mun fyrr en gizkað hafði verið á. Fréttamaður blaðsins fór í dag niður í Slipp, þar sem Akraborgin stendur uppi. Frið- rik Þorvaldsson, framkvæmda- stjóri Skallagríms h.f., var staddur um borð í skipinu og fylgdist með viðgerðinni. — Viðgerðinni miðar vel á- fram, Friðrik? — Já, það má segja, að hún gangi vel og miklu betur en ég bjóst við. Eins og þú sérð, þá þurfti að rífa byrðinginn á löngum kafla, bæði á bakborða og stjómborða. Síðan var farið í að að rétta uppistöðurnar, sem höfðu bognað mikið báðum megin, auk þess sem þiljurnar að innan sprungu. — Þið hafið ekki getað útveg- að nýtt skip, meðan viðgerð stendur yfir. — Nei, það er vont að fá gott skip á þessum tíma árs. — Öll skip, sem fanþegum er bjóðandi upp á, em upptekin, og ekkert að hafa nema gömul skip, sem ekki hæfa í þessar ferðir. J Hljóðfæraleik- arar í verkfall á laugardag? KJ-Reykjavík, 14. janúar. VERKFALL hljóðfæraleikara skellur á frá og með 18. janúar, þ. e. á laugardaginn, hafi samning- ar ekki tekizt fyrir þann tíma. Sáttafundur var i gær, og annar fundur er boðaður á morgun. Eitt- hvað hefur þokast í samkomulags átt á fundum með deiluaðilum að undanförnu. Hljóðfæraleikarar munu leika á föstudagskvöldið eins Framhald á 15 siðu SJÓDÖMUR HALDINN EYJUM í GÆR OG DAG FB-Reykjavík, 14. jan. i Vesmannaeyjum I máli Ágústu VE í dag var haldinn sjódómur í 1350, sem sökk á Síðugrunni á sjötta tímanum í gærmorgun. Réttj urinn hófst kl. 10 í morgun og lauk ki. kortér fyrir sjö í kvöld. Höfðu þá allir skipverjar verið yfirheyrðir. Á moirgun verður rann sakað mál Hringvers VE-393, sem einnig sökk á Síðugrunni á sama tíma og Ágústa. Guðjón Ólafsson, skipstjóri á Ágústu, bar fyrir réttinum, að hann hefði fyrst kastað um 8-leyt- ið á sunnudagskvöld, en þá voru þeir staddir um 24 sjómílur SV af Ingólfshöfða. Var lokið að háfa fyrir kl. 1 um nóttina, og voru þá komnar um 400 tunnur síldar í lest. Klukkan 20 mínútur fyrir 3 köst uðu þeir aftur á ávipuðum slóðum og gekk allt vel. Fylltu þeir lest, j og voru þá komnar 600 tunnur í lest og auk þess um 200 tunnur; úr nótinni á dekk. Var þessi síld sett á miðdekk og bar skipstjórinn fyrir réttinum, að enginn hallii hefði verið á bátnum og ekki um I skammdekkshleðslu að ræða. Sagð ist skipstjórinn áður hafa látið 1100 tunnur í bátinn og það geng- ið vel. Þegar hér var komið, kom kokk urinn til skipstjórans og sagði hon- um, að sjór væri kominn upp um lúkarsgólfið. Var þá hætt að háfa, og skipstjóri leit niður í vélarrúm- ið og sá, að sjór var kominn upp undir skrúfuöxul. Báðar dælurnar voru þegar settar i gang. en þær höfðu ekki við, og einnig jusu skipverjar á dekki, en allt árang- urslaust. Skipstjórinn setti nú á hálfa ferð í áttina að EUiða frá Sand- gerði, sem var þarna skammt frá Framhaic a lb síðu Unglklúbbur FUF Skemmtun fyrir eldri meðlimi klúbbsins verður í Glaumbæ í kvöld, miðvikud. 15. þ. m. og hefst kl. 8,30. Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti. — Góð hljómsveit. — Stjórnin. ■I t i n i r

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.