Tíminn - 18.01.1964, Blaðsíða 3

Tíminn - 18.01.1964, Blaðsíða 3
Sokkaverksmiðjan tekin til starfa Styrkir Vísinda- sjóðs VÍSINDASJÓÐUR hefur auglýst styrM ársins 1964 lausa til umsókn- ar. Sjóðurinn skiptist í tvær deild- ir: Raunvísindadeild og Hugvísinda- deiíd. Formaður stjórnar Raunvís- indadeildar er dr. SigurSur Þórarins- son jarðfræðingur, en formaður stjórnar Hugvísindadeildar dr. Jó- hannes Nordal bankastjóri. Formað- ur yfirstjórnar sjóðsins er dr. Snorri Hallgrímsson prófessor. Raunvísindadeild annast styrkveit- ingar á sviði náttúruvísinda, þar með taldar eðlisfr. og kjarnorkuvísindi, efnafræði, stærðfræði, læknisfr., líf- fræði, lífeðlisfræði, jarðfræði, dýra- fræði, grasafræði, búvísindi, fiskifr., verkfr. og tæknifræði. Hugvísindadeild annast styrkveit- ingar á sviði sagnfræði, bókmennta fræði, málvísinda, félagsfræði, lög- fræði, hagfræði, heimspeki, guð- fræði, sálfræði og uppeldisfræði. Hlutverk Visindasjóðs er að efla ísl'enzkar vísindarannsóknir, og í þeim tilgangi styrkir hann: 1) einstaklinga og vísindastofnanir vegna tiltekinna rannsóknarverkefna 2) kandídata til vísindalegs sér- náms og þjálfunar. Kandídat verður að vinna að tilteknum sérfræðileg- um raiinsóknum eða afla sér vísinda- þjálfunar til þess að koma til greina við styrkveitingu, 3) rannsóknastofnanir til kaupa á tækjum, ritum eða til greiðslu á öðrum kostnaði í sambandi við starfsemi, en sjóðurinn styrkir. Umsóknarfrestur er til 10. marz næstkomandi. Umsóknareyðublöð, ásamt upplýs- ingum fást hjá deildariturum, á skrifstofu Háskóla íslands og hjá sendiráðum íslands erlendis. Deildaritarar eru Guðmundur Arn- laugsson menntaskólakennari fyrir Raunvísindadeild og Bjarni Vil- hjálmsson skjalavörður fyrir Hugvís- indadeild. FYRRI HLUTA vetrar var flutt pr í Ríkisútvarpinu erindaflokkur um Árna Magnússon, ævi hans og störf. Síðari flokkur sunnudagser- indanna, sem hófst á sunnudaginn yar, er um hverasvæði og eld- fjöll. Verða það 11 erindi og lýk- ur síðast í marz. Dr. Sigurður Þór- arinsson hefur skipulagt flokkinn. Erindin og flytjendur þeirra eru þessir: Trausti Einarsson: Geysissvæð- ið — 12. jan. 1964. Jón Eyþórsson: Kerlingarfjöll: 19. jan. 1964. MÖRG undanfarin ár hefur fs- lenzk-ameríska félagið haft milli- göngu um að aðstoða unga menn og konur við að komast til Banda- ríkjanna til starfsþjálfunar. Er þessi fyrirgreiðsla á vegum The American-Scandinavian Foundati- on í New York. Höfuðtilgangurinn með þessum ferðum er, að menn geti aflað sér aukinnar þjálfunar og kynnt sér nýjungar í starfs- Fyrir nokkrum dögum hóf sokkaverksm'Sjan Eva á Akra rtesi framleiðslu sína, en hún er fyrsfa verksmiðjan hér á landi, sem framleiðir nælon- ^okka. Forsfióri verksmiðj- •jnnar er Ragnar Sigfússon, en framkvæmdastjóri Ingi Þorsteinsson Framleiðsla verksmiðjunnar er auðvitað ennþá í smáum stíl, en er bæði seld á erlendum og inn- lendum markaði. Það var fyrst fyr- ir tveimur árum, að Ingi Þorsteins son, framkvæmdastjóri verzlunar- innar, heimsótti erlendar sokka- verksmiðjur með það í huga, að setja slíka verksmiðju á stofn hér heima. Akranes varð fyrir valinu, þar sem lítið er um annan léttan iðn- að þar og fékk verksmiðjan 10 vél ar frá Tékkóslóvakíu, en þaðan þykja þær einna beztar. Rekstur verksmiðjunnar hófst fyrstu dag- ana í janúar, en með vélunum kom tæknifræðingur frá verksmiðjunni og mun hann dveljast hér í tvo mánuði. Þráðurinn í sokkana er fluttur KI-Eskifirði, 14. janúar. VERTÍÐ er nú hafin á'Eskifirði, en þaðan verða í vetur gerðir út 5 bátar, Vattarnes, Seley, Jón Kjartansson, Guðrún Þorkelsdótt- ir og Steingrímur trölli. Eru bát- ar þessir af stærðinni 150 til 280 lestir. Jón Kjartansson, er kom til landsins á Þorláksmessu, er þeirra stærstur. Bátarnir lögðu upp í sína fyrstu veiðiför miðviku daginn í síðustu viku, en þeir stunda útilegu og sækja yfirlejtt suður í Meðallands- og Mýrarbug, en það er 16 til 18 stunda sigling Guðmundur Kjartansson: Eld- stöðvar á Kili — 26- jan. 1964. Hallgrímur Jónasson: Hveravell- ir — 2. febr. 1964. Ólafur Jónsson: Brennisteins- hverasvæði í Þingeyjarsýslu — 9. febr. 1964. Jón Jónsson: Hverasvæði á Reykjanesi — 16. febrúar 1964. Kristján Sæmundsson: Hengils- svæði — 23. febr. 1964. Sigurður Þórarinsson: Grímsvötn — 1. marz 1964. Magnús Jóhannsson: Kverkfjöll — 8. marz, 1964. grein sinni. Um margs konar störf er að ræða, en nú er einkum leit- að eftir umsóknum um ýmis störf í landbúnaði og garðyrkju, Myndi starfstímabilið hefjast á vori kom- anda og vara 12—18 mánuði. Nauðsynlegt er, að umsækjandi hafi talsverða reynslu í starfsgrein sinni, og hann verður að hafa sæmi iegt vald á enskri tungu. Að jafn- inn frá Ítalíu og talinn sá bezti, sem völ er á í Evrópu, en fyrst um sinn hefur verið samið við sokkaverksmiðju í Belgíu um að taka að sér litun og innpökkun á sokkunum. Því fylgir sá kostur, að útlendir sérfræðingar fylgjast með framleiðslunni fyrstu mánuð- ina, því fyrr en síðar mun verk- smiðjan á Akranesi sjálf taka að sér litun og pökkun, en gæði ís- lenzku sokkanna ættu að vera jafn mikil og annarra nælonsokka. Þess má geta að Ingi Þorsteins son hefur teiknað umbúðir Evu- sokkanna og þykja þær mjög fal- legar. W- du Veylder, forstjóri belgísku sokkaverksmiðjunnar, sem mun taka að sér litunina og innpökkunina hefur dvalizt hér á iandi í nokkra daga, til að kynna sér verksmiðjuna, og sagðist hann ætla, að hún hefði öll skilyrði til að framleiða fyrsta flokks vöru. Hann er fulltrúi lands síns í heimssambandi nælonsokkafram- leiðanda og einn af fimm stjórnar mönnum þess. Það er þetta sam- band m. a., sem ákveður nokkrum mánuðum fyrirfram, hvernig sokka tízkan verður þetta og þetta miss- frá heimahöfn. í dag kom svo fyrsti báturinn aftur heim. Var það Vattarnes með 20 lestir. — Höfðu gæftir verið mjög stopular síðan bátarnir fóru út. Er hér mið •að við aðgerðan fisk með haus. í fyrravetur voru 4 bátar gerðir út frá Eskifirði, og má segja, að vertíð hafi þá tekizt allvel. Afla- hæsti báturinn þá var Vattarnes með 720 lestir af aðgerðum fiski með haus. Útlit er fyrir mikla vinnu á Eskifirði í vetur, en skort ur er fyrirsjáanlegur á kvenfólki og flökurum í frystihús. Jón Jónsson: Hverasvæði í Borg- arfirði — 15. marz. 1964. Sigurður Þórarinsson: Eldstöðv- ar í sjó og Surtur — 22. marz ’64 Þessi sunnudagserindi útvarps- ins eru orðin mjög vinsæl. — Er reynt að láta skiptast nokkuð á verkefni úr hugvísindum og raun- vísindum og hefur margt nýtt og skemmtilegt komið fram í þeim og merk og erfið viðfangsefni sett fram í lipran og aðgengilegan hátt. Sum erindin hafa eftir á verið gef- in út í bókum, s.s. Vísindi nútím- ans og Náttúra íslands. aði skulu umsækjendur ekki vera yngri en 22 ára. Fá starfsmenn grejdd laun, er eiga að nægja fyr- ir dvalarkostnaði, en greiða sjálf- ir ferðakostnað. Nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu Íslenzk-ameríska fé- lagsins, Hafnarstræti 19, 2. hæð, þriðjudaga kl. 5—6 e. h. (sími: 17266). erið. Er það ómetanlegt gagn fyrir verksmiðjuna, að hafa samband við slíkan mann. Framleiddar verða allar venju- legar gerðir nælonsokka, auk iykkjufallslausra sokka og crepe- sokka, en verðið hefur ekki verið ákveðið ennþá, þó að það muni verða fyllilega samkeppnisfært við erlenda verðálagningu. Forseta gefnar bækur Reykjavík, 16. janúar 1964. Sendiherra Bandaríkjanna James K Psrtfield heimsótti forseta íslancis 10. janúar og afhenti honum að gjöf vfir hundraS amerískar bækur, tr bandaríska bóksalafélagið hefir gefið hingað. Skýrði sendiherrann frá, að sams konar bókagjafar væru afhent ar þjóðhöfðingjum ýmissa annarra Janda, sem sýnishorn bandarískra bókmennta og menningar. Hefur bandaríska bóksalafélagið á fjögurra ára fresti, síðan 1929, gefið bækur til Hvíta hússins í Washington, en ákvað árið 1962, með vitund þáverandi forseta Bandaríkjanna, John F. Kennedy, að þjóðhöfð. ýmissa ríkja skyldu einnig sendar bókagjafir á svipað- lan hátt og' gert hefur verið til Hvíta hússins. Forsetinn þakkaði þessa veglegu gjöf og skýrði sendiherranum frá, að bækurnar myndu varðveittar í bókhlöðu þeirri, sem nú er verið að reisa á forsetasetrinu að Bessa- stöðum. Bækurnar eru til sýnis á bóka- sýningu þeirri, sem Upplýsinga- þjónusta Bandaríkjanna hefur í Þjóðminjasafninu og verður opnuð í dag.________________ Skemmtun í London HIN ÁRLEGA jólatrésskemmt- un Félags íslendinga í London var haldin laugardaginn 28. des. í May fairia Rooms. Mættu á skemmtun- inni 45 börn og 40 fullorðnir. Hófst skemmtunin á því, að dans var stiginn umhverfis fagur- lega skreytt jólatré. Voru að vanda sungnir íslenzkir og enskir jóla- söngvai við undirleik Jóhanns Tryggvasonar. Þá voru fram bornar veitingar en því næst sýndi töframaður list- ir sínar við gífurlegan fagnað hinna ungu áhorfenda. Þó náði eft- irvæntingin hámarki sínu, þegar íúðraþytur boðaði komu jólasveins ins. Var hann kominn um langan veg, alla ieið frá íslandi, og hafði meðferðis fuilan poka af hinum ágætustu gjöfum. Bar hann hin- um ungu gestum kveðjur og jóla- óskir frá jafnöldrum þeirra á ís- landi og lék við hvern sinn fing- ur. Að skemmtuninni lokinni fengu liinir ungu gestir munngæti og blöðrur í nestið. I ERINDAFLOKKUR UM HVERASVÆÐ! 0G ELDFJÖLL Starfsþjálfun í landbúnaði Vertíft hafin á Eskifírði TÍMINN, laugardaginn 18. ianúar 1964 — „Herra Einar" og hans menn í síðasta tölublaði Dags á Ak- ureyri segir þetta m.a.: „Áramótahugleiðingar EinaTs Olgeirssonar í Þjóðviljanum fjalla að verulegu leyti um verkföllin í vetur. Það vekur strax athygli hve fáorður hann er um hið illræmda kaupbind- ingarfrumvarp ríkisstjórnar- innar. Ilelzt er á honum að skilja, að einhverjir vondir at- vinnurekendur hafi komið Ól- afi Thors og Bjarna Benedikts- syni til að bera þetta frumvarp fram á Alþingi. En í sambandi við uppgjör stjóirnarinnar 9. nóv. faar Ólafur hið mesta 'lof hjá þessum fornvini sínum. Einar Olgeirsson segir, að þessi „gæfudagurinn", sem hann svo nefnir, hafi fyrst og fremst verið tveim mönnum að þakka: Síðu-Hallur „— — Ólafi Thors, hinum aldna, reynda og slynga for- ingja íslenzkrar auðmannastétt ar ,er kaus að láta sáttairverkið verða sitt síðasta handtak sem forsætisráðherra — og Eðvarð Sigurðssyni formanni Dagsbrún ar, hinum trausta, forsjála og gifturíka forystumanni íslenzkir ar verkalýðshreyfingar, hikaði ekki við að fara að dæmi Halls á Síðu og semja við foringja andstæðinganna er þjóðinni reið allra mest á“ (orðrétt). Það fór nú raunar svo, að hvoirki „sáttarverk" hins aldr- aða, reynda og slynga foringja, né andi Síðu-Halls gátu komið í veg fyrir desemberverkfallið. Bjama-þáttur Um þetta verkfall verður E. O. nokkuð tíðrætt, en aðeins ein ný persóna kemur þar til sögunnar Hannibal, Lúðvík og Björn eru þar ekki nefndir á nafn og munu þó hafa látið þessi mál nokkuð til sín taka. En um þetta leyti var arftaki Ólafs Thors, Bjarni Benedikts- son, kominn til sögu, sem for- sætisráðherra, og samúð „herra Einars*' virðist hafa fýlgt arf- leifðinni: „Hvorki skortir Bjarna Bene- diktsson gáfurnar né sóknar- hörkuna til að fylgja fram því, sem hann álítur rétt eða vitur- legt eða hvort tveggja,“ segir E. O. „En öfl voru að verki, sem vildu gera hinum nýja foringja sem erfiðast að feta í fótspor fyrirrennara síns á sátta brautinni.“ Arftekinn sáttuhug- ur hins nýja foringja og andi Halls á Síðu fundu þó að lok- um íausn mála, samkv. frásögn Einars. „Þótt enn sé eftir að uppskera ávexti þeirra sátta, er þá var sáð ti!“ þ. e. 9. nóv. Einnig þessi ummæli eru tekin orðrétt úr áramótagrein E. O. Undir lokin kemst E. O. að orði á þessa leið: Valdahlutföll höfuðstéttanna eru jdík, að landinu verður ekki stjórnað gegn verkalýðnum nema með sífelidum hjaðninga- vígum.sem eyðileggja þjóðarhag vorn. — Og LANDINU VERÐ- UR AÐ VÍSU HELDUR EKKI STJÓRNAÐ G E G N AUÐ- MANNASTÉTTINNI í HEILD MEÐ ÞEIM PÓLITÍSKU V ALD AHLUTFÖLLUM, SEM NÚ ERU“. □ 3

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.