Tíminn - 23.02.1964, Page 2
*viB-New York. — Margt
bendir til þess, að samkomu-
lag náist um alþjóSIegt gæzlu-
lið, scm senda skal tii Kýpur.
Fundi Öryggisráðsins um Kýp-
ur, sem halda átti á mánu-
dagskvöldið, verður frestað til
þriðjudags.
NTB-Montreal. — Riddara-
liðslögreglan í Kanada náði á
sitt vald í dag 61 kílói af her-
óíni að verðgildi 52 millj.
Kanadadollara. Ambassador
Mexíkó í Bolivíu og tveir aðr-
ir menn hafa verið handtekn-
ir í sambandi við heróínsmygl
ið.
NTB-Haag. — Brezka flutn-
ingaskipið Ambassador sökk í
morgun. Hollenzki dráttarbát-
urinn Elbe reyndi að draga
það að landi, en það mistókst.
NTB-Djakarta. — Macapagal
forseti Filippseyja kom í dag
til Djakarta, höfuðborgar
Indónesíu, til að ræða Malay-
síudeiluna við Sukarno for-
seta.
NTB-Ankara. — Maðurinn,
sem skaut á Ismet Inönu, for-
sætisráðherra Tyrklands, af
einungis þriggja metra færi í
fyrradag, er enn þá í yfir-
heyrslu. Allt er rólegt í Ank-
ara, en útgöngubann var í
borginni í gær.
NTB-London. — Leiðtogi
brezka Verkamannaflokksins,
Harold Wilson, skoraði á Sir
Alec Douglas-Home, forsætis-
ráðherra Breta, að halda kosn
ingar til þjóðþingsins svo
fljótt sem mögulegt væri.
NTB-Dallas. — Valdir hafa
verið 2 af 12 mönnum í kvið-
dóminn, sem dæma skal Jack
Ruby, morðingja Lee H. Os-
wvalds. Málið hófst á mánu-
daginn var.
NTB-Sao Jorge. — Nýr jarð
skjálftakippur gekk yfir Azór- I
eyjar í dag, og var hann sá
snarpasti, sem gengið hefur
yfir eyjuna í þessari viku.
Orsökin er eldgos á hafsbotni.
NTB-París. — 160 stúdentar
voru handteknir í gær í sam-
bandi við hópgöngumar í
Latínuhverfinu í París meðan
á heimsókn Antonio Segnis,
forseta Ítalíu, stóð. Orsök hóp
gangnanna voru þær lélegu
aðstæður, sem stúdentar búa
við í Svartaskóla.
NTB-Manila. — Minnst 25
manns létu lífið í flugslysinu
í Lanao Eel Sur-héarðinu í suð
urhluta Filippseyja í gær.
NTB-Stokkhólmi. — Svenska
Dagbladet í Stokkhólmi skýrði
frá því í dag, að haldinn verði
fundur forsætisráðherra Norð
urlanda í Harpsund í Svíþióð
24. október n. lí. Forsætisráð
Norðurlai -’twáðs mun einnig
sitja
NTB-Moskvu. — Ekki er enn
ákveðið, hvort Andrei Gromy-
ko, utanríkisráðherra Sovét-
ríkjanna, fer til Geneve í næstu
viku. R. Butler, brezki utan-
ríkisráðherrann fer þangað á
mánudaginn.
FIMMTUGUR:
Eignlzt og lesií hakvr. sem máli skipta.
ir
Ásgeir Benediktsson Kröyer er
annar í röðinni af starfsmönnum
á Pósthúsinu í Reykjavík, er
verður fimmtugur á þessu ári,
eða á morgun, 24. febrúar. Það
hefur gjarnan verið siður innan
póstmannastéttarinnar, að ein-
staklingar, er verða fimmtugir,
halda jafnan stórveizlur í tilefni
þess. Þá er einnig venja að
staldra nokkuð við á þessu vörðu-
broti á lífsgönguheiði viðkomandi
einstaklings og líta yfir farinn
veg. Og þá er það oftast einhver
samferðamanna eða samstarfs-
maður, sem gerir slíkt. Það er
ekki þar með sagt, að mér tak-
ist þetta hlutverk, enda þótt ég
hafi verið samstarfsmaður Ás-
geirs í 9 ár. En hitt er það, að
ég vil, að einn úr stéttinni og
ekki sízt einn af þeim, sem kennd
ur er við áttunda flokkinn fræga,
víki að Ásgeiri nokkrum orðum á
þessum tímamótum í lífi hans.
Svo á hann það líka af mér skilið,
því að hann er í stjórn Póstmanna
félags íslands, og ég veit, að
hann er sá maður að hafa mót-
mælt á fundum, að svokallaðan
póstafgreiðslumannsflokk, þar
sem flestir vinna sömu störfin,
sé hægt að greina í tvo hluta,
þar sem millibilið eru fjórir
launaflokkar, þar sem fyrir eru
í flokknum aldurshækkanir. Og
meðal annars vegna þessa er
mér ekki síður ljúft að skyggn-
ast í hans gengnu slóð.
Ásgeir Kröyer er fæddur 24.
febrúar 1913, að Stóra-Bakka í
Hróarstungu. Foreldrar voru
Benedikt Kröyer og Antonía
Jónsdóttir. Þarna á austurbakka
Jökulsár barðist fjölskyldan fyr
ir afkomu sinni, oft og tíðum
allhörðum höndum, eins og víða
þurfti enn á fyrstu dögum þess-
arar aldar. Ásgeir var naumast
búinn að lifa einn tug ára, þegar
hann varð að þreyta fangbrögð
sín við Jökulsána sem ferjumað-
ur, enda karlmenni hið mesta, ef
á reynir, þótt mörgum þyki hann
jafnvel of prúður í dagfari, og
leynir hann því nokkuð á sér.
Þó að Ásgeir hafi haft lítil
fjárráð á unga aldri, fór þó svo,
að 18 ára gamall fór hann í
Menntaskólann á Akureyri og
var þar fjóra vetur. En þá var
efnahagsgetan búin og skuldir
komnar, eins og títt var hjá ungu
fólki á þeim tíma, og var því
skólagöngunni lokið. Eftir að Ás-
geir hætti í skólanum, gerðist
hann farkennari víða á Austur-
landi á vetrum, en stundaði marg
vísleg sveitastörf þess á milli.
Um 1940 kom Ásgeir hingað
til Reykjavíkur og var fyrstu ár-
in lögregluþjónn hér í bænum,
en gekk síðan í þjónustu pósts-
ins og hefur verið þar síðan,
eða í 20 ár. Og nú á morgun, er
Ásgeir tekur sporið af fimmta
tugnum yfir á þann sjötta, er
það eitt vist, að bæði samstarfs-
menn hans og aðrir, sem hann
þekkja, munu senda honum hlýj-
ar kveðjur og sækja hann heim
og konu hans, Helgu Þorgeirs-
dóttur, og drenginn þeirra að
Álfhólsvegi 65. Og þó að ég sé
einn þeirra, sem sækja þau heim
á morgun, vil ég senda ^Ásgeiri
mínar beztu óskir nú þégar í dag
og fjölskyldu hans með hann. Þó
vil ég sér í lagi senda móður Ás-
geirs, sem er vistkona á Elli-
heimilinu Grund, mínar beztu
árnaðaróskir með sinn fimmtuga
dreng, sem hún eitt sinn ól önn
fyrir ásamt manni sínum og
horfði á, er hann þreytti sín fang
brögð og komst til manns.
Gísli T. Guðmundsson.
SÖNGSKÓLI
Framhald af 15. síðu.
Rómar til framhaldsnáms, nýtur
nú ókeypis kennslu við frægan
söngskóla þar í borg, þar sem
snillingar eins og Gigli og Ren-
ate Tebaldi hafa fengið þjálfun
sína. Fyrst eftir að frú María
kom til Reykjavíkur veitti hún
kórum tilsögn og hafði söngnám-
skeið, en nú helgar hún sig
kennslu þeirra tuttugu nemenda,
sem fastir eru í skólanum. Miklu
fleiri nemendum hefur hún orð-
ið að neita en hún hefur getað
tekið inn í skólann.
Eins og fyrr var drepið á, hittu
blaðamenn frú Maríu á heimili
eins nemandans og áttu með
henni og nemendum hennar
ánægjulega stund. Hinar verð-
andi söngkonur hlóðu borð góm-
sætum kökum, milli þess sem
þær sungu fyrir gestina. Þó að
áheyrendahópurinn væri ekki
stærri, urðu sumar taugaóstyrkar,
en frú María hafði uppi spaug
AkTTr t Y RI
FUNDUR um uppbyggingu atvinnu
veganna verSur haldinn á Akureyri
í dag, sunnud 23. febr. o^, csivast
PUF á Akureyri fyrir funíflnbm. •—
Hann verSur haldlnn á Hótel KEA
og hefst kl. 2 é. h. Frummælandi
um uppbygglngu atvinnuveganna er
Steingrfmur Hermannsson, framkv ■
stj. RannsóknaráSs rfklslns. Þess er
•f vanta, aS Framsóknarmenn, eldrl
•8 yngri, fjölmennl á fundlnn.
og huggunarorð. Þegar ljósmynd
arinn fór að raða þeim upp, hróp
aði hún: „Verð ég ekki alltof
stór — alveg eins og Hallgríms-
kirkja“ — og hló svo innilega,
að allir urðu að taka undir.
Undirleikari á tónleikunum
verður Ásgeir Beinteinsson.
VÉLABILUN
Framhald af 15. síðu.
án Guðmundsson á land á Eyrar
bakka seint í janúar, en hann náð
ist út aftur svo til óskemmdur,
og var siglt til Vestmannaeyja til
þess að fara þar í sjipp.
FULLTRÍIARÁO
Fundur verður haldinn í full
trúaráði Framsóknarfélaganna i
Reykjavík mánudaginn 24. þ.m
kl. 8,30 í Tjarnargötu 26. Fundar
efni er Dagblaðið Tíminn. Fram
sögumenn verða Indriði G. Þor
steinsson ritstjóri og Jónas Jóns
son búfræðikennari. — Vararnenn
í íulltrúaráði og hverfisstjórar eru
boðaðir á fundinn. —Stjórnin.
AKRÁNES
FRAMSÓKNARFÉLAG Akraness
heldur skemmtisamkomu i félags
heimili sínu að Sunnubraut 21 í
kvöld, sunnudag kl. 20,30. — lil
skemmtunar verður frantsóknar-
vlst og kvlkmyndasýning. — Öll-
um er heimill aðgangur.
fjallar um dýpstu og innilegustu samskipti karls og konu
þ. á. m. um ástina, kynlífið, frjóvgun, getnaðarvarnir barna
uppcldi, hjónalífið og hamingjuna.
Höfundar: Hannes Jónsson, félagsfræðingur; Pétur H. J. Jais
obsson, forstöðumaður fæðingardeildar Landspítalans; Sigurjón
Björnsson, sálfræðingur; dr. Þc'rður Eyjólfsson, hæstaréttar
dómari; dr. Þórir Kr. Þórðarson, próíessor
Höfundarnir tryggja gæðin, efnið ánægjuna
Þessi bók á erindi til allra kynþroska karla og kvenna
FORUSTUMENN FÉLAOA ATHUGIÐ!
Nafn:
Heimili:
eftir Hannes Jónsson félagsfræ'ðing,
er úrvals handbók fyrir alla þá, sem taka
vilja ábyrgan þátt i féisgssfarfi og ná ár-
angri í fundarstörfum og mælsku.
Bók þessi er algjörlega hlutlaus og fjallar um fundar-
stjórn, fundarsköp, og allar tegundir félags- og fundar-
starfa. í henni er líka rökfræðiágrip, fróðlegur kafli um
áróður og margar teikningar af fyrirkomulagi í fundarsal
Ætla má, að bók þessi geti orðið félagsstjórnum, fasta-
nefndum og áhugasömum félagsmönnum að miklu gagni.
Ef keypt eru minnst 5 eintök gegn staðgreiðslu fá félög
bókina með afslætti. Einstaklingar, sem eignast vilja
þessa hagnýtu bók, geta pantað hana beint frá útgef-
anda eða fengið hana hjá flestum bóksölum.
Munið, að leikni í félagsstörfum og mælsku getur
ráðið miklu um þjóðfélagslegan frama einstak-
lingsins og framvindu þjóðfélagsmála.
FÉLAGSMÁLASTOFNUNIN
Pósthólf 31 — Reykjavík — Sími 40624
PÖNTUNARSEÐILL (Póstsent um land allt).
Sendi hér með kr .....til greiðslu eftirtalinni bókapöntun,
sem óskast póstlögð strax. (Merkið við það, sem við á).
— Fjölskyldan og hjónabandið. Verð kr. 150,00.
— Félagsstörf og mælska. Verð kr. 150,00-
NÍRÆÐ
ið 1946, spm var þungt áfall fyrir
hana, eins og raunar alla þá, sem
kynntust þeim merka manni. Hún
ber aldurinn vel, óvenju glað-
lynd, og fylgist vel með, þrátt
fyrir nokkurn lasleika hin síðari
árin. Á þessum merkisdegi henn-
ar munu margir minnast hénnar
þakklátum huga.
JarSarför sonar míns,
Kjartans Olafssonar Guðmundssonar
frá Vífilsmýrum, önunaarflrSi
fer fram frá Fossvogskirkju þrlSjuduginn 25 febrúar kl. 10,30 f.h.
Athöfninni verSur útvarpaS.
Fyrir mína hönd, systkina oo *J tursystkina hins látna.
Guðjóna Jónsdóttir.
MaSurinr' rrirrn
Stefár Júnsson
frá Hrtsem í FróðárH'—•
andaðist hinn 20. febrúar s. I. í Bow«»s' ' j. JarSarförin fer
fram frá Fossvogskirkcu rosrwxtammn 7». rp*r« ;|. 10,30. ÚtvarpaS
verSur frá athöfninni.
Krtstln SlgurSardóttlr börn og tengdabörn.
MaSurlnn mlnn og faSlr okkar,
Árnl K- Jðnsson
sérleyfishafi, HelSargerSI 9, andaSlst 21. þ. m
Mbanna Klartansdóttlr og börn.
ft
WWTiiT MNMMNUfllnn 23, febrúar 19éé