Tíminn - 23.02.1964, Síða 3
■&• « t.
Þessi dama í skautabúningn-
um er Grace prinsessa í Mona-
co, en hún er í vetrarfríi í
svissneska skíðabænum Gstaad
Myndin er tekin, þegar prinsess
an kemur af skautum og í
fylgd með henni, þar sem hún
gekk um götur þorpsins voru
Carolina dóttir hennar og tvær
vinkonur.
Hlutföllin virðast nú eitt-
hvað vera að snúast við í kyn-
þáttavandamálunum í Banda-
ríkjunum. Hvítar þernur í
kaffistofum Sameinuðu þjóð-
anna í New York hafa kvartað
yfir því, að þær fái alltaf
minni drykkjupeninga én hin-
ar svörtu starfssystur þeirra.
Þær segja, að þetta sé skipu-
lagt kynþáttamisrétti.
Þetta er lfklega einhver ný-
tízkulegasti smali á Bretlands-
eyjurn og þótt víðar væri leit-
að. Hann heitir George Wel
ham og býr í Suffolk, og þeg
ar hann er orðinn leiður á þvi
að hanga úti í kuldanum og
gæta fjárins, þá sezt hann nið-
ur við sjónvarpið og fylgist
Vivian Leigh, hin fræga
enska leikkona, hefur nú aft-
ur fundið hamingjuna með
fyrsta eiginmanni sínum,
enska iögfræðingnum Herbert
Leigh Holman. Hún skildi við
hann árið 1940 til að giftast
Laurence Oliver, en hann
skildi síðan við hana til að
kvænast ungri leikkonu, Joan
Plowright, sem hann hefur nú
gert fræga. Skilnaðurinn fékk
mjög mikið á Vivian og
nokkru síðar ofreyndi hún sig
á vinnu á Broadway, en nú
hefur þetta gerbreytzt. Sjálf
segir Vivian, að síðan hún
kom aftur til London og hitti
Herbert, þá sé líðan hennar
betri m1'"' ’ -erjum deginum.
Hún s- gjarnan vilja
vita þ nafi^komið því
af stað, ungt fólk hafi
einkaleyfi á ástinni. Ekkert
vilja þau Vivian og Herbert
samt segja um það, hvort þau
ætli að gifta sig í bráð,
■k
Það er margt skemmtilegt,
sem skeður í fínum veizlum í
forsetahöllum hinna nýju
afrísku ríkja. í einni mjög við-
hafnarmikilli móttöku gekk
fínn og svartur þjónn um
með smákökur á bakka og
einn af hvítu gestunum fékk
mikla lyst á fallegri súkkulaði-
köku og þreif til hennar. Ekki
þetta, herra minn, var þá hvísl
að. Þetta er þumalfingurinn á
mér.
k
Sophia Loren er ekki af-
brýðisöm að eðlisfari, en
samt öfundaði hún Liz Taylor
dálítið af því að vera komin
í milljónaklassann, það er að
fá milljón fyrir hverja
mynd, sem hún leikur í. En
nú er hún sjálf komin í sama
klassa og á að fá milljón doll-
ara fyrir aðalhlutverkið í kvik-,
myndinni Judith, en sú mynd’
fjallar um Gyðingakonu, sem
komst heilu og höldnu úr
fangabúðum nazista og leitar
nú um allan heim að dóttur
sinni. Þegar þeirri mynd er
lokið, tekur önnur milljón
dollara kvikmynd við og er
það nóbelsverðlaunasaga Past-
ernaks, dr. Zivago. Þar fer
Sophia með aðalkvenhlutverk-
ið. Framleiðandi beggja mynd
anna er eiginmaður Sophiu,
Carlo Ponti.
með skepnunum þaðan Það
hefur nefnilega verið komið
fyrir sjónvarpssendi í haganum
og móttökutæki hefur verið
sett í stofuna hjá George. Þetta
hefði ekki verið amalegt fyrir
smaiana í gamla daga, sitja
bara í róglegheitum inni í bað
stofum.
Stórhreingerning hefur undan að bak við hundrað ára gamalt
farið staðið yfir á St. Pauls sót og óhreinindi voru tvö tár
dómkirkjunni í London og kom í augnakrók eins engilsins. Það
þá margt í ljós, sem leynzt hefur nú valdið sérfræðingum
hefur undir óhreinindunum miklum heilabrotum, hvernig á
Þegar byrjað var að hreinsa því standi, að þessi engill græt-
nokkra smáengla, sem eru yfir ur, en enginn af öllum hinum.
prestainnganginum, kom í Ijós,
Bókaútgefandi nokkur í Dan-
mörku hefur sagt eftirfarandi
orð um sjónvarpið þar: í fyrstu
var óttazt, að sala á bókun
mundi minnka mikið við til-
komu sjónvarpsins, en það hef-
ur komið í ljós, að einmitt í
gegnum sjónvarpið fá áhorf-
endurnir áhuga á að sökkva
sér niður í ýmis málefni, sem
krefjast þess, að bækur séu við
höndina
*
Það kannast eflaust a!:ir við
litlu dönsku lukkutröllm, eins
og þau eru nefnd í heimalandi
sínu, en ef einhver veit ekki
hvaða fígúrur er um að ræða,
þá er mynd af einu þeirra með
þessum texta. Það var danski
myndhöggvarinn Thomas Dam,
sem fyrstur gerði þessar lttm
brúðut og nú hefur hann ær-
inn starfa af því að haida höf
undarrétti sínum við lýði. Brúð
ur þessar hafa verið flu*lar út
frá Danmörku til fjölda landa
og fyrirtækið Uneeda Dill í
Bandaríkjunum byrjaði að
kópíera þær. Dam flýtti sér
yfir til Bandaríkjanna, þegar
hann frétti af þessu, og eftir
miklar umræður og þras fékk
hann fyrirtækið til að borga
sér vissan skatt af hverri brúðu
En aumingja Thomas var ekki
fyrr kominn heim en hann
frétti af því að nú væru þeir
í Frakklandi farnir að fram-
leiða brúðurnar, svo hann varð
að þeytast þangað
Næstelzta dóttir brezka for-
sætisráðherrans, Meriel Dou-
glas Home, hefur nú opinberað
trúlofun sína með Adrian Dar-
by, en hann er kennari í hag-
fræði við Keble-skólann við Ox-
ford háskólann. Meriel er 24
ára gömul og Adrian 25 og á
brúðkaupið að vera á annan í
páskum. Þegar Home lagði nið-
ur lávarðartign sína, þá fékk
Meriel sér vinnu í bókabúð til
að sýna fram á það, að fjöl-
skyldan væri alþýðleg, ekki
bara í orði, heldur og í verki.
☆
Miklar deilur eru nú uppi
um það í Englandi, hvort
borga eigi fyrir froðuna, sem
er ofan á bjórnum, þegar hann
er seldur í vínveitingahúsum.
Málið er þegar komið fyrir lög
og dóm og verður dæmt í því
í Bristol eftir nokkra daga.
Upphaf þessa máls var á þá
leið, að ríkisstarfsmaður nokk-
ur frá verðlagseftirlitinu þar
í landi kom inn á pub í Bristoi
og bað um eitt glas af Guinn
ess-bjór. Hann lét glasið
standa á afgreiðsluborðinu
þangað til að froðan var horf-
in, mældi þá innihaldið og til-
kynnti afgreiðslumanninum,
að það vantaði sjö hundruð-
ustu upp á það magn, sem
glasið ætti að innihalda og að
hann mundi kæra þetta til
dómsyfirvaldanna. Guinness-
félagið lítur þetta mál svo al
varlegum augum, að það hef-
ur ráðið einn fremsta lögfræð-
ing landsins sér til varnar.
Þegar málið kemur fyrir rétt,
mun bjór verða hellt í glas
fyrir framan dómarann og þar
að auki á að sýn'a kvikmynd.
öllum aðilum til glöggvunar.
BREZKl rithöfundurinn
Laurice Irving, hefur sagt ef1
farandi: Málaralistin er nú öll
um gleymd. nema þeim, setr
teikna utan á niðursuðuvörut
skiltamálurum og peningaföls-
urum.
LÖNGU áður en bandariskir
læknar kváðu upp dauða
dóminn yfir reykingum, höfðu
víðs vegar i Bandaríkjunum
verið stofnnð hæli fyrir fólk,
sem vildi hætta að reykja, en
þegar það kom á hælin komst
það að raun um, að líf án reyk
inga getur verið mjög erfitt. —
\ hælum þessum má hvorki
drekka kaffi né áfengi. Heit
böð eru fyrirskipuð og öndun
aræfingar- Bannað er að borða
kryddaðan mat og ekki má uni
eangast fólk. sem reykir. Þetta
eru aðeins t'áar af þeim reglum
sem gilda á hælum þessum.
Adolf Hitler átti fjögurra
tonna Mercedes-hervagn, þegar
hann var upp á sitt bezta, og
náði bíllinn 200 km. hraða á
klukkustund. Nú hefur þess-
um grip verið komið fyrir á
safni nokkru í franska bænum
Le Mans. Franskar hersveitir
undir stjórn hershöfðingjans,
Leclerc umkringdu heimili
Hitlers í Berchtesstræti árið
1945, og höfðu þá m.a. bíl þenn-
an á brott með sér. Árið 1948
keypti franski hóteleigandinn
Pau bílinn' og gaf hann síðan H
áðurnefndu safni. Sérkenni ffl
þessa bíls voru m. a. skotheld- ®
ir hjólbarðar. u
TÍMINN, sunnudaginn 23. febrúar 1964
i