Tíminn - 01.03.1964, Blaðsíða 2

Tíminn - 01.03.1964, Blaðsíða 2
Laugardagur, 29. febrúar. NTB-Nicosia. — Kýpur og ? ovétríkin hafa gert samning m fast áætlunarflug milli ioskvu og Nicosíu. NTB-Bríissel. — Paul H. Spaak, utanríkisráðherra Belg- íu, sagði í dag, að Belgía myndi ' iðurkenna Rauða-Kína svo f jótt, sem mögulegt væri án ' ?ss að það skapaði erfiðleika innan Atlantshafsbandalagsins. NTB-Tokío. — Masayoshi f'hira, utanríkisráðherra Jap- nns, sagði í dag, að Japan ■”yndi bjóða Rauða-Kína lán til ’-'ngs tíma að upphæð 30 millj. dollara. NTB-Hau Hin. — Forsætis- ráðherra Malaysiu, T. Abdul Pahman, sagði í dag, að nauð- ^ynlegt gæti orðið fyrir Malays íu að gera árás á skæruliða- ‘ töðvar Indónesíu í nágrenni Norður-Borneo. NTB-Jarís. — Fimm vestræn ’önd hafa ákveðið að stofna al- hjóðlega krabbameinsstofnun, -g hafa lagt fram 655 millj. íranka í því skyni. NTB-Moskva. — Izvestija, málgagn sovézka kommúnista- fiokksins, sagði í dag, að sovézk ;:r borgarar ættu að klæða sig hetur, og að skapa þyrfti 'sovézka fatasízku. NTB-New York. — Nýjar til- 'ögur til lausnar Kýpurdeilunni verða ræddar á fundi Öryggis- ráðsins á mánudaginn. NTB-Bahia Blanca. — Argen tina hefur selt 750.000 tonn af hveiti til Rauða-Kína. Verið er að semja um sölu á 300.000 tonnum í viðbót. NTB-Berlín. — Jafnaðarmað- urinn Kurt Landsberg, formað- ur bæjarstjórnarinnar í Vestur Berlín árið 1957, og prófessor í sögu við Tónlistarháskólann í Vestur-Berlín, lézt í gær í Berl ín 71 árs að aldri. NTB-Jamou. — Ghulam Mo- hammed Sadiz tók við forsæt- isráðherraembættinu í Kasjmir í dag. NTB-Álasundi. — Stórsíldar- vertíðinni í Noregi er nú lokið Veiddir voru samtals 970,000 hektól. af stórsíld, og er það bezta vertíðin síðan 1960, oa hin stytzta síðan heimsstyrjöld inni lauk. NTB-Troy. — 11 börn og einn fullorðinn lét lífið í nótt, þegar 3ja hæða steinhús í Troy i New York ríki brann til ösku. NTB-Belgrad. — fbúatala Júgóslavíu var um 19 milljónir í fyrra, ag er það aukning um 200.000 síðan 1962. NTB-Tokyo. — Japanir ætla að láta byggja skip að stærð samtals 13 milljónir brúttótonn á næstu þrem árum. MINNING Tryggvi Guömundsson bústjóri Á morgun fer fram útför Tryggva Guðmundssonar, fyrr- um bústjóra við bú ríkisspítal- anpa að Langholti í Reykjavík. Tryggvi Guðmundsson var fæddur 18. sept. 1899 að Gríms- húsum í Aðaldal, sonur hjón- anna Guðmundar Guðnasonar og Jónínu Jónasdóttur, er þar bjuggu lengi. Tryggvi ólst þar upp, næstelztur í hópi fjögurra bræðra, er þar uxu úr grasi, góðum gáx'um gæddir og vel íþróttum búnir, er þóttu mörg- um öðrum mönnum efnilegri um margvíslegt atgervi . Tryggvi fór í Hólaskóla og lauk þar námi 1923. Vorið 1924 veiktist Tryggvi af brjósthimnubólgu. Eftir langa legu á Húsavík fór hann á Vífils- staði þar sem hann dvaldi um árabil, og var þar gerð á honum brjóstaðgerð. Er hann útskrif- aðist þaðan með aðeins annað lungað starfhæft, virtist svo að með fullu væri bundinn endir á þær fyrirætlanir, er hann hafði búið yfir og menntað sig til, að verða bóndi. Réðst hann þá í þjónustu tollstjóraembættisins, og var um nokkur ár tollvörður á strandferðaskipum umhverfis landið. Síðan gerðist Tryggvi bú- stjóri við bú Kleppsspítalans er síðar, með breyttri skipan, var nefnt bú ríkisspítalanna. Bjó hann fyrst allmörg ár að Kleppi, en flutti síðar að Syðra-Langholti. Búi þessu veitti hann forstöðu hartnær þrjátíu ár, eða þar til það var niður lagt fyrir tveimur, þrem- ur árum, sökum þess að þá voru öll þau lönd, er búskapur þessi hafði lengst af stuðzt við, á- kvörðuð undir byggingarlóðir. Tryggvi kvæntist árið 1933 Valgerði Guðmundsdóttur, hjúkrunarkonu, mikilhæfri mannkostakonu. Valgerður átti einn son í æsku, Jakob að- nafni, eftir fyrri mann sinn, er hún missti sama árið og Jakob fæddist. Gekk Tryggvi honum í föðurstað og varð hann kjör- sonur þeirra. Jakob er kaup- maður hér í borg, kvæntur Ragnheiði Jónsdóttur, banka- fulltrúa Grímssonar, og eiga þau þrjú börn. Tryggvi og Val- gerður eignuðust tvær dætur, báðar uppkomnar, eru það Bjarney, hjúkrunarkona, og Jónína kennari, báðar búsettar hér í borg. Um bústjórn Tryggva í þjón- ustu ríkisins mætti skrifa langt mál, svo mjög var hún til fyrir- myndar. Árvekni hans og áhugi. trúmennska og alúð öll var slík, að hún hefði ekki meiri verið, þó annazt hefði verið um eigið bú. Tryggvi kom og nokkuö við félagsmál, þó mér sé það ei kunnugt sem skyldl. Hann var lengi í sóknarnefnd Laugarnessóknar, og átti góðan þátt af hálfu safnaðarins að byggingu Laugarneskirkju og eflingu og samheldni safnaðar- lífs um langt skeið. Þegar ég var barn og ungl- ingur í heimasveit okkar, leit ég mjög upp til Tryggva frænda míns í Grímshúsum, (feður okk ar voru svstkinasynir og jafn- aldrar). Hann var herðabreiður og bringuþrekinn og hinn karl- mannlegasti; ljóshærður var hann og bláeygur. svinurinn heiður og bjartur, léttur og glettinn. Skapríkur var hann og ákaflyndur en stillti skap sitt í hóf. Vel og skipulega kunni hann að haga máli sínu, og setti það fram á ljósan hátt. Hann var ættvís og frændræk- inn og bundinn sterkum bönd- um héraði og heimasveit. Allir vissu sem til þekktu, að Tryggvi ætlaði að verða bóndi og þá að sjálfsögðu á ættarstöðvum sín- um ,og þá vissu menn jafnframt að myndarbragur yrði á búskap, studdur stórhug, þar sem Tryggvi setti bú saman-, ef að líkum léti. En á hámorgni lífSins var hann ! sviptur heilsunni í einni andrá 1 er kostaði langa sjúkralegu og síðan hælisvist. Að þeirri raun afstaðinni gekk hann hálfur maður út í lífið, og á ættar- stöðvar sínar kom hann aðeins sem gestur síðar. Þetta er gömul saga og ný og á þann veg hversdagsleg, en krefst þó mikillar karl- mennsku og trúfesti við fornar dyggðir og nýjar til farsællar lausnar því lífi, sem látið er í té, sé það langt eða skammt. Segja má að Tryggva frænda mínum gæfist langt líf og ham- ingjuríkt, eftir því sem horfði um skeið. Má það þakka karl- mennsku hans og bjartsýnni lífstrú öðrum þræði, og hins vegar þeim einstaka lífsföru- naut, er honum var gefinn og til fylgdar fenginn. Hann fékk þrátt fyrir allt afkastað miklu. dagsverki. Við þessi hin sýnilegu leiðar- | lok er hann kvaddur með hlýrri þökk og djúpri virðingu allra, er honum kynntust, sem óvenju lega trúr, heilsteyptur og diæng- lyndur maður, er engu góðu máli brást, því er honum var til trúað. Konu hans og börn- um flyt ég mína innilegustu samúð í fullvissu þess, að hin bjartsýna lífstrú hans muni verða þeim öruggur styrkur á ! erfiðum stundum ókominna ! daga. Indriði Indriðason Árni K. Jónsson MININGARGREININ að neðan um Árna Jónsson, átti að birt- ast í blaðinu í gær, en féll nið- ur vegna rúmleysis. — Eru við- komandi beðnir velvirðingar. Árni Kollín Jónsson, eins og hann hét fullu nafni, var fæddur á Lækjarbotnum í Landsveit 13. okt. 1915, sonur hjónanna Jóns Árnasonar og Steinunnar Lofts- dóttur. Jón er enn á lífi, kominn yfir áttrætt, en Steinunn er lát- in fyrir nokkrum árum. Árni var fjórða barnið í hópi níu systkina. — Hann ólst upp við algenga vinnu eftir því sem til féll heima og heiman og með þurfti til að létta undir með heimilinu, svo sem þá var títt. Rösklega tvítugur fékk hann sér vörubíl og tók að stunda akstur samhliða öðrum störfum, í vegavinnu og víðar. Slík tæki voru þá ekki á hverju strái eins og nú, og ekki lítið fyrirtæki efnalitlum að afla þeirra. Á stríðsárunum tók hann i við sérleyfi á áætlunarleiðinni milli Reykjavíkur og Landsveitar og Holtahrepps, en hin síðari ár hafði hann mest atvinnu af akstri vörubíls í Reykjavík og hafði áætl unarferðir til fólksflutninga aust- ur á sumrin. Hann varð bráðkvadd ur við vinnu sína 21. þ.m. og hafði áður kennt sér lítils meins, að hann taldi. Líkami hans verður í dag lagður til hinztu hvíldar5 í Skarði á Landi, en þar — á enda- stöð áætlunarleiðarinnar — mátti heita annað heimili hans um all- langa hríð Þetta má í stuttu máli kalla helztu atriðin i ævisögu Árna heit ins, og kann að vera að hún sé ekki mikið frábrugðin margra ann arra á landi hér. En manninum I sjálfum er að litlu eða engu lýst með þessu. Hann var verkmaður góður, samvizkusamur og ósérhlíf inn í samvinnu, og má vera að hann hafi ekki alltaf kunnað að skammta sér störf eftir starfs- þreki, því að margir leituðu til hans um ■■iðvik. Kom þar bæði til að honum var örðugt að synja mönnum bónar sem hann vissi að gera þurfti ng hann gat fullnægt, og einnig "að honum var annara en mörgum öðrum um að bregð- ast ekki neinum í neinu. Og í félagsskap voru vandfundnir við- felldnari menn en hann, skemmt- inn og síléttur í lund og æðraðist ekki, þótt eitthvað bjátaði á. Árni hafði sérstakt yndi af börn- um, enda hændust þau fljótt að honum. Til hans var og gott að STANISIAV KN0R LEIKUR Á ÍSLANDI Tékkneski píanósnillingurinn Stanislav Knor mun leika fyrir styrktarfélaga Tónlistarfélagsins, þiriðjudaginn og miðvikudaginn 3. og 4. marz næstkomandi í Austur- bæjarbíói. Knor hefur á undanförnum ár- um efnt til hljómleika í helztu borgum Evrópu, meðal annars á Norðurlöndum, og hvarvetna hlot- ið hið mesta lof fyrir leik sinn. Sumir gagnrýnendur hafa talið hann með allra fremstu píanó- leikurum nútímans. Knor er fæddur í Prag í Tékkó slóvakíu árið 1929. Hann nam við Tónlistarháskólann þar í borg, og var nemandi Frantiseks Maxians prófessors. Knor hefur haldið hjómleika við ágætan orðstír í Belgíu, Frakk landi, Þýzkalandi, Tékkóslóvakíu, Búlgaríu, Póllandi, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð, og hvárvetna hafa gagnrýnendur talið hæfileika hans með fágætum. Á tónleikunum 3. og 4. marz mun Stanislav Knor leika þessi verk: Sónötu í f-moll, op. 2, nr. 1 eftir Beethoven, Fimm prelú- díur eftir Debussy, Tvo tékkneska dansa eftir B. Martinu. Myndir á sýningu eftir M. T. Mússorgskí. ÓK AFTAN Á BÍL 0G STAKK SV0 AF KJ-Reykjavík, 29. febr. í gærmorgun var ekið aftan á jeppa, sem var kyrrstæður á nýju hafskipabryggjunni í Hafnarfirði. Var það stór amerískur fólksbíll, sem ók á jeppann og stakk síðan af. Náðist hann eftir hádegið í dag í Reykjavík. Einn maður var í jeppanum og studdi sig fram á stýri hans, og kastaðist þess vegna ekki fram við höggið. Jeppinn kastaðist tvær bíllengdir fram á við, og báðir skemmdust bílarnir mikið. Um hjúskaparslit og hjónaskilnaði Erindaflokkur Félagsmálastofn- unarinnar og kvikmyndasýningar um fjölskyldu- og hjúskaparmál- efni, heldur áfram í dag, og hefst kl. 4 e.h. í kvikmyndasal Austur- bæjarskóla. Hannes Jónsson, fé- lagsfræðingur, flytur erindið HJÚ SKAPARSLIT OG HJÓNASKILN AÐUR, og sýni verður litkvik- myndin: FRÁ KYNSLÓÐ TIL KYNSLÓÐAR, sem gerð er af nefnd lækna, rithöfunda og kvik- myndatökumanna, en í mynd þessari er m.a. sýnd fósturþró- un og barneign. leita þeim sem fáa áttu að. Þetta hvort tveggja held ég megi telja góðan vitnisburð hverjum einum. Kona hans var Jóhanna Kjart- ansdóttir frá Flagbjarnarholti í Landsveit, og komu þau upp mynd arlegu heimili í Heiðargerði 9 hér í bæ. Þar mun nafna mínum hafa verið kærastur arineldur heimilis hjá konu sinni og börnum, en börn þeirra hjóna eru fjögur: Frímann, Grétar, Steinunn , Erla og Hulda. Hið elzta er nú á fimmtánda ári og hið yngsta á sjötta, varla nógu gamals til að skynja missi sinn til fulls, en þó nógu stálpað til að geta síðar munað pabba sinn í blámóðu bernskunnar. Ekkjunni, börnunum, öldruðum föður, tengdaföður og öðrum ást- vinum berast nú þögular samúðar kveðjur. Ljúfar minningar um góð an dreng geymast hjá þeim sem þekktu hann. Árni Böðvarsson 2 T f M I N N , sunnudaginn 1. marz 1964

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.