Tíminn - 01.03.1964, Blaðsíða 3
ÍSPEGLITÍMANS
Fyrir tveimur dögum var
tízkusýning í París, þar sem
sýnd var nýjasta tízka kven-
nærfata. Ein sýningarstúlkn-
anna sést hér á myndinni og er
hún í hnésíðum teygjubuxum,
nokkurs konar magabelti, og
brjóstahaldara í sama stíl. Und-
irföt eru nú mikið höfð mis-
lit, rósótt eða köflótt.
★
Borgari nokkur í Frankfurt
var ákærður fyrir það, að hafa
svikizt undan sjónvarpsafgjöld-
um sínum. Hann mótmælti á-
kærunni og sagðist ekki hafa
neitt sjónvarp, hann hefði bara
sett upp loftnetið til þess að
nágrannarnir kæmust ekki að
því, að svo ómissandi stéttar-
einkenni vantaði á heimili
hans. Svo mikilvægt er sjón-
varpið orðið í landi krafta-
verkanna, Þýzkalandi. Maður-
inn var látinn laus.
★
í Feneyjum voru nýlega
seld nokkur nýfundin bréf,
sem Jean-Jacques Rousseau
hefur skrifað d’Epinay. í einu
þeirra er að finna einhverja
þá væmnustu setningu, sem
nokkurn tíma hefur verið skrif
uð í heiminum. Þar segir: —
Aldrei hefur brunnið svo bál í
hjarta mínu, að eitt tár geti
ekki slökkt það.
★
Líklega hefur enginn rithöf-
undur nokkurn tíma fengið
eins mikla fyrirframútborgun
og Theodore Srensen, en hann
var ræðuritari Kennedys heit-
ins forseta og æðsti ráðgjafi
hans. Hann skrifaði bók
um hinn sáluga húsbónda sinn
og fyrirframborgunin nam 9
milljónum íslenzkra króna.
★
Hjónaband bandaríska skop-
l'eikarans Bob Hope er til mik-
illar fyrirmyndar og afsannar
þá kenningu, að öll leikara-
hjónabönd fari út um þúfur.
Um þetta leyti heldur Bob upp
á 30 ára brúðkaupsafmæli sitt,
en konuna sína, Dolores, hitti
hann, þegar hann kom fram í
eöngleik á Broadway og hún
skemmti í næturklúbb þar
skammt frá. Dolores segir á
þrjátíu ára brúðkaupsafmæl-
inu, að í öll þessi ár hafi Bob
verið hinn fullkomni eigin-
maður.
★
Lögreglan í Frankfurt hefur
nú orðið sér úti um vopn, sem
Afríkubúar hafa löngum notað
við veiðar á villtum dýrum.
Þarna er um að ræða byssu,
sem skýtur plastskotum fyllt-
um af efni, sem deyfir fórnar-
dýrið samstundis . Með hjálp
þessa vopns halda lögreglu-
þjónarnir fram, að þeir séu
færir um að gera andstæðing-
inn óvirkan á svipstundu, án
þess að særast sjálfir.
★
Áhangendur Nkrumah, for-
seta í Ghana, halda að hann sé
ódauðlegur, en sjál'fur er hann
á öðru máli. Á ferð sinni um
London, nýlega, fékk hann sér
skothelt vesti. Þau eru nokk-
uð öðru vísi nú á dögum en
hér áður fyrr, en þá voru þau
svo þung.að ef riddarinn datt í
þeim, varð fylgdarsveinn hans
að reisa hann við. Nú á tímum
eru skotheld vesti ekki nema
sjö kíló að þyngd og stanza
hvers konar skot, bæði úr riffl-
um og vélbyssum. Verðið er
nokkur þúsund króna smá-
ræði, en vestið er góð fjárfest-
ing fyrir mann, sem orðið hef-
ur fyrir þremur árásum á hálfu
öðru ári.
★
Systir Smile heitir sú söng-
stjarna, sem stendur næst Cliff
Richard og the Beatles á vin-
sældalistunum í dag. Þetta er
engin venjuleg smátelpa, þræl-
túberuð og blökk í framan af
málningu, heldur heiðvirð belg
ísk nunna, sem flæktist út í
þetta söngævintýri af hreinni
tilviljun. Hún á aðsetur sitt í
belgísku klaustri, sem er til-
einkað dýrlingnum Diminique,
og var vön að syngja smálög
fyrir reglusystur sínar og leika
undir á gítar. Lögin samdi hún
sjálf og voru þau öll trúar-
legs eðlis. Lög þessi féllu nunn
unum svo vel í geð, að þær
ákváðu að syngja þau á plötu,
svo að hver nunna gæti eign-
azt eina. Það varð svo úr að
Philips-fyrirtækið í Belgíu
gerði fyrir þær þessa plötu og
voru nokkrir forráðamenn þess
viðstaddir, þegar platan var
spiluð í fyrsta skipti. Þeir
gerðu sér strax Ijóst, að hér
var eitthvað óvenjulegt á ferð
um, og fengu leyfi nunnanna
til að gefa plötuna út. Öllum er
kunnugt um það, hverjum vin-
sældum platan náði, því að
varla finnst orðið nokkur mað-
ur, sem ekki raular Dominique
fyrir munni sér, án þess að
hafa hugmynd um það, að um
leið er hann að lofsyngja dýrl-
inginn Dominique. Myndin
hérna birtist í ensku blaði og
eru nunnurnar lengst til hægri,
að óska þess sín á milli, að
systir Smile hefði aldrei orðið
svona vinsæl. Allur ágóðinn
rennur annars til klaustursins
og systir Smile hefur lýst því
yfir, að helzt vilji hún hætta
þessu öllu saman.
Brezki kvikmyndaleikarinn,
Peter Sellers, kvæntist um dag
inn sænsku kvikmyndaleik-
konunni, Britt Eklund. Þessi
mynd er tekin af þeim hjónurn
í Surrey í Englandi, en þar er
Sellers að kynna Britt fyrir
★
Japanskur prófessor í Os-
aka hefur nú komizt að þeirr-i ,
niðurstöðu, að ef titringur sé
í öllum líkamanum, þá örvist
allur hárvöxtur um leið. Pró-
fessor þessi hefur nú opnað
„hristingsstofnun“, og af því
að sköllóttir Japanar eru alveg
jafntrúgjarnir og evrópskir
þjáningarbræður þeirra er
aðsóknin að stofnun prófessors
ins mjög mikil.
★
Borgarstjóri New York
borgar, Wagner, lætur sér fátt
um reykingarhættuna finnast,
og segir að ef hann eigi að
hætta að reykja verði hann af
sömu ástæðu að halda sig inn-
an dyra, það sem eftir er ævinn
ar. Samkvæmt upplýsingum
vísindamannannna anda ég dag
lega að mér jafnmiklu eitri og
væri úr tveimur sígarettupökk-
um, þegar ferðazt er um borg-
ina.
★
Ellefu ára gömul börn í
Atl'anta í Georgiufylki í Banda-
ríkjunum, hafa nú gefið út
lista yfir það, sem foreldrar
þeirra eiga ekki að gera og
það, sem þau eiga að gera.
Nokkur atriðanna er á þessa
leið: — Skjótið ekki alltaf
skuldinni á elzta barnið. Rífizt
ekki, þegar við hlustum á ykk-
ur. Farið ekki með okkur eins
og ungaböm, og látið okkur
heldur ekki verða fullorðin of
snemina. Fáið okkur til að
vinna, af því bíðum við engan
skaða.
★
Það er oft erfiðleikum bund
ið að fá nógu mikla líkamlega
hreyfingu við vanabundin
störf, en verzlunareigendur i
Vín hafa fundið ágæta lausn á
því. Stúlkan þarna vinnur í
verzlun í Vín og þegar hún
flytur föt á milli deilda ferð
börnum sínum af fyrra hjóna-
bandi, Michael, 10 ára gömlum,
og Söruh, 6 ára gamalli. Sell-
ers á sveitabýli þarna í Surrey
og á asninn, Fred, sem þarna er
á myndinni, heima þar.
ast hún á milli á nokkurs kon-
ar bifhjóli. Sérstök hilla er
framan á hjólunum fyrir varn-
inginn og stúlkurnar í búðinni
eru sérstaklega hrifnar af ör-
litlum bjöllum, sem eru fram
hljómlist, þegar þau eru í notk
an á hjólunum og spila létta
un.
TÍMINN, sunnudaginn 1. marz 1964 —
s