Tíminn - 01.03.1964, Blaðsíða 7

Tíminn - 01.03.1964, Blaðsíða 7
Gtgefandl: fRAMSÓKNARPLOKKUIUNN rranjJtræmdastJórl: Tðmms Araaaoa. — Kitatiórar Mrariaa Þórarinssoo (áb). Andrés KristJAaasoa, Jóa HelRasoa og fadritt G. Þorstelnsson. FtiUtrál rltatjóraar: Tómes Harissoa. Frétta. stjðri: Jóoaa Kristjánsson. AnglýsingastJ.: Sigttrjón Davítlsson. Ritstjóraar&krifgtofur i Eddn húsinu, simar 18300—18305 Skrif stofur Bankastr 7 Afgr.simi 12323 Augl.. sinti 19523 Aftrar skrifstofur. siml 18300 Askrlftargjald kr SOjOO á mán. innaa- lands t lausasöln kr 4.00 eint — Prcatsmlftjaa EDDA h.l — Aðkallandi vandamál Upplýsingar þær, sem fram komu á BúnaCarþingi s.l. fimmtudag þess efnis, að rekstrarlán landbúnaðarins séu enn í heild jafnhá upphæð og árið 1959, hafa að vonum vakið mikla athygli enda komu þær ýmsum á óvart, þar sem állir þekkja hina geysilegu hækkun alls tilkostnaö- ar við rekstur og framleiðslu. Framleiðsla bænda hef- ur og vaxið að verðmæti á þessu árabili úr 768 milljón- um í um það bil 1600 milljónir. Engin önnur atvinnu- grein mun búa við slíka rekstrarfjártakmörkun, þó að fæstar séu ofhaldnar. Það var því eðlilegt, að Búnaðar- þing tæki þetta vandamál til ýtarlegrar meðferðar eins og það gerði í einróma ályktun, þar sem það vakti at- hygli á hinni miklu nauðsyn á hækkun rekstrarlána vegna stórhækkaðs verðs á fóðurbæti, áburði og öðrum rekstrarvörum. í ályktun sinni segir Búnaðarþing enn fremur, að rekstrarlánin, sem veitt hafi verið á mánuð- unum marz-september, hafi orðið hæst um 162 millj. og hámarksfjárhæðin staðið óbreytt mörg undanfarin ár, þótt verðmæti landbúnaðarvara hafi aukizt um rúmlega helming. Auk þess hafi magn rekstrarvara landbúnaðar- ins aukizt mjög vegna aðkallandi þarfa, t. d. áburður, sem bændur hafi keypt fyrir 60 millj. árið 1958 en fyr- ir 160 milljónir í ár. Búnaðarþing segir enn fremur, að nú hafi takmörkun á hámarksfjárhæð afurðalána verið afnumin, og ekki sé óeðlilegt, að svo verði einnig gert um rekstrarlánin. Með þessum rökstuðningi skorar Búnaðarþing síðan á stjórn Seðlabanka íslands að hækka rekstrarlán land- búnaðarins í samræmi við þessar auknu þarfir hans, eða um 10% frá því, sem var á s.l. ári, og felur stjórn Bún- aðarfélags íslands að beita sér fyrir því við ríkisstjórn- ina, að Seðlabankinn taki mál þetta til afgreiðslu nú þeg- ar á þann hátt, sem fyrr er mælzt til. Engin þörf er að hafa um þessa ályktun Búnaðarþings mörg orð, enda er rökstuðningur hennar skýr og aug- ljós, svo að engum getur blandazt hugur um, að hér er um mikið og aðkallandi vandamál að ræða, sem fram- leiðsla og afkoma landbúnaðarins er mjög komin undir, og verði ekki úr þessu bætt, hlýtur það að verða mikið áfall fyrir landbúnaðinn, þar sem rekstrarvörurnar fara sífellt hækkandi. Þess vegna eru úrbætur sjálfsagðar. Hallgrímskirkja Gerð Hallgrímskirkju á Skólavörðuhæð í Reykjavík var fastákveðin fyrir meira en þremur áratugum og bygging hennar hafin fyrir tuttugu árum og er nú komin nokkuð á veg. Skiptar skoðanir hafa frá upphafi verið um gerð hennar, eins og að líkum lætúr og eðlilegt er og föst venja um öll stórhýsi. En emhverja ákvörðun verður að taka, og þegar hún er tekin af réttum aðil- um og verk hafið verður við það að sitja, og deilur um gerðina að falla niður Það er dómur rökréttrar ályktun- ar. Nú hefur það gerzt, að raddir hafa risið hátt gegn þessu hálfbyggða húsi, og er svo fast að sótt, að menn vilja rífa niður það, sem komið er. Slíkt er að sjálfsögðu engin skynsemi. í dag hafa andróðursmenn Hallgríms- kirkju boðað til fundar um málið, þar sem framsögu- menn eru tveir yfirlýstir andmælendur hennar, en bisk- upi og öðrum formælendum boðið að koma og hlusta og að líkindum að segja stuttlega álit sitt á eftir. Fundur- inn á því að verða einstefnuakstur. Þetta er lítt sæm- andi málafylgja og ekki með aðalssvip lýðræðis. Lág- markskrafa er, að til opinberrar umræðu um slík mál sé stofnað með jafnræði. ; i ^ ( t ■ ' x ». . ' / ’ ■ TÍMINN, sunnudaglnn i. ’mariT 1964 — Walfer Lippmann ritar um alþjóðamál: Breyta verður ákvæðunum um eftirmann forseta Öþolandi er, a« leyniskytta geti skipt um alla stjórn USA með einu skoti VIÐ HLJÓTUM að fagna því, að tekizt hefir að fá þing ið til að sinna löggjöfinni ein og því ber, og rutt hefir veri úr vegi þeim hindrunum sem komu í veg fyrir a skattalagafrumvarpið væri a greitt. En við megum ekk halla okkur aftur á bak stólnum og hætta allri frek ari viðleitni. Skattalögin er mikilvæg og félagsmálalög gjöfin er nauðsynleg. Óleys er þó enn eitt mál, sen skylda þingsins er að leysa og virðist það mikilvægar: flestum öðrum, ef svo ill: færi, að ólán ætti enn efti að henda okkur. Hér er át við þá skyldu, sem lögð er : herðar þingsins, að sjá fyri eftirmanni forseta, ef hani. félli frá eða yrði ófær um að gegna störfum. Það liggur í augum uppi, að forsetinn getur ekki látið mikið að sér kveða í þessu máli. Þetta er viðkvæmt mál, sem hann hlýtur að hliðra sér hjá að fást við. Málið snertir ekki einungis mögu- leikana á veikindum eða frá falli hans sjálfs, heldur varð- ar það álit og persónulegar tilfinningar demókratanna, forseta fulltrúadeildarinnar og forseta öldungadeildar- innar. Lögunum er sérlega ábótavant eftir þá vanhugs- uðu breytingu, sem gerð var á þeim árið 1947. Frumkvæð- ið um lagfæringu þessará á- galla ætti að koma frá förL ystumönnum þingsins. Vald þingsins samkvæmt stjórnar- skránni til þess að gera þetta, verður ekki vefengt. Frumkvæðið í þessu efni mun ekki koma, og getur ekki komið frá Hvita hús- inu. EINS og lögin eru nú, gera þau ráð fyrir, að eftirmaður forseta, þegar varaforseti er ekki fyrir hendi, sé formað- ur fulltrúadeildar þingsins. Næst á eftir honum kemur forseti öldungadeildarinnar, síðan utanríkisráðherra, og að lokum aðrir ráðherrar, eftir stöðu þeirra stjórnar- deilda, sem þeir veita for- stöðu. Á lögum þessum eru að minnsta kosti þrír hættuleg- ir gallar. í fyrsta lagi getur svo farið, að forseti fulltrúa- deildar þingsins sé úr flokki stjórnarandstöðunnar. Þann- ig var til dæmis ástatt sex af þeim átta árum, sem stjórn Eisenhowers sat að völdum. Hefði Eisenhower verið myrtur á þessu tíma- bili, og varaforseti ekki fyr- ir hendi, þá hefði hinn nýi forseti verið demókrati. Það er afleitur galli. að unnt sé að skipta um alla stjórn rík- isins með einni kúlu úr byssu leyniskyttu. VISSULEGA er það rétt. að eftirmaður Johnsons for- seta yrði demókrati. En eft- irmaður hans samkvæmt lög unum hefir ekki hina minnstu reynslu i því að fiara með framkvæmdavald ríkisstjórnarinnar, þótt óvið- kunnanlegt sé að þurfa að segja. þetta upphátt Hver getur varizt því, að flnna til ótta, þegar hann hugleiðir þann möguleika, að hið gíf- urlega vald Bandaríkjanna kynni allt í einu að verða falið algerlega óreyndum og óþjálfuðum manni? 1 þriðja lagi er þess að geta, að ef forsetinn yrði ó- fær til að gegna störfum, eins og þeir urðu Garfield, Wilson og Eisenhower, þá er, samkvæmt lögunum, enginn ákveðinn til þess settur, að la\isn ,.|ráf fprsetaemb-, ættinu og ráðstáiá því. Sam- nkfvæmt 'átjórnárskránhi' get- : ur forseti fulltrúadeildar- innar ekki tekizt á hendur embætti forseta um stundar- sakir, nema afsala sér for- setatign í deildinni og þing- sætinu. Mundi hann gera þetta, ef líkur væru á, að forseti næði aftur heilsu og tæki þá við embætti á ný, eins og á stóð til dæmis um Eisenhower forseta? UNDIRNEFND sú í laga- nefnd öldungadeildarinnar, sem fjallar um breytingar á stjórnarskránni, hefir hald- ið fundi um þetta vandamál í sambandi við eftirmann for seta. Fundir þessir hafa ver- ið mjög athyglisverðir og margar hugvitsamlegar til- iögur koimið fram. En allar hafa þær, að undantekinni einni ítillögu Eisenhowers), haft í för með sér þann óbæt anlega galla, að þær geta ekki komið til framkvæmda án tafar. Ýmist þyrftu þær þá langdregnu meðferð, sem barf til venjulegra stjórnar- skrárbreytinga, eða þær eru svo nýstárlegar, að þær hefðu í för með sér langvinn- ar og harðdrægar umræður. Landið þarfnast hins vegar ákvæða um eftirmann for- seta, sem tii framkvæmda geta komið þegar á þessu ári, þar sem engum varaforseta er til að dreifa og ekki með neinu móti unnt að bæta úr bví. Uppástunga Eisenhowers er í því fólgin að lagabreyt- ingin frá 1947 verði felld úr gildi en þá væru á burt á- kvæðin um forseta fulltrúa- öeildarinnar og öldungadeild i-innar. sem eftirmenn for- seta Þetta er unnt að gera með einföldum meirihluta við atkvæðagreiðslu í báð- um deildum þingsins. Þetta hefði ekki í för með sér neina nýbreytni, en kæmi aðeins aftur á þeirri skipan mála, sem gilt hefir sex tugi ára. VÆRI hinni gömlu skipan I komið á aftur, yrði utanrík- isráðherrann viðtakandi íor- setavalds. Lucius Wilmerding aðhyllist þessa lausn, en hann er sérfræðingur um anda og ákvæði bandarísku st j órnarskrárinnár.' ■: Wilmer- ding bendir á, að' rtiargir ut- anríkisráðherrar hafi síðar meir orðið forsetar við al- mennar kosningar. Hann hefði mátt bæta því við, að á þessari öld hafa margir mjög vel hæfir menn gegnt störfum utanríkisráðherra, svo sem Root, Hughes, Stim- son og Byrnes. í mínum augum er það höfuðkostur þessarar tillögu, að hún veitir möguleika til ákveðins sveigjanleika. Eins og lögin eru nú, yrði ekki umflúið, að við fráfötlun Johnsons forseta tæki við maður, sem engum dytti í hug að kjósa sem forseta- efni. Ef hin gömlu ákvæði kæmu aftur til framkvæmda, og utanríkisráðherrann ætti að taka við af forseta, en þætti ekki vel fallinn til þess starfa, þá mætti skipa nýj- an utanríkisráðherra. Þetta var gert, þegar Truman vara forseti tók við forsetaemb- ættinu. Utanríkisráóherrann átti þá að vera eftirmaður forseta samkvæmt lögum. Hann var almennt álitinn illa fallinn til starfans. Nokk ur mótmælaalda reis um skeið ,og Tuman forseti skip aði Byrnes utanríkisráðherra. Væri tillaga Eisenhowers tekin til greina, yrði Rusk utanríkisráðherra eftirmað- ur forseta. Á því getur lítill vafi leikið, að framhald á ekki einungis í utanríkismál- um, heldur öllum málum, yrði til stórra muna betur tryggt með viðtöku Rusks en unnt væri að reiða sig á eft- ir valdatöku forseta full- trúadeildarinnar. Þetta á þó alveg sérstaklega við, ef for- seti fatlaðist frá störfum um stundarsakir. F /

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.