Tíminn - 01.03.1964, Blaðsíða 9

Tíminn - 01.03.1964, Blaðsíða 9
rauðglóandi traiserkúlum og sprengikúlum, sem tættust sundur me'ð kolsvörtum reyk og miklum þrýstingi. Ein splundraðist rétt hjá vélinni, ikastaði henni á hliðina. Við héldum að þetta væri búið. En hún flaug. Flugmaðurinn ætlaði fyrst inn yfir Akureyri, en þar hefðu þeir skotið okkur niður, vafalaust. Mörg vopn- uð skip lágu á höfninni og stöðvamar allt í kring, allir höfðu fengið tilkynningu um „þýzkarann“. Við læddumst með veggjum, inn fyrir Súlu tind, og renndum okkur nið- ur á Melgerði. Bretinn tók — Þú varst flugstjóri í fyrsta millilandaflugi Flugfélagsins? — Já, 1945. Mér fannst það ævintýraleg ferð. Við fórum með farþega á Catalínaflugbátn um til Skotlands og Danmerk- ur. í Skotlandi var okkur sagt að fljúga yfir Kiel. Það var í sólskini og bjartviðri, og ég gleymi aldrei þeirri sjón. Borg in var ein rúst og víða á sund Catalina — á þannlg farkosti var millilandaflugið hafið. aði fyrir. Á leiðinni til borgar- innar tókum við upp Lucky Strike-sígarettur og gáfum þeim reyk. Þeir glöddust ákaf- lega mennirnir höfðu víst ekki smakkað almennilegar sígarett ur í áraraðir. Svo gáfum við þeim sin pakkann hverjum, en brezki offíserinn gekk á milli, tíndi af þeim pakkana, fékk okkur þá aftur og sagði, að við skyldum ekki vera að þessu. Svifflugfélagar bera rennifluguna. unum hálfsokkin skip, möstur og reykháfar stóðu upp úr sjónum. Við lentum hjá Luft marinestationen við Kaup- tnannahöfn. Þar lá þýzkur flug bátur við festar, og þýzkir her- menn á þýzkum bát sóttu okk- ur um borð í flugvélina. Þeir voru enn í þýzkum hermanna- búningum með öll merki nema hakakrossinn, og með þeim kom brezkur offíseri, sem skip Flóðhestarnir göptu — Annars er mér fátt minnis stæðara en ferðin með gamia Gullfaxa, þegar við seldum hann til Jóhannesarborgar. Við höfðum tímann fyrir okkur, — máttum fljúga eins og okkur sýndist. Við flugum frá Kaup- mannahöfn til Trípolí, þaðan beint yfir eyðimörkina til Kanó í Nígeríu, vorum þar nótt og flugum svo á ellefu tímum til Livingstone í Rhodesíu- Á leið- inni yfir Kongófljótið kallaði ég flugturninn í Leopoldville og spurði um Þorstein Jóns- son, sem var þá starfsmaður hjá Sabena í Kongó. Mér var sagt að hann væri staddur * Belgíu, en rétt í þessu heyrði ég kallað — Jóhannes, Jóhann- es! Það fannst mér skrýtið yfir Kongó fyrst Þorsteinn var ekki í Leopoldville. — Sá sem ég heyrði í var Kristján Gunnlaugsson, nú flugmaður hjá Birni Pálssyni. Hann var þá líka hjá Sabena, staddur í flugvél skammt frá og heyrði þegar ég spurði um Þorstein. Það var töluð íslenzka yfir Kongó þann daginn. — Við flugum lágt yfir skóginum í björtu veðri og eltum hjarðir af dýrum á stórkostlegum hlaupum. Lengra suðurfrá sá- um við nashyrninga og flóð- hesta, sem göptu upp á okkur. Síðan hálfs mánaðar dvöl í Jó- hannesarborg, þar sem ég þjálf aði tvo flugstjóra hjá Afric Air. Heljarstökk — Og hvað segir þú um flug- vallamálin, Jóhannes? —Mér þykir flugvallamál- um landsins heldur illa farið nú. Hér hefur ekki verið lögð nógu mikil áherzla á að byggja nægilega langar flugbrautir í smærri byggðarlögum, heldur 600 metra brautir, miðað við litlar flugvélar, en það er að mínu viti óheppilegt. Flugið er oft á tíðum erfitt hér og Þarf góð tæki og vana menn til að stunda það með öryggi. Hér þarf tiltölulega stórar og vel ís- varðar flugvélar, en þær krefj- ast meir, en 600 metra brauta. Við erum að taka heljarstökk aftur í tímann. með því að taka litlar flugvélar í þjónustu innanlandsflugsins á löngum leiðum. Eg hef ekkert á móti því að bæta samgöngurnar við dreifbýlið, en það er röng stefna að nota litlar flugvélar til þess. Slík þróun stefnir ekki til meira öryggis, þvert á móti, hún kastar miklu af örygginu fyrir borð. Álftanesið — Hvað á að gera í flugvall- armáli Reykjavíkur? — Erlendir sérfræðingar og hérlend nefnd hafa staðfest, að Keflavíkurflugvöllur er ónot- hæfur sem aðalflugvöllur lands manna. Ástæðurnar eru marg- ar. Það er alltof langt frá Reykjavík til Keflavíkur, veður skilyrði eru þar önnur, og flug samkrull við herinn óæskilegt. Við íslendingar höfum engan flugvöll byggt hér suðvestan lands, en við höfum byggt á- gæta flugvelli á Akureyri, ísa firði, Egilsstöðum og Sauðár- króki. Þá væri ekki mikið þótt við fórnuðum nokkru landrými og fé til að byggja flugvöll í þéttbýlasta landshlutanum. Álftanesið er bezti staðurinn, raunverulega eini staðurinn. sem býður upp á alla þá kosti sem frambúðarvöllur þarf að hafa. — B.Ó. Skýfaxl, Cloudmaster DC-6B, lendlr i Kulusuk á Grsnlandi. Jóhannes er oddamaður f Grænlandsfluginu. Ársþing bandalags félagaí Reykjavík Bandalag æskulýSsfélaga Reykjavíkur hélt nýlega árs- þing sitt í Þjóðleikhúskjallar- anum. Það telur nú 32 aðild- arfélög og mættu þar um 40 fulltrúar. Á þingi þessu ríkti mikill áhugi um félagsmál. samtök og umbæt- ur í skemmtanalífi unga fólksins í borginni, en þau mál hafa verið mjög í molum. Þau málefni, sem mest voru rædd og koma eiga til fram- kvæmda á þessu ári, voru þessi: 1. Halda skal nú þegar í vor ráðstefnu um vandamál æskunnar og leiðir til úrbóta og bjóða þang- að forráðamönnum fræðslu og fé- lagsmála 2. Efnt verði til fjölmenns leið- toganámskeiða þegar á næsta hausti, þar sem skólafólki sé ætl- uð sérstök þátttaka. Framvegis verði efnt til slíkra námskeiða að sumrinu, á ein- hverjum fögrum og friðsælum stað, utar borgarinnar. Tíðkast slík sumarnámskeið mjög t.d. á Norðurlöndum og víðar þar sem félagslíf er blómlegt Hyllist þá unga fólkið til þess að nota hluta af sumarleyfum sínum til þeirra, og gera tvennt í einu: Læra holla félagsháttu og skemmta sér í fal- legu umhverfi. En slík námskeið eru jafnan skipulögð öðrum þræði sem skemmtun. 3. Gefin skal sem fyrst út hand- hæg féiagsmálahandbók fyrir ís- lenzk æskulýðssamtök. Væri þar sjálfsagt að leita samstarfs við önnur æskulýðssamtök t.d. Æ. S.í. og Æskulýðsráð Reykjavíkur. Skyldi slík bók hafa sem flest- ar leiðbeiningar um félög og fé- lagastarfsemi, upplýsingar um skemmtikrafta og skemmtiatriði, leiki, dansa og listamenn, gildi fleira. 4. Halda skal árlega sérstakan æskulýðsdag, þar sem unga fólkið sjálft annaðist leiksýningar, list- sýningar, tónlist, danssýningar og alls konar starfsemi, sem bezt sýndi þroska þess og hugðarefni á hverjum tíma. Enn fremur yrði þá sérstök íþróttakeppni, sem kennd yrði við þennan dag, t.d. í handknattleik og frjálsum íþrótt- um. Þetta yrðu eins konar Olym- píuleikar reykvískrai æsku, þar sem hún sýndi atgervi sitt til lík- ama og sálar undir kjörorðinu: „Fögur sál í hraustum líkama.“ Þar yrðu verðlaun veitt fyrir beztu afrek í myndlist, tónlist, mælsku, framsögn, íþróttum o.s. frv. Helzt kom til orða að velja 1. des. til þessa fagnaðardags æsk- unnar og gefa honum þannig auk- ið gildi sem minningardegi um ís- lenzkt sjálfstæði og þjóðlega end- urreisn. 5. Rætt var um, að skólafélög borgarinnar gengju til samstarfs um árlega skemmtun í Háskóla- bíói, þar sem fram kæmi það bezta, sem sýnt er og gjört á árs- hátíðum skólanna. Væri slik skemmtun ólíkt hollari og meira Framhalo á 15. ilSu. TfMINN, sunnudaglnn 1. marz 1964 9

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.